Dagur - 29.04.1964, Page 1

Dagur - 29.04.1964, Page 1
Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar 20 krónux á mánuði. Dagur Símar: 1166 (ritstjóri) 1167 (afgreiðsla) Lifði fimm mánuði á sjó og þara KRUMMI verpir níu náttum fyrir sumar og velur sér varpstað í ógengum hömrum, oft við sjó, í árgljúfrum eða upp til fjalla. Hreiðrið er úr lurkum og kvistum og því valinn staður á sillu eða snös. Þar verpir lirafninn 4—6 litlum bláleitum, dröfn- óttum eggjum. Þegar krummi Ieggst á unglömb, en það gerir bann stundum þegar hart er í ári, er reynt að steypa undan honum, þ. e. ónýta hreiðrið með eggjum eða ungum. Krummi er vitur fugl og víða er lians getið í sögum. í klettum þeim við Glerá, sem hér sjást á myndinni, verpti krummi í vor. Nokkrir eggjasafnarar freistuðu þcss á laugardaginn, að ná eggjunum og tókst það. Bergið er um 50 metrar á hæð á þessum stað og glittir í Glerá neðst á myndinni. Hreiðrið er gegnt þriðja ham- arsstallinum og er bergið þverhnýpt þar. Eggin voru 5 í hreiðr- inu. Úthúnaði við sigið var ábótavant, þótt ekki kæmi að sök að þessu sinni. (Ljósmynd: E. D.) Leiðangursmenn að bjargsigi loknu. Frá vinstri: Jón Aðalsteinsson, Baldvin Haraldsson, Frúnann Jóhannsson, Birgir Jónasson, Davíð Haraldsson (sigmaðurinn) og Þórður Jónasson. (Ljm.: E. D.) Þórshöfn 28. apríl. Bændur eru . Hinn 12. marz sáu menn frá nú byrjaðir að vinna í flögum, Völlum, sem voru á sjó, lamb í girðingum og að fleiri vorstörf- fjörunni í bás einum skammt um. . frá bænum. En forvaðar eru á Mjög góður fiskur fæst nú á báða vegu og sézt ekki í bás færi sunnan við Langanes. Og þennan nema af sjó. Piltar grásleppuveiði er góð. (Framhald á blaðsíðu 2). Margir smáþjófnaðir í bænum upplýsfir TALSVERT bar á ölvun manna hér í bænum um s.l. helgi og þurfti lögreglan að hafa afskipti af allmörgum af þeim sökum. Einn ökumaður var handtekinn fyrir ölvun við akstur. Þrír unglingar voru hand- teknir fyrir að setja umferðar- tálmanir á Hafnarstrætið s.l. mánudagsnótt. í s.l. viku voru tveir ungling- ar teknir við akstur bifreiða án réttinda. Þá voru tveir menn kærðir fyrir óleyfilegt fugla- dráp hér í nágrenni bæjarins s.l. miðvikudag. Nú undanfarið hefur lögregl- an upplýst nokkra þjófnaði og innbrot er framin hafa 'verið, frá síðustu áramótum, eða sam- tals níu þjófnaðir, ýmist pening- ar eða munir. Ekki var þó um stórar upphæðir að ræða á (Framhald á blaðsíðu 2.) Háseti slasast Á MÁNUDAGINN varð það slys á fiskibátnum Pálma frá Litla-Árskógssandi, að 18 ára gamall háseti, Anton Gunnlaugs son frá Brattavöllum, hand- leggsbrotnaði. Anton var flutt- ur til Dalvíkur og þaðan í Fjórð ungssjúkrahúsið á Akureyri. □ skjótra úrbóta við Fræðsluráð svslunnar ásamt ýmsum forvstu- j J J mönnum skólamála í sýslunni, undirstrikaði þessa þörf á fundi sínum síðastl. laugardag FRÆÐSLURÁÐ Eyjafjarðar sýslu boðaði um helgina til fund ar með skólastjórum, oddvitum og form. skólanefnda sýslunnar. Var fundurinn lialdinn í Odd- eyrarskólanum á Akureyri. Sr. Stefán V. Snævarr setti fundinn og stjórnaði honum í forföllum formanns, séra Sigurðar Stefáns sonar á Möðruvöllum. Fundarefnið var skólamál Eyjafjarðarsýslu. Einar Sigfús- son í Staðartungu og Helgi Þor- steinsson skólastjóri á Dalvík fluttu erindi á fundinum. Einar rakti vanda þann, sem skapazt hefði í skólamálum gagnfræða- stigsins, en skólar á Akureyri tækju nú ekki lengur við nem- endum úr Eyjafjarðarsýslu. Mik il þörf hefði því skapazt fýrir um bótum í skólabyggingum í hér- aðinu. Þá skýrði Einar fyrir- AÐALFUNDUR K. Þ. HEFST í DAG AÐALFUNDUR KÞ liefst á Húsavík í dag og mun standa tvo daga. jJm 100 fulltrúar hinna ýmsu félagsdeilda sitja fundinn, auk stjórnar, framkvæmdastjóra og gesta. □ mæli laga um byggingu skóla gagnfræðastigsins og hvað hefði verið unnið hér heima þessum málum til fylgis. Þá vék Einar að byggingu eins héraðsskóla fyrir sýsluna og hver væru helztu skilyrði, sem athuga þyrfti við staðsetningu og bygg- ingu slíks skóla, s. s. nokkur fjar lægð frá áhrifum þéttbýlis og að slíkur skóli þyrfti að liggja vel við samgöngum en að hann mætti ekki vera í næsta ná- grenni við opinbera skemmti- staði. Einar taldi nauðsynlegt, að fundurinn gerði sér ljóst í hvert óefni væri komið með skólamál héraðsins og knýjandi nauðsyn til skjótra úrbóta, og fundinum bæri að benda á helztu leiðir í því efni. Helgi Þorsteinsson rifjaði upp framkvæmd fræðslulaganna og minnti á ókosti þeirra um skóla- skyldu og skólaaldur. Benti hann á að Dalvíkurskóli gæti bætt við sig nemendum, fengi skólinn bætt skilyrði til heimavistar. Lagði hann áherzlu á að nemendur þyrftu eigi að skipta um skóla meðan á skyldu námi stæði. (Framhald á blaðsíðu 5). Erfiðleikar hjá Útgerðar- félagi Akureyringa h.f. MJÖG miklir erfiðleikar eru nú hjá Útgerðarfélagi Akur- eyringa h.f. í sambandi við útgerð togaranna. Kemur þar til einstakt aflaleysi að undanförnu og svo það, að illa gengur að manna þá. Svalbakur liggur nú bund- inn hér í höfninni og kemst ekki á veiðar vegna mann- eklu. Kaldbakur bíður eftir að fara í „klössun“ en óvíst er hvenær það verður. Hinir togararnir þrír eru allir á veiðum, en afli er sáralítill. Það sem veiðist er lagt upp í Hraðfrystihúsið og unnið þar. Síðustu landanir voru hjá Harðbak, sem kom 20 þ. m. með um 100 tonn eftir 10 daga, og Hrímbakur kom inn vegna bilunar 22. þ. m. með smáslatta. Sléttbakur er búinn að vera lengst úti, en fyrir helgi var vitað að hann hafði aðeins fengið 25 tonn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.