Dagur - 15.05.1963, Blaðsíða 8

Dagur - 15.05.1963, Blaðsíða 8
Mjólkurslöð byggð á Þórshöln í sumar Aðalfundi Kaupfélags Langnesinga nýlokið SMÁTT OG STÓRT BLAÐIÐ átti símtal við yngsta kaupfélagstjóra landsins í fyrra- kvöld, Gísla Pétursson. En hann er aðeins 25 ára gamall og er framkvæmdastjóri Kaupfélags Langnesinga á Þórshöfn. Aðal- fundi kaupfélagsins var þá ný- lokið, var haldinn 12 maí á Þórs- höfn.' Þar voru mættir 40 full- trúar frá 6 félagsdeildum og allmargir félagsmenn aðrir. En Kaupf élag Langnesinga nær yfir 4 hreppa. Stjórnarformaðurinn, Eggert Ólafsson í Laxárdal, setti fund- inn en fundarstjóri var Þórarinn Kristjánsson í Holti og fundar- ritari Grímur Guðbjörnsson Syðra-Álandi. Vörusalan nam á liðnu ári 16,5 milljónum króna og hafði vaxið um 2 millj. króna. Kaup- félagið tók á móti, til sölumeð- ferðar, 205 tonnum af kjöti, 47,5 tonnum af gærum og rúmlega 20 tonnum af ull. Félagar í Kaupfélagi Langnes- inga eru 330 talsins. Ur stjórn áttu að ganga Eggert Ólafsson og Aðalbjörn Arngrímsson en voru endurkjörnir. Séra Sigmar Torfason á Skeggjastöðum var kosinn í stað Einars Hjartar- sonar bónda í Saurbæ, sem lést sl. vetur. Aðrir í stjórn eru: Sigurður Jónsson Efralóni og Vilhjálmur Guðmundsson Syð- ralóni. Eftirfarandi tillaga var einróma samþykkt á fundinum: „Aðalfundur Kaupfélags Lang- nesinga 12. maí 1963 vill með tilvísun til fyrri samþykkta lýsa ánægju sinni yfir því, að ákveð- ið hefur verið að byggja mjólk- urstöð á Þórshöfn á þessu ári, og lýsir fullu fylgi við stefnu framkvæmdastjóra og félags- stjórnar í þessu máli.“ Þá samþykkti fundurinn að vinna að því, að tvöfalda afl frystivéla, frá því sem nú er, þá gat kaupfélagsstjórinn þess, að á síðasta ári hefði verið unnið að endurbótum á eldri húseignum félagsins aðallega vörugeymslum. Vinnslu og sölu sjávarafurða á Þórshöfn annast Fiskiðjusamlag Þórshafnar. En það fyrirtæki er eign kaupfé- lagsins, Þórshafnarhrepps og út- gerðarmanna á staðnum. Fram- kvæmdastjóri þess er Karl Hjálmarsson, en í stjórn þess eru: Friðrik Sveinsson héraðs- læknir, Sigurður Sigurjónsson útgerðarmaður og Gísli Péturs- son kaupfélagsstjóri. □ GREINAR HERMOÐS I ARNESI. Tíminn birti 12. þ.m. langa grein eftir formann Búnaðar- sambands Suður - Þingeyinga, Hermóð Guðmundsson í Arnesi, með yfirskriftinni „Hverjum áfanga bænda svarað með lækkun búvara“. Er hér um að ræða framhald af fyrri grein H. G. í sama blaði, Samvinnumenn námu land Rætt við Þórhall Björnsson kaupfélagsstjóra a LANDSKUNNUR, áhugasamur og hvatlegur kaupfélagsstjóri, Þórhallur Björnsson á Kópa- skeri, leit nýlega inn á skrifstof- ur Dags. En hann var þá á heim- leið áð sunnan, hafði m. a. setið á flokksþingi Framsóknar- manna í Reykjavík, enda á hann sæti í miðstjórn flokksins og er á B-listanum hér í kjördæminu. Félagið, sem hann starfar hjá, er eitt af elztu samvinnufélögum hér á landi. Fyrsti kaupfélags- stjórinn þar var Jón Jónsson frá Gautlöndum. Þá tók við Björn Kristjánsson frá Víkingavatni, fyrrv. alþingismaður, en Þórhall ur er þriðji kaupfélagsstjórinn á 69 árum. Hann átti annríkt eins og vant er, en gaf sér þó tíma til að svara nokkrum spurn ingum blaðsins. Viltu segja okkur helztu drætti í staríssögu þess samvinnufé- lags, sem þú veitir nú forstöðu? Kaupfélag Norður-Þingeyinga var stofnað 1894 og valið heimili á Kópaskeri, sem þá var eyði- staður og engin byggð fyrr en kaupfélagið reisti þar sín fyrstu verzlunarhús. Fram til þess tíma hafði verzl- Skólasýning í Sólgarði SL. LAUGARDAG héldu skóla- börn í Saurbæjarskólahverfi skemmtun í Sólgarði. Einnig var sýnd handavinna nemenda laug ardag og sunnudag. Skemmtun barnanna sá ég því miður ekki, en góðar heimildir hef ég fyrir því að þar hafi verið fjölbreytt skemmtiatriði og vel með þau farið. Ánægjulegt þótti mér að heyra um flutning á kvæðinu Ölduogar heiðraðir Á AÐALFUNDI Framsóknar- félags Ólafsfjarðar, sem hald- inn var 5. maí s.l. voru eftir- taldir menn gerðir að heiðurs- félögum, en þeir eru nú allir orðriir ^ötugir og búnir að starfa í félaginu rúm 20 ár. Mennirnir eru þessir: Göttlieb Halldórsson, Bursta- brekku. Jónas Jónsson, Brimnesvegi 2, Ólafsfirði. Magnús Sigurðsson, Þverá. Sigurður Jóhannesson, skósm. Kirkjuvegi 7, Ólafsf. Ellefu gengu í félagið Q „Burnirótin" eftir skáldið Pál J. Árdal, er var Eyfirðingur og ólst upp í Saurbæjarhreppi, og er vel við eigandi að sýndir séu þar söngleikir eftir þau frænd- systkinin Pál og Kristínu Sigfús dóttur, því að þeir eru fagrir og flytja góðan boðskap. Æskilegt væri að skemmtun þessi yrði endurtekin svo að fleirum gæfist kostur á að sjá og heyra. Handavinnusýninguna í Sól- garði sá ég og undraðist yfir þeim árangri, er náðst hefur á svo skömmum tíma, því að (Framhald á blaðsíðu 4). Þórhallur Björnsson. un íbúa félagssvæðisins skipzt milli Húsavíkur, Raufarhafnar og Vopnafjarðar. Þó höfðu lausa kaupmenn siglt til Kópaskers Verkefni félagsins, eins og ann- arra samvinnufélaga, laut að út- vegun nauðsynjavara fyrir fólk- ið og að selja framleiðsluvörur þess. Með árunum hefur félags- starfið verið fært út á fleiri svið, sem félagsmönnum hefur þótt hentara að leysa sameiginlega, með tilstyrk félagsins. Kaupfé- lagið annast nú, auk verzlunar- innar, slátur- og frystihúsrekst- ur, véla- og bifreiðaverkstæði, gistihúsrekstur, vöru- og fólks- flutninga með bifreiðum, skipa- afgreiðslur og tryggingastarf- semi, ennfremur smávegis fisk- verkun, sem nú er byrjuð þar. íbúar staðarins eru nú nær 100, og atvinna aðallega hjá félaginu. í þau tæp 70 ár, sem félagið hef- ur starfað, hafa verið þrír stjórn arformenn í félaginu og þrír kaupfélagsstj órar. Hvemig telur þú aðstöðu til bú- skapar á þínu félagssvæði síð- ustu árin? Hún hefur farið versnandi nú Skrifsfofa Framsóknarfl. er í Hafnarstræti 95 og opin alla virka daga frá kl. 9 árdegis til kl. 10 síðdegis. Stuðningsfólk flokksins er beðið að gefa skrifstofunni nauð- synlegar upplýsingar varðandi kosningamar, t. d. um það fólk, sem verður f jarverandi á kjördegi. Utankjörstaðakosning er þegar hafin. Símar Framsóknar- skrifstofunnar em 1443 og 2982. Q síðustu árin, einkum hjá yngri bændum, vegna of lágs afurða- verðs til bænda. Kemur vaxta- hækkunin einkum mjög hart niður á sauðfjárbændum, sem þurfa að bíða svo lengi eftir af- urðum búanna, sem aðeins falla til einu sinni á ári. ' \ vý'- Hefur verið mikið um fram- kvæmdir í héraðinu síðustu árin? Nei, mjög lítið hefur verið byggt síðustu árin og varla hægt að segja, að haldið hafi verið við í þeim efnum. Vélvæðingin hef- ur þó haldið áfram og bændur haf reynt að bæta sér litlar bús- tekjur með því að sækja vinnu eftir mætti að sjávarsíðunni hin síðustu ár. En það vill oft koma illa niður á búskapnum. Hver eru helztu áhugamál al- mennings á þínu félagssvæði um framkvæmdir þjóðfélagsins á næstunni? Mest aðkallandi er uppbygg- ing þjóðveganna í héraSinu, sem nú eru lokaðir nær allan vetur- inn ef nokkuð snjóár, og lang- tímum saman að vorinu vegna aurbleytu. Horfir nú mjög al- varlega um, að bændur komi á- (Framh. á bls. 5) er nefndist „Barlómur bænda“ (i gæsalöppum). í síðari grein Hermóðs eru mjög langar og ýtarlegar talnatöflur, sem hann hefur gert eða látið gera og varða afkomu búrekstrar hér á landi á árununt 1943—62. Sjálf- ur segir hann, að sumt af því, sem fram kemur í þessum grein- um, sé „umdeilanlegt“, en margt er þar sýnilega athyglisvert fyrir bændur og aðra. ALÞINGISMAÐUR SAGÐI, AÐ BÆNDAFYLGIÐ BORG- AÐI SIG EKKI. Hermóður kemur viða við og er oft ómyrkur í máli. Á einum stað segir hann: „Þetta (að halda sínum hlut) er jafn sjálf- sagt, enda þótt ýmsir stjóm- niálaflokkar og stjómmálaleið- togar, sem svro eru kallaðir, virð- ist líta svo á, að þeir myndu bæta stjórnmálaaðstöðu sína með því að þurfa ekki lengur að láta sig málefni bænda varða, eins og einn ágætur alþingis- maður skýrði mér eitt sinn frá. Þótt ég ræði þetta ekki frekar hér, er rétt að benda á, að þessi skoðun getur haft vafasamt gildi fyrir stjórnmálamanninn, þótt hann telji fjölbýlið hið fyrirheitna land. Ég hygg að sveitabóndinn og fjölbýlismað- urinn séu hver öðmm háðir“. ÓHAGSTÆÐAR GEN GISBRE YTIN G AR. „Gengisbreytingamar 1960 og 1961 vom á engan hátt fram- kvæmdar með tilliti til þarfa eða getu landbúnaðarins“ segir H. G- „og án nokkurs samráðs við bændastéttina. Vom þessar gengisbreytingar tvímælalaust meiri en rök hnigu til, enda hafa þær valdið landbúnaðinum (Framhald á bls. 5.) Fundir í Skúlagarði og Kópaskeri Hætt við að fundur falli niður vegna ófærðar SL. SUNNUDAG hélt B-listinn, eins og auglýst hafði verið, fund í Skúlagarði í Kelduhverfi. Stóð sá fundur í 6 klukkustundir. Um ræður voru fjörugar og kom fram mikill áhugi héraðsmanna um landsmál og innanhéraðs- mál. Fundarstjóri var Björn Guðmundsson, oddviti í Lóni. Á mánudagskvöldið var svo fundur á Kópaskeri. Þar tóku héraðsbúar einnig mikinn og góðan þátt í umræðum. Fundar- stjóri var Helgi Kristjánsson, bóndi í Leirhöfn. í gærkvöldi (þriðjudagskv.) var fundur á Raufarhöfn, en af honum var ekki hægt að fá frétt ir áður en blaðið fór í prentun. Til stóð, að fjórði fundurinn yrði á Þórshöfn í kvöld, en óvíst er að úr því geti orðið vegna þess, að Hálsavegur er nú tal- inn með öllu ófær. Ei- það raun- ar ekki sá vegur einn, sem líka sögu er að segja af, því að yfir- leitt eru vegir á þessum slóð- um nú illfærir, eins og gerist á þessum árstíma, og hafa margir fengið á því að kenna undan farna daga. Á fundunum hafa mætt af hálfu B-listans, Karl Kristjáns- (Framhald á blaðsíðu 4). MESTI SNJÓRINN í GRÍMSEY Grímsey 13. maí. Hér hefur mjög lítið verið róið síðan fyrir páska. Fyrir þann tíma var góður afli. Nú, fyrir fáum dögum kom mesti snjórinn og meiri en nokkurntíma kom í vetur. Flug- völlurinn varð ófær af þeim sökum í bráð, en nú er aftur að verða snjólaust. Sauðburðurinn stendur yfir óg gengur sæmilega vel. Fuglinn kom snemma í bjargið, en ekki byrjar varpið fyrr en um 20. maí. Við bíðum eftir sumrinu og erum tilbúin að taka á móti því, þegar það kemur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.