Dagur - 04.04.1962, Blaðsíða 1

Dagur - 04.04.1962, Blaðsíða 1
K Máu.ac.n Framsóknarma.vna I'R TSTJÓRC lÍRI.TNCUK DAVí'bSSOX Skrhsioi-a i Haknarstr/t;íi 90 Shn 1 HiG . Sktnkwu oo prkntun ANNAST 1’RK.NrVERK OlJlJS BjÓKNSSONAU ll.l'. Akdkkvki »________________________ -i Dagur XLV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 4. apríl 1962 — 16. tbl. r —— Augi.vsinga STJÓR): jÓN S\M' ÚEI.NSON . ÁK CANGORINN KOSIAR KR. i 00.00 . G jAi.»DÁr.r r.K 1 jimí Bi.vom Kr'Mi i t'i Of. A Í'F.UAU As 1 >■ úr a MioviKUpör.-. I.AUOARDÖCU.M ■W>A ÞYKIR 111. Fiium togarar í liöfn Ú. A. búið að segja upp öllu starfsfólki sínu TOGARAVERKFALLIÐ iiefur nú staðið í rúmar þrjár vikur og ekkert útlit fyrir að það leysist næstu vikur. Allir togarar Útgerðarfélags Akureyringa, 5 að tölu, liggja bundnir við Torfunefsbryggjur. Margir hásetar eru þegar komn- ir til Suðurlands, og munu á- hafnir vandfengnar, þótt verk- fallið leystist einhvern daginn, en til þess eru engar líkur, eins og nú horfir, og naumast talast við af samningsaðilum. Það tvennt liggur Ijóst fyrir, að togarasjómenn hafa ekki fengið kjör sín bætt síðustu ár, og togaraútgerðin hefur átt við SKÍÐALANDSGANG- AN f EYJAFIRÐI ÞÁTTTAKA í göngunni í sum- um hreppum sýslunnar er nú orðin meiri en 1957. Gengið var víða nú um helgina þ. á. m. í Hrísey. — Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur ákveðið að gefa tvo bikara til að keppa um innanhéraðs. Annan þeirra hlýt- ur það félag, sem fær mesta þáttttöku hlutfallslega á sinu félagssvæði. Hinn bikarinn fer til þess félags sem sýnir mesta aukningu frá 1957. Mest varð þátttakan 1957 í Öxnadal, þá gengu tæp 60%. mikla erfiðleika að stríða, bæði vegna aflabrests, hárra vaxta og einnig vegna mjög hækkaðs reksturskostnaðar af „viðreisn- ar“-völdum. Ríkisstjórnin hefur enn ekkert til málanna lagt, en fylgjendur hennar-buðu uPP á afnám vökulaganna, sem sjó- menn höfnuðu umsvifalaust. — Engar sáttatillögur hafa komið fram ennþá. Og einhverjir munu lít'a svo á, að togaráflot- inn sé léttari baggi á meðan hann liggur við landfestar, en þegar hann stundar veiðar, að sjálfsögðu er hin mikla atvinnu- bót vegna togaranna þá ekki tekin með í reikninginn. Stjórn Ú.A. fór þess á leit við Sjómannafélagið hér, að athug- aðir yrðu möguleikar á sér- samningum. Sjómannafélagið sá sér ekki fært að ganga til við- ræðna um sérsamninga. Árið 1950 voru sérsamningar gerðir þegar svipað stóð á og öfluðu Akureyrartogararnir mjög mik- ið af karfa á meðan hið almenna verkfall stóð. Eftir að þetta varð ljóst, á- kvað stjórn Ú. A. að segja öllu fastráðnu starfsfólki sínu upp. Uppsagnirnar eru miðaðar við tilskilinn frest samkvæmt samn- ingum. * • Lengstur mun uppsagnarfrest- (Framhald á bls. 7) Margar stúlkur óskuðu fræðslu um hjúkrun og fengu greinargóð svör. (Ljósmynd: E. D.) Góður slarfsfræðsludagur a Akureyri En starfsfræðsluna þarf að auka mikið Á SUNNUDAGINN var þriðji starfsfræðsludagurinn haldinn á Akureyri. Hann sóttu 482, til- sögn var veitt í 96 starfsgrein- um og ýmsir vinnustaðir opnað- ir, svo að fólk gæti fengið að sjá þá og vinnubrögðin þar með eigin augum. Æskulýðsheimili templara sá um allan undirbúning og fram- kvæmd eins og áður og naut í því efni leiðsagnar Ólafs Gunn- sjóvinnunáro FYRIR helgina var fyrsta sjó- vinnunámskeiðinu á Akureyri slitið. Gagnfræðaskóli bæjarins efndi til námskeiðsins og var það sótt af nemendum skólans. En það fói' fram á netaverk- stæði Ú. A. og undir stjórn Björns Baldvinssonar skip- stjóra. En með honum kenndu Helgi Hálfdánarson netagerðar- maður, Bjarni Jóhannesson- skipstjóri, og Þorsteinn Stefáns- son hafnarvörður. — Nemendur voru 23 talsins, námstími 2 mán- uðir. Við námskeiðsslit í Gagn- KARLSEFNI TYNDUR fræðaskólanum flutti Björn Baldvinsson ávarp, Jóhann Frímann skólastj. ræðu og að síðustu talaði Helgi Hálfdánar- son, sem sagði að nemendur hefðu í hvívetna verið sér og skóla sínum til sóma. Nemendur og kennarar eru mjög ánægðir yfir námskeiðinu og skólastjóri lét þess getið, að skóli sinn myndi vinna að því að framhald yrði á þessari fræðslu, þar til hentara þætti að aðrir gerðu það. Færði hann nemendum og kennurum sínar beztu þakkir, svo og öðrum stuðnings- og hvatamönnum. Eflaust hefur sjóvinnunám- skeiðið mikla þýðingu fyrir hina miklu útgerð á Akureyri, sem jafnan þarfnast góðra manna vinnu. arssonar sálfræðings, sem er eins konar „höfundur starfs- fræðslunnar“ hér á landi. Það bar til tíðinda að Björn Stefánsson skólastjóri í Ólafs- firði kom með á fimmta tug ungmenna frá Ólafsfirði í tilefni af starfsfræðsludeginum. Setningarathöfn fór fram í hátíðasal Barnaskóla Akureyr- ar. Þar flutti Eiríkur Sigurðs- son skólastjóri setnlngarræðu, nemendur úr Oddeyrarskólan- um sungu undir stjórn Jakobs Tryggvasonar, séra Pétur Sigur- geirsson flutti ávarp og að síð- ustu talaði Ólafur Gunnarsson. Við þetta tækifæri var eftir- farandi samþykkt samhljóða: „Forustumenn atvinnu- og fræðslumála, samankomnir á starfsfræðsludegi á Akui'eyri þ. 1. apríl 1962, leyfa sér að beina þeirri eindregnu ósk til at- vinnumálaráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að íslenzk æska, hvar sem hún er búsett í landinu, megi verða aðnjótandi starfsfræðslu áður en skyldu- námi hennar lýkur. Við teljum sjálfsagt, að við framtíðarskipulag starfsfræðsl- unnar, verði fullt tillit tekið til fenginnar reynslu hér á landi og þess, sem bezta raun hefur gefið í starfsfræðslu nágranna- þjóðanna. Til þess að sem fyrst verði unnt að hefja starfsfræðsluleið- beiningar í skólum landsins, teljum við nauðsynlegt að koma á starfsfræðslunámskeiði fyrir kennara, og verði þar jöfnum höndum lögð áherzla á hinn fræðilega grundvöll starfs- fræðslunnar og fræðslu um ís- lenzkt atvinnulíf.“ Að þessu loknu hófst starfs- fræðslan og eins og áður segir var liún vel sótt. Til marks um það var hlutfallsleg aðsókn nær tvöfalt meiri en á starfsfræðslu- degi Reykjavíkur næsta sunnu- dag áður. Starfsfræðslan fór fram í 14 stofum skólans. Flestir spurðu um flugmál eins og áður eða um 220 unglingar. Meðal annarra var þarna flugumferðarstjóri og flugfreyja, sem kom frá Reykja- vík. Þá spurðu 120 stúlkur um hjúkrunarstörf, 90 piltar um lögreglu- og umferðarmál. Um Stýrimannaskólann 41 og um ís- (Framhald á bls. 5) REYKJAVÍKURTOGARINN Karjsefni landaði í Þýzkalandi í síðustu viku, og átti þá að koma heim, svo sem aðrir togar- ar, vegna verkfallsins. En fram- kv.stjóri Ragnar Þorsteinsson fór þá utan og fékk skipshöfn- ina til að hefja aðra veiðiferð í algerðu óleyfi. □ Stefán Ág. Kristjánsson, Eirikur Sigurðsson, Jón Kristinsson og Ólafur Gunnarsson í ræðustól. Einn af hverjum 30 STARFSFRÆÐSLUDAGINN í Reykjavík fyrra sunnudag sóttu 2600 manns; eða um það bil einn af hverjum þrjátíu. Það er léleg aðsókn og sýnt hversu lítt menn komast á þennan hátt í snertingu við starfsfræðsluna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.