Dagur - 15.05.1963, Side 1
MÁI.OAGN FrAMSÓKNARMAN'NA
RnsijÓKi: Erlincur Davíosson
SKftÍFSTOFA í Hai narstk.f.ti 90
Sími 1166. Sf.tningu og prentun
ANNAST PrENTVERK OdUS
Björnssonar h.f., Akurevri
Dagur
XLVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. maí 1963. — 30. tölublað
' 1 ■ -- . .. A ’
Auglýsinga^tjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁrgÁNCURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjalddaci ER 1. JÚLÍ
Bl.AÐID KEMUR ÚT Á MIÐVIKUDÖG- ,
UM OC Á LAÚGARDÖCUM,
ÞEGAR ÁSTÆÐA ÞVKIR TIL
Um 230 manns
kosningafundi
FYRSTI kosningafundui- Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra var haldinn
hér á Akureyri, í Borgarbíó s.l.
laugardag; og hófst laust eftir kl.
2 síðdegis. Á fundinum mættu
um 230 manns.
Fundarstjóri var Bernharð
Stefánssori fyrrv. alþingismaður
Bauð hanri fundarfólk velkomið
og þá sérstaklega formann Fram
sóknarflokksins, Eystein Jóns-
son alþingismahn, sem var máls-
hefjandi á fundinum. En hann
mætir nú fyrir hönd flokksins á
----
NORRÆM
SUNDKEPPNIN i
ENN er norræn sundkeppni; ;
hafin. Hér á Akureyri hefst;
keppnin í sundlaug bæjarins;!
kl. 8 í kvöld, miðvikudag.!!
Lúðrasveit bæjarins mun leika !;
við það tækifæri og ýmsir!;
forystumenn bæjarins ætla að ;;
ganga (synda) á undan með ;;
góðu eftirdæmi. ;
íþróttabandalag Akureyrár!!
hefur þegar kosið f jölmenna !!
framkvæmdanefnd þessarar!;
sundkeppni, sem stendur yfir !;
til 15 september. Formaður;;
hennar er Hermann Stefán-;!
sson. !!
í GREIN á 4. síðu svarar Gísli
Guðmundsson spurningum í
síðasta „Verkamanni“. Ræðir
hann þar um sveitarómantík,
jöfnun raforkuverðs, efna-
hagsbandalög, kaupgjaldsmál,
herstöðvar o. fl.
í Borgarbíói á
Framsóknarfl.
nokkrum stöðum utan þess kjör-
dæmis, þar sem hann er sjálfur
í kjöri. Hann kom hingað á laug-
ardagsnóttiná, þá frá Sauðár-
króki, þar sem hann var frum-
mælandi á mjög fjölmennum
fundi B-listans daginn áður.
Eftir að fundur hafði verið
settur tók. Eysteinn Jónsson til
máls og mun hafa talað í um það
bil þrjá stundarfjórðunga. Mál
sitt hóf hann með því að segja,
að hann hyggðist nú flytja fund-
armönnum sýnishorn af þeim á-
róðri, sem oddvitar Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík óttuðust
svo mjög, að þeir hefðu boðað
skyndifund í Verði til að bólu-
setja „innsta kjarnann“ í liði
sínu gegn þessum áróðri. Kom
Eysteinn síðan víða við í ræðu
sinni og lauk henni með nokkr-
um spurningum, sem kjósendur
munu svara, hver fyrir sig, áður
en gengið er til kosninga.
Þá tók til máls Hjörtur E. Þór
arinsson bóndi á Tjörn, fram-
bjóðandinn í baráttusæti B-list-
ans. Hann ræddi það m. a. að
fylgi Framsóknarflokksins væri
mjög jöfnum höndum í sveitum
og bæjum og væri það út af fyr-
ir sig flokknum sífelld hvöt til
að vinna að sem beztu samstarfi
þar á milli. Síðan töluðu enn
fjórir frambjóðendur listans og
í þessari röð: Ingvar Gíslason',
Sigurður Jóhannesson, Karl
Kristjánsson og Gísli Guðmunds
son. Fundarstjórinn, Bernharð
Stefánsson, sleit svo fundi með
stuttri hvatningarræðu, þar sem
hann, eins og fleiri ræðumenn,
(Framhald á blaðsíðu 5.)
Það er hafskipabrygggjan nýja á Raufarhöfn
Á RAUFARHÖFN, á austan-
verðri Melrakkasléttu, er nafn-
kunnasta síldarstöð á Norður-
og Austurlandi, ásamt Siglu-
firði. Þar er 5—6 þúsund mála
síldarverksmiðja, sem er ríkis-
eign, byggð um 1940 í stað lítill-
ar, gamallar verksmiðju, sem
ríkissjóður keypti af Norðmönn-
um á sínum tíma. Hvorttveggja
gerðist í fyrri stjórnartíð Her-
manns Jónassonar. Og þar starfa
í sumar 7 síldarsöltunarstöðvar.
Raufarhöfn hefur um langa
hríð verið ein mesta útflutnings
höfn landsins, en er annars gam
all verzlunarstaður. Gránufélag
ið hafði þar eitt sinn útibú, í tíð
Tryggva Gunnarssonar, á öld-
inni sem leið.
Á Raufarhöfn er að nokkru
leyti lokuð höfn frá náttúrunnar
hendi og á síðustu áratugum hef
ur höfnin verið dýpkuð oftar en
einu sinni. Síldarlöndunar-
bryggjur eru þar margar. En
hingað til hefur hreppurinn eða
hafnarsjóður enga bryggju átt.
Vöruflutningaskip, flest, hafa
verið afgreidd við hafskipa-
bryggju síldarverksmiðjanna og
um það samið. Þessi bryggja er
nú orðin gömul og af sér geng-
in og fyrir nokkru samdist svo
um, að hafnarsjóður Raufarhafn
ar tæki við þessari gömlu
bryggju og aðstöðu þeirri til
bryggjugerðar, sem síldarverk-
smiðjurnar hafa á staðnum. Og
snemma á þessu ári var hafin
framkvæmd við að byggja nýja
hafskipabryggju í hennar stað.
Við þessa bryggju á að vera
hægt að afgreiða tvö flutninga-
skip í einu. En nú er ekki hægt
að afgreiða nema eitt.
Nemendut á fyrsta raf- og logsuðunámskeiði, sem haldið er á Akureyri. Kennarinn, Steinn Guð-
mundsson, er fjórði f. v. í fremstu röð og skólastjóri Iðnskólans, Jón Sigurgeirsson, fimmti í sömu röð.
Fyrsta námskeiði í rafsuðu og
í rafsuðu og logsuðu var einnig
kennd' svokölluð argon-suða,
nú aðferð, sem líklegt er að
Nemendur 40; kennari Steinn Guðmundsson ryðjl ser mjog trl rums 1 malm'
logsuðu er nýlokið
NÝLEGA er lokið námskeiði í
logsuðu og rafsuðu, því fyrsta
á Akureyri í þessum greinum
iðnaðarins. Nálmskeiðið var
haldið á vegum Iðnskóla Akur-
eyrar en með aðstoð velviljaðra
járniðnaðarverkstæða í bænum.
Nemendur voru 40 talsins úr
ýmsum greinum járniðnaðarins,
auk rafvirkjanema og kennari
Steinn Guðmundsson kennari
frá Iðnaskóla Reykjavikur, mjög
fær maður talinn í sinni grein.
Að námskeiði loknu voru
nemendum afhent skírteini, sem
f vetur var lauslega áætlað,
að hið nýja mannvirki mundi
kosta um 10 milljónir króna, en
ekki mun verða hægt að ljúka
því á þessu ári.
Mannvirki þetta er grjót-upp-
fylling með leguköntum fyrir
skip og eiga þessir legukantar
að standa á steinstólpum, sem
nú er verið að steypa þar á
staðnum.
Framan af tafðist bryggjugerð
in, eða grjótflutningur í bryggj-
una vegna þess að um þær
mundir var enn hlýtt í veðri og
jörð meira og minna ófrosin.
Reyndist því óhjákvæmilegt að
styrkja veginn, sem bera þurfti
grjótflutningana. En að því er
stefnt ,að flutningaskip geti far-
ið að leggjast að hinni nýju
bryggju þegar siglingar til Rauf
arhafnar taka að færast í auk-
ana vegna væntanlegrar síldar-
vertíðar nú í sumar. □
kunna að öðlast sína þýðingu,
þótt seinna verði. Ohætt er að
fullyrða, að nemendur töldu sér
mikils virði að njóta þessarar
kennzlu, enda sannast mála, að
iðnaðarmenn hér og annars
staðar á landinu hafa ekki
öðlast kennslu í þessari grein,
svo sem vera skyldi fram að
þessum tíma.
Kennarinn lét svo ummælt
við fleira en eitt tækifæri, að
slíkum nemendahóp, sem hér á
Akureyri hefði hann aldrei fyrr
kynnst, hvað áhuga snerti, enda
væri árangurinn eftir því. Eru
þessi ummæli vissulega ánægju-
leg og uppörvandi og vonandi
verður ekki látið staðar numið
hvað snertir hina verklegu
kennslu á ýmsum sviðum, með
aðstoð sérmenntaðra manna.
Þetta nýstárlega námskeið var
að því er hið verklega snerti,
haldið á Odda. Og auk kennslu
LAMB FÆDDIST
MEÐ SEX FÆTUR
A SUNNUDAGSMORGUN-
INN fæddist sexfætt lamb á
Neðri-Vindheimum á Þela-
mörk. Þetta er tvílembingur
og sá þeirra, er fyrr fæddist.
Aukafæturnir tveir virðast
eiga upptök sín fram undir
bringukolli, eru að mestu
samgrónir og eru um það bil
í fullri stærð, sagði Jóhannes
Jóhannesson bóndi blaðinu í
gærmorgun. Lambið getur
ekki gengið, en rís upp á fram-
fæturna og hefur góða lyst á
móðurmjólkinni, þótt ekki hafi
það komist á spena.
Það mun mjög sjaldgæft, að
sexfætt lömb fæðist lifandi.
Húsavík 14. maí. Afli báta, er
róið hafa frá Húsavík í vetur, er
frá áramótum til aprílloka 1695
tonn. Það er um 130 tonnum
minni afli en á sama tíma í
fyrra. Aðalorsök fyrir minna
aflamagni nú eru ógæftirnar síð
ari hluta þessa tímabils. En mikl
ar ógæftir hafa verið frá Dimbdl
viku til þessa.
Héðan róa í vetur 8 litlir þil-
farsbátar og nokkrar trillur, þeg
ar gefur fyrir þær. Freyja er
aflahæst. Formaður er Guðjón
Björnsson.
Skólaslit gagnfræðaskólans
fóru fram 12. maí. í skólanum
voru 119 nemendur og luku 40
unglingaprófi en 11 munu ganga
undir landspróf. Það nýmæli var
upp tekið við skólann í vetur,
að dans var kenndur. Annaðist
Ingimundur Jónsson þá kennslu
og stóð hún í 4 mánuði.
Eftir skólaslitaræðu Sigurjóns
Jóhannessonar skólastjóra var
sýning á teikningum og handa-
vinnu nemenda, og var margt
eigulegra muna. Handavinnu-
kennari var Matthías Bjömsson.