Dagur - 14.09.1963, Blaðsíða 4

Dagur - 14.09.1963, Blaðsíða 4
4 FEGURRA LiF VIÐ, fslendingar, tökum oftast vel eftir því, hvað aðrir segja og skrifa um land og þjóð, hafandi í huga þau sannindi, að glöggt sé gestsaugað. Þegar ummælin snúast um fegurð lands, gestrisni, klæðn- að, menntun og framfarir, er á þau hlýtt. En það er stundum annað, sem á góma ber hjá erlendum mönnum í frásögnum af hinu fagra landi og fólkinu, sem þar býr. Og þegar þeir segja hárbeittan sann leikann um bverbrestina í menningu okk ar viljum við ekki hgyra. Nýlega voru margir erlendir menn, sem bó hafa verið hér Iangdvölum, flest- | ir, leiddir fram í fjöllesnu tímariti og beðnir að segja álit sitt um fsland og fs- lendinga. Svörin voru yfirleitt vinsam- leg. En eftirtektarvert var, að nær allir, sem þama tóku til rnáls, viku að drykkju skapnum hér á landi. Þeir undruðust hann og fordæmdu. Við þurfum ekki út- lendinga til að segja okkur frá því, að þetta þjóðarböl; hóflítil áfengisneyzla, sem spennir arma sína og klær um öll þrep mannfélagsins, allt frá útigöngu- fólki á Amarhóli til Bessastaða, er stað- reynd. En ef sú staðreynd verður ein- hverjum ljósari vegna þess, að menn, sem upp eru sprottnir í öðmm jarðvegi, minna á hana, þá er vel. Sannleikurinn er sá, að hér á landi er hver vinnandi maður þjóðfélaginu svo dýrmætur, að við megum ekki horfa á það lengur, án þess að hafast eitthvað að, að ofnautn áfengis leggi árlega fjölda manns í gröf- ina, svo sem nú er. Og við megum ekki við það una lengur, að sami bölvaldur brjóti niður heilbrigt líf og lífshamingju þúsundanna. Stóraukin fræðsla um áfeng ismál, útilokun drykkfelldra manna frá opinbemm trúnaðarstöðum, þjóðfélags- leg aðstoð við þá, sem höllum fæti standa fyrir Bakkusi og röggsamleg meðferð áfengismála hjá dómsvaldinu, em ráð, sem látin em lítt notuð. Drykkjuskapur, siðleysi og glæpir haldast í hendur og færast óðfluga í vöxt í landinu. Opinberar fréttir um af- brot staðfesta það, að við færumst niður í öldudalinn og verðum að hefja okkur þaðan sjálf. Þjóðfélaginu er það í sjálfs- vald sett, hvort það sættir sig við meiri niðurlægingu eða hefur menningarlega sókn. Sú sókn þyrfti að vera margþætt, því áfengisvandamálið er aðeins ein grein af mörgum á meiði þess mannlífs, sem við öll viljum sem fegurstann. Erlendur maður sagði nýlega, eftir dvöl hér á landi: „Ég þykist sjá í lifnað- arháttum íslendinga nokkurt merki um skort á markmiði eða tilgangi. Vissulega er mér ljóst, að þeir eiga sér fleiri hugð- arefni en þau, að vinna, drekka og sofa, en samt þykist ég hafa orðið var við skort á markmiði . . . . Og hvað trúna snertir, á hún vöm í formfestunni .... Sleppiun öllum öðrum hliðargreinum trú arinnar en þeirri hagrænu, og við mun- um komast að þeirri niðurstöðu, að trúin gefur lifinu tilgang. Hún sér okkur fyrir dýrmætum viðfangsefnum. Hún gefur okkur vonina og nokkuð til að keppa að. Loks sér hún okkur fyrir margs konar tilgangi, heilu kerfi, sem er óviðjafnan- legt af því það er frábrugðið því tilgangs kerfi, sem er bundið amstri dægranna, sandinum, sem rennur úr greipum okk ar . . . .“ Þessi orð mættu einnig vera til umhugsunar þeim, sem vilja viima að fegurra lífi okkar fámennu þjóðar. □ .............. JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin iii tn 1111111111111111111111111111 iii Bændahöllin og niðurborgun búvöru STÓRHUGA BÆNDUR Bændur landsins hafa löngum verið stórhuga. Þeir lögðu út í það hættusama fyrirtæki á 9. og 10. öld að reisa hér á landi eina lýðstjórnarríki álfunnar. Þessum búandmönnum tókst að lifa hér öldum saman frjálsu menningarlífi af gæðum lands- ins, vatna og sjávar við strendur þess. íslenzka þjóðin var þá sveitafólk sem sameiin- aði lífsbaráttu bænda við erf- iðar og fullkomnar menningar- þrautir. Samhliða sveita- mennsku og lítilsháttar sjóróðr- um sömdu þessir menn og skráðu á heimaunnin kálfskinn listrænustu fræði menntalanda álfunnar. íslenzkar byggðir hafa fætt og fóstrað næstum öll skáld og flesta andlega yfir- burðamenn þjóðarinnar. Þetta á jafnt við skáld og listamenn, þar með talinn Gottskálk faðir Alberts stórmeistara norrænn- ar höggmyndagerðar. Jafnvel yngstu skáld þjóðarinnar, Davíð, Stefán, Tómas og Hall- dór eru fóstraðir og fullmótað- ir við yl og yndi íslenzkra sveita. ÖFUGÞRÓUN Þessara staðreynda er minnst hér af því að tímabundinn öfug- þróun í þjóðarbúskapnum er með þeim hætti að vel má svo far.a að íslenzkar sveitir verði eyðibyggðir en athafnasöm þjóð á sjávarbakkanum lifi á dósa- mjólk sunnan úr heimi og kjöti frá Argentínu. Víst má draga fram líf á þvílíkum matvælum, en þá myndi innan tíðar skorta andans auð og þann stórhug, sem gert hefur íslendinga að eftirtektarverðri menningarþjóð í skjóli hárra fjalla við frið- sæla firði. Lítil ferð mín um kunnar strjálbýlissveitir með tveim ungum sveinum, vakti að nýju í hug mér tilfinningu fyrir dásemdum íslenzkrar náttúru. Á einum björtum sumardegi bar fyrir augu okkar Slútnes, Kálfaströnd með skrautgarði á Héðinshöfða, Dimmuborgir, Dettifoss og Ásbyrgi. Þetta var mikil fegurðarsýning en hvað myndi þá ef litið væri yfir land- ið allt. Bjarni frá Vogi sýndi erlendum gesti, af skipsþiljum, jökla Suðurlands með einfaldri spurningu: „Sýnist yður þetta ríki bera skattlandssvip?“ BÆNDAHÖLLIN — ÓLEYST FJÁRHAGSVANDAMAL Bændur landsins hafa látið samtök sín, Búnaðarfélagið og Stéttarsamband bænda, reisa Bændahöllina á undanförnum árum. Fullgerð mun hún kosta 130 milljónir króna. í þessu húsi geta bændur haft skrifstof- ur fyrir stjórn sína, ráðunauta, fundarstað bændasamtakanna o. s. frv. Að öðru leyti er bygg- ingin reist fyrir Stór-Reykja- vík, sem spennir yfir land allt frá Seltjarnarnesi og Elliðaám til Hafnarfjarðar. Þennan hrað- vaxandi bæ skorti viðhlítandi gistihús. Þar munu margháttuð félagsfyrirtæki fá samastað, enda hafa sum þeirra nú þegar aflað sér húsakynna í Bænda- höllinni. Bændasamtökin ráða tæplega yfir nema fimmta hluta þess fjár sem þarf til að fullgera húsið. Hundrað milljónir þurfa að koma annars staðar að, sennilega að láni. Þar sem að- komumenn utan úr sveitum munu að líkindum sjaldan búa í höllinni, heldur erlendir og innlendir efnamenn, má vita- skuld segja að bændasamtökin hefðu átt að leiða þessa fram- kvæmd hjá sér. En bændastétt- in hefur alla stund verið djörf í framkvæmdum. Ekkert hafði Snorri Sturluson nema ótíma- bært andlát fyrir að skrifa hetjusögu norskra kounga. Eng- in hagnaðarvon hefur staðið að bókmenntaafrekum íslendinga fram á síðustu tíma. Meðfædd- ur sköpunarmáttur og metn- aður fyrir land og þjóð hefur knúið ótalda fræga menn til að vinna stórvirki sem enginn bað þá um og enginn þakkaði með- an þeir voru ofan moldar. Sams- konar stórhugur hefur leitt bændastétt landsins til að reisa höll sem verður mikils virði fyrir þjóðina en getur ef illa fer eytt sjóðum bændasamtak- anna, sem lagðir hafa verið fram í bygginguna. Jónas Jónsson frá Hriflu. SIGUR JÓHANNESAR A BORG Jóhannes Jósefsson og hin fagra og þróttmikla kona hans, Karólína sýslumannsdóttir frá Akureyri lögðu aleigu sína fram til að byggja Hótel Borg. Tíu fyrstu árin var erfitt að láta gistihúsið gera sig. Jóhann- es hefði getað fundið hundrað álitlegri leiðir til að ávaxta fé sitt heldur en þessa fram- kvæmd. En landið vantaði gott gistihús í höfuðstaðnum. Eng- inn hreyfði hönd eða fót til að ráða fram úr því máli nema Jóhannes. Honum gekk til alda- mótahugur og þjóðrækni. Hann hætti á að fara á tæpasta vaðið og vann sigur feins og fyrr í kappraunum erlendis. Fram- vegis á Reykjavík við Austur- völl úrvals gistihús, sem eldist ekki fremur en aðrir snillihlutir. Og áhættufé hóteleigandans hef ur verið bjargað. Atvinnubar- áttu hans lauk með sigurgöngu. Reykjavík var gistihúsalaus 1930 og skyldi ekki þörf sína. Vaskur Norðlendingur leysti þrautina með dirfsku fyrri kyn- slóða. Nú skortir Stór-Reykja- vík gistihús í samræmi við stærð bæjarins. Bændastéttin hefur með mikilli dirfsku en minni framsýni en eigandi Borgar lagt á hættuleið fyrir höfuðstaðinn og landið. Ef ekki kemur til óvæntra bjargráða getur svo farið að Bændahöll- in vei'ði seld hæstbjóðanda á nauðungaruppboði einu sinni eða tvisvar áður en fundizt hef- ur rekstrargrundvöllur fyrir nægilega fésterka eigendur. ÚRRÆÐIN MARGVÍSLEG Þessi málalok væru ekki stór mannleg, hvorki fyrir bændur eða Stór-Reykjavík. Sneiða má fram hjá strandi með margvís- legum úrræðum. Landið og bær inn studdu Hótel Borg með á- byrgðum fyrir byggingarskuld- um fvrstu árin. Sú aðstoð var hyggileg og gagnleg. Sömu að- ferð má beita við Bændahöllina. Eitt húsverð er ekki þung byrði nú á tímum. Ríkið fékk 240 milljónir að láni í Englandi fyrir jól í vetur til óákveðinna framkvæmda. Um páskaleytið fékk landið 60 milljóna fjárhæð frá Ameríku í vélvæðingu lands ins. Á undangengnum missirum hefur landíð gengið í ábyrgðir fyrir 200 milljóna láni fyrir fimm stóra togara, þó að út- gerð slíkra fyrirtækja sé fyrir- sjáanlegur taprekstur eins og Bændahöllin verður fyrstu árin. Máltæki segir: „Sveltur sitj- andi kráka“. Þetta verða for- kólfar bænda að muna. Þeir verða að sækja fast eftir stuðn- ingi, við valdamenn landsins í Alþingi, bæjarstjórn Reykjavík- ur, landsstjórnina og bankana. Þeir verða að knýja fast á hurð ir og leita bandamanna hvar sem þá má finna. Hér eiga ekki við nein feimnismál. Bændur hafa nú sótt fram með svipaðri ógætni eins og þegar Snorri í Reykholti samdi frægðarsögu Norðurlanda án vonar um end- urgjald eða nokkur þessa heims laun. Ekki hlýðir fyrir foringja landsins og Stór-Reykjavíkur að feta í fótspor Noregskon- ungs er hann launaði hinn mesta velgerning og sæmd á þann hátt sem þjóð hans hefur nú reynt að bæta fyrir með drengilegum fórnum. ÞRENGT AÐ BÆNDUM Víst er Bændahöllin vanda- mál bænda og mannfélagsins, en þó bíða stórum erfiðari mál úrlausnar. Mitt í sæmilegu ár- ferði og hagstæðum viðskiptum þjóðarinnar við önnur lönd er elzta atvinnuvegi þjóðarinnar, landbúnaðinum, að blæða út. Menn segja að búskapur borgi ekki tilkostnað eins og útvegur, iðnaður um verzlun. Hamslaus eftirspurn er um vinnuafl og fá flestir nokkuð á frjálsum mark- aði nema bændur. Tekjur þeirra nægja ekki til kaupgreiðslu. í sveitinni vinna hraðvirkar vélar að bústörfum, byggingum og vegagerð með bændum, konum þeirra og börnum, ömmum og öfum, ef það fólk fyrirfinnst. Sveitaheimilunum er haldið við með orku véla sem keyptar eru dýrum dómum frá öðrum lönd- um og starfhæfum vandamönn- um bóndans. Ef maður veikist í fjölskyldunni er voði fyrir dyrum. Vélin hleypur ekki í skarðið. Undir þessum kringum stæðum verður sveitalífið sálar- deyfandi vinnuþrælkun með skuldabasli fyrir vélar, fóður- bæti og kjarnfóður. Margir gef- ast upp. Heilar sveitir eru að fara í auðn. Bændur sem eiga í jarðeign, húsum, vinnuvélum og bústofni jafnvirði góðra í- búða í Reykjavík fá enga kaup- endur að eign sinni. Engin lán eru fáanleg til slíkra viðskipta. Öldruð hjón, sem eiga vel hýst- ar stórjarðir en skortir þrótt til fámennisbúskapar geta hvorki selt vandamönnum eða öðrum hinar álitlegustu fast- eignir með bústofni. Undir því- líkum kringumstæðum geta slík hjón hvorki selt eða búið. Oft halda þau áfram störfum sem eru þeim of erfið. Þau eru skorðuð milli jarðarinnar, vél- anna og skuldanna þar til yfir lýkur. Meðan bændastéttin býr við þennan fárlega kost veit öll þjóðin að togaraútgerðin er rek in með sífelldu tapi bæði hjá einstaklingum og ríki. Milljón kr. tap á togara er hóflegt mót- læti. Mestu tapskipin eru falin umsjá Seðlabankans, sem bænd ur róma lítt fyrir viðskiptin. Síldin gefur stundum arð, en í sumar lítur út fyrir gífurleg- an halla á mörgum síldarbát- um, en á tálvonum eig- endanna bíða margar vel vinnu- færar stúlkur eftir háum tekj- um en fá næsta lítið þegar til kemur. Afkoma vélbáta sem stunda þorskveiðar er stundum bjarganleg en oft sífelldur tap- rekstur bankanna. Verzlunin blómgast betur öðrum atvinnu- vegum, iðnaðurinn lifir á vemd artollum sem hraðauka dýrtíð- ina og afkomuerfiðleika lands- manna. DÆMI BRETA OG BANDARÍKJAMANNA. Aðsteðjandi eyðing byggð- anna stafar af teykjuleysi þeirra sem vinna að búnaðarfram- leiðslu. í Bretlandi gætir sömu meinsemda. En þar beita stjórn og þing nægilegri niðurgreiðslu. Valdamenn Breta telja sveitabú skapinn líftaug þjóðlífsins. Sá strengur má aldrei bresta ef þjóðin á að lifa. í Bandaríkj- unum kaupir ríkið feiknamikið af hveitiframleiðslu, geymir það og gefur víða um lönd þar sem þess er þörf. Eisenhower kom til hugar að fella niður hveitikaupin, en frá þeirri ráða- gerð var horfið. Hér á landi verður að rísa bjargráðaalda. Bændur verða að gera lífvænar kröfur. Þeir verða að krefjast aðstoðar við Bænda höllina meðan verið er að koma eigninni á notenáur framtíðar- innar, en það eru atvinnu- og risnufyrirtæki Stór-Reykjavík- ur. Bændur verða þar að auki í blöðum, á fundum, á Alþingi og í stjórnarráðinu að bera frani sitt mikla þjóðmál: Niður- greiðslur þar til fengið er jafn- vægi í kaupgreiðslum atvinnu- veganna. Ef méð þarf verða bændur að beita Verkfallsvopn- inu eins og aðrir 'dugandi menn gera bæði hér á landi og með öðrum þjóðum. Svo máttugt er þetta vopn að tylft matsveina á kaupskipaf 1 otanum stöðvaði hin miklu og dýru skip þar til lausn var fengin á kaupkröfu- málum þessarar fámennu sveit- ar. SAGA FRA 1916 Eg vil ljúka þessu máli með frásögn um lífsbjargarbaráttu togaraháseta í Reykjavík vorið 1916, ári áður en bolsivisminn fæddist í Rússlandi. í Reykjavík voru þá margir gróðasælir togarar en hásetam- ir þjáðir með þrælavinnu sem gerði vaska menn að öldung- um á miðjum aldri. Þeir voru sviknir um sanngjarnt kaup. í örvæntingu stöðvuðu hásetar flotann með allsherjarverkfalli. Þeir héldu heita kröfufundi um hörmungarlíf sitt. Nokkrir menn úr landi veittu hásetum aðstoð í ræðu og riti. Eg var einn af þeim og fékk illúðlega dóma í Morgunblaðinu og Vísi. En hásetar unnu sigur. Mesta tekjugrein þeirra, lifrarpening- arnir, hækkuðu um helming. Síðan var þrældómur sjómanna afnuminn með vökulögunum. Sjómannastéttin býr við mann- leg kjör og borgaralegt rétt- læti. Bændur landsins eiga tvö vandamál óleyst í bili, en auð- velt er að leysa þau. Mannfé- lagið þarf Bændahöllina og á að takast á herðar réttmætar skyldur. Þá er því ævintýri (Framhald á blaðsíðu 2). Valdimar Júlíusson frá Felli F. 13. ágúst 1903 D. 18. ágúst 1963 KVEÐJA ÚR GLERÁRHVERFI. Nú stundin er komin við kveðjum þig öll og kynningu þökkum af hjarta, er flytur þú vinur í framtíðar höll svo fagra og skínandi bjarta. Nú kveðjum við eiginmann, afa og vin elskaðan föður og bróður, að síðustu kyssti þig sólfagurt skin því svona var Drottinn vor góður. Þér guðsríki opnast, nú gengur þú inn í geislandi himneskan ljóma, við kveðjum þig vinur í síðasta sinn • en sorgarljóð klukkurnar óma. Hvað sem þú gerðir, og hvar sem þú sást við Krossanesverksmiðju á daginn, þú lagðir í vinnuna óskipta ást til átaka þóttir þú laginn. Er sást þú með gleði yfir sextíu ár var sæla og birta í ranni, nú ríkir á meðal vor söknuður sár því sorgin er ásköpuð manni. Það kveður þig síblessuð sumarsins tíð og söngfugl á blómguðum velli, minningin lifir svo ljós og svo blíð um ljúfmennið Valda í Felli. H. J. Sfrandferðir Eimskipafélagsins f RÁÐI er hjá Eimskipafélaginu að taka upp reglubundnar strandferðir. Upphaflega var m.s. „Mánafoss“ ætlaður til þess að bæta þjónustuna við strönd- ina, þegar hann var keyptur á öndverðu þessu ári, en vegna mikilla anna hefur skipið verið í millilandasiglingum fram að þessu og þá aðallega annast flutninga frá útlöndum beint til hafna úti á landi. Nú hefur áætl un verið gerð um strandferðir skipsins fram til ársloka og þeg ar reynsla er fengin, verður frekari ákvörðun tekin um það, hvernig siglingum verður hagað eftir það. Ferðir m.s. „Mánafoss“, sem hefjast samkvæmt áðurnefndri áætlun hinn 19. október, verða á þriggja vikna fresti frá Reykja vík til ísafjarðar, Sauðárkróks, Siglufjarðar, Akureyrar og Húsavíkur, og ef til vill fleiri hafna þ. á. m. Austfjarðahafna, ef nægur flutningur er fyrir hendi og eftir því sem aðstæður leyfa. Eimskipafélagið væntir góðra undirtekta landsmanna við þessu tillagi til bættrar þjón- ustu við hafnir úti á landi. (Fréttatilkynning ). - EYFIRZKUR VÍSINDAMAÐUR (Framh. af bls. 1) synlegt væri að vekja áhuga á hagnýtingu þessarar aðferðar í sambandi við geymslu fersk- fiskjar. Taldi hann góða mögu- leika á því, ef vilji væri fyrir hendi, að þessar nýjungar gætu komið til framkvæmda innan fárra ára hér á landi. Ari er sonur hjónanna Guð- rúnar Rósinkarsdóttur og Brynjólfs heitins Sigtryggsson- ar í Krossanesi. Hann á danska konu og 3 börn. Q - Samþykkfir aðalfundar I 5 Athugun þessi nái yfir öll svið búnaðarmálanna. Skal með henni fást samanburður á opin- berri aðstoð við landbúnaðinn hér á landi og því, sem gerist með viðskiptaþjóðum okkar, svo um það fáist upplýsingar, hvaða áhrif mismunur í opinberri að- stoð hefur á markaðsaðstöðu ís- lenzks landbúnaðar á erlendum mörkuðum. Einnig skal gerður samanburður á verði landbúnað arafurða þar, hverja vöruein- ingu og fyrirkomulag þeirra mála. Þá skal gerð athugun á því, hver sé hlutur þeirra, er land- búnað stunda, úr heildarfram- leiðslu þjóðarinnar, svo upplýs- ingar fáist um það, hver sé hin efnahagslega aðstaða landbúnað arins gagnvart öðrum atvinnu- vegum. Aðalfundur Stéttarsambands bænda felur sambandsstjórn- inni að kjósa 3 menn, er vinni væntanlega með jafnmörgum mönnum frá Búnaðarfélagi ís- Iands að þessu máli. Nefndinni skal heimilt að ráða starfsmenn eftir því, sem hún telur þörf.“ □ Allir vita, að smábæir víðs- vegar á Norðurlöndum hafa verulegar tekjur af ferðamanna straumnum. Ferðafólk hefur álíka mikla fjárhagslega þýð- ingu fyrir suma þessara bæja, t. d. bæja á stærð við Akureyri, eins og fiskigöngur fyrir Vest- mannaeyinga. Þar eru ekki lagð ar netatrossur í sjp. heldur byggð hótel, vélfryst skauta- svell, skíðalyftur, skíðahótel á fjöllum uppi og márgskonar skemmtistaðir, sem þjónað geti óskum hinna sundurleitu hópa fólks úr öllum heimshlutum, sem óska að eyða tíma og pen- ingum fjarri heimilum sínum. Á síðustu missirum hafa augu heimsins opnast fyrir furðum norðursins, með tilliti til ferða- laga, og það svo, að við stönd- um nú í miðjum ferðamanna- straumnum. Við eigum þess kost að banda við honum hendi og sinna fremur öðrum verk- efnum. Og við eigum þess líka kost að auka strauminn að mun, með nokkurri fyrirgreiðslu og skynsamlegum ráðstöfunum, m. ö. o. hagnýta þau viðhorf í ferðamálum, sem skapast hafa, án þess að kasta nokkru eftir- sjárverðu fyrir borð. (Framhald af blaðsíðu 8). leiðréiting á hlutföllum verðs milli mjólkur- og sauðfjárfram- leiðslu. Fundurinn leggur til að 20% af hugsanlegri hækkun færist á sauðfjárframleiðsluna.“ Aðstoð við afskekkt byggðarlög. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 vekur athygli á því að í sumum landshlutum vanti mikið á, að sú framþróun sé í landbúnaðinum, sem nauðsyn- leg er til að bændur hafi viðun- andi lífskjör og að tryggð verði nægjanleg búvöruframleiðsla í næstu framtíð fyrir þéttbýli þessara héraða. Á þetta við um Vestfirði, Austfirði og Norðaust urland og víðar. Fundurinn telur að jafnframt hækkuðu verðlagi til bænda og bættum launakjörum þeirra, þurfi ríkisvaldið að gera sérstak ar ráðstafanir til að bæta að- stöðu landbúnaðarins í þessum landshlutum, t. d. með aukinni aðstoð við stofnframkvæmdir „VILTU HEYRA NÝJA DRAUGASÖGU" SVO MÆLTI halur einn hæru- grár, er í síðustu viku leit inn á skrifstofuna, og auðvitað var spurningunni svarað játandi. „Jæja“, mælti karl, „ég sat hjá kunningja mínum í innbænum í gærkveldi og vorum við að skrafa um hitt og þetta. Þá varð allt í einu mikill hávaði, högg og læti. Mér datt margt í hug og meðal annars það, að ekki væru myrkravöldin orðin krók- lopppin. En hér var að verki hópur ílla siðaðra stráka. Húsbóndinn lét þá sjá sig og fjarlægðu þeir sig í bráð, en byrjuðu svo á nýjan leik. Hringdi húsbóndinn þá til lögreglunar og bað hana aðstoðar. Fékk hann góð orð en ekkert meira. Þessi ólæti heldu svo enn áfram og aftur var hringt í verði laganna og komu þeir um síðir. En er þeir birtust virtist jöi'ðin jafnskjótt hafa .gleypt pörupiltana, alla með tölu. Kvöldinu var spillt fyrir mér og ég gekk leiður í næturstað. Þetta er nýjasta di-augasagan, sagði sá aldraði, og hún er með þeim ljótari. Þetta hélt ég að væri ekki til á Akureyri." Q OLÍAN OG FUGLARNIR í VOR varð nokkur úlfaþytur vegna ummæla þessa blaðs um, að olía hafði verið sett í sjóinn nálægt Akureyi’i. En í olíunni drápust margir sjófuglar, bæði endur og æðarfugl. Dýravernd- unax-félag íslands og í'itstjóri Dýravei-ndarans skarst í málið er þá varð upplýst að fullu. Fyi'ir skömmu var dálítið af olíu flutt í gryfju við öskuhaug ana á Akui’eyri. Af einhverjum mistökum var ekki strax kveikt í olíunni og rann hún nokkuð út. Mai’gir fuglar klístruðu fiður sitt og flugfjaðrir í olíu þessari og urðu ófleygir. Meindýx-aeyð- ir bæjarins mim síðai' hafa skot- ið þessa ósjálfbjai-ga fugla, þá er til náðist, og svo kom jarðýta til sögunnar og ui'ðaði þá ólíu, sem óbi'unnin var. En mistök, eins og þessi, eiga skv. jarðræktarlögum og með sérstökum framlögum til ákveð- inna framkvæmda, þar á meðal til félagslegra bygginga, eins og mjólkurbúa. Þessi framlög verði óafturkræf eins og þau sem veitt eru til endurbygginga íbúð arhúsa. Fundurinn felur stjórn Stétt- arsambandsins að vinna að því við ríkisstjóm og Alþingi, að þessi mál verði tekin til úrlausn ar á næsta þingi.“ Rannsókn á stöðu landbúnaðarins. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 felur stjórn sam- bandsins að fara þess á leit við Búnaðarfélag íslands, að það, ásamt Stéttarsambandi bænda, geri athugun á ástandi íslenzks landbúnaðar með það fyrir aug- um, að þessi félagssamtök geri heildaráætlun um búvörufram- leiðslu á íslandi og framtíðar- skipulag íslenzkra búnaðarmála yfirleitt. ekki að koma fyrir og eru víta- verð, þótt það séu aðeins fuglar, og sumir ekki kærir, er harðast verða úti. Q HVERRA VERÐUR EIGNA- RÉTTURINN? DR. WALKER, enskur vísinda- maður, sem verið hefur við rannsóknir hér á landi oftar en einu sinni, svo sem getið hefur verið í fréttum, var eitt sinn staddur uppi á Kúgilsheiði í Þorvaldsdal í fylgd með bónda af Árskógsströnd. Vísindamað- urinn horfði yfir fjölbreyttan kjarnagróðurinn umhverfis og dalinn, þar sem áður voru mörg byggð býli, en nú er með pllu yfirgefinn, út að Klifi, í dals- mynninu. Honum hrutu þá eftir farandi orð af munni: Hér er mikið land og gott, og betur til sauðfjárræktar fallið en ýmsir þeir staðir erlendis, sem þó þykja mikilsverðir til slíkra nytja. Og hvað verður nú eftir 15—20 ár? Verður íslendingum leyft að ráða yfir slíku landi sem Þoi'valdsdal, ef þeir nytja það ekki sjálfir? Já, verða þeir nokkuð um það spurðir, hver eigi þetta ónotaða land? Eitthvað á þessa leið, mælti hinn víðförli vísindamað- ur. Og það er meira en Þorvalds dalur, sem í húfi er. Það er ísland allt. Q DRAUMSÝN EÐA VERU- LEIKI FRAM AÐ ÞESSU hefur orðið „skíðalyfta" verið með einskon- ar ævintýrablæ, eins og sögur úr Þúsund og einni nótt. Til skamms tíma var reynt að brosa að þeim lélega brandara, að hægt væri að hafa verulegar tekjur af ferðamönnum, enda algerlega gagnstætt þjóðar- venju um gestrisni. En á allra síðustu árum sýna opinberar skýrslur tugmilljóna króna gjaldeyristekjur af er- lendum ferðamönnum. Og nú vilja margir fara höndum um það fé, sem ferðamenn óska að skilja eftir fyrir vörur og þjón- ustu, er þeir kaupa. í síðustu viku kom til Akur- eyrar vinsæl söng- og dans- kona og skemmti bæjarbúum. Vart er það mjög í frásögur færandi, út af fyrir sig. En hitt mætti vekja athygli, að með þeim fjármunum, er samkomu- gestir greiddu fyrir skemmtun- ina, treystu þeir grunn fyrir- hugaðar skíðalyftu í Hlíðar- fjalli. Skíðahótelið í Hlíðarfjalli og skíðalyfta upp á fjallsbrún hef- ur mikla framtíðarþýðingu. Þá verður ekki efst á baugi hve marga ferðalanga, sem til Reykjavíkur koma, sé hægt að toga hingað norður til nokk- urra daga dvalar, því þá er ekk ert eðlilegra en beinar flugferð- ir að utan hingað til Akureyrar með hópa af erlendu ferðafólki, eins marga og stóra og höfuð- staður Norðurlands getur tekið á móti. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.