Dagur - 26.01.1963, Blaðsíða 7

Dagur - 26.01.1963, Blaðsíða 7
I Lsfið inn hjá Laxdælingum (Framhald af blaðsíðu 8) á. „Dagur“ segir 29. ágúst að verið sé að undirbúa rafveitu- framkvæmdir við Laxá í þrem áföngum. Meira segir blaðið ekki um það, en þetta þýðir — ef það verður gert — að Laxár- dalur verður lagður í eyði. Við fyrsta áfangann fer á kaf í vatn mikið af góðum bithögum á bökkum meðfram ánni og einn ig nokkuð ofan við hraungarð- inn, nokkuð af engi og öðru landi, auk margra mjög fagurra hólma, sem ekki eru mikið nytjaland nú orðið. Annar áfangi eyðileggur mik ið véltækt engi, mikið af túni og ræktarlandi, auk þess góða bit- haga og annað land, og fer yfir veginn á köflum. Þriðji áfang- inn færir í kaf allt land upp að brekkum, nema á einum bæ og tekur alveg af veginn. Þó bæj- arhúsum sé ekki hætta búin nema á einum bæ, getur engin jörð misst sitt land neðan við brekku. En við' vonum nú að Þingeyingar, svo og Norður- og Austurland komi okkur til hjálpar og bjargi dalnum frá eyðileggingu, og um leið sínu mikla baráttu og hagsmuna- máli: stórvirkjun við Dettifoss. Það or ekki hægt að vera bjartsýnn á framtíð landbúnað- arins við þessi áramót með því verðlagi sem er, því þótt verð á landbúnaðarvörum hafi hækk að, vegur það ekki á móti hækk un á rekstrarkostnaði búanna, og verð á sauðfjárafurðum fæst lítið leiðrétt og eru þessi ár sér staklega erfið þeim, sem ekki hafa amiað en sauðfé til inn- leggs. Ég hef heyrt að um 50 jarðir hafi farið í eyði á árinu, og það er ekkert sem gerir það ólíklegt að þær verði ekki jafn margar, eða fleiri, á næsta ári. Ekki er að efa, að fyrst og fremst hefur verið sauðfjárbú- skapur á þessum jörðum. Mjög margt af því fólki sem er í sveitunum er aldrað, og nokkr- ir bændur búa einir, starfsgeta þess er þverrandi, og í sumum sveitum bætist enginn ungur bóndi við þessi árin, það þarf engan spádóm til að sjá fyrir örlög þeirra sveita. Sveitirnar hafa á undanförnum áratugum kostað uppeldi á tugum þús- unda af fólki, sem þær hafa svo tapað til kaupstaðanna, full- þroskuðu og starfhæfu við upp byggingu atvinnulífsins þar. Fólki mun hafa fækkað með mesta móti í sveitum á árinu, og er þá mikið sagt. Bústofns- skerðing hefur án efa orðið, fyrst og fremst á sauðfé, en lík- lega minni á nautgripum, og það er ekki líklegt að bústofni fjölgi á næstu árum ef sú þróun sem verið hefur síðustu árin heldur áfram. En það er reikn- að með að íslendingar verði orðnir 310 þúsund eftir 38 ár, og þá þarf að fara að byggja upp það sem skammsýni í stj órnarháttum leggur nú í eyði. Gunnlaugur. - Skíðafiug F. í. (Framhald af blaðsíðu 8) anlegri gerð. Komið hefur til orða að búa „Gljáfaxa“ JATO- tækjum, en þau eru notuð við flugtak á stuttum flugbrautum. Staðir þeir sem „Gljáfaxi" mun fljúga til í Grænlandi eru m. a.: Danmarkshavn, Dane- borg, Scoresbysund, Tingmiar- miut, Aputitek, Orsuiagssuaq og Qutdleg. „Gljáfaxi" mun hafa aðsetur í Reykjavík, Meistaravík og e t. v. Kulusuk. (Framhald af blaðsíðu 5). Jóni eldra, eftir að hann fluttist að Núpufelli, enda þótt hann væri orðinn 27 ára. Og ekki þurfti hann til þess endilega að eiga heima á Hrísum. Ég held því að „romsan“ um vináttu þeirra Jóns „lærða“ og Gríms græðara geti mjög vel staðist, og virðist ekkert vera til, sem afsanni þá umsögn. Heimildarmaður minn studdi hana, meðal annars þeim rök- um, að séra Jón „lærði“ hefði reynzt Grími syni Gríms græð- ara mjög vel á námsferli hans, allt frá byrjun og til þess að Grímur yngri tók stúdentspróf hjá tengdasyni séra Jóns Hálf- dáni Einarssyni. Var þá Grímur orðinn 27 ára, giftur og bláfá- tækur barnamaður. Taldi heim- ildarmaður minn að séra Jón hefði látið Grím njóta fornrar vináttu við föður hans, Grím græðara. Æfiferill og ársettir verustað- ir séra Jóns eldra á Núpufelli er svo önnur saga. En um það eru gloppóttar heimildir hér norður frá. Ekki tel ég að vísan: „Hrepp- stjórunum o. s. frv.“ hefði nokk- uð aukið gildi greinarkornsins um Grím græðara, þó þar hefði hún birtst. Hvort tveggja er, að mér finnst vísan ómerkileg, og FRL .:. ST .:. SKULD, 59631287 — Frl. .:. MUNIÐ aðalfund KA að Hótel KEA mánudagskvöldið kl. 8,30. FRAMSÓKNARFÓLK. Munið fundinn annað kvöld að Hót- el KEA. Sjáið nánar á for- síðu. LESSTOFA fslenzk-ameríska félagsins, Geislagötu 5, Akur- eyri. Utlán á bókum, blöðum, hljómplötum og filmum mánu daga og föstudaga kl. 6—8 síðd. Þriðjud. og fimmtud. kl. 7,30—10 síðd. Laugard. kl. AUGLÝSIÐ í DEGI svo veit ég ekkert um eftir hvern hún er. Tel ég mjög hæp- ið að þar sé átt við Grím græð- ara. Ég held að það hafi aldrei þótt álitsauki neinum manni að vera böðull og ,hýða svo blæði*. Og illa trúi ég því um Eyfirð- inga, að þeir hefðu talið Grími græðara það til „heiðurs“ að „slá“ menn til óbóta, jafnvel þó hann svo græddi sár þeirra eft- ir á. Ég hefi heldur aldrei heyrt neitt um slíkar athafnir Gríms græðara, ekki heldur í réttvís- innar nafni. En trúlega hefur Stefán Aðalsteinsson nægar heimildir fyrir þessu öllu. Ég vil svo að endingu enn þakka Stefáni Aðalsteinssyni áhuga hans og þekkingu um ey- firzk fræði. Hólmgeir Þorsteinsson. DAGATÖLIN. EYFIRZK húsmóðir J. B. skrif- ar Fokdreifum töluverðan pistil um dagatölin svokölluðu og fylg ir dálítil saga, sem vel gæti sæmt sér á öðrum vettvangi. Upphaf bréfsins er á þessa leið: „Kæri Dagur! UM ALLLANGT árabil hafa kaupmenn ,kaupfélög og jafn- vel olíufélög haft þann sið að láta prenta og dreifa meðal við- skiptavina sinna svonefndum dagatölum. Þetta er skemmtileg og þakkarverð þjónusta og þeg- ar dagatölin koma ríkir gleði og eftirvænting á mínu heim- ili að minnsta kosti. Víðast hvar mun vera lögð alúð við að út- búa þessa veggprýði og þeir sem að því vinna hafa sjáanlega í huga að dagatölin eru hand- leikin og höfð fyrir augum hvern einasta dag ársins. Við hér fáum mánaðardaga frá KEA og síðustu árin hafa þeir. verið ákaflega frumlegir svo ekki sé meira sagt! Þegar eg sá dagatal KEA í ár datt mér í hug gamalt atvik“. Og svo kemur sagan um veð- urbarinn og kempulegan gest, sem í gamla daga var gestkom- andi, rabbaði við heimilisfólk um alla heima og geima yfir kaffibolla. En því miður virti hann ekki sem skildi hið hvít- skúraða eldhúsgólf. Maðurinn tuggði skro.... Maðurinn var mesti sómamað ur á allan hátt en mér gremst enn í dag, segir greinarhöfund- ur, hvað hann særði mig vegna hvítskúraða eldhúsgólfsins hennar mömmu. □ FRÁ KVENN ADEILD Slysa- varnafélagsins á Akureyri: Hinn árlegi fjáröflunardagur verður sunnudaginn 3. febr. og hefst munasala á Hótel KEA — Gildaskálanum — kl. 2 e. h. og kaffisala kl. 2,30 á sama stað uppi. Kvikmyndin „Björgunin við Látrabjarg“ verður sýnd frá kl. 3,30 í Gildaskálanum. Merkjasala verður um allan bæinn allan sunnudaginn. Deildin veit að henni er óhætt að treysta góðri þátttöku bæjarbúa og nágrennis til að leggja sinn skerf til styrktar svo góðu málefni. Þá vill deildin minna félagskonur og aðra bæjar- búa á messuna í Akureyrar- kirkju kl. 5 e. h. sunnudaginn 3. febr. Sömuleiðis tilkynnist félagskonum fundur í Alþýðu húsinu kl. 3,30 e. h. þriðju- daginn 5. febr. Gjörið svo vel að taka kaffi með, en ekki kökur. — Nefndirnar. ÚRVALSFLOKKUR EKKÍ TIL UM SÍÐUSTU ÁRAMÓT gengu í gildi ný heiti á flokkun kartaflna. Áður voru kartöflur flokkaðar í úrvalsflokk, fyrsta flokk og annan flokk. Nú fellur nafnið úrvalsflokkur niður og kartöflur eru flokkaðar í fyrsta, annan og þriðja flokk, og er hér aðeins um nafnabreytingu að ræða. Engu að síður þurfa hús- mæður að átta sig á breyting- unni, þegar þær t. d. vilja kaupa beztu kartöflurnar, sem áður hét úrvalsflokkur, biðja þær nú um fyrsta flokk. □ - Fjársöfnun hafin (Framhald af blaðsíðu 1) vilja láta eitthvað af hendi rakna. Á Akureyri munu blöðin veita framlögum viðtöku. Þar hafa stjórn Fulltrúaráðs verka- lýðsfélaganna og Sjálfsbjörg þegar hafið söfnun. Stjórn full- trúaráðsins hefur auglýst mót- töku framlaga á afgreiðslu Dags svo og Skrifstofu verkalýðsfélag anna og skrifstofu Iðju. Sjálfs- björg auglýsir móttöku fram- laga á afgreiðslu Dags svo og hjá Hermanni Larsen Efnaverk smiðjunni Sjöfn og hjá Sig- valda Sigurðssyni rakara. Ef við verðum öll samtaka, þá mun verða hægt að hefjast handa á Melum í vor. □ r - Askorun ... (Framhald af blaðsíðu 5). menningu okkar áður en við sökkvum dýpra í áfengisflóðið. Við treystum því fastlega að all- ir þeir, sem með löggjafavaldið fara, bregðist fljótt og vel við málaleitun okkar. (Frá Kvenfélaginu Hlíf. Ak- ureyri). Góð auglýsing gefur góðan arð Bátur til sölu Tilboð óskast í varðbátinn GAUT, einkennisbókstaf- ir TFOA, í því ástandi, sem hann er nú í við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Báturinn verður til sýnis þar alla virka daga til hádegis. Nánari upplýsingar verða gefn- ar í síma 19400 eða um borð í bátnum. Tilboðum sé skilað eigi síðar en 10. febrúar n. k. í skrifstofu vora Seljavegi 32, Reykjavík. LANDHELGISGÆZLAN. Frá Kaupfélagi Eyfirðinga Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir að skila ARÐ- MIÐUM SÍNUM FYRIR 1962 í síðasta lagi 15. febr. næstk. — Arðmiðunum ber að venju að skila, á aðal- skrifstofu vora, í lokuðu umslagi, er sé greinilega merkt félagsnumeri, nafni og heimilisfangi viðkom- andi félagsmanns. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA I f f Hjartanlega pakka ég öllum peim, fjær og nœr, $em þ glöddu mig á sjötíu og fimrn ára afmœlimt meö gjöf- f ? um, sktiytum, heimsóknum eða sýndu mér vinarliug % $ á annan hált. f | SOFFÍA LILLIENDAHL. f 1 ? * f © I i I © & I i ý'ú ■'Sv.c ■4' 0 -4*0 A'Q 'ÍS;? -4* Q Q “ÍSn A' <£? -*»Su 'í'v.J -4*0 -4* •£? -4 Hjartans pakkir til allra peirra, sem glöddu mig f með gjöfum og skeytum á 60 ára afmæli minu 8. jan. f siðastliðinn. — Guð blessi ykkur öll. f SOFFÍA GUNNLAUGSDÓTTIR, Syðri-Reistará. f V <!l - FOKDREIFAR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.