Dagur - 22.09.1962, Side 1
MÁI.GAGN Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingor Davíijsson
Skrifstoi a í Hai narstræti 90
Sími 1166. Sf.tningo og prenton
annast Prentverk Odos
liJÖRNSSOfJAR H.F., AkOREYRI
s___;______________í__________-
” --------------------------—'
Auglýsingastjóri Jón Sam-
ÓF.LSSON . ÁRGANGORINN KOSTAR
KR. 120.00. GjALDDACl ER 1. JÚLÍ
BlAÐID KEMUR ÚT Á MHJVIKUDÖG-
OM OG Á LAOGARDÖGOM,
ÞEGAR ÁSIXDA ÞYKIR TIL
.______________________________>
Á SUNNUDAGINN kemur er
fj áröflunardagur Sj álfsbj argar-
félaganna um land allt, hinn 5.
í röðinni. Svo sem kunnugt er,
i Fimm Akureyringar \
| keppa erlendis
KNATTSPYRNUFÉL. ÞRÓTT-
UR í Reykjavík er á förum til
Skotlands í keppnisferð í knatt-
spyrnu. Það styrkti lið sitt með
góðum knattspyrnumönnum frá
Akureyri. Akureyringarnir fóru
héðan í fyrrakvöld og eru þeir
þessir: Jón Stefánsson, Stein-
grímur Björnsson, Skúli Ágústs-
son, Jakob Jakobsson og Guðni
Jónsson. Þeir hafa allir, nema
Guðai, vertð valdir til að leika í
lauislöikjum á undanförnum
árum. Og einn þeirra, Stein-
grímur, er markahæsti einstakl-
ingurinn í fyrstu deildar keppn-
inni í sumar. □
er tilgangur þeirra og markmið
að vinna að framgangi hverra
þeirra mála, er að því geta mið-
að á einn eða annan hátt að
létta fötluðu fólki lífsbaráttuna
og gera því fært að nýta krafta
sína, andlega sem líkamlega, til
jafns við þá, sem heilir ganga
til skógar.
Hér í ■ bæ hefur Sjálfsbjörg
lyft Grettistaki með byggingu
myndarlegs félagsheimilis og er
nú að reisa viðbyggingu við það,
þar sem verða eiga vinnustofur,
en knýjandi er, að hér verði
komið á fót vinnuheimili, þar
sem öryrkjum, er nokkra starfs-
orku hafa, en þó ekki næga til
að geta sótt hinn almenna vinnu-
markað, geta fengið aðstöðu til
vinnu og verðmætissköpunár.
Á sunnudaginn verða merki
Sjálfsbjargar boðin til kaups
um allan bæ, og er þess að
vænta, að bæjarbúar taki vel á
móti sölufólkinu og styrki sem
Framhald á bls. 7.
íslendingar framleiða minka-
fóður úr Ijúffengasta fiski
Helmingur mannkynsins býr við fæðuskort
ÞRÁTT fyrir allar framfarir og vísindi býr helmingur alls
mannkyns við meiri og minni fæðuskort. Þúsundir og jafn-
vel milljónir manna deyja árlega úr beinu hungri eða af
fylgikvillum næringarskortsins.
fslendingar eru miklir veiðimenn. Þeir veiddu í sumar
milljónir mála og tunna af liafsíld, sem áreiðanlega er einn
ljúffengasti og næringarefnaríkasti fiskur, er í söltu vatni
veiðist. Aðeins nokkur liluti þessa afla er nýttur til mann-
eldis. Síldinni er þá hrúgað niður í tunnur ásamt salti. Öll
önnur síld, eða megnið af öllum síldarafla suinarvertíðarinn-
ar, er látið úldna um horð í skipunum, síðan er síldin látin
úldna ennbá meira í síldarþróm í landi, eftir það er hún unn-
in í síldarverksmiðjunum og framleitt úr henni loðdýrafóð-
ur, áburður og íirálýsi til iðnaðar.
Þessi meðferð á óendanlega verðmætum afla er smánar-
hlettur, sem síðari kynslóðir munu bera kinnroða fyrir.
Nýja sláttu-þreskivélin við kornskurðinn á Öxarárökrum í Bárðardal.
Kor ns kurá
(Ljósm. E. D.)
urourinn
Byggið linþroskað, enda sumarið mjög kalt
ÞÓTT heyönnum sé nú um það
bil lokið á rúmlega 600 bænda-
býlum landsins og hjá öðrum,
er einhvern búskap stunda, er
uppskeruvinnu ekki lokið, því
að enn er megin hluti kartafln-
anna í moldinni og kornskurð-
urinn er rétt að hefjast. Korn-
ræktin er gömul atvinnugrein á
íslandi, en lagðist niður í marg-
ar aldir, allt til þess er Klem-
enz á Sámsstöðum hafði sýnt
það í nokkra áratugi, að bygg
og fleiri korntegundir geta
þrifizt hér á landi nú, ekkert
síður en til forna. Og nú á allra
síðustu árum hafa fyrst verið
fluttar inn sæmilegar korn-
skurðar- og þreskivélar til að
létta störfin við kornskurðinn,
hina nýju grein ræktunarinnar,
sem margir binda svo miklar
vonir við allra síðustu árin.
Síðasta ár var fyrsta raun-
verulega kornræktarárið í sögu
hinnar endurvöktu búgreinar
hér á landi. Þá var bygg ræktað
í um 500 hekturum lands sunn-
anlands og austan. En sama ác
stofnuðu þingeyskir bændur í
Bárðardal, Reykjadal og Kinn
kornræktarfélag, brutu land á
Öxará og í Reykjadal, um 60 ha.
samtals og sáðu þar byggi í vor.
Þar er uppskeruvinna hafin.
Fengin var ensk komskurðar-
vél, sem bæði slær kornið og
þreskir, og skilar því í korn-
geymi, sem tekur um eitt tonn.
Greiða sláttuvélarinnar er 6 fet
og getur slátturinn því gengið
greiðlega á góðu landi, þegar
byggið stendur vel og er sæmi-
lega þurrt. Sláttuþreskivélina
dregur Fordson Major dráttar-
(Framhald á bls. 7.)
Kaupstaðaráðstefna
■'yrsta komið losað á vörubíl, er síðar flytur það til þurrkunar og mölunar.
(Ljósm. E. D.)
FULLTRÚ AFUNDUR kaup-
staðanna á Norður-, Austur- og
Vesturlandi var haldinn á Húsa-
vík dagana 17.—19. sept. síðast-
liðinn. Mættir voru 20 fulltrúar.
Jóhann Hermannsson, forseti
bæjarstjórnar Húsavíkur, var
fundarstjóri. Gerðar voru marg-
ar samþykktir um tekjustofna
sveitarfélaga, m.a. að ríkið kost-
aði viðhald á þjóðvegum gegn-
um bæi. Ennfremur var lagt til,
að 25% af benzín- og bifreiða-
sköttum gengi til gatnagerðar í
þorpum og bæjum, að stofnað
verði bankaútibú í hverjum
bæ, að Eimskipafélag íslands
taki upp beinar siglingar á hafn-
ir út um land, komið verði upp
tunnuverksmiðjum á Norður-
og Austurlandi. Samþykkt var
ályktun þess efnis, að breyta
raforkulögunum á þann veg, að
einstökum bæjarfél. og byggð-
arlögum sé heimilt að byggja
virkjanir.
Verksmið juhverf i
ÞESSA daga er verið að mæla
fyrir væntanlegum mannvirkj-
um í sambandi við kísilgúrverk-
smiðjuna í Mývatnssveit í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Q
Bæjarstjórn Húsavíkur bauð
fulltrúunum í skemmtiferð um
héraðið að fundi loknum.
Næstu stjórn samtakanna
skipa: Ásgrímur Hartmannsson,
Ólafsfirði, formaður, Bjarni
Þórðarson, Neskaupstað, ritari,
Gunnþór Björnsson, Seyðisfirði,
gjaldkeri. Næsti fundur samtak-
anna verður haldinn í Ólafsfirði
árið 1964. □
| NÝJAR VÉLAR |
I AUKIN ATVINNA I
f VERIÐ er að setja upp nýjar ;
I og afkastamiklar vélar í Ull- j
j arverksmiðjunni Gefjunni.
j Munu þær gera verksmiðj- I
j unni kleift að mæta verulega j
j hinni gífurlegu eftirspum — :
j innlendri og erlendri — á j
jj hinum eftirsóttu Gefjunar- :
j vörum.
j Hinar nýju vélar veita :
j einnig mörgu fólki atvinnu :
j til viðbótar.
I Nánar verður sagt frá þess- :
I um aukna vélakosti síðar, og j
j þeim breytingum á fram- j
j leiðslu verksmiðjunnar, sem
j þær valda.