Dagur - 20.06.1962, Síða 8
8
Þing Sjálfsbjarpr, landssamb. fatlaðra
| VERIÐ DYGGIR ÞJÓNAR ÞESS SMÁA |
i í RÆÐU ÞEIRRI, sem Þórarinn Björnsson, skólameistari, i
E flutti við skólasiit MA hinn 17. júní og sérstaklega var beint \
\ til hinna nýju stúdenta, sagði hann m. a,, að þrennt þyrfti til i
E að vera íslendingur og geta horft með fullri djörfung fram- i
1 an í heiminn: Tunguna, efnahagslegan jöfnuð og alþýðu- \
i menntunina. \
I Hann þakkaði nýstúdentunum fyrir traustleikann. Hópur- |
1 inn væri ekki aðeins stór, og sá stærsti, sem útskrifast hefði i
I frá skólanum, heldur líka sá traustasti, sem minnstar á- i
É hyggjur hefði þurft að hafa af. í þessu sambandi mælti hann \
i m. a. eitthvað á þessa leið: i
: „Því lengur, sem ég er í skólastarfi, því meira virði ég 1
i traustleikann og því minna met ég gáfur og hæfileika, ef i
i ekki fylgir traustleikinn.“ i
= Á öðrum stað í ræðunni fórust skólameistara svo orð: |
„Vandi nútímans, sem er tími hinna miklu möguleika, i
i verður vandi valsins. Áður var það fábreytnin, sem gerði É
i örðugt fyrir. Nú er það fjölbreytnin, sem veldur erfiðleik- i
i um. í þessu ærast og ruglast margir ungir menn. Vandi vals- 1
i ins er líka vandi þjóðanna. Því að hin miklu viðskipti þjóð- !
i anna, menningarleg og efnahagsleg, eru sama vanda háð, en i
i íslendingar verða að taka þátt í þessum margvíslegu sam- i
i skiptum.“ |
| Lokaorð skólameistara voru á þessa leið: i
„Og að síðustu þetta, góðir stúdentar: Það verður enginn \
\ mikill, nema hann þjóni einhverju, sem er meira en hann i
i sjálfur. Sú stofnun eða byggð, sem við þjónum, á að njóta i
É góðs af getu okkar og kunnáttu. f
i Ef stofnanir þjóðarinnar og byggðir blómgast, vex þjóðin, i
i og heimurinn vex, ef þjóðir heimsins vaxa. Þannig verðum i
É við að byrja á því smærra, til þess að ná til þess að vaxa til i
i hins stærra. i
Alþjóðrækni er hverjum manni of stór, segir hinn vitri St. i
i G. En nú erum við öll á leiðinni að verða alheimsborgarar. i
É Við því verður ekki spornað, og til alþjóðrækninnar getum \
\ við aðeins vaxið gegn um auðmjúka þjónustu við það, sem i
= við náum til og ráðum við — við það, sem er íslenzkast og \
\ bezt í eðli okkar sjálfra. . \
i Megið þið allir, ungir stúdentar, verða dyggir þjónar hins i
! smáa, svo að þið vaxið til hins stærra. — Megið þið verða í
i traustir íslendingar og um leið nýtir þegnar þess nýja heims, i
i sem nú er í sköpun.“ i
,lllllllllllllllllll|l|llllllllllllll(lllllllllllllllllll|||||||||||||||||||||||||||||||||l|||||||l|||||||||||l|l||l|||ll|ll|||||,
TVEIM ÖLÓÐUM BJARGAÐ ÚR HÖFNINNI
FJÓRÐA ársþing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, var
haldið á ísafirði 2. júní sl. — 30
fulltrúar mættu frá 9 sambands-
deildum.
Sambandið á nú um 530 þús.
kr. skuldlausa eign.
Útdráttur úr samþykktum IV.
þings Sjálfsþjargar:
Atvinnumál.
Þingið samþykkti að leggja á-
herzlu á, að þeim vinnustofum,
sem þegar hafa tekið til starfa,
verði tryggður starfsgrundvöll-
ur. Þingið leggur á það sérstaka
áherzlu, að atvinnuútvegun Or-
yrkjabandalagsins nái jafnt til
allra landshluta, enda gert ráð
fyrir að Sjálfsbjargarfél. veiti
bandalaginu aðstoð til þess. Þá
samþykkti þingið að ráða leið-
beinanda í tómstundavinnu, og
dveljist hann 2—4 vikur á
hverjum stað.
Farartækjamál.
Fjórða þing Sjálfsbjargar
leggur áherzlu á eftirfarandi í
farartækjamálum: a. Samin
verði reglugerð um úhtlutun
bifreiða til öryrkja. b. Kosin
verði þegar á þessu þingi milli-
þinganefnd, til að semja slíka
reglugerð. c. Eftirgefin aðflutn-
ingsgjöld afskrifist á fimm ár-
um. d. Eftirgjöfin hækki í sam-
ræmi við hækkað verðlag. e.
Flugfargjöidin
FLUGFÉLAG ÍSLANDS tók
nýlega á leigu í Bandaríkjunum
48 sæta „SKYMASTER" flug-
vél til innanlandsflugs í sumar.
Flugvélin hóf ferðir á milli
Reykjavíkur og Akureyrar og
Reykjavíkur og Egilsstaða 1.
maí sl„ svo og á milli Akureyr-
ar og Egilsstaða.
MEÐ hingaðkomu þessarar
flugvélar, sem býður upp á
meira burðarmagn og meiri
þægindi en þær flugvélar, sem
notaðar hafa verið á þessum
flugleiðum hingað tiþhafa flutn-
ingar stóraukizt þennan tíma,
sem hún hefur verið í notkun.
Það, ásamt hagkvæmum rekstri
þessarai' flugvélar, hefur leitt til
þess, að félagið hefur nú ákveð-
ið að gefa fólki kost á sérstök-
um afslætti frá núverandi far-
gjöldum á framangreindum
flugleiðum á tímabilinu frá 1.
júní til 30. september næstk.
Afsláttur þessi nemur 25%
frá núverandi einmiðagjaldi, og
verða þessi sumarfargjöld því
sem hér greinir:
1. Rvík—Akureyri—Rvík kr.
750.00, 2. Rvík—Egilsstaðir—
Rvík kr. 1.065.00, 3. Akureyri—
Egilsstaðir-Akureyri kr. 580.00.
Fargjöld þessi eru háð eftir-
farandi skilyrðum:
1. Að keyptur sé tvímiði og
hann notaður báðar leiðir. -— 2.
Farseðlar, sem gefnir eru út
með þessu gjaldi gilda í 1 mán-
uð frá því að fyrri helmingur
hans er notaður.
Öryrkjar hafi frjálst val til bif-
reiðakaupa, en ekki bundið á-
kveðnum tegundum, sem í
mörgum tilfellum henta alls
ekki. f. Mótorhjól með einu eða
tveim sætum og hjálpartæki í
bifreiðir, verði styrkt á sama
hátt og hjólastólar.
Tryggingamál.
Þingið lýsti ánægju sinni yfir
framkomnum tillögum,ei' nefnd
skipuð á síðasta þingi Sjálfs-
bjargar lagði fyrir nefnd þá, er
sér um heildarendurskoðun lög-
gjafarinnai'. Þingið skorar á fé-
FYRIR skömmu sagði Dagur
frá skólaslitum G. A. Höfðu
nokkrar villur slæðzt inn í
greinina. Sagt var, að allir nem-
endur sjóvinnunámskeiðsins
hefðu verið úr 4. bekk, en þar
vor ueinnig nokkrir úr 3. bekk
■llllllIII1111111111111IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllIIlllll !•
kemur út á laugardaginn, 23.
júní. — Auglýsingahandrit
þurfa að berast fyrir hádegi á
föstudag. Ýmislegt efni bíður
birtingar, sumt aðsent og eru
greinarhöfundar beðnir vel-
virðingar á því.
lækka hjá F. í.
Frá 1. júní taka líka gildi „á-
framhaldsfargjöld“, sem koma
sér vel fyrir farþega, sem t. d.
þurfa að fara á milli ísafjarðar
og Akureyrar, eða Vestmanna-
eyja og Akureyrar.
Frá vorprófum í
Laugaskóla
VORPRÓFUM í Laugaskóla
lauk hinn 30. maí síðastliðinn.
Þá um kvöldið afhenti skóla-
stjóri brautskráðum nemendum
gagnfræðadeildar eða 3. bekkj-
ar prófskírteini sín og kvaddi þá
með ræðu. 31 nemandi úr deild-
inni gekk undir próf í vor. 11
þeirra þreyttu landspróf og
fengu allir framhaldseinkunn,
yfir 6.00 að meðaltali, en 20
gengu undir gagnfræðapróf og
stóðust það allir.
Hæstu meðaleinkunn í lands-
prófsgreinum hlaut Höskuldur
Þráinsson, Skjólbrekku, Mý-
vatnssveit, 9.57. Er það þezti ár-
angur, sem náðst hefur í lands-
prófi við skólann. Hann hlaut
einnig hoestu meðaleinkunn úr
öllum námsgreinum, 9.47.
Annar varð Völundur Jóns-
son, Víðivöllum, Fnjóskadal,
meðaleinkunn landsprófs 9.00,
úr öllum námsgreinum 8.87.
Þriðji Jón Baldur Guðlaugs-
lagsmálaráðuneytið, að það
hlutist til um, að ortopetiskur
skósmiður og gervilimasmiður
ferðist um landið á vegum hins
opinbera, samanber ferðiraugn-
lækna. Þá leggur þingið áherzlu
á, að allir öryrkjar, sem nota
gervilimi, umbúðir eða önnur
hjálpartæki, eigi rétí á aðstoð
samkvæmt lögum nr. 78, 1936,
án tillits til tekna. Þingið lýtur
svo á, að brýn nauðsyn sé, að
sett verði lög um endurhæf-
ingu öryrkja, og bendir á sams
konar löggjöf, er sett var í Dan-
mörku 29. apríl 1960. [j]
og einn úr 2. bekk. Hæstu eink-
unn í verknámsdeild á gagn-
fræðaprófi hlaut Katrín Frið-
riksdóttir I. eink. 7.87, en Hjálm-
ar Björnsson næst hæstu eink.
— Hæstu einkunn í skólanum
hlaut Anna Hudadóttir í 2.
bekk, I. eink. 8.75.
Til viðbótar er rétt að taka
fram: Verðlaun Búnaðarbank-
ans á Akureyri hlaut Brynjar I.
Skaftason fyrir beztu úrlausnir
í stærðfræði og eðlisfræði á
landsprófi.
Landspróf stóðust 34 nemend-
ur af 40. Þar af hlutu 25 fram-
haldseinkunn, þ. e. yfir lág-
markseinkunn til framhalds-
náms í menntaskóla. Hæstu
eink. hlaut Sigurður G. Ingv-
arsson, I. eink. 7.66.
Verðlaun Rotaryklúbbsins á
Akureyri hlutu Katrín Friðriks-
dóttir, Ragnar Eiríksson og Vil-
hjálmur I. Árnason fyrir bezt-
ar ritgerðir, er báru heitið:
„Hvernig þjónum vér landi
voru bezt?“
son, Reykjavík, meðaleinkunn
landsprófsgreina 8.60, úr öllum
námsgreinum 8.42.
Ólafur Vagnsson, Hriflu,
Ljósavatnsskarði, hlaut meðal-
einkunn landsprófs 8.39, úr öll-
um námsgreinum 8.61.
Hæstu einkunn við gagn-
fræðapróf, 8.15, hlaut Þorbjöi’n
Sigvaldason, Grund, Langanesi.
Við þetta sama tækifæri heim-
sóttu skólann margir nemend-
ur, sem brautskráðust fyrir 10
árum og færðu honum lit-
skuggamyndir og fleiri kennslu-
tæki að gjöf.
Sunnudaginn 3. júní héldu svo
brautskráðir nemendur af stað í
skemmtiferð til Reykjavíkur og
Suðurlands.
Óhreysti í búfénaði
Svarfaðardal, 17. júní. Hér hef-
ur verið versta veður undan-
farna daga. Norðan stórviðri og
rigning. Snjókoma til fjalla og
nú er hvítt niður í miðjar hlíð-
ar. Suma dagana Jiefur ekki
verið hægt að hafa kýr úti,
AÐFARANÓTT 17. júní steypti
ölóður maður sér í höfnina á
Akureyri. Lögreglan dró hann
upp Úl'.
Næsta kvöld gekk annar öl-
vegna kulda og illviðris. Hitinn
farið niður í 3° um hádeginn.
Enn er mikil óhreysti í búfén-
aði. Á einum bæ drápust ný-
lega þrjár kýr úr kúakólerunni,
eða afleiðingum hennar. Og enn
ber á veikindum í lömbum, þó
þau séu orðin mánaðargömul
eða meir.
Nokkuð ber á túnkali, eink-
um á nýræktum.
Grasspretta er enn mjög rýr
og lítur ekki út fyrir að sláttur
hefjist snemma að þessu sinni.
□
Skriðuföll og land-
spjöll í Hörgárdal
FÁDÆMA vatnsveður gekk yf-
ir Norðurland 13. til 15. júní sl.
— Olli það skriðuföllum og
skemmdum á engjum, túni og
girðingum í Sörlatungu í Hörg-
árdal.
Fremst í Sörlatungulandi í ut-
anverðum Barkárdal vestan ár,
féllu tvær skriður að kvöldi
hins 14. þ. m. Urðu skriðuföll
óður maður í sjóinn, en sjómenn
björguðu honum. — Báðir eru
menn þessir ungir Akureyring-
ar. Hvorugum varð meint af
volkinu. □
þessi úr hjalla, sem er á milli
Hafrár að norðan og Féeggs-
staðaár að sunnan. Hjalli þessi
er ekki mjög brattur en víða
sundur skorinn af giljum og
grafningum.
Óvenjumikill vatnsflaumur
mun hafa valdið því, að jarð-
vegurinn sprakk fram efst í
tveimur giljum við hjallabrún.
Önnur skriðan, hin stærri, tók
af hagaspildu og hluta túns, svo
og girðingu um það hjalla meg-
in. Var tún þetta ræktað fyrir
nokkium árum, þar sem fyrrum
hafði verið afbýli frá Sörla-
tungu og talið er, eftir gömlum
lieimildum, að hafi heitið Oddu-
gerði. Hin skriðan tók af engja-
spildu góða. Auk þessa eyði-
lögðu skriðurnar vörzlugirð-
inguna á tveimur köflum.
Mjög er hætt við, að kindur
hafi farizt í skriðunum, þar eð
þær hömuðu sig í giljum og
lægðum meðan mesta hrakviðr-
ið gekk yfir. Ekki er vitaðí að
stórfelldar skriður hafi áður
fallið á þessum slóðum.
G. S. H.
Frá Gagnfræðaskólanum