Dagur - 25.05.1963, Blaðsíða 7
7
Kafli úr grein Hjarfar á Tjörn
endurprentaður vegna setninga,
sem fallið hafa niður eða færzt
til í prentun o. fl.
Á baksíðu Vei-kamannsins er
svo grein eftir fulltrúa Reykja-
víkur á lista Alþýðubandalags-
ins, Arnór Sigurjónsson. Erindi
hans er að vara Þjóðvarnarmenn
í kjördæminu við að kjósa mig
á þing. Alþýðubandalagsmenn
eru nú eins og veiðimenn, sem
kastað hafa nót sinni á laglega
torfu, en vita ekki hvort kastið
muni heppnast, eða hvort bann-
settar bröndurnar muni stinga
sér og tvístrast og ekkert koma
í ljós þegar byrjað verður að
háfa. Þeir taka þá til ráðs, sem
síldveiðimönnum hefur líklega
aldrei komið í hug — þeir fara
að telja um fyrir bráðinni til
að róa hana. Greinarnar í Verka
xnanninum eiga að vera þess-
háttar róunarlyf handa fyrrver-
andi kjósendum Þjóðvarnar-
flokks íslands. Úr því að
Arnór og Verkamaðurinn gera
sér svo títt um þjóðvarnarmenn
og hernámsandstæðinga, er bezt
að ræða þetta nánar. Þjóðvarn-
arflokkurinn var stofnaður til að
gera andstæðingum erlendrar
hersetu hér kleift að sameinast
í einum stjómmálaflokki í bar-
áttunni gegn aðild íslands að
hernaðarsamtökum, án þess að
þurfa um leið að efla Sósíalista-
flokkinn, sem foringjar Þjóð-
varnar kölluðu óskaandstæðing
hernámsflokkanna, vegna aug-
Ijósra og opinberra tengsla hans
við ríki kommúnismans.
Er nokkur, sem fylgdist með
feiii Þjóðvarnarflokksins og las
blað hans, Frjálsa þjóð, svo
gleyminn, að muna ekki eftir
slagorðinu „Óskaandstæðingur
hernámsflokkanna", svo oft sern
það var endurtekið? Þetta var
grundvallarhugtak, sem beinlín
is réttlætti sjálfa stofnun flokks-
ins og tilveru. Því að hefði
Sósíalistaflokkurinn ekki verið
sá, sem hann var (og er)
óbrigðull ísl. bandamaður og
málsvari kommúnistaríkjanna
hefði ekki verið fyrir hendi
neinn grundvöllur fyrir stofnun
Þj óð varnarf lokks.
Þegar svona er komið fyrir
stjórnmálaflokki, þá verður það
að teljast nokkuð mikil frekja
að vilja enn fá að ráða yfir at-
kvæðum fyrrverandi áhang-
enda, og fá að verzla með þau
í heildsölu á hinum ótrygga
markaði, sem heitir Alþýðu-
bandalag. Og ennþá meiri
ósvífni er það, þegar óviðkom-
andi aðilar eins og Verkamaður-
inn og Arnór vilja hrifsa til sín
verzlunarréttinn.
Þjóðvarnarflokkurinn fór vel
af stað, en þó ekki nógu vel.
Það verður að segjast eins og er,
að takmarkið náðist ekki í
fyrstu atrennu, það að sameina
sem flesta hersetuandstæðinga
undir merki flokksins. Meiri
hluti þeirra hélt tryggð við sína
gömlu flokka, við Sósíalista-
flokkirm, við Framsóknarflokk-
inn og við báða hina flokkana,
því í þeim öllum voru andstæð-
ingar hersetu fyrir, þótt misjafnt
væri. Síðan hefur takmarkið
alltaf verið að færast fjær, unz
nú er svo komið, að lengur er
ekki að því stefnt.
Með samningi sínum við
Alþýðubandalagið, sem er að
meginstofni til sósíalistaflokkm',
hefur Þjóðvarnarflokkur íslands
tekið stefnu burt frá mark-
inu og fyrirgert tilverurétti
sinum sem sjálfstæður stjórn-
málaflokkur. Ég lít svo. á, að
saga flokksins sé öll. Það er
aðeins eftir að skrá lokaorðin.
Það er ekki tilhlýðilegt að
vera með ásakanir í garð miðstj.
Þjóðvarnarflokksins eða meiri-
hluta hennar.
Aðstaðan hefur verið harla
erfið og engra góðra kosta völ.
En þó má segja, að það sem
helzt hann varst vann, varð þó
að koma yfir hann, og er slfkt
jafnan mikil kaldhæðni örlag-
anna.
Þjóðvarnarflokkurinn er bú-
inn að vera, það vita allir og
engir betur en mennirnir í
Sósíalistaflokknum. □
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
Sumarmánuðina júní, júlí og ágúst verður
AMTSBÓKASAFNH) Á AKUREYRI
útlán og lestrarsalur, opið þrjá daga í viku,
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—7 e. h.
BÓKAVÖRÐUR.
Innilegar þakkir til allra, fjær og nær, fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðaríör
ÓSKARS KRISTJÁNSSONAR, Samkomugerði.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs Fjórð-
ungssjúkraliússins á Akureyri.
Guðný Stefánsdóttir, systkini, börn og tengdaböm.
- Litið í bæjarblöðin
(Framhald af blaðsíðu 5).
Útlit er fyrir að Verkamaðurinn
(eða Arnór) þyrfti að fá tilsögn
í reglum þeim, sem gilda um út-
reikning í hlutfallskosningum.
Verkamaðurinn í gær kallar
Karl, Gísla og Ingvar „Nato-
þrenninguna“. Væri ekki rétt að
bæta formanni Alþýðubandalags
ins, Hannibal Valdimarssyni,
við, þar sem hann greiddi at-
kvæði með vamarsamningnum
við Bandaríkin á Alþingi 1951,
og kalla þetta þá t. d. 4-laufa-
smárann? Eitthvert skáldlegt
nafn væri svo hægt að finna
handa kommúnistaleiðtogunum
fyrir sunnan, sem hafa stofnað
verzlunarhlutafélög til að kaupa
vörur af efnahagsbandalagi
Sovétþjóðanna, og félögum
þeirra á Alþingi, sem vildu
segja Þjóðverjum og Japönum
stríð á hendur, að ósk Rússa
1945 og sögðu í þann tíð, að
hér á landi mætti „skjóta án
miskunnar“ fyrir „réttan‘‘ mál-
stað.
Og að lokum: Er það ekki
lieldur snemmt hjá Verkamann-
inum að fullyrða, að Gísli Guð-
mundsson gefi sér ekki „tíma
til að heimsækja kjósendur sína
í gamla kjördæminu, Norður-
Þingeyjarsýslu“? Dagur veit
ekki betur en að G. G. dvelji ár-
lega vikur eða mánuði í kjör-
dæmi sínu og ferðist þar um, og
sé einn þeirra fáu þingmanna, er
haldið hefur þeim sið að boða
leiðarþing í hreppum. En til eru
þeir frambjóðendur, sem gera
sér títt um héruð á kosningaári,
en eru sjaldséðir aðra tíma. —
Ekki er það að lasta þótt blað-
stjórar sumir hér í bæ hafi
beyg af „stólnum hans Erlings",
eins og það var orðað í Verka-
manninum. Því mun sá stóll vel
una.
Óttar Einarsson á Þórshöfn
spurði á þessa leið:
Hvaða kjósandi, sem er á
móti her í landi, getur kosið
F r amsóknarf lokkinn ?
Sigurður Jónsson á Efra-Lóni
svaraði á þessa leið:
Sá kjósandi, sem veit og sldl-
ur, að Rússar vofa með hervaldi
sínu yfir smáríkjum til að grípa
tækifæri að undiroka þau —
eins og dæmin sýna —, kýs
Framsóknarflokkinn, af því að
liann er eini stjórnmálaflokkur-
inn, sem er á móti undirokun
bæði úr austri og vestri.
Alþýðubandalagið er hinsveg-
ar aðeins á móti frelsisskerðingu
úr vestri, — og þess vegna kýs
enginn heilsteyptur frelsisvinur
Alþýðubandalagið. □
- Ágætir fiindir
(Framh. af bls. 1).
Símonarson og Jón Jónsson frá
Böggvisstöðum.
Fundurinn var fjölmennur
nokkuð á annað hundrað manns.
Á öllum fundunum var máli
frummælenda vel tekið og lýst
áhuga fyrir því, að gera sigur
Framsóknarflokksins mikinn 9.
júní n. k.
SJÓSLYSASÖFNUNIN. Krist-
ín Kristjánsdóttir kr. 100.00,
Sólveig Sigurjónsdóttir kr.
300.00, Kvenfélagið „Freyja“
kr. 2000.00, N/N., afhent af
fermingarbarni, kr. 500.00, af-
hent af Hauki Steindórssyni
kr. 700.00 og Sigríði Magnús-
dóttur kr. 200.00. — Þakkir.
Sigurður Stefánsson.
-GIFUSKÖT
(Framhald af blaðsíðu 1)
Um 1700 gistinætur hafa þeg-
ar verið pantaðar í Reynihlíð.
Og eflaust er aðsóknin hlutfalls-
leg í Reykjahlíð. En þessir tveir
staðir hafa sérstaklega búið sig
undir móttökur ferðamanna
mörg undanfarin sumur.
Fuglafræðingar eru þegar
komnir til Mývatnssveitar og
von er á kvikmyndaleiðangri,
sem tekur þar „gullgrafara-
mynd“ eða hluta hennar. Eru
þar að verki Edda Film og
franskt kvikmyndafélag. Enn er
ís á hluta Mývatns. □
ORÐSENDING
SÆMUNDUR GUÐMUNDS-
SQN, bóndi á Fagrabæ á Sval-
barðsströnd biður blaðið fyrir
eftirfarandi orðsendingu:
Ég bið bifi-eiðastjóra, sem um
Svalbarðsstrandarveg fara, að
aka með varúð vegna lambfjár-
ins. Einn daginn var ekið á tvö
lömb og þau drepin, án þess að
eigendum væri um það tilkynnt.
FERMING
FERMINGARBQRN í Dalvík-
urkirkju sunnudaginn 26. maí
1963.
Stúlkur:
Anna Baldvina Jóhannesdóttir,
Hafnarbraut 10.
Anna Stella Marinósdóttir,
Karlsbraut 18.
Ágústína Guðrún Jónsdóttir,
Stórhólsvegi 6.
Ásgerður Harðardóttir, Goða-
braut 16.
Gunnlaug Jóhanessína Hauks-
dóttir, Sæbóli.
Hildur Hólmfríður Pálsdóttir,
Holti.
Jóhanna Sigurbjörg Óladóttir,
Skíðabraut 5.
Karlotta Birgitta Aðalsteins-
dóttir, Karlsrauðatorgi 10.
Svanfríður Jónsdóttir, Hafnar-
braut 23.
Drengir:
Friðrik Reynir Friðriksson,
Grundargötu.
Jón Baldvin Bjarnas., Bárug. 2.
Jóel Kristinn Ríkharðss., Hóla-
vegi H.
Jónas Antonsson, Karlsbraut 29.
Karl Sævaldsson, Skíðabraut 1.
Rafn Hugi Arinbjörnsson, Karls
rauðatorgi 20.
Sighvatur Kristjánss., Bárug. 4.
Sigursteinn Kristinsson, Karls-
braut 10.
Simon Páll Steinsson, Arnarhv.
Þorsteinn Árnason, Goðabr. 3.
Vildimar Snorrason, Karlsr.t. 18.
Sóknarprestur.
DÝRALÆKNAR! Vakt næstu
helgi og kvöldvakt næstu
viku. Guðmund Knutsen, sími
1724.
AÐALFUNÐUR
sýslunfendar Eyjafjarðarsýslu
var haldinn dagana 13. til 17.
þ. m.
Til viðhalds sýsluvega voru
veittar kr. 338500.00.
Til menntamála voru veittar
kr. 108200.00, þar af til Lauga-
landsskóla 60 þúsundir og til
byggðasafnsins kr. 35000.00.
Til heilbrigðismála kr. 85500.
00, til búnaðarmála kr. 184000.
00. (Fréttatilkynning).
Magnús getur ekki
misst þingsætið
GÖMUL gáta hljóðar svo:
„Hvað er það, sem fer fyrir
björg og brotnar ekki, fer í sjó
og sekkur ekki o. s. frv.“.
Eitthvað svipað er það með
Magnús okkar Jónsson, eftir því
sem íslendingur sagði í gær —
og segir alveg satt —. Það er
ekki hægt að koma Magnúsi
Jónssyni út af Alþingi í þetta
sinn. Hann hvorki „brotnar“ né
„sekkur", hvernig sem að er far
ið. Munu ýmsir telja það vel
farið. Ef hann fellur í kjördæm-
inu, sem nú má telja ekki ólík-
legt, kemst hann að á eftir, sem
uppbótarmaður, vegna kjörfylg-
is síns hér. □
5Háö;$ÍÍÍÍ»Í
HÚS TIL SÖLU
Tilboð óskast í húseign-
ina Gilsbakkaveg 3, Ak,
Tilboðuim sé skilað tii
undirritaðs fyrir 1. iúní
1963.
Ingvi R. Jóhannsson.
Sími 2072.
ALLIR EITT
KLÚBBURINN
Dansleikur verður laugar-
daginn 25. maí M'. 9 e. h.
í Alþýðuhúsinu. — Félag-
ar sýni stofna. — Nokkrir
miðar lausir.
Stjómin.
TILKYNNING
Að gefnu tilefni tilkynn-
ist, að óheimilt er að
sleppa bnossum í haga fé-
lagsins nema tilkynna
það fyrst til haganefnda,
og greiða fyrir þau um
leið.
Hestamannafélagið
„Léttir“.