Dagur


Dagur - 25.05.1963, Qupperneq 7

Dagur - 25.05.1963, Qupperneq 7
7 Kafli úr grein Hjarfar á Tjörn endurprentaður vegna setninga, sem fallið hafa niður eða færzt til í prentun o. fl. Á baksíðu Vei-kamannsins er svo grein eftir fulltrúa Reykja- víkur á lista Alþýðubandalags- ins, Arnór Sigurjónsson. Erindi hans er að vara Þjóðvarnarmenn í kjördæminu við að kjósa mig á þing. Alþýðubandalagsmenn eru nú eins og veiðimenn, sem kastað hafa nót sinni á laglega torfu, en vita ekki hvort kastið muni heppnast, eða hvort bann- settar bröndurnar muni stinga sér og tvístrast og ekkert koma í ljós þegar byrjað verður að háfa. Þeir taka þá til ráðs, sem síldveiðimönnum hefur líklega aldrei komið í hug — þeir fara að telja um fyrir bráðinni til að róa hana. Greinarnar í Verka xnanninum eiga að vera þess- háttar róunarlyf handa fyrrver- andi kjósendum Þjóðvarnar- flokks íslands. Úr því að Arnór og Verkamaðurinn gera sér svo títt um þjóðvarnarmenn og hernámsandstæðinga, er bezt að ræða þetta nánar. Þjóðvarn- arflokkurinn var stofnaður til að gera andstæðingum erlendrar hersetu hér kleift að sameinast í einum stjómmálaflokki í bar- áttunni gegn aðild íslands að hernaðarsamtökum, án þess að þurfa um leið að efla Sósíalista- flokkinn, sem foringjar Þjóð- varnar kölluðu óskaandstæðing hernámsflokkanna, vegna aug- Ijósra og opinberra tengsla hans við ríki kommúnismans. Er nokkur, sem fylgdist með feiii Þjóðvarnarflokksins og las blað hans, Frjálsa þjóð, svo gleyminn, að muna ekki eftir slagorðinu „Óskaandstæðingur hernámsflokkanna", svo oft sern það var endurtekið? Þetta var grundvallarhugtak, sem beinlín is réttlætti sjálfa stofnun flokks- ins og tilveru. Því að hefði Sósíalistaflokkurinn ekki verið sá, sem hann var (og er) óbrigðull ísl. bandamaður og málsvari kommúnistaríkjanna hefði ekki verið fyrir hendi neinn grundvöllur fyrir stofnun Þj óð varnarf lokks. Þegar svona er komið fyrir stjórnmálaflokki, þá verður það að teljast nokkuð mikil frekja að vilja enn fá að ráða yfir at- kvæðum fyrrverandi áhang- enda, og fá að verzla með þau í heildsölu á hinum ótrygga markaði, sem heitir Alþýðu- bandalag. Og ennþá meiri ósvífni er það, þegar óviðkom- andi aðilar eins og Verkamaður- inn og Arnór vilja hrifsa til sín verzlunarréttinn. Þjóðvarnarflokkurinn fór vel af stað, en þó ekki nógu vel. Það verður að segjast eins og er, að takmarkið náðist ekki í fyrstu atrennu, það að sameina sem flesta hersetuandstæðinga undir merki flokksins. Meiri hluti þeirra hélt tryggð við sína gömlu flokka, við Sósíalista- flokkirm, við Framsóknarflokk- inn og við báða hina flokkana, því í þeim öllum voru andstæð- ingar hersetu fyrir, þótt misjafnt væri. Síðan hefur takmarkið alltaf verið að færast fjær, unz nú er svo komið, að lengur er ekki að því stefnt. Með samningi sínum við Alþýðubandalagið, sem er að meginstofni til sósíalistaflokkm', hefur Þjóðvarnarflokkur íslands tekið stefnu burt frá mark- inu og fyrirgert tilverurétti sinum sem sjálfstæður stjórn- málaflokkur. Ég lít svo. á, að saga flokksins sé öll. Það er aðeins eftir að skrá lokaorðin. Það er ekki tilhlýðilegt að vera með ásakanir í garð miðstj. Þjóðvarnarflokksins eða meiri- hluta hennar. Aðstaðan hefur verið harla erfið og engra góðra kosta völ. En þó má segja, að það sem helzt hann varst vann, varð þó að koma yfir hann, og er slfkt jafnan mikil kaldhæðni örlag- anna. Þjóðvarnarflokkurinn er bú- inn að vera, það vita allir og engir betur en mennirnir í Sósíalistaflokknum. □ Auglýsingar þurfa að berast fyrir hádegi dag- inn fyrir útkomudag. Sumarmánuðina júní, júlí og ágúst verður AMTSBÓKASAFNH) Á AKUREYRI útlán og lestrarsalur, opið þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 4—7 e. h. BÓKAVÖRÐUR. Innilegar þakkir til allra, fjær og nær, fyrir auð- sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðaríör ÓSKARS KRISTJÁNSSONAR, Samkomugerði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs Fjórð- ungssjúkraliússins á Akureyri. Guðný Stefánsdóttir, systkini, börn og tengdaböm. - Litið í bæjarblöðin (Framhald af blaðsíðu 5). Útlit er fyrir að Verkamaðurinn (eða Arnór) þyrfti að fá tilsögn í reglum þeim, sem gilda um út- reikning í hlutfallskosningum. Verkamaðurinn í gær kallar Karl, Gísla og Ingvar „Nato- þrenninguna“. Væri ekki rétt að bæta formanni Alþýðubandalags ins, Hannibal Valdimarssyni, við, þar sem hann greiddi at- kvæði með vamarsamningnum við Bandaríkin á Alþingi 1951, og kalla þetta þá t. d. 4-laufa- smárann? Eitthvert skáldlegt nafn væri svo hægt að finna handa kommúnistaleiðtogunum fyrir sunnan, sem hafa stofnað verzlunarhlutafélög til að kaupa vörur af efnahagsbandalagi Sovétþjóðanna, og félögum þeirra á Alþingi, sem vildu segja Þjóðverjum og Japönum stríð á hendur, að ósk Rússa 1945 og sögðu í þann tíð, að hér á landi mætti „skjóta án miskunnar“ fyrir „réttan‘‘ mál- stað. Og að lokum: Er það ekki lieldur snemmt hjá Verkamann- inum að fullyrða, að Gísli Guð- mundsson gefi sér ekki „tíma til að heimsækja kjósendur sína í gamla kjördæminu, Norður- Þingeyjarsýslu“? Dagur veit ekki betur en að G. G. dvelji ár- lega vikur eða mánuði í kjör- dæmi sínu og ferðist þar um, og sé einn þeirra fáu þingmanna, er haldið hefur þeim sið að boða leiðarþing í hreppum. En til eru þeir frambjóðendur, sem gera sér títt um héruð á kosningaári, en eru sjaldséðir aðra tíma. — Ekki er það að lasta þótt blað- stjórar sumir hér í bæ hafi beyg af „stólnum hans Erlings", eins og það var orðað í Verka- manninum. Því mun sá stóll vel una. Óttar Einarsson á Þórshöfn spurði á þessa leið: Hvaða kjósandi, sem er á móti her í landi, getur kosið F r amsóknarf lokkinn ? Sigurður Jónsson á Efra-Lóni svaraði á þessa leið: Sá kjósandi, sem veit og sldl- ur, að Rússar vofa með hervaldi sínu yfir smáríkjum til að grípa tækifæri að undiroka þau — eins og dæmin sýna —, kýs Framsóknarflokkinn, af því að liann er eini stjórnmálaflokkur- inn, sem er á móti undirokun bæði úr austri og vestri. Alþýðubandalagið er hinsveg- ar aðeins á móti frelsisskerðingu úr vestri, — og þess vegna kýs enginn heilsteyptur frelsisvinur Alþýðubandalagið. □ - Ágætir fiindir (Framh. af bls. 1). Símonarson og Jón Jónsson frá Böggvisstöðum. Fundurinn var fjölmennur nokkuð á annað hundrað manns. Á öllum fundunum var máli frummælenda vel tekið og lýst áhuga fyrir því, að gera sigur Framsóknarflokksins mikinn 9. júní n. k. SJÓSLYSASÖFNUNIN. Krist- ín Kristjánsdóttir kr. 100.00, Sólveig Sigurjónsdóttir kr. 300.00, Kvenfélagið „Freyja“ kr. 2000.00, N/N., afhent af fermingarbarni, kr. 500.00, af- hent af Hauki Steindórssyni kr. 700.00 og Sigríði Magnús- dóttur kr. 200.00. — Þakkir. Sigurður Stefánsson. -GIFUSKÖT (Framhald af blaðsíðu 1) Um 1700 gistinætur hafa þeg- ar verið pantaðar í Reynihlíð. Og eflaust er aðsóknin hlutfalls- leg í Reykjahlíð. En þessir tveir staðir hafa sérstaklega búið sig undir móttökur ferðamanna mörg undanfarin sumur. Fuglafræðingar eru þegar komnir til Mývatnssveitar og von er á kvikmyndaleiðangri, sem tekur þar „gullgrafara- mynd“ eða hluta hennar. Eru þar að verki Edda Film og franskt kvikmyndafélag. Enn er ís á hluta Mývatns. □ ORÐSENDING SÆMUNDUR GUÐMUNDS- SQN, bóndi á Fagrabæ á Sval- barðsströnd biður blaðið fyrir eftirfarandi orðsendingu: Ég bið bifi-eiðastjóra, sem um Svalbarðsstrandarveg fara, að aka með varúð vegna lambfjár- ins. Einn daginn var ekið á tvö lömb og þau drepin, án þess að eigendum væri um það tilkynnt. FERMING FERMINGARBQRN í Dalvík- urkirkju sunnudaginn 26. maí 1963. Stúlkur: Anna Baldvina Jóhannesdóttir, Hafnarbraut 10. Anna Stella Marinósdóttir, Karlsbraut 18. Ágústína Guðrún Jónsdóttir, Stórhólsvegi 6. Ásgerður Harðardóttir, Goða- braut 16. Gunnlaug Jóhanessína Hauks- dóttir, Sæbóli. Hildur Hólmfríður Pálsdóttir, Holti. Jóhanna Sigurbjörg Óladóttir, Skíðabraut 5. Karlotta Birgitta Aðalsteins- dóttir, Karlsrauðatorgi 10. Svanfríður Jónsdóttir, Hafnar- braut 23. Drengir: Friðrik Reynir Friðriksson, Grundargötu. Jón Baldvin Bjarnas., Bárug. 2. Jóel Kristinn Ríkharðss., Hóla- vegi H. Jónas Antonsson, Karlsbraut 29. Karl Sævaldsson, Skíðabraut 1. Rafn Hugi Arinbjörnsson, Karls rauðatorgi 20. Sighvatur Kristjánss., Bárug. 4. Sigursteinn Kristinsson, Karls- braut 10. Simon Páll Steinsson, Arnarhv. Þorsteinn Árnason, Goðabr. 3. Vildimar Snorrason, Karlsr.t. 18. Sóknarprestur. DÝRALÆKNAR! Vakt næstu helgi og kvöldvakt næstu viku. Guðmund Knutsen, sími 1724. AÐALFUNÐUR sýslunfendar Eyjafjarðarsýslu var haldinn dagana 13. til 17. þ. m. Til viðhalds sýsluvega voru veittar kr. 338500.00. Til menntamála voru veittar kr. 108200.00, þar af til Lauga- landsskóla 60 þúsundir og til byggðasafnsins kr. 35000.00. Til heilbrigðismála kr. 85500. 00, til búnaðarmála kr. 184000. 00. (Fréttatilkynning). Magnús getur ekki misst þingsætið GÖMUL gáta hljóðar svo: „Hvað er það, sem fer fyrir björg og brotnar ekki, fer í sjó og sekkur ekki o. s. frv.“. Eitthvað svipað er það með Magnús okkar Jónsson, eftir því sem íslendingur sagði í gær — og segir alveg satt —. Það er ekki hægt að koma Magnúsi Jónssyni út af Alþingi í þetta sinn. Hann hvorki „brotnar“ né „sekkur", hvernig sem að er far ið. Munu ýmsir telja það vel farið. Ef hann fellur í kjördæm- inu, sem nú má telja ekki ólík- legt, kemst hann að á eftir, sem uppbótarmaður, vegna kjörfylg- is síns hér. □ 5Háö;$ÍÍÍÍ»Í HÚS TIL SÖLU Tilboð óskast í húseign- ina Gilsbakkaveg 3, Ak, Tilboðuim sé skilað tii undirritaðs fyrir 1. iúní 1963. Ingvi R. Jóhannsson. Sími 2072. ALLIR EITT KLÚBBURINN Dansleikur verður laugar- daginn 25. maí M'. 9 e. h. í Alþýðuhúsinu. — Félag- ar sýni stofna. — Nokkrir miðar lausir. Stjómin. TILKYNNING Að gefnu tilefni tilkynn- ist, að óheimilt er að sleppa bnossum í haga fé- lagsins nema tilkynna það fyrst til haganefnda, og greiða fyrir þau um leið. Hestamannafélagið „Léttir“.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.