Dagur - 14.09.1963, Síða 2
2
Ágæft sundmólá Siglufirði
UM síðustu helgi var sundmeist
aramót Norðurlands haldið á
Siglufirði, í nýyfirbyggðri 25 m
sundlaug. 600—800 áhorfendur
geta fylgzt með keppni í laug
þessari.
Iþróttabandalag Siglufjarðar
sá um mótið og gerði það vel.
Formaður þess er Helgi Sveins
son kennari. Móttökur allar
voru hlýlegar og góðar. Þátttak-
endur voru frá Ungmennasam-
bandi Skagafjarðar, Héraðssam-
bandi Þingeyinga, sundfélaginu
Afmælissjóður Kristj-
! áns Þorsteinssonar
HJÓNIN Þorsteinn Jónsson og
Guðrún Guðmundsdóttir Sól-
völlum 13 Akureyri hafa gefið
25 þús. krónur til minningu um
Kristján son sinn, efnismann,
sem lést um tvítúgt. Með gjöf
þessari er stofnaður „Afmælis-
sjóður Kristjáns Þorsteinsson-
ar“ og er hann í vörzlu Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Níu tíundu hlutum af vöxtum
sjóðsins skal árlega, á afmælis-
degi Kristjáns heitins, 25. ágúst,
verja til þess að gleðja efna-
lausa sjúklinga á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu, samkvæmt nán-
ari reglum þar um.
Þetta er fögur gjöf og gefend-
um til sóma en öðrum til eftir-
breytni.
. Fyrsta úthlutun' sjóðsins fer
fram á næsta ári. Q
Óðni á Akureyri og svo frá
Siglufirði — um 40 keppendur
alls.
í skriðsundi og baksundi
karla voru Akureyringar sigur-
sælastir og áttu auk þess tvær
fyrstu boðsundssveitirnar.
Af Akureyringunum bar hæst
þá Björn Þórisson, Óla G. Jó-
hannsson og Jón Árnason.
í kvennagreinum báru konur
frá UMSS, Helga, Heiðrún og
Hallfríður Friðriksdætm', höfuð
og herðar yfir aðrar konur í
keppninni, og Birgir Guðjóns-
son vakti athygli sem mjög efni
legur sundmaður.
Þingeyingar áttu beztu bringu
sundsmennina, Ólaf Atlason og
Valgeir Guðmundsson.
■Hér/eru aðeins nefnd fá nöfn
af mörgum, þar sem rúm er
mjög takmarkað í þessu blaði. □
Kornið þroskast ekki í
Suður-Þingeyjarsýslu
Fosshóli 12. september. Nú er
byrjað að slá kornakrana við
Öxará í Bárðardal. En kornið
er ekki þroskað og verður því
ekki þreskjað. Slegið er með
sláttutætara og hálmurinn sett-
ur í votheyshlöður, og sumt á
að þurrka. í nótt var 5 stiga
frost og vonlaust orðið að nýta
uppskeruna á annan hátt en
sem heyfóður. Um helgina lagð-
ist kornið á ökrunum við Eín-
arsstaði, undan snjó. Q
MYNDASÝNING
SÝNING Helga S. Bergmanns
á Gildaskála KEA er enn opin.
Þar eru margar skopmyndir og
vatnslitamyndir, og sýningar-
gestir geta fengið teiknaðar af
sér alvöru- eða skopmyndir eft-
ir óskum. Q
Ungling eða krakka
vantar til að BERA ÚT
BLAÐIÐ í neðri hluta
Glerárhverfis.
Afgreiðsla Dags,
sími 1167.
TAPAÐ
KERRUSVUNTA, grá,
tapaðist sl. sunnudag frá
Grund til Akureyrar. —
Finnandi hringi í
síma 1890.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
PÍANÓKENNSLA - HLJÓÐFÆRAMIÐLUN
Byrja kennslu 1. okt. Væntanlegir nemendur tali við
■mig sam fyrst. — Þeim, sem vilja kaupa .eða selja hljóð-
færi, býð ég aðstoð mína.
HARALDUR SIGURGEIRSSON,
Spítalavegi 15, sími 1915.
Hinar heimsþekktu
Skoda-bifreiðir
eru ódýrar og sterkbyggðar.
Eigum fyrirliggjandi flestar gerðir.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMROÐIÐ
Vonarstræti 12. — Sími 3 78 81.
UMBOÐSMAÐUR Á AKUREYRI:
Magnús J. Kristinsson, sími 1528.
UTSALA
ÚTSALA Á VEFNAÐARVÖRUBÚTUM HEFST
MÁNUDAGINN 16. Þ. M.
VERZLUNIN SNÓI
AUttil OLÍUKYNDINGA á eiiiurn stað!
OLÍUSÖUJDEILD K.E.A. ■ akldlvri . slMl 11« .5 17«
eigin
Verzlið
1
búð
uoum
VERZLIÐ I K.E.A.
Áf viðskiptum ársins 1962
vora félagsmönmim
greiddar rúmar 4 milljón-
ir kr. í arð
ÞAÐ er raunverulegur
afsláíiur af vöruverði
Þess vegna mcðal annars, er
ÓDÝRAST AÐ VERZLA í K.E.A.