Dagur - 22.09.1962, Side 8
s
Tunnur fluttar frá Akureyri siðastliöið sumar.
Úfigöngufé á afréff Bárðdælinga
Átta punda lax veiddist í Svartá
SAMKVÆMT umsögn frétta-
ritara Dags í Bárðardal, Þórólfs
Jónssonar í Stórutungu, var
sumarið óhagstætt. Tún spruttu
bæði seint og illa og tilbúinn á-
burður notaðist verr en vonir
stóðu til. Súgþurrkun og annar
vélakostur bjargaði bændum að
nokkru.
Fyrstu göngum er lokið og
hrepptu menn kuldaveður. Ur
Vestur-afrétt kom útigengin ær
með dilk og var hún frá Ingj-
aldsstöðum. Með henni var vet-
urgamall hrútur frá Bólstað,
einnig útigenginn. Kindurnar
hafa í vor verið vel fram gengn-
ar, að því bezt varð séð. En þó
voru framtennur hrútsins mjög
molnaðar, sennilega af því að
skafa skófir og mosa af steinum.
Ærin er tveggja vetra gömul.
Hún kom ekki til rúning í fyrra-
vor og er því í tveim reyfum.
Veturgömul ær frá Bólstað, úti-
gengin, heimtist einnig í þessum
göngum. — Fé þetta mun hafa
gengið af sunnan Kiðagils, en
þær fundust í svokölluðu Vega-
skarði. Þar tekur að styttast til
Sprengisands.
Og enn heimtist lamblaus
tvævetla, útigengin, og var hún
frá Stóruvöllum. Hún hvarf eft-
ir göngur í fyrrahaust.
Fulltrúar á Alþýðu-
sambandsþing
í sumar veiddist 8 punda lax
í Svartá. Lax gengur upp í
Skjálfandafljót, allt fram í
Skipapoll. Þaðan kemst hann
eftir Fossselskvisl, þegar vöxt-
ur er í henni á þeim tíma er
laxinn gengur. Vitað er um, að
lax hafi veiðst framarlega í
Skjálfandafljóti. Auðvelt er tal-
ið að bæta laxaleið í Fosssels-
kvísl. Ef það tækist, að fá lax-
inn fram eftir Skjálfandafljóti,
yrði Svartá álitleg veiðiá, fram
að fossi þar. En þeirri hindrun
mætti eflaust ryðja úr vegi og
gera ána alla að góðri laxveiðiá.
Byggingaframkvæmdir eru
þessar helztar: íbúðarhús er
byggt í Lundarbreklcu, nýbýli,
stofnendur Baldur Sigurðsson
og Amalía Jónsdóttir. Byggt er
fjós á Rauðafelli, sem er nýbýli,
fjós yfir 20 gripi á Stóruvöllum
(Framhald á 2. síðu.)
Úr Árnarneshreppi
Arnarneshreppi, 19. sept. Verið
er að byggja viðbót við íbúðar-
húsið á Þrastarhóli. íbúðarhús
er í byggingu á Hofteigi. — Á
Syðri-Reistará er verið að
hyggja 30 kúa fjós og hlöðu. —
Þetta eru helztu byggingarfram-
kvæmdir í hreppnum á þessu
Utflutniiigsverðmæti sumar-
síldarinnar 800 milljónir kr.
Meðalaflinn á skip 10.600 mál og tn. Meðalhásetahlutur 60 þús. kr.
SUMARSÍLDVEIÐIN fyrir norðan land og
austan er lokið. Meiri afli barst á land en
nokkru sinni áður. — íslendingar hafa tekið
tæknina í þjónustu síldveiðanna meira en
<t> nokkur önnur þjóð. Kraftblökkin er ljóst
dæmi um það. Án fullkominnar leitartækja
hefði síldaraflinn ekki orðið mjög mikill.
Hér fer á eftir samandregið yfirlit um nokk-
ur helztu atriði sumarsíldveiðanna:
1. Síldveiðiskipin voru 224 talsins. Þorri
skipanna var með kraftblökk og talið er, að
öll skipin liafi haft síldarleitartæki, mörg af
þeim sjálfleitandi. — Fyrsta síldin veiddist
20. júní.
2. í bræðslu var landað úr veiðiskipum og
flutningaskipum 1.955.515 málum af síld, þar
af úr flutningaskipum a. ín. k. 200.000 málum.
Auk þess má gizka á, að úrgangur frá síldar-
söltunarstöðvum hafi verið um 160.000 mál.
Til Suðurlands voru flutt 64.000 mál í bræðslu
og tæp 50.000 mál til Hjalteyrar og Krossa-
ness, með sérstökum sildarflutningaskipum.
— Ennfremur nokkurt magn á þann hátt til
Raufarhafnar og Siglufjarðar.
3. Saltaðar voru 375.429 tunnur, uppsalt-
aðar.
4. Frystar voru 39.122 tunnur, einkum til
heitu.
5. Landað var samtals 2.370.066 málum og
tunnum. Síldarmál er talið fara í uppsaltaða
tunnu. í fyrra var sildaraflinn 1.557.000 mál
og tunnur. Saltaðar voru 364.000 tunnur.
6. Meðalafli á skip varð að þessu sinni
10.600 mál og tunnur.
53 veiðiskip öfluðu 10—15 þúsund mál og
íunnur.
36 skip veiddu 15—20 þús. mál og tunnur.
22 skip veiddu 20—25 þús. mál og tunnur.
3 skip veiddu 25—30 þús. mál og tunnur.
3 skip veiddu yfir 30 þús. mál og tunnur.
Aðeins 6 skip veiddu innan við 3000, þar af
2 undir 2000 og 1 undir 1000 mál og tunnur.
7. Síldarverðið til skipanna var sem hér
scgir: Fyrir mál í bræðslu kr. 145.00. Fyrir
mál í bræðslu í flutningaskip kr. 131.00. Fyrir
uppsaltaða tunnu kr. 298.00. Fyrir uppmælda
tunnu kr. 220.00 og sama verð fyrir uppmælda
tunnu í frost.
8. Saltað var á 21 stað í sumar. Siglufjörð-
ur var hæsti söltunarstaðurinn með 116 þús.
tunnur, Raufarhöfn nálega 78 þús., Seyðis-
fjörður rúmlega 49 þús., Neskaupstaður nál.
25 þús., Dalvík rúinlega 15 þús., Ólafsfjörður
rúnilega 13 þús., Vopnafjörður rúmlega 13
þús., Eskifjörður rúmlega 11 þús., Reyðar-
fjörður nál. 11 þús. og Húsavík rúmlega 10
þúsund tunnur.
9. Brætt var á 16 stöðum, mest á Siglufirði,
664 þús. mál, á Raufarhöfn 333 þús., á Vopna-
firði 217 þús., í Neskaupstað 202 þús., í
Krossanesi og á Hjalteyri 189 þús., á Seyðis-
firði 80 þús., á Fáskrúðsfirði 56 þús. og á
Eskifirði 47 þúsund mál.
10. Hásetahlutur er að þessu sinni talinn
vera, ef gert er ráð fyrir 35% af afla og 6%
orlof, ekki langt frá 60.000.00 krónum.
11. Löndunarverðmæti aflans í heild er um
það bil 400 milljónir króna.
12. Löndunarverðmæti á skip er liér um
hil 1.750.000.00 krónur.
13. Útflutningsverðmæti aflans (nema freð-
sildar) er talinn vera a. m. k. 800 milljónir
króna miðað við núverandi gengi.
Árið 1961 nam allur útflutningur landsins
3244.6 milljónum króna, miðað ,yið núverandi
gengi.
.......'.*K
Ililllilll
landi á Þelamörk. Yfirsmiður er
Ingólfur Jónsson. Skólinn er
byggður fyrir þrjá hreppa, og
er áætlað að hann verði tekinn
til notkunar að hausti.
Frá Húsavík
Húsavík, 20. sept. Slátrun hófst
hér mánudaginn 17. september
sl. hjá Kaupfélagi Þingeyinga.
Tala sláturfjár er áætluð 40
þús. og er það 3 þús. fleira en í
fýrra. í Flatey og á Ófeigsstöð-
um verður lógað 6 þúsund fjár.
Hin áætlaða sláturfjártala gef-
ur ekki til kynna, að bændur
ætli að fækka á fóðrum að þessu
sinni. Þó má búast við, að ein-
hverjir bændur verði, vegna
fóðurskorts, að lóga fleiru en
ætlað var.
Sjö bátar frá Húsavík stund-
uðu síldveiðar í sumar. Mestan
afla fékk Helgi Flóventsson, um
25.300 mál og tunnur. Náttfari
fékk 17.500 mál og tunnur. Við
veiði hans er það athyglisvert,
að hann byrjaði ekki fyrr en
Framhald á bls. 7.
FRÁ Akureyri mæta þessir full-
trúar á 28. þing Alþýðusam-
bands íslands:
Fyrir Verkamannafélag Ak-
ureyrarkaupstaðar Björn Jóns-
son, Haraldur Þorvaldsson, Loft-
ur Meldal, Þórir Daníelsson og
Björn Gunnlaugsson.
Fyrir Verkakvennafél. Ein-
ingu: Margrét Magnúsdóttir,
Jónína Jónsdóttir og Freyja Ei-
ríksdóttir.
Fyrir Bílstjórafélag Akureyr-
ar: Jón B. Rögnvaldsson.
Fyrir Iðju, félag verksmiðju-
fólks: Arnfinnur Arnfinnsson,
Jón Ingimarsson, Hallgrímur
Jónsson, Ingiberg Jóhannesson,
Sigurður Karlsson, Hjörleifur
Hafliðason og Kjartan Sumai'-
liðason.
Eftir er að kjósa í Sjómanna-
félagi Akureyrar, Félagi járn-
iðnaðrmanna og Félagi verzlun-
ax'- og skrifstofufólks. □
ári.
í Skriðuhreppi er haldið á-
fram við byggingu íbúðarhúss
að Lönguhlíð, sem hefur verið í
eyði síðustu árin, og fjáx'hús á
að byggja þar í haust.
Heyskapur mun neðan við
meðallag til jafnaðai'. Ræktun-
arframkvæmdir eru með minna
móti í ár. Ræktunai-samband
Arnarnes- og Árskógshrepps
fékk í sumar nýja enska jarð-
ýtu, svipaða á stærð og TD 9.
Með henni hefur verið unnið á
Árskógsströnd seinni partinn í
sumar. •
Göngum var frestað í Skriðu-
hreppi, Oxnadal og Glæsibæjar-
hi-eppi, m. a. vegna þess, að
heyskap váx- víða elcki alveg
lokið.
Kartöflquppskera er fiemur
rýr.
Stöðugt er unnið við heima-
vistarbarnaskólann á Lauga-
SÝNDIR voru á Akui'eyrai'há-
tíðinni liátíðabúningar kvenna
frá nokkrum tímabilum.
Elztur er krókfaldurinn, 100
ára gamall — lengst til vinsti'i,
þá er skautbúningur (kirtill),
síðan nútímakjólar er tvær ung-
ar konur bera, þar næst nýtt
brúðarskart, þá samkvæmis-
kjóll fi'á 1920, skautbúningur
(samfella), nútímakjóll og
peysuföt frá 1880.
Konurnar, sem búningana
bera, eru: Fi-á vinstri: Ragn-
hildur Steingrímsdóttir, Rósa
Jóhannesdóttir, Inga Lóa Har-
aldsdóttir, Ragnheiður Heiðreks-
dóttir, Laufey Þorbjarnardóttir
(í brúðarkjólnum, sem hún
gifti sig í tveim dögum áður),
Hervör Ásgrímsdóttir, Anna
Björnsdóttir, Friðrikka Jakobs-
dóttir og Þóx-halla Þorsteins-
dóttii'. — (Ljósm. G. P. K.)