Dagur - 26.01.1963, Side 2

Dagur - 26.01.1963, Side 2
Dsgur er liðinn - en hvað svo? Tekur senn að birta í Sovét? YFIRLIT yfir kærur til embættis bæjarfógeta Akureyrar og sýslumanns Eyjafjar'ðarsýslu árið 1962. I. SÉRREFSILAGABROT. 1. Olvun á almannafæri.................................. 333 2. Ölvun í heimahúsum.................................. 14 3. Ölvun við akstur...................................... 39 4. Ólögleg sala og afhending áfengis...................... 9 5. Bifreiðaslys og árekstrar ........................... 266 6. Umferðarlagabrot (ólögleg staða bifreiðar, of hraður akst- ur og fleira) ....................................... 276 7. Brot á lögreglusamþykkt .............................. 11 8. Ágangur búfjár, veiðilagabrot, ólöglegt hundahald ogbrot á dýraverndarlögum . ................................. 12 9. Tolllagabrot .......................................... 4 10. Vanræksla á tilk. aðsetursskipta...................... 15 11. Brot á iðnlöggjöf...................................... 2 981 II. ÝMSAR SAKADÓMSRANNSÓKNIR. 1. Rannsóknir vegna slysa á mönnum .................. 6 2. Brunarannsóknir .................................. 4 3. Rannsóknir vegna voveiflegs dauðdaga.............. 3 4. Lögræðissviftingamál ............................ 2 15 III. ALM. HEGNINGARLAGABROT. 1. Þjófnaður og innbrot ............................... 38 2. Eignaspjöll ........................................ 37 3. Líkamsárásir ....................................... 25 4. Svik og skjalafals.................................. 10 5. Óhlýðni við lögreglu og hindrun hennar í starfi...... 6 116 Samtals 1112 kærur. í SOVÉTSKA bókmennta-tíma- ritinu „Novij Mir“ birtist ný- skcð ritgerð, sem óefað lilýtur að vekja bæði viðkvæmar hugs- anir og beiskar hjá sovétlesend- um. Ritstjóri tímaritsins er Alexander Tvardovsky. Ritgerð þessi fjallar um lífið í rússneskum þrælabúðum um 1950, þar sem stjórnmálafangar voru hnepptir í þrælkunar- vinnu. Fram til síðustu tíma hefði eigi mátt til þess hugsa, að hreyfa við slíku efni á opin- berum vettvangi í Sovétveldi. Hefur því birtingu ritgerðar þessarar verið fagnað sem ein- stæðum viðburði, bæði bók- menntalega og þá eigi síður stjórnmálalega! Ritgerð þessi er annars með saman þjöppuðu skáldsögusniði. Alexar.der Solqhentsýn rithöf- undur er stærðfræðikennari í litlu sveitaþorpi í Rýagan og hefur sjálfur „setið“ fullan ára- tug í þrælkunarbúðum. Sagan hefst með nafninu: Einn dagur úr ævi ívars Denisóvish. Aðal söguhetjan er norð- rússneskur bóndi. Á styrjaldar- árunum tóku Þjóðverjar hann höndum, en honum hefur tekizt að flýja yfir til rússnesku víg- stöðvanna. Óðar er hann birtist löndum sínum, er liann talinn njósnari og dreginn fyrir her- mannadóm. Þar dæmist hann spkur og er síðar sendur til Síbir. — Ég hefði átt að þegja um það, að ég væri herfangi Þjóð- verja, og segja heldur að ég væri aðeins þátttökumaður eða sjálfboðaliði, hugsar hann nú níu árum síðar, er hann smám saman morknar og rotnar upp t'il agna austur í Síbir, þar sem hann ásamt þúsundum annarra vinnuþræla er rekinn áfram í óslitinni þrælkunarvinnu við byggingu geysimikils orkuvers fyrirtækis, sem nefnt er „Sósíal- iskir lifnaðarhættir". Sagan lýsir einum þessara daga. Ilugsanir þrælanna snú- ast ekki um heimili þeirra og ástvini — þeim dettur ekki í hug, að það eigi fyrir þeim að liggja að koma þangað framar, og heldur ekki frelsi, — því hvers konar frelsi biði þeirra, þótt þeim yrði einhverntíma sleppt út úr þræla-kvínni! Þeir hugsa aðeins um það eitt að bjarga líftórunni frá degi til dags og treina hana sem lengst! Ætli varðmaðurinn finni nú brauðbitann litla, sem þú fald- ir í spóna-dýnunni? eða stálbút- inn, sem þú gast stungið á þig? Ætli stígvélaskórnir þínir rifni nú ekki? Ætli sessunautur þinn kjafti nú ekki frá þessu? Pyndingar eru ekki nefndar. Höfundur gerir heldur enga til- raun til að vekja meðaumkun lesenda. Raunverulega og blátt áfram rekur hann söguþráð hinnar dýpstu niðurlægingar mannlegs eðlis og smánar alls manngildis. Það er þetta, sem hrífur lesanda höljartökum! Og að þetta skuli hafa birzt á prenti flytur Ijóslega þær fréttir, að stjórnmála-viðhorf Sovét-valda manna sé nú orðið nýstárlegra og frjálsmannslegra en nokkru sinni áður. Óbreyttur Sovétborgari getur nú fagnað því, að stjórnarkerfi það, sem varpaði Ivari Denis- óvish í þrælabúðir, hefur smám saman horfið. Og birting sög- unnr r af þessum eina degi úr ævi hans mun vonandi girða fyrir, að slíkir dagar endurtaki sig í framtíðinni! (Úr erl. bl.) - Veizliiiiarjijóiuistan (Framhald af blaðsíðu 1). ið er viðkvæmt og enn furðu- legra að þess skuli ekki krafizt að seldar séu helztu matvörur á einhverjum stað eða stöðum í bænum eftir lokunartíma. Þess er þó full þörf og ætti ekki að þurfa að rökstyðja það. Gætu verzlanir innt þá þjónustu af hendi til skiptis, eftir settum reglum. Að sjálfsögðu ættu verzlanirnar þó ekki að vera þrásetustaður viðskiptavinanna, eins og sjoppurnar voru. Þótt Akureyringar geti valið milli góðra verzlana og batn- andi hvað búnað allan snertir, er það nokkuð áberandi, sér- staklega hin síðari ár, að of mai-gt verzlunarfólk í þessum bæ er ekki starfi sínu vaxið. Frekja og fúllyndi mætir manni á stöku stað, önnur vöntun á háttvísi og hrein vanþekking á starfinu mætir manni víða. Að sjálfsögðu er svo margt úrvals- fólk, sem gerir öll innkaup eins ánægjuleg og þau geta verið á verðbólgutímum og veitir traustar leiðbeiningar af hátt- vísi. En það er of margt „miðlungi“ gott afgreiðslufólk í verzlunum bæjarins og þarf úr að bæta. Vera má, að verzlunarnámskeið geti að einhverju bætt úr, eða ■norðlenzkur verzlunarskóli, þar sem vöruþekking og verkleg kennsla í daglegum störfum skipuðu verðugan sess. □ LÆRA ÞÝZKU SAGT ER, að á Sjálandi s'éu margir menn og konur farnir að læra þýzku um þessar mund- ir. Stafar þessi mikli áhugi af því, að girnilegt þykir til fróð- leiks og skemmtunar að geta fylgzt með þýzka sjónvarp- inu. □ (Framhald af blaðsíðu 1) Barnaskóla Akureyrar, „Hreið- ar heimski" (vatnslitir) 4. verðlaun: Jón Ragnarsson, Barnaskóla Akureyrar, „Þrym drap hann fyrstan" (vatnslitir), Sigurður E. Magnússon, Breiða gerðisskóla, Rvík, „Grettir og Glámur“ (krítarteikning). 5. verðlaun: Óli Ragnarsson, „Skarphéðinn vegur Þráin“, Karl Erlendsson, „Skúlaskeið‘‘, Sveinn Bjarnason, „Það var hann Eggert Ólafsson“,‘Baldur Ellertsson, „Þrym drap hann fyrstan", Vigdís, „Búkolla“, öll úr Bamaskóla Akureyrar. 6. verðlaun hlutu 10 börn: Hreiðar Þór Sæmundsson, Lang holtsskóla, Rvík, Hreinn Vil- hjálmsson, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Rvík, Kristján Er- lendsson, Barnaskóla Kópavogs, Sveinn R. Sigfússon, Miðskóla Sauðárkróks og Bryndís Krist- jánsdóttir, Guðmundur Ólafs- son, Sigmar Eiríksson, Svala Stefánsdóttir, Þorkell Rögn- valdsson og Örn Kjartansson, öll úi' Barnaskóla Akureyrar. 7. verðlaun hlutu 20 börn úr samtals 5 skólum. Verzliá í eiöin b u nm VERZLID I K.E.A. Árii 1961 voru íélags- irönnum greiddar 2.7 milijónir kr. í arö. ÞAÐ, er raunverulegur afslátiur af vöruverði Þess vegna meðal annars, er ÓBÝRAST AÐ VERZLA í K.E.A.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.