Dagur - 11.04.1963, Page 1
Málgagn 1'ramsóknarmanna
Rjjst jóri : Erlincur Davíðsson
Skrifstoi-a í Haknarstræti 90
Sími 1160. Sf.tnincu og frkntun
ANNAST PRKNTVERK OdDS
Björnssonar h.f.. Akureyri
k______________________________
XLVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 11. apríl 1963. — 22. tölublað
**--------- 1 1 ■--------------
AUGl.ÝSINGAyTJÓRI JÓN SaM-
. ÚF.LSSON . ArGANGURIIÍN KOSTAR
KR. 120.00. G J AI.DDAGI F.R 1. JULÍ
Blaðiu kemur út á midvikudög-
UM OG Á LAÚGARDÖCUM,
ÞEGAR ÁST.FÐA ÞYKIR TIL
ENN HAFA SJÓMENN TÝNT
— LÍFI í SJÓSLYSUM —
og margir fleiri voru mjög liætt komnir
Báturinn Hafftór frá Dalvík fórst meá fimm manna áliöfn
og Magni frá Pórshöfn meS tveim mönnum
ENN liafa þær hörmulegu fréttir borizt, að sjö sjó-
menn hafa farizt í norðangarðinum á þriðjudaginn,
ásamt tveimur þilfarsbátum, til viðbótar því, sem áður
var sagt frá.
Dalvík. f gærmorgun rak
björgunarbátinn af Hafþóri
a Böggvisstaðasandi og síðar
lík eins hásetans norðan við
þorpið. Á Hafþóri, sem nú
er talinn af, var 5 manna ó-
höfn. Formaður var Tómas
Pétursson, maður um. þrí-
tugt, lætur eftir sig konu og
3 böm, Bjarm'ar Baldvinsson
á þrítugsaldri, lætur eftir sig
konu og 1 bam. Lík hans er
fundið. Jóhann Helgason,
á fertugsaldri, lætur eftir sig
konu og 4 böm. Sólberg Jó-
hannsson, innan við tvítugt
og Óli Jónsson, maður um
fertugt, lætur eftir sig konu
og 2 börn.
Hafþór var um 8 tonn að
stærð, nýlegur bátur. Menn
þeir, er með honum fórust,
voru allir búsettir á Dalvík.
Þórshöfn í gær: Eins og um
var getið í blaðinu í gær,
vantaði tvo litla báta frá
Þórshöfn, þá Magna og Lóm.
Lómur kom til Þórshafnar
kl. 7.30 í gærmorgun, eftir
stranga útivist. Þegar blaðið
hafði samband við Þórshöfn
eftir hádegi í gær, var Magni
ókominn, en brak úr honum
rekið á Sævarlandsfjörur.
Mikil leit var gerð meðfram
sjó, bæði að kvöldi ofviðris-
dagsins og í gær.
Á Magna voru: Elías Gunn
arsson, ættaður frá Hafnar-
firði. Kona hans og þrjú ung
börn eru á Þórshöfn. — Þór-
hallur Jóhannesson frá Flögu
í Þistilfirði, og lætur hann
eftir sig konu og eitt ungt
barn.
Siglufjörður. Hringur og Sæ-
rún voru úti í nótt. Hringur
kom heim kl. 10 í morgun,
hafði haldið sjó ó Skaga-
grunni. Tvo menn tók þar út,
Andrés Þorláksson frá Siglu-
firði, rúmlega þrítugan
mann, ókvæntan, og Kristjár
Ragnarsson frá Akureyri, 23
ára og lætur eftir sig unn-
ustu á Siglufirði. Náðist
hann örendur, en Andrés
ekki.
Særún hélt til Eyjafjarðar
í gær. — Dagur sendir að-
standendum hinna látnu sjó-
manna innilegar samúðar-
kveðjur.
Grenivík. Víðir, Brúni, Sæ-
valdur og Frosti réru allir ó-
veðursdaginn. Sævar slapp
heim fyrir hádegi. Frosti fór
til Hríseyjar. Esja kom Víði
til aðstoðar og fylgdist með
honum inn að Hrísey og
Brúni náði heimahöfn.
Kópasker. Blaðið náði tali af
Garðari Sigurpálssyni frá
Hrísey, annars eiganda nýja
bátsins Auðuns.
Auðunn var á leið austur
að Langanesi með net þegar
óveðrið skall á. Þá snerum
við við, sagði Garðar, en náð
um ekki landi og héldum sjó
í gær og nótt, fyrst austur af
Raufarhöfn, en við vorum
norður við Sléttu í nótt,
dýpra en við hugðum. Til
Kópaskers komum við kl.
1.30 og Svanur II. frá Akur-
eyri. Bátarnir voru alltaf
saman. Þeir voru orðnir tals-
vert ísaðir í morgun. En ekk-
ert varð að og hér verðum
við þar til birlir upp. Auð-
unn fór vel í sjó. Formaður
á honum er Kristinn Jakobs
son frá Hrísey, en Ingólfur
Halldórsson á Akureyri er
formaður á Svaninum.
Ólafsfirði: Þeir reru héðan
fjórir bátar og enginn þeirra
komst til lieimaliafnar. En
allt fór vel hvað okkar báta
og sjómenn snertir. Anna
(Framh. á bls. 2)
Ármann bjargaði fjórum
mönnum úr
Viðtal við formanninn Sigurfinn Olafsson
BLAÐIÐ náði í gær sem snögg-
vast tali af formanninum á vél-
bátnum Ármanni frá Ólafsfirði,
Sigurfinni Ólafssyni, sem var
svo lánsamur að bjarga áhöfn-
um af tveim trillum frá Dalvík
í ofviðrinu 9. apríl. En Ármann
kom til Akureyrar með Dalvík-
ingana fjóra kl. 20,20 að kvöldi
sama dags.
Varstu í róðri, Sigurfinnur?
Nei, við vorum að huga að
loðnu í Skjálfanda fyrri partinn
í gær. En svo héldum við heim
á leið áður en veður fór veru-
lega að versna, svona á 11. tím-
anum.
Hvenær urðuð þið varir við
trillumar?
Við urðum varir við þær, þeg
ar við vorum út af Þorgeirsfirði.
Þær voru samferða, Helgi og
Sæbjörg. En þá var klukkan far
in að ganga tvö og þá vor kom-
ið vonzku veður og töluverður
sjór, sem fór ört vaxandi. Við
hægðum ferðina og fylgdum
trillunum eftir, vestur fyrir
Gjögrana, vorum rétt á eftir
þeim, tilbúnir að veita þeim að-
stoð, ef þær þyrftu hennar með.
Og svo hafa trillurnar beðið
um aðstoð?
Já, Helgi gaf okkur merki og
við fórum til hans. Vélin hafði
stöðvazt í honum, enda búin að
ganga lengi í sjó. Við renndum
upp að honum og náðum báðum
mönnunum í fyrstu tilraun.
Sæbjörg hefur haldið áfram á
meðan?
Já, en litlu síðar gaf hún
merki og óskuðu mennirnir að
Sigurfinnur Ólafsson.
koma um borð. Sjór var kominn
í bátinn, en vélin gekk þó enn.
Okkur gekk líka vel að ná mönn
unum úr Sæbjörgu og það var
skynsamlegast eins og á stóð að
yfirgefa trilluna. Sjór var mik-
ill og dimmviðri, og tæpast veð-
ur fyrir svona litla báta.
Og trillurnar?
Við yfirgáfum þær bara, um
annað var ekki að ræða. Maður
veit ekki hvað þær hafa haldizt
lengi ofansjávar. En þær eru ef-
laust úr sögunni.
Hvar gizkarðu á að þær hafi
borið að landi, ef þær hafa ekki
sokkið?
Einhversstaðar innan við Múl
ann, eftir veðurstöðurini að
dæma.
(Framhald á bls. 7.)
Útgerð strandferðaskipa frá Ak.
Mjög athyglisverð þingsályktunartillaga
ÞINGMENN Framsóknarflokks
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra, þeir Gísli Guðmundsson,
Karl Kristjánsson og Ingvar
Gislason fluttu nýlega þingsá-
lyktunartillögu á Alþingi, sem
vekja mun athygli á Norður-
landi. Þingályktunartillagan er
á þessa leið:
ALÞINGI ályktar að skora á
ríkisstjómina að láta athuga
möguleika á þvi, að Skipaútgerð
ríkisins, í samráði við hlutað-
eigandi bæjar- og sýslufélög,
komi á fót á Akureyri útgerð
strandferðaskips, er annist
strandferðir norðanlands, enda
séu ferðir þess í samræmi við
ferðir strandferðaskipa úr
(Framhald á bls. 7.)
ISigurður Jónsson,
prentari í POB, |
varð bráðkvaddur við vinnu
sina í prentsmiðjunni í fyrradag
— þriðjudaginn 9. apríl. Hann
var búinn að starfa hjá POB í
40 ár. Sigurður var 56 ára er
hann lézt.