Dagur - 14.09.1963, Page 1

Dagur - 14.09.1963, Page 1
----------------------------- MÁLGAGN FR.VMSÓKNARMANNA Ritstjóri: Erungur Davídsson Skrifstofa í Hainarstrxti 90 Símar; Ritstjóri 1166. Augl. og afcr. 1167. Prentverk. Odds Björnssonar h.f... Akurf.yri .. ■ Dagur XLVI. árg. — Akureyri, laugardagurinn 14. sept. 1963. — 53. tbl. -------------------------------5 AuGI.ÝStNGASTJÓRI JÓN SAM- LKLSNON . ArGANGURINN KOSTAR kr. 150.00. Gjalddagi er 1. júi í Blaðid kemur út á miðvikudög- UM OG Á LAUGARD'ÖGUM, ÞEGAR ÁSTÆÐA.ÞYKIR TIL forseti og Lyndon B. Johnson varalörseti Bandaríkjanna. FRÆGUR EYFIRÐINGUR ARI BRYN JOLFSSON frá Krossanesi við Eyjafjörð tók stúdentspróf á Akureyri 1947, en stundaði síðan eðlisfræði- nám í Danmörku. Hans hefur nýlega verið lofsamlega getið í dönskum blöðum og víðar, sem duglegs kjarnorkuvísinda- manns. Sl. ár starfaði hann í Banda- ríkjunum og sá þar m. a. um smíði stærstu Kobolt—6 geisla- byssu í heimi, og er hún notuð til geislunar á matvælum í stór- Ari Brynjólfsson. um stil. En geislabyssa þessi er grundvöllur stórkostlegrar, bandarískrar matvælaátælunar, sem að því miðar að metta milljónir manna í vanþróuðum löndum. En geislun matvæl- anna varnar því, að sýklar valdi skemmdum eða eyðileggingu á þessum vörum. Politiken segir frá því, að bandaríska matvæla- og lyfja- stofnunin hafi viðurkennt geisl- að hveiti og hefur nú til athug- unar tilmæli hersins að mat- vælastofnunin viðurkenni einn- ig geislaðar kartöflur o. fl. teg- undir matvæla. í frétt frá vísindastofnun hers ins í Massachusetts, sagði Merr- el Fribe hershöfðingi m. a. eft- irfarandi: „Hann framkvæmdi verk sitt með einstökum vísindalegum dugnaði og var okkur, hinum öllum stöðug hvatning í erfiðri vinnu.“ Það er ánægjulegt að fá þær fréttir um afrek íslendinga á erlendri grund, og sérstök ánægja fyrir Eyfirðinga, að ey- firzkur bóndasonur skuli hafa hlotið opinbera viðurkenningu, sem einn af fremstu kjarnorku- vísindamönnum. í bréfi, sem Ari skrifaði heim í sumar, gat hann þess, að nauð- (Framh. á bls. 5) Innflutningur þúsunda bifreiða á ári hverju knýr fast á úrbætur á vega- og gatnakerfinu. Tilraun með olíumöl gerð á Akureyri Götur og vegir í bænum eru 47 km á lengd GATNAGERÐIN er eitt af þétt- býlisvandamálunum, á líkan hátt og vegamálin í dreifbýlinu. Akureyri er sennilega mesti rykbær landsins, vegna þess hve umferð er mikil, mest af götum bæjarins malar- og mold- argötur og í þriðja lagi er nátt- Varaforseii Bandaríkjanna í opinberri heimsókn VARAFORSETI Bandaríkj- anna, Lyndon B. Johnson, kem- ur hingað til lands í opinbera heimsókn n.k. mánudag, ásamt konu sinni, Claudie A. T. John son. Hann er frá Texas, 55 ára gamall og af fátæku fólki kom- inn, var skóburstari í æsku, gætti geita og vann að vegagerð. Á námsárunum vann hann fyrir sér sem húsvörður, sölumaður o. fl., en varð síðan kennari um skeið. Sagt er, að fyrstu laun sín hafi hann notað til að kaupa leikfimitæki handa skólanum. MINNIÚTLÁN SEÐLABANKINN hefur ný- lega ritað bönkum og spari- sjóðum bréf með skipun um að takmarka útlán, en jafn- framt er tekið fram, að yfir- dráttarvextir hækki upp í 18%, en þeir hafa verið 14%. Bréfið hefur verið að berast lánastofnunum um land allt undanfarna daga, en það er fyrir nokkru komið til bank- anna hér í Reykjavík. Eftirspum eftir lánum hef- ur verið gífurleg í þessum mánuði. □ Árið 1937 bauð hann sig fyrst fram til þings í Texas og sigraði með eftirtektarverðum yfirburð um. Og hann var fyrsti þingmað urinn, sem skráður var í her- inn. Það gerðist nokkrum klukkustundum eftir að hann greiddi atkvæði með því, að Þýzkalandi og Japan skyldi sagt stríð á hendur. Það var ár- ið 1941. Góður hermaður þótti hann og var sæmdur silfur- stjörnu fyrir hreystilega fram- göngu. Frami hans sem stjórnmála- manns varð mikill og varaforseti Bandaríkjanna var hann kjör- inn 1980. Varaforsetinn er mjög vin- sæll maður og þykir heiðarleg- ur hugsjónamaður. Johnson seg ir sjálfur: „Ég er frjáls maður, Bandaríkjamaður, varaforseti Bandaríkjanna og demokrati — í þessari röð.“ Eftirfarandi er líka haft eftir varaforsetanum: „Það er í jarðvegi fáfræðinn- ar, sem fátæktin er gróðursett. Það er í jarðvegi fáfræðinnar, sem sjúkdómar dafna. Það er í jarðvegi fáfræðinnar, sem kyn þátta- og trúardeilur skjóta rót- um. Það er í jarðvegi fáfræðinn ar, sem kommúnisminn gefur af (Framh. á bls. 7) h úran oft íhaldssamari á úrkom- ur á þessu svæði, en æskilegt er ryksins vegna. Án þess að lít- ið sé gert úr því, sem steypt hefur verið eða malbikað, er það þó sorgleg staðreynd, að svokallaðar varanlegar götur lengjast ekki í hlutfalli við vöxt bæjarins. Með þetta í huga vekur það vonir þegar nýjar gatna- og vegagerðaraðferðir koma á dag- skrá, vonir um sæmilega ak- og gangvegi og fyrirheit um, að 9000 nef bæjarbúa þurfi ekki lengur að annast ryksuguhlut- verkið í hinum norðlenzka höf- uðstað. í höfuðstað Norðurlands eru 70 götur og vegir, samtals 37 km á lengd. Aðeins 8 þessara gatna hafa komizt í snertingu við malbikunarmenninguna. — Lengstur malbikaður kafli er í Hafnarstræti, 1.4 km á lengd. En af áðurnefndum 37 km göt- um og vegum bæjarins eru 3 km malbikaðir og 1 km bætist við í sumar; o.6 km í Aðal- stræti, o.l km í Geislagötu og Grófargil verður nú malbikað. Síðustu ár hefur tæplega 1 km á ári verið byggður af „púkkuðum“ götum og á sama tíma 2.5 km hellulagðar gang- stéttir. En hellulagðar gang- stéttir og kantsteinar er álíka dýrt og malbikun gatnanna. Bærinn hefur nú í sumar fengið nýjan þurrkara og næsta sumar verða ný malbikunar- tæki fyrir hendi hér á Akur- eyri. Mun það flýta varanlegri gatnagerð verulega. Akureyrarbær, Hafnarfjarð- arkaupstaður og Garðahreppur eru nú að gera tilraun með olíu- bornar göiur. Hér á Akureyri verður til- raunin gerð á neðri veginum framan við Samkomuhúsið norður að Byggingavörudeild KEA. Sænskur verkfræðingur mun aðstoða við þessa fyrstu tilraun hér. Mölin, sem notuð er, er þurrkuð og hörpuð og síðan blönduð vegaoliunni, sem bærinn hefur nú keypt. Síðan er olíumölin hituð upp í 90 gráður og sett ofan á malargöt- urnar — ca. 3—5 sm lag — og að síðustu er olíumölin pressuð niður með þungum valta. Elf olíumölin reynist sæmilega ætti hún að henta vel hér á landi, vegna lítillar umferðar — miðað við nágrannalöndin. Kostnaður við olíumölina er talinn vera um 83 þús. ísl. krón- ur á km. miðað við 6 m breiðan veg. Við olíu-gatnagerð má npta sömu vélar og við malbikun. Olíumöl er talin um fimm sinn- um ódýrari en malbik. □ Drógu kindur úr fönn Klambraseli í Reykjahverfi 12. september. Þrír menn fóru héð- an í undanleit í fyrradag, tveir upp hjá Geitafelli og sá þriðji utar, en hann sneri við vegna ófærðar, enda meiri snjór þar. Hann dró nokkrar lifandi kind- ur úr fönn. Sennilega er minni snjór á Þeistareykjum. í Þeistareykja- göngur fóru 24 menn í gær og koma væntanlega annað kvöld. Vanalegt er, að flytja farangur á bíl á Þeistareyki, en kindur þaðan þegar þörf gerist. Að þessu sinni fór ýta á undan og bíll í slóð hennar. Hér á túninu var öklasnjór þar til í dag að hann er að taka upp. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.