Dagur - 11.04.1963, Síða 1

Dagur - 11.04.1963, Síða 1
Málgagn 1'ramsóknarmanna Rjjst jóri : Erlincur Davíðsson Skrifstoi-a í Haknarstræti 90 Sími 1160. Sf.tnincu og frkntun ANNAST PRKNTVERK OdDS Björnssonar h.f.. Akureyri k______________________________ XLVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 11. apríl 1963. — 22. tölublað **--------- 1 1 ■-------------- AUGl.ÝSINGAyTJÓRI JÓN SaM- . ÚF.LSSON . ArGANGURIIÍN KOSTAR KR. 120.00. G J AI.DDAGI F.R 1. JULÍ Blaðiu kemur út á midvikudög- UM OG Á LAÚGARDÖCUM, ÞEGAR ÁST.FÐA ÞYKIR TIL ENN HAFA SJÓMENN TÝNT — LÍFI í SJÓSLYSUM — og margir fleiri voru mjög liætt komnir Báturinn Hafftór frá Dalvík fórst meá fimm manna áliöfn og Magni frá Pórshöfn meS tveim mönnum ENN liafa þær hörmulegu fréttir borizt, að sjö sjó- menn hafa farizt í norðangarðinum á þriðjudaginn, ásamt tveimur þilfarsbátum, til viðbótar því, sem áður var sagt frá. Dalvík. f gærmorgun rak björgunarbátinn af Hafþóri a Böggvisstaðasandi og síðar lík eins hásetans norðan við þorpið. Á Hafþóri, sem nú er talinn af, var 5 manna ó- höfn. Formaður var Tómas Pétursson, maður um. þrí- tugt, lætur eftir sig konu og 3 böm, Bjarm'ar Baldvinsson á þrítugsaldri, lætur eftir sig konu og 1 bam. Lík hans er fundið. Jóhann Helgason, á fertugsaldri, lætur eftir sig konu og 4 böm. Sólberg Jó- hannsson, innan við tvítugt og Óli Jónsson, maður um fertugt, lætur eftir sig konu og 2 börn. Hafþór var um 8 tonn að stærð, nýlegur bátur. Menn þeir, er með honum fórust, voru allir búsettir á Dalvík. Þórshöfn í gær: Eins og um var getið í blaðinu í gær, vantaði tvo litla báta frá Þórshöfn, þá Magna og Lóm. Lómur kom til Þórshafnar kl. 7.30 í gærmorgun, eftir stranga útivist. Þegar blaðið hafði samband við Þórshöfn eftir hádegi í gær, var Magni ókominn, en brak úr honum rekið á Sævarlandsfjörur. Mikil leit var gerð meðfram sjó, bæði að kvöldi ofviðris- dagsins og í gær. Á Magna voru: Elías Gunn arsson, ættaður frá Hafnar- firði. Kona hans og þrjú ung börn eru á Þórshöfn. — Þór- hallur Jóhannesson frá Flögu í Þistilfirði, og lætur hann eftir sig konu og eitt ungt barn. Siglufjörður. Hringur og Sæ- rún voru úti í nótt. Hringur kom heim kl. 10 í morgun, hafði haldið sjó ó Skaga- grunni. Tvo menn tók þar út, Andrés Þorláksson frá Siglu- firði, rúmlega þrítugan mann, ókvæntan, og Kristjár Ragnarsson frá Akureyri, 23 ára og lætur eftir sig unn- ustu á Siglufirði. Náðist hann örendur, en Andrés ekki. Særún hélt til Eyjafjarðar í gær. — Dagur sendir að- standendum hinna látnu sjó- manna innilegar samúðar- kveðjur. Grenivík. Víðir, Brúni, Sæ- valdur og Frosti réru allir ó- veðursdaginn. Sævar slapp heim fyrir hádegi. Frosti fór til Hríseyjar. Esja kom Víði til aðstoðar og fylgdist með honum inn að Hrísey og Brúni náði heimahöfn. Kópasker. Blaðið náði tali af Garðari Sigurpálssyni frá Hrísey, annars eiganda nýja bátsins Auðuns. Auðunn var á leið austur að Langanesi með net þegar óveðrið skall á. Þá snerum við við, sagði Garðar, en náð um ekki landi og héldum sjó í gær og nótt, fyrst austur af Raufarhöfn, en við vorum norður við Sléttu í nótt, dýpra en við hugðum. Til Kópaskers komum við kl. 1.30 og Svanur II. frá Akur- eyri. Bátarnir voru alltaf saman. Þeir voru orðnir tals- vert ísaðir í morgun. En ekk- ert varð að og hér verðum við þar til birlir upp. Auð- unn fór vel í sjó. Formaður á honum er Kristinn Jakobs son frá Hrísey, en Ingólfur Halldórsson á Akureyri er formaður á Svaninum. Ólafsfirði: Þeir reru héðan fjórir bátar og enginn þeirra komst til lieimaliafnar. En allt fór vel hvað okkar báta og sjómenn snertir. Anna (Framh. á bls. 2) Ármann bjargaði fjórum mönnum úr Viðtal við formanninn Sigurfinn Olafsson BLAÐIÐ náði í gær sem snögg- vast tali af formanninum á vél- bátnum Ármanni frá Ólafsfirði, Sigurfinni Ólafssyni, sem var svo lánsamur að bjarga áhöfn- um af tveim trillum frá Dalvík í ofviðrinu 9. apríl. En Ármann kom til Akureyrar með Dalvík- ingana fjóra kl. 20,20 að kvöldi sama dags. Varstu í róðri, Sigurfinnur? Nei, við vorum að huga að loðnu í Skjálfanda fyrri partinn í gær. En svo héldum við heim á leið áður en veður fór veru- lega að versna, svona á 11. tím- anum. Hvenær urðuð þið varir við trillumar? Við urðum varir við þær, þeg ar við vorum út af Þorgeirsfirði. Þær voru samferða, Helgi og Sæbjörg. En þá var klukkan far in að ganga tvö og þá vor kom- ið vonzku veður og töluverður sjór, sem fór ört vaxandi. Við hægðum ferðina og fylgdum trillunum eftir, vestur fyrir Gjögrana, vorum rétt á eftir þeim, tilbúnir að veita þeim að- stoð, ef þær þyrftu hennar með. Og svo hafa trillurnar beðið um aðstoð? Já, Helgi gaf okkur merki og við fórum til hans. Vélin hafði stöðvazt í honum, enda búin að ganga lengi í sjó. Við renndum upp að honum og náðum báðum mönnunum í fyrstu tilraun. Sæbjörg hefur haldið áfram á meðan? Já, en litlu síðar gaf hún merki og óskuðu mennirnir að Sigurfinnur Ólafsson. koma um borð. Sjór var kominn í bátinn, en vélin gekk þó enn. Okkur gekk líka vel að ná mönn unum úr Sæbjörgu og það var skynsamlegast eins og á stóð að yfirgefa trilluna. Sjór var mik- ill og dimmviðri, og tæpast veð- ur fyrir svona litla báta. Og trillurnar? Við yfirgáfum þær bara, um annað var ekki að ræða. Maður veit ekki hvað þær hafa haldizt lengi ofansjávar. En þær eru ef- laust úr sögunni. Hvar gizkarðu á að þær hafi borið að landi, ef þær hafa ekki sokkið? Einhversstaðar innan við Múl ann, eftir veðurstöðurini að dæma. (Framhald á bls. 7.) Útgerð strandferðaskipa frá Ak. Mjög athyglisverð þingsályktunartillaga ÞINGMENN Framsóknarflokks ins í Norðurlandskjördæmi eystra, þeir Gísli Guðmundsson, Karl Kristjánsson og Ingvar Gislason fluttu nýlega þingsá- lyktunartillögu á Alþingi, sem vekja mun athygli á Norður- landi. Þingályktunartillagan er á þessa leið: ALÞINGI ályktar að skora á ríkisstjómina að láta athuga möguleika á þvi, að Skipaútgerð ríkisins, í samráði við hlutað- eigandi bæjar- og sýslufélög, komi á fót á Akureyri útgerð strandferðaskips, er annist strandferðir norðanlands, enda séu ferðir þess í samræmi við ferðir strandferðaskipa úr (Framhald á bls. 7.) ISigurður Jónsson, prentari í POB, | varð bráðkvaddur við vinnu sina í prentsmiðjunni í fyrradag — þriðjudaginn 9. apríl. Hann var búinn að starfa hjá POB í 40 ár. Sigurður var 56 ára er hann lézt.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.