Dagur - 05.01.1963, Qupperneq 1
Málgagn Kramsóknarmanna
RJítstjóki: Erungijr Davíðsson
Skrifstofa í Hafnarstkæti 90
Sími 1166. Sf.t.ningu og prf.ntun
ANNAST PRENTVERK OllDS
Björnssonar h.f., Akureyri
V---------------------------
XLVI. árgangur — Akureyri, laugardaginn 5. janúar 1963 — 1. tbl.
....
Auglýsingastjóri Jón Sam-
úf.lsson . Argangurinn kostar
kk. 120.00. Gjalddagi F.K 1. JÚLÍ
BlaÐID KEMUR ÚT Á MIDVIKUDÖG- .
UM OC Á I.AUGARDÖGl’M,
ÞEGAK ÁSTÆÐA ÞYKIK TIL
V__________:__:________________§
Nýr norðlenzkur söngvari
Róleg jól og áramót á Akureyri
Tuttimi brennur í bænum á gamlárskvöld
MILLI jóla og nýjárs kvaddi
ungur svaifdælskur tenorsöng-
vari sér hljóðs á Akureyri með
söngskemmun í Borgarbíói, og
með aðstoð Guðrúnar Kristins-
dóttur píanóleikara. Söngvar-
inn heitin Gestur Guðmunds-
son, frá Karlsá á Upsaströnd.
Foreldrar hans eru Guðmund
ur Guðmundsson og Sigurbjörg
Hjörleifsdóttir, er lengi bjuggu
í Gullbringu í Svarfaðardal, en
búa nú á Karlsá og eiga þau 13
börn. Ekki mun auður hafa ver-
ið í búi á meðan börnin voru
BANASLYS URÐU
Á AUSTURLANDI
HINN 29. desember varð bana-
slys á Vopnafirði. Agnar Ing-
ólfsson loftskoytamaður á Arn-
arfelli féll í sjóinn, milli skips
og bryggju. Náðist hann strax,
en var þá látinn.
Annan jóladag lézt í fanga-
klefa á Seyðisfirði ungur mað-
ur að nafni Magnús Ólafsson.
Kafnaði hann í reyk og hafði
hann sjálfur kveikt í. Hann var
settur í fangageymsluna vegna
ölvunar.
Þá týndist maður á Reyðar-
firði. Sást síðast á nýjársdag, er
hann fór fró borði úr Helgafelli,
sem þá var á Reyðarfirði. Mað-
ur þessi heitir Hreinn Ágústs-
son. □
Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI
FÓRUST 55 MENN
Á LIÐNU ÁRI fórust 55 manns.
35 drukknuðu, 11 dóu í umferð-
arslysuin. 20 skipum lilekktist
á. 10 skip strönduðu, þar af tvö
á Eyjafirði í björtu og góðu
veðri, 8 hinna strönduðu skipa
náðust út aftur. 4 skipum
hvolfdi, eitt sökk í árckstri, al-
varlegur Ieki kom að fjórum.
Eldur varð laus í tveimur.
Yfir 2500 bifreiðaárekstrar
urðu í Reykjavík á árinu. □
ung, en listhneigð og hagleiks-
hendur komu þar saman.
Gestur er rafvirki að iðn og
kunnur frjólsíþróttamaður hér
norðanlands. Til Þýzkalands
fór hann fyrir þrem árum til
að nema raffræði, en tók jafn-
framt söngtíma, þar til honum
stóð opin leið til söngnáms ein-
göngu, eftir söngkeppni er hann
tók þátt í.
Söngur Gests í Borgarbíói
var mjög ánægjulegur, enda
hefur söngnámið borið óvenju-
legan árangur. Húsið var troð-
fullt og söngvaranum fádæma
vel tekið. Lokakafli söngskrár-
innar voru fimm aríur eftir
Massenet, Donizetti, Verdi og
Puccini, flestar erfiðar og þeim
skilaði hann bezt.
Röddin er bjartur og þrótt-
mikill tenór, einkum á hærri
tónum, og raddsviðið er breitt.
Um frábæran undirleik ungfrú
Guðrúnar þarf naumast að fjöl-
yrða.
Með lengra söngnámi og
áhuga munu hæfileikar Gests
Guðmundssonar skila honum á
bekk með beztu tenórsöngvur-
um landsins. □
NORSK SKAKVÉL
NORSKUR maður hefur fundið
upp sjálfskakandi verkfæri, er
á að geta annast 3—5 handfæri.
Það gengur fyrir rafmagni og
heitir „Autofisher.“ Vélin dreg-
ur inn þegar eitthvað kemur á
öngulinn og færir veiðina upp
á yfirborðið, en þar verður
mannshöndin að taka við.
Ef vél þessi er eins góð og af
er látið, er sennilegt, að færa-
skak með gamla laginu sé þar
með úr sögunni, einnig á íslands
miðum. □
Nú er búið að vera logn og frost
í hálfan mánuð. Snjór var ekki
nærtækur eða skíðafæri, fyrr
en komið var upp í fjöll og var
raunar halilið skíðamót ofan
við Skíðahótelið í Illíðarfjalli
fyrir áramótin. En skautasvell
liafa engin fyrirfundist á Ak-
ureyri. En samkvæmt reynzlu
undanfarinna ára hafa skauta-
svellin á íþróttasvæðinu verið
fjölsóttasli skenmitistaður bæj-
arins, einnig sá ódýrasti og ef-
laust só hollasti. Megn óánægja
liefur ríkt út af þessu í bænum,
ekki sízt vegna þess, að ótrygg-
ur ís á pollinum hefur freistað
skautamanna og barna svo
mjög, að óttast hefur verið að
SÍÐAN á Þorláksdag og allt
til þessa er veður stillt og
bjart á Norðurlandi, snjó-
laust með öllu í byggðum og
vegir góðir sem um sumardag.
Akureyringar lifðu kyrrlátu
lífi um þessi jól og áramót,
venju fremur, sóttu vel kirkju
sína, einnig skemmtistaði,
skreyttu bæ sinn meira en áð-
ur, verzluðu að sögn mikið fyr-
ir jólin, svo fáir munu hafa
þurft að klæða jólaköttinn og
mikil atvinna stuðlaði að
ánægjulegum jólum þeirra, er
heilbrigðir voru.
Annar jóladagur og gamlárs-
kvöld hafa löngum verið mestu
drykkjudagar Akureyringa og
oft svo, að til stórra vandræða
liefur horft. Að þessu sinni var
slys gætu af hlotist, því vakir
eru margar og ísinn ekki alls
staðar svo traustur sem skyldi
og að sjálfsögðu ekki hægt að
koma eftirliti við gagnvart þeim
skautastað.
Ástæðan fyrir vöntun skauta-
svells á íþróttasvæðinu er sú,
að ekki reyndist unnt að fá þau
tæki hjá bænum, sem þurfti til
þess að hægt væri að slétta
mishæðir og hemja vatnið. En
þar er lítilsháttar halli allt að
15 cm og þarf 100 tonn af vatni
við fyrstu gerð.
í gær voru verkfæri frá Vega
gerðinni fengin til að gera það,
sem gera þurfti og var þá þegar
hafist handa um, að koma þang-
einstaklega rólegt þessa daga
báða, að sögn lögreglunnar, sem
gerst má um þau mál vita, og
til marks um það brá nú svo
við, að engan mann þurfti að
setja í fangageymslu, enginn
maður slasaðist, ekki þurfti að
leita aðstoðar slökkviliðs. Þetta
er bæjarbúum til mikils sóma.
Þá ber þess að geta, að aldrei
þessu vant reyndu unglingar
ekki að trufla umferðina í mið-
bænum. Að sjálfsögðu voru
dansleikir haldnir umrædda
daga og lögreglan þurfti að að-
stoða nokkra drukkna menn, er
ofurölfi voru. En til hennar
þurfti minna að leita en búizt
var við.
Tuttugu brennur voru í út-
hverfum bæjarins á gamlárs-
að vatni til svellmyndunar. Nátt
úran var skjót að frysta það,
enda 12 stiga frost. Átti því
verki að vera lokið í gærkvöldi.
Er þá væntanlega hægt að
skauta þarna í dag. Er vonandi
að fólk noti sér aðstöðuna þá
loksins hún kemur.
íþróttaráðið sér um þessi mál
og Baldur Sigurðsson sér um
skautasvellið sérstaklega. Raf-
veitan hefur lýst staðinn og
hljómlist verður þar til að auka
ánægjuna. Aðgangseyrir er 5
krónur fyrir fullorðna en 2 kr.
fyrir börn.
Nú þegar liafa börn verið
hætt komin á ísnum á Pollinum.
Fólk verður að sameinast um,
að forðast þær hættur, sem þar
eru, svo að ekki hljótist slys
af. □
kvöld, sumar stórar og myndar-
legar. Þangað safnaðist fjöldi
manna.
FLUGELDAR f ÁRSLOK.
Flugeldum var skotið á loft
kl. 12 á miðnætti. Var þá sunn-
an andvari og munu flestir Ak-
ureyringar þá hafa komið út
undir bert loft. Þá blasti við ár-
talið 1963 vestan í Vaðlaheiði,
letrað logandi kyndlum. Var
þar enn að verki Guðvarður
Jónsson málarameistari og hafi
hann margfalda þökk fyrir svo
og bæjarbúar almennt, sem
sýndu meiri menningarbrag en
oftast áður um jól og áramót. Q
imiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiHj
| FJÁRHAGSÁÆTLUN |
BÆJARINS I
| FRAMSKÓNARMENN halda \
1 fund á skrifstofu flokksins, =
§ Hafnarstræti 95, mánudag 7. i
í jan., kl. 8,30 e. h.
i Fundarefnið er fjárhags- i
| áætlun bæjarins. |
Í Frummælendur verða bæj- i
i arfulltrúar flokksins. □ §
?iimmimmmimmmiimmimimmimmmmmuiii»
FIMM KINDUR Á
GARÐSÁRDAL
Á MIÐVIKUDAGINN, 2. jan.
fundust 5 kindur fram við
Gönguskarð í Garðsárdal, úti-
gengnar. Höfðu kindur þessar,
sem héldu hópinn, áður sézt úr
leitarflugvél en ekki fundist
er síðar átti til að taka.
Þrjár kindurnar, eða ær með
tvo dilka, frá Sigtúnum og
dilkar frá Klauf og Uppsölum.
Allar voru kindur þessar vel
útlítandi og í góðum holdum og
ekki heimfúsar. Q
Skautasvell búið til á Iþróttavellinum
Isinn á Pollinum mjtig varasamur og hefur leg-
ið þar við slysum á börnum undanfarna daga