Dagur - 03.04.1963, Síða 1
Málgacn Fr.\msóknarmanna
Ritstjóri: Erljncur Davíðsson
Skrifstofa í Hafnarstræti 90
Sími 1166. Setnincu og frkntun
annast Prentverk Odds
Björnssonar h.f., Akurevri
v /
----------------------------—s
AUCLÝS1NGA|TJÓRI Jón Sam-
. ÚKLSSON . ÁkcÁNGURINN KOSTAR
KR. 120.00. OjALDDÁCl KR 1. JÚI.Í
Blaðid kemiir út á mtdvikudöc-
UM OC Á LAUGARDÖCUM, ,
ÞKCAR ÁSTÆÐA ÞYKIR TIL
> ...........................
*ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ«ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ4ÍÍÍ5ÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ^^
UPPTÖK JARÐSKJÁLFTANNA ERU TAL-
IN VERA í MYNNI SKAGAFJARÐAR
HINIR niiklu jarðskjálftar, sem hófust að kvöldi hins 27.
marz og finnast öðru hverju enn, eiga upptök sín í mynni
Skagafjarðar, 250 km frá Reykjavík. Mestur varð jarðskjálft-
inn næst upptökununi, t. d. á Skaga, Sauðárkróki og Siglu-
firði. Mikil hræðsla greip fólk og munu margir ekki bíða
þess bætur í lengri tíma. Eignatjón varð hins vegar mjög
lítið. Sprungur komu þó í stöku hús.
Þessir jarðskjálftar eru taldir þeir mestu á Norðurlandi
síðan 1934.
Jarðfræðingar telja ekki hættu á svo miklum jarðskjálft-
um, að menn þurfi að óttast um hús sín, og er vonandi að
það álit þeirra sé á þekkingu byggt.
1 Ólafsfirði og á Siglufirði rofnaði rafstraumurinn þegar
jarðskálftarnir urðu. Jók myrkrið mjög á ótta fólks og öng-
þveiti. Ótal sögusagnir hafa borizt um viðbrögð manna þegar
fyrsti og stærsti jarðskjálftakippurinn reið yfir með dunum
og langvarandi kippum. Flestar bera það með sér að þá
hafi menn fundið mjög til smæðar sinnar og vanmáttar. □
gjg| K,
' l Yí ,53
- JBjjiS :
m\
Fruramælendur Hélgi Bergs og Hjörtur á Tjörn
FRAMSÓKNARMENN í Öng-
ulsstaðahreppi efndu til stjórn-
málafundar að Freyvangi s.l.
fimmtudagskvöld. Aðalræðu-
menn fundarins voru þeir Helgi
SKEMMTIKVÖLD
í NÝJA-BÍÓ
Á fimmtudags- og föstudags-;;
kvöld verða kvöldskemmtanir
í Nýja Bíó á vegum FUF hér ;j
í bæ. í;
Þar syngur hinn kunni ten-
órsöngvari Guðmundur Guð-1;
jónsson, þar skemmtir Jón
Gunnarsson með eftirhermum
og gamanþætti og Jóhann Ög-1;
mundsson fer með gamanvís-
ur.
Þá verður bingó spilað og
eru vinningarnir til sýnis í
glugga Jám- og glervörudeild-
ar KEA og munu þeir vera á
16. þúsund kr. að verðmæti.
Bergs ritari Framsóknarflokks-
ins og Hjörtur E. Þórarinsson
bóndi á Tjörn og fjórði maður
framboðslista Framsóknarflokks
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra.
Formaður félagsins í Önguls-
staðahreppi, Kristinn Sigmunds
son bóndi á Arnarhóli, setti
fundinn og stjórnaði honum. Að
erindum frumælenda loknum
voru veitingar fram bornar, en
síðan hófust umræður og stóðu
þær fram yfir miðnætti.
Helgi Bergs talaði um stjórn-
málaviðhorfið, en Hjörtur E.
Þórarinsson um landbúnaðar-
mál og sagðist báðum vel, sem
vænta mátti.
Blaðið væntir þess, að Hjört-
ur riti hér í blaðið grein eða
greinar um landbúnaðinn á
næstu vikum og verður ræða
hans því ekki endursögð hér.
Á þessari mynd sést sú vél, sem fitusprengir „homogeniserar ‘
flöskumjólkina. (G. P. K. tók báðar myndimar.)
Fundur Framsóknarmanna
Við hina nýju áfyllingarvél stendur Ingólfur Ármannsson og hefur tæpast við að taka flöskur frá.
NÝR ÁFANGI í MJÓLKUR-
IÐNAÐINUM Á AK.
Mjólkin fitusprengd og litaðar flöskur úr léttu
en sterku gleri, teknar í notkun fyrir skömmu
HINN 26. marz s.l. voru tekin
í notkun hjá Mjólkursamlagi
KEA á Akureyri ný vélasam-
stæða, sem fitusprengir mjólk-
ina, gerilsneiðir og þvær mjólk-
urflöskurnar, fyllir þær og lok-
ar með málmhettu. Flöskurnar
eru af nýrri gerð, áður óþekktri
hér á landi. Glerið er litað, til
þess að útiloka skemmdir af
völdum ljósgeisla (þráabragð),
og glerið er sterkara en venju-
legt gler og ennfremur léttara.
í Freyvangi
Hins vegar verða nokkur atriði
úr ræðu Helga Bergs rakin hér
í blaðinu og fleiri blöðum. Hann
sagði efnislega:
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Helgi Bergs.
Hinar nýju vélar eru sjálf-
virkar og eru með 3 þús. flösku
afköst á klst. Fitusprenging
mjólkurinnar er nýjung hér,
eykur geymsluþol og bætir
bragð. Vélar þessar múnu hafa
kostað hátt á aðra milljón kr.
Fréttamönnum var boðið að
skoða þær og var gaman að sjá,
hve haganlega þær vinna.
Hér er um einn áfanga að
ræða í eyfirzkum mjólkuriðnaði,
sem bar nokkurn veginn upp á
35 ára afmæli samlagsins.
Mjólkuriðnaðurinn á Akur-
eyri var lengi í fararbroddi og
ruddi brautina. Og enn eru
hvergi á landinu framleiddar
betri mjólkurvörur.
Menn þakka gjarna forstjórn
fyrirtækja, þegar vel gengur.
Sami maður hefur veitt Mjólk-
ursamlagi KEA forstöðu frá
fyrstu tíð, og er það Jónas Krist
jánsson. Án þess að vanmeta
störf hans, er einnig vert að
minnast þess, að mjólkuriðnað-
urinn á Akureyri er stofnaður
og borinn uppi af samtökum
fólksins í héraðinu, sem ein
grein í fjölþættu samvinnustarfi.
Akureyringar eru vanir ágæt-
um mjólkurvörum og meta þær
að verðleikum. Þeir fagna enn
nýjum áfanga í farsælli þróun
mjólkuriðnaðarins á Akureyri.
SALÓMON SVARTI
SALÓMON SVARTI, barnabók
Hjartar Gíslasonar á Akureyri,
er nú komin út á þýzku í stóru
upplagi. Þýðandi er Sigrún
Sveinsson, íslenzk kona, búsett
í Júgóslavíu.
Áður hafa barnabækur Hjart-
ar, bæði Salómon svarti og Saló
mon og Bjartur komið út á
norsku og verið getið þar vin-
samlega.
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur komið bókunum á fram-
færi við hina erlendu aðila. □
í SAMBANDI við tækniskólafrumvarpið, sem leiðari blaðs-
ins fjallar um í dag, liafa alþingismenn rætt allmikið um
fyrirkomuiag iðnfræðslunnar hér á landi og hugsanlegar
breytingar á því. Þeirri stefnu vex nú sýnilega fylgi, að
opna ungu fólki leið til að fá nauðsynlega verklega tilsögn
og æfingu á vegum iðnskólanna, en hingað til hefur eina
leiðin verið sú, að ráða sig í vinnu hjá meisturum og er
þetta raunar aldagamalt fyrirkomulag, og upp runnið í öðr-
um löndum.
En nefnd manna vinnur nú að því á vegum hins opinbera,
að endurskoða iðnfræðsluna í heild. En Akureyringar og
fleiri ættu þá að minnast þess, að ekki er ástæða til að láta
Reykvíkinga eina um að ræða þau mál og gera tillögur um
lausn þeirra. Rödd landsbyggðarinnar þarf að heyrast oftar
en raun ber vitni, bæði á þessu sviði og öðrum. □
\