Dagur - 15.05.1963, Blaðsíða 1

Dagur - 15.05.1963, Blaðsíða 1
MÁI.OAGN FrAMSÓKNARMAN'NA RnsijÓKi: Erlincur Davíosson SKftÍFSTOFA í Hai narstk.f.ti 90 Sími 1166. Sf.tningu og prentun ANNAST PrENTVERK OdUS Björnssonar h.f., Akurevri Dagur XLVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. maí 1963. — 30. tölublað ' 1 ■ -- . .. A ’ Auglýsinga^tjóri Jón Sam- ÚF.LSSON . ÁrgÁNCURINN KOSTAR kr. 120.00. Gjalddaci ER 1. JÚLÍ Bl.AÐID KEMUR ÚT Á MIÐVIKUDÖG- , UM OC Á LAÚGARDÖCUM, ÞEGAR ÁSTÆÐA ÞVKIR TIL Um 230 manns kosningafundi FYRSTI kosningafundui- Fram- sóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra var haldinn hér á Akureyri, í Borgarbíó s.l. laugardag; og hófst laust eftir kl. 2 síðdegis. Á fundinum mættu um 230 manns. Fundarstjóri var Bernharð Stefánssori fyrrv. alþingismaður Bauð hanri fundarfólk velkomið og þá sérstaklega formann Fram sóknarflokksins, Eystein Jóns- son alþingismahn, sem var máls- hefjandi á fundinum. En hann mætir nú fyrir hönd flokksins á ---- NORRÆM SUNDKEPPNIN i ENN er norræn sundkeppni; ; hafin. Hér á Akureyri hefst; keppnin í sundlaug bæjarins;! kl. 8 í kvöld, miðvikudag.!! Lúðrasveit bæjarins mun leika !; við það tækifæri og ýmsir!; forystumenn bæjarins ætla að ;; ganga (synda) á undan með ;; góðu eftirdæmi. ; íþróttabandalag Akureyrár!! hefur þegar kosið f jölmenna !! framkvæmdanefnd þessarar!; sundkeppni, sem stendur yfir !; til 15 september. Formaður;; hennar er Hermann Stefán-;! sson. !! í GREIN á 4. síðu svarar Gísli Guðmundsson spurningum í síðasta „Verkamanni“. Ræðir hann þar um sveitarómantík, jöfnun raforkuverðs, efna- hagsbandalög, kaupgjaldsmál, herstöðvar o. fl. í Borgarbíói á Framsóknarfl. nokkrum stöðum utan þess kjör- dæmis, þar sem hann er sjálfur í kjöri. Hann kom hingað á laug- ardagsnóttiná, þá frá Sauðár- króki, þar sem hann var frum- mælandi á mjög fjölmennum fundi B-listans daginn áður. Eftir að fundur hafði verið settur tók. Eysteinn Jónsson til máls og mun hafa talað í um það bil þrjá stundarfjórðunga. Mál sitt hóf hann með því að segja, að hann hyggðist nú flytja fund- armönnum sýnishorn af þeim á- róðri, sem oddvitar Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík óttuðust svo mjög, að þeir hefðu boðað skyndifund í Verði til að bólu- setja „innsta kjarnann“ í liði sínu gegn þessum áróðri. Kom Eysteinn síðan víða við í ræðu sinni og lauk henni með nokkr- um spurningum, sem kjósendur munu svara, hver fyrir sig, áður en gengið er til kosninga. Þá tók til máls Hjörtur E. Þór arinsson bóndi á Tjörn, fram- bjóðandinn í baráttusæti B-list- ans. Hann ræddi það m. a. að fylgi Framsóknarflokksins væri mjög jöfnum höndum í sveitum og bæjum og væri það út af fyr- ir sig flokknum sífelld hvöt til að vinna að sem beztu samstarfi þar á milli. Síðan töluðu enn fjórir frambjóðendur listans og í þessari röð: Ingvar Gíslason', Sigurður Jóhannesson, Karl Kristjánsson og Gísli Guðmunds son. Fundarstjórinn, Bernharð Stefánsson, sleit svo fundi með stuttri hvatningarræðu, þar sem hann, eins og fleiri ræðumenn, (Framhald á blaðsíðu 5.) Það er hafskipabrygggjan nýja á Raufarhöfn Á RAUFARHÖFN, á austan- verðri Melrakkasléttu, er nafn- kunnasta síldarstöð á Norður- og Austurlandi, ásamt Siglu- firði. Þar er 5—6 þúsund mála síldarverksmiðja, sem er ríkis- eign, byggð um 1940 í stað lítill- ar, gamallar verksmiðju, sem ríkissjóður keypti af Norðmönn- um á sínum tíma. Hvorttveggja gerðist í fyrri stjórnartíð Her- manns Jónassonar. Og þar starfa í sumar 7 síldarsöltunarstöðvar. Raufarhöfn hefur um langa hríð verið ein mesta útflutnings höfn landsins, en er annars gam all verzlunarstaður. Gránufélag ið hafði þar eitt sinn útibú, í tíð Tryggva Gunnarssonar, á öld- inni sem leið. Á Raufarhöfn er að nokkru leyti lokuð höfn frá náttúrunnar hendi og á síðustu áratugum hef ur höfnin verið dýpkuð oftar en einu sinni. Síldarlöndunar- bryggjur eru þar margar. En hingað til hefur hreppurinn eða hafnarsjóður enga bryggju átt. Vöruflutningaskip, flest, hafa verið afgreidd við hafskipa- bryggju síldarverksmiðjanna og um það samið. Þessi bryggja er nú orðin gömul og af sér geng- in og fyrir nokkru samdist svo um, að hafnarsjóður Raufarhafn ar tæki við þessari gömlu bryggju og aðstöðu þeirri til bryggjugerðar, sem síldarverk- smiðjurnar hafa á staðnum. Og snemma á þessu ári var hafin framkvæmd við að byggja nýja hafskipabryggju í hennar stað. Við þessa bryggju á að vera hægt að afgreiða tvö flutninga- skip í einu. En nú er ekki hægt að afgreiða nema eitt. Nemendut á fyrsta raf- og logsuðunámskeiði, sem haldið er á Akureyri. Kennarinn, Steinn Guð- mundsson, er fjórði f. v. í fremstu röð og skólastjóri Iðnskólans, Jón Sigurgeirsson, fimmti í sömu röð. Fyrsta námskeiði í rafsuðu og í rafsuðu og logsuðu var einnig kennd' svokölluð argon-suða, nú aðferð, sem líklegt er að Nemendur 40; kennari Steinn Guðmundsson ryðjl ser mjog trl rums 1 malm' logsuðu er nýlokið NÝLEGA er lokið námskeiði í logsuðu og rafsuðu, því fyrsta á Akureyri í þessum greinum iðnaðarins. Nálmskeiðið var haldið á vegum Iðnskóla Akur- eyrar en með aðstoð velviljaðra járniðnaðarverkstæða í bænum. Nemendur voru 40 talsins úr ýmsum greinum járniðnaðarins, auk rafvirkjanema og kennari Steinn Guðmundsson kennari frá Iðnaskóla Reykjavikur, mjög fær maður talinn í sinni grein. Að námskeiði loknu voru nemendum afhent skírteini, sem f vetur var lauslega áætlað, að hið nýja mannvirki mundi kosta um 10 milljónir króna, en ekki mun verða hægt að ljúka því á þessu ári. Mannvirki þetta er grjót-upp- fylling með leguköntum fyrir skip og eiga þessir legukantar að standa á steinstólpum, sem nú er verið að steypa þar á staðnum. Framan af tafðist bryggjugerð in, eða grjótflutningur í bryggj- una vegna þess að um þær mundir var enn hlýtt í veðri og jörð meira og minna ófrosin. Reyndist því óhjákvæmilegt að styrkja veginn, sem bera þurfti grjótflutningana. En að því er stefnt ,að flutningaskip geti far- ið að leggjast að hinni nýju bryggju þegar siglingar til Rauf arhafnar taka að færast í auk- ana vegna væntanlegrar síldar- vertíðar nú í sumar. □ kunna að öðlast sína þýðingu, þótt seinna verði. Ohætt er að fullyrða, að nemendur töldu sér mikils virði að njóta þessarar kennzlu, enda sannast mála, að iðnaðarmenn hér og annars staðar á landinu hafa ekki öðlast kennslu í þessari grein, svo sem vera skyldi fram að þessum tíma. Kennarinn lét svo ummælt við fleira en eitt tækifæri, að slíkum nemendahóp, sem hér á Akureyri hefði hann aldrei fyrr kynnst, hvað áhuga snerti, enda væri árangurinn eftir því. Eru þessi ummæli vissulega ánægju- leg og uppörvandi og vonandi verður ekki látið staðar numið hvað snertir hina verklegu kennslu á ýmsum sviðum, með aðstoð sérmenntaðra manna. Þetta nýstárlega námskeið var að því er hið verklega snerti, haldið á Odda. Og auk kennslu LAMB FÆDDIST MEÐ SEX FÆTUR A SUNNUDAGSMORGUN- INN fæddist sexfætt lamb á Neðri-Vindheimum á Þela- mörk. Þetta er tvílembingur og sá þeirra, er fyrr fæddist. Aukafæturnir tveir virðast eiga upptök sín fram undir bringukolli, eru að mestu samgrónir og eru um það bil í fullri stærð, sagði Jóhannes Jóhannesson bóndi blaðinu í gærmorgun. Lambið getur ekki gengið, en rís upp á fram- fæturna og hefur góða lyst á móðurmjólkinni, þótt ekki hafi það komist á spena. Það mun mjög sjaldgæft, að sexfætt lömb fæðist lifandi. Húsavík 14. maí. Afli báta, er róið hafa frá Húsavík í vetur, er frá áramótum til aprílloka 1695 tonn. Það er um 130 tonnum minni afli en á sama tíma í fyrra. Aðalorsök fyrir minna aflamagni nú eru ógæftirnar síð ari hluta þessa tímabils. En mikl ar ógæftir hafa verið frá Dimbdl viku til þessa. Héðan róa í vetur 8 litlir þil- farsbátar og nokkrar trillur, þeg ar gefur fyrir þær. Freyja er aflahæst. Formaður er Guðjón Björnsson. Skólaslit gagnfræðaskólans fóru fram 12. maí. í skólanum voru 119 nemendur og luku 40 unglingaprófi en 11 munu ganga undir landspróf. Það nýmæli var upp tekið við skólann í vetur, að dans var kenndur. Annaðist Ingimundur Jónsson þá kennslu og stóð hún í 4 mánuði. Eftir skólaslitaræðu Sigurjóns Jóhannessonar skólastjóra var sýning á teikningum og handa- vinnu nemenda, og var margt eigulegra muna. Handavinnu- kennari var Matthías Bjömsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.