Dagur - 26.01.1963, Qupperneq 1
Mái.gagn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Erlingur Davídsson
Skrifstofa í Hafnarstræti 90
SÍM! 1166. Sf.tnincu OC I'RF.NTUN
ANNAST PrENTVERK OdUS
Björnssonar h.f., Akureyri
Dagur
XLVI. árgangur — Akureyri, laugardaginn 26. janúar 1963 — 5. tbl.
AUGl.ÝSINGASTJÓRl JÓN SaM-
ÚF.LSSON . ÁkgÁNGURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjalddaci F.R 1. JÚLÍ
Blauið kfmur út á midvikudög-
UM OG Á I.AUGARDÖGUM,
ÞFGAR ÁSI.LDA ÞYKIR TIL
simi a Esienoi
verður yæntanlega kominn fyrir árið 1970
INNAN SKAMMS verður sú
breyting komin á hjá Landsím-
anum á Akureyri, að símnotend
ur hér ’getá valið sér símnúmer
beint í Reykjavík, Hafnarfirði,
Keflavík, Kópavogi og Akra-
nesi.
Nýbyggingin við hús Land-
simans á Akureyri er m. a. véla-
salur fyrir stækkun sjálfvirku
stöðvarinnar og vegna þeirra
breytinga, sem beint val símnot
enda við aðra þá staði landsins,
sem sjálfvirka símaþjónustu
hafa, hefur í för með sér.
Á næstu tveim árum verða
sjálfvirkar símastöðvar settar á
Hjalteyri, Dalvík, Hrísey, Greni
vík, Ólafsfirði, Siglufirði, Húsa-
vík, Kópaskeri og Raufarhöfn.
Unnið er að því ^ð gera símann
sjálfvirkan á öllu laiidinu, og
er búizt við að breytingunni
verði lokið fyrir 1970. Mun það
teljast mikil og góð framför,
þótt saknað muni óneitanlega
fyrirgreiðslu margra ágætra
símastúlkna. □ ’
Yerzlunarþjónustunni ábótavant
UM ÁRAMÓTIN var sjoppun-
um, sem mörgum hefur verið
þyrnir í auga, lokað á sama
tíma og öðrum verzlunum. Er
Fundur hjá Fram-
sóknarfélögunum
ALMENNUR félagsfundur
verður haldinn hjá FRAM-
SÓKNARFÉLÖGUNUM A
AKUREYRI á morgun, sunnu-
dag kl 8, 30 e. h í Gildaskála
Hótel KEA, alþingismennimir
Karl Kristjánsson, Gísli Guð-
mundsson og Ingvar Gíslason
rnæta á fundinum. Allt Fram-
sóknarfólk velkomið. Mætið
vel og stundvíslega. □
þarna því ekki lengur sá óhugn-
anlegi dvalarstaður barna og
unglinga, er áður var. Með
þessu hafa Akureyringar þveg-
ið af sér óhreinindi, öðrum
kaupstöðum fyrr. Og vörur þær
sem áður voru seldar í opnum
sjoppum, eru samt sem áður
seldar, aðeins á annan hátt,
enda ekki bannvara.
í umræðum um sjoppurnar
gleymdist það þýðingarmikla at-
riði, að hér á Akureyri er
verzlunarþjónustan ekki meiri
en svo á öðrum sviðum, að
hvergi er hægt, eftir venjulegan
lokunartíma sölubúða, að kaupa
sér kaffipakka, brauð, sykur
eða aðrar matvörur. Það er
alveg furðulegt, hve sjoppumál-
(Framhald á blaðsíðu 2).
i Skíðafólk í nágrenni Akureyrar á fögrum vetrardegi. (Ljósmynd Kristján Hallgrímsson, Ak.).
l•ll•••••■ll•l•ll
ii in iimii 11111111111 ii n iiiiiiimi iiiiiiii iiiii
Börn á Akureyri vöktu athygli
Hlutu 5 efstu sætin í samkeppni 800 skólaharna
BÓKAÚTGÁFA Menningar-
sjóðs efndi til samkeppni meðal
barnaskólabarna í gerð vatns-
litamynda og teikninga.
Nær 800 börn frá 67 skólum
tóku þátt í keppninni, en mynd
irnar voru 1100. Það vakti at-
hygli, er úrslit voru gerð kunn,
að Barnaskóli Akureyrar hlaut
sérstaka viðurkenningu, bæði
Almenn fjársöfnun hafin
ÞAÐ mun nú ráðið, að byggt
verði aftur upp á Melum í
Fnjóskadal, þar sem íbúðar-
IMIIMIMIIMIMIMIMMMIII
iimmmimmiimimiimiiimmmimiiimmmimmimmimmiimiiiimmimmiiiimi
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMMN&II*
M.A.-leikurinn frumsýndur um næstu helgi
HINN árlegi Menntaskólaleik-
ur, sem undanfarin 7 ár hefur
verið fastur liðuur í skemmt-
analífi Akureyringa, verður að
þessu sinni frumsýndur í Sam-
komuhúsi bæjarins í lok næstu
viku.
Leikurinn heitir Brúðkaups-
nótt og botulismi og er eftir
Kenneth Horne. Leikstjóri er
Sævar Helgason, ungur leikari
ættaður úr Mýrdal og hefur
lokið námi við Leikskóla Þjóð-
leikhússins.
Leikendur eru sjö, og er hér
um gamanleik að ræða. Þrjú
aðalhlutverkin leika Elinborg
Björnsdóttir, Jónas Matthías-
son og Sigurður H. Guðmunds-
son. Allan leiksviðsbúnað ann-
ast leikendur sjálfir, með aðstoð :
leikstjórans.
Sjónleikurinn Brúðkaup og
botulismi var sýndur svo árum
skipti í Vandeville í London,
fyrir nokkrum árum.
Formaður Leikfélags Mennta-
skólans er Kristinn Jóhannes-
son frá Dalvík. □
húsið og fjósið brunnu þann
16. þ. m. Aðstaða Melahjóna
og sona þeirra er að því leyt-
inu erfið , að eldurinn lét sér
ekki nægja hús þeirra, heldur
eyddi einnig aðaltekjustofni
þeirra, kúnum. Verður því
ekki annað sagt, en að þau
sýni lofsverðan kjark, er þau
ráðast nú til uppbyggingarinn-
ar og það í annað sinn, því að
þau reistu jörðina úr eyði er
þau hófu búskap þar.
En létta má þeim þennan
róður og hafa því einstakling-
ar og félagasamtök ákveðið,
að gangast fyrir fjársöfnun
þeim til handa.
Félagasamtök innan Fnjóska-
dals hafa ókveðið að beita sér
fyrir því, að safnað verði innan
hreppsins andvirði átta kúa og
fjölskyldunni færðar þær, þá
hún hefur aðstöðu til að taka
á móti þeim.
Svo er líka almenn söfnun
hafin í nærliggjandi bæjum og
sveitum.
Á vegum Búnaðarsambands
S.- Þing. munu formenn búnað-
arfélaganna taka á móti fram-
lögum úr sveitunum.
Á Húsavík veitir sýsluskrif-
stofan framlögum viðtöku.
Á Svalbarðsströnd er þegar
hafin söfnun og geta menn snú-
ið sér til kaupfélagsins, ef þeir
(Framhald á blaðsíðu 7).
fyrir þátttöku og árangur, enda
hlutu 5 nemendur hans efstu
sætin, ásamt tilheyrandi verð-
launum.
Öll börnin nutu kennslu Ein-
ars Helgasonar í þessari grein.
í fréttatilk. segir m. a.:
Barnaskóli Akureyrar hlaut
viðurkenningu fyrir mikla þátt-
töku og frábæran árangur.
Verðlaun hlutu myndir eftir
42 börn.
1. verðlaun hlaut Vilhjálmur
Baldvinsson, Barnaskóla Akur-
eyrar, fyrir myndina „Þrym
drap hann fyrstan“, gerða með
vatnslitum.
2. verðlaun hlutu tvö börn,
Guðný Jónsdóttir, Barnaskóla
Akureyrar, „Þrymur sat á
haugi“ (vatnslitir), Halldór
Matthíasson, Barnaskóla Akur-
eyrar, „Hrafnaflóki kemur að
landi“ (vatnslitir).
3. verðlaun: Helga Kristrún
Þórðardóttir, Barnaskóla Akur-
eyrar, „Kolka tröllkona“ (penna
teikning), Bi'ynleifur Hallsson-,
(Framhald á blaðsíðu 2).
OPINBERAR TOLUR
NÝJASTA hefti Hagtíðinda
sýnir, að vöruverð og þjónusta
hafi, síðan í marz 1959, hækk-
að um 41%. — En kaupið hef-
ur lítið hækkað á þessu tíma-
bili. í desember 1958 var tíma-
kaup verkamanna kr. 23.86 en
var í síðasta desembermánuði
kr. 24.80. — Hækkunin er að-
eins 4%. Hagtíðindin segja
einnig, að meðalfjölskyldan
þurfi kr. 82.982.59 til að mæta
óhjákvæmilegum útgjöldum.
Til þess að ná þeim tekjum
verður verkamaður að vinna
11 klst. á dag. □