Dagur - 29.04.1964, Blaðsíða 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónux á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
Lifði fimm mánuði á sjó og þara
KRUMMI verpir níu náttum fyrir sumar og velur sér varpstað
í ógengum hömrum, oft við sjó, í árgljúfrum eða upp til fjalla.
Hreiðrið er úr lurkum og kvistum og því valinn staður á sillu
eða snös. Þar verpir lirafninn 4—6 litlum bláleitum, dröfn-
óttum eggjum. Þegar krummi Ieggst á unglömb, en það gerir
bann stundum þegar hart er í ári, er reynt að steypa undan
honum, þ. e. ónýta hreiðrið með eggjum eða ungum. Krummi
er vitur fugl og víða er lians getið í sögum. í klettum þeim við
Glerá, sem hér sjást á myndinni, verpti krummi í vor. Nokkrir
eggjasafnarar freistuðu þcss á laugardaginn, að ná eggjunum
og tókst það. Bergið er um 50 metrar á hæð á þessum stað og
glittir í Glerá neðst á myndinni. Hreiðrið er gegnt þriðja ham-
arsstallinum og er bergið þverhnýpt þar. Eggin voru 5 í hreiðr-
inu. Úthúnaði við sigið var ábótavant, þótt ekki kæmi að sök
að þessu sinni. (Ljósmynd: E. D.)
Leiðangursmenn að bjargsigi loknu. Frá vinstri: Jón Aðalsteinsson, Baldvin Haraldsson, Frúnann
Jóhannsson, Birgir Jónasson, Davíð Haraldsson (sigmaðurinn) og Þórður Jónasson. (Ljm.: E. D.)
Þórshöfn 28. apríl. Bændur eru . Hinn 12. marz sáu menn frá
nú byrjaðir að vinna í flögum, Völlum, sem voru á sjó, lamb í
girðingum og að fleiri vorstörf- fjörunni í bás einum skammt
um. . frá bænum. En forvaðar eru á
Mjög góður fiskur fæst nú á báða vegu og sézt ekki í bás
færi sunnan við Langanes. Og þennan nema af sjó. Piltar
grásleppuveiði er góð. (Framhald á blaðsíðu 2).
Margir smáþjófnaðir í bænum upplýsfir
TALSVERT bar á ölvun manna
hér í bænum um s.l. helgi og
þurfti lögreglan að hafa afskipti
af allmörgum af þeim sökum.
Einn ökumaður var handtekinn
fyrir ölvun við akstur.
Þrír unglingar voru hand-
teknir fyrir að setja umferðar-
tálmanir á Hafnarstrætið s.l.
mánudagsnótt.
í s.l. viku voru tveir ungling-
ar teknir við akstur bifreiða án
réttinda. Þá voru tveir menn
kærðir fyrir óleyfilegt fugla-
dráp hér í nágrenni bæjarins s.l.
miðvikudag.
Nú undanfarið hefur lögregl-
an upplýst nokkra þjófnaði og
innbrot er framin hafa 'verið,
frá síðustu áramótum, eða sam-
tals níu þjófnaðir, ýmist pening-
ar eða munir. Ekki var þó um
stórar upphæðir að ræða á
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Háseti slasast
Á MÁNUDAGINN varð það
slys á fiskibátnum Pálma frá
Litla-Árskógssandi, að 18 ára
gamall háseti, Anton Gunnlaugs
son frá Brattavöllum, hand-
leggsbrotnaði. Anton var flutt-
ur til Dalvíkur og þaðan í Fjórð
ungssjúkrahúsið á Akureyri. □
skjótra úrbóta við
Fræðsluráð svslunnar ásamt ýmsum forvstu-
j J J
mönnum skólamála í sýslunni, undirstrikaði
þessa þörf á fundi sínum síðastl. laugardag
FRÆÐSLURÁÐ Eyjafjarðar
sýslu boðaði um helgina til fund
ar með skólastjórum, oddvitum
og form. skólanefnda sýslunnar.
Var fundurinn lialdinn í Odd-
eyrarskólanum á Akureyri. Sr.
Stefán V. Snævarr setti fundinn
og stjórnaði honum í forföllum
formanns, séra Sigurðar Stefáns
sonar á Möðruvöllum.
Fundarefnið var skólamál
Eyjafjarðarsýslu. Einar Sigfús-
son í Staðartungu og Helgi Þor-
steinsson skólastjóri á Dalvík
fluttu erindi á fundinum. Einar
rakti vanda þann, sem skapazt
hefði í skólamálum gagnfræða-
stigsins, en skólar á Akureyri
tækju nú ekki lengur við nem-
endum úr Eyjafjarðarsýslu. Mik
il þörf hefði því skapazt fýrir um
bótum í skólabyggingum í hér-
aðinu. Þá skýrði Einar fyrir-
AÐALFUNDUR K. Þ.
HEFST í DAG
AÐALFUNDUR KÞ liefst á
Húsavík í dag og mun standa
tvo daga.
jJm 100 fulltrúar hinna ýmsu
félagsdeilda sitja fundinn, auk
stjórnar, framkvæmdastjóra og
gesta. □
mæli laga um byggingu skóla
gagnfræðastigsins og hvað hefði
verið unnið hér heima þessum
málum til fylgis. Þá vék Einar
að byggingu eins héraðsskóla
fyrir sýsluna og hver væru
helztu skilyrði, sem athuga
þyrfti við staðsetningu og bygg-
ingu slíks skóla, s. s. nokkur fjar
lægð frá áhrifum þéttbýlis og að
slíkur skóli þyrfti að liggja vel
við samgöngum en að hann
mætti ekki vera í næsta ná-
grenni við opinbera skemmti-
staði. Einar taldi nauðsynlegt,
að fundurinn gerði sér ljóst í
hvert óefni væri komið með
skólamál héraðsins og knýjandi
nauðsyn til skjótra úrbóta, og
fundinum bæri að benda á
helztu leiðir í því efni.
Helgi Þorsteinsson rifjaði upp
framkvæmd fræðslulaganna og
minnti á ókosti þeirra um skóla-
skyldu og skólaaldur.
Benti hann á að Dalvíkurskóli
gæti bætt við sig nemendum,
fengi skólinn bætt skilyrði til
heimavistar. Lagði hann áherzlu
á að nemendur þyrftu eigi að
skipta um skóla meðan á skyldu
námi stæði.
(Framhald á blaðsíðu 5).
Erfiðleikar hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa h.f.
MJÖG miklir erfiðleikar eru
nú hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa h.f. í sambandi við
útgerð togaranna. Kemur
þar til einstakt aflaleysi að
undanförnu og svo það, að
illa gengur að manna þá.
Svalbakur liggur nú bund-
inn hér í höfninni og kemst
ekki á veiðar vegna mann-
eklu. Kaldbakur bíður eftir
að fara í „klössun“ en óvíst
er hvenær það verður. Hinir
togararnir þrír eru allir á
veiðum, en afli er sáralítill.
Það sem veiðist er lagt upp
í Hraðfrystihúsið og unnið
þar.
Síðustu landanir voru hjá
Harðbak, sem kom 20 þ. m.
með um 100 tonn eftir 10
daga, og Hrímbakur kom
inn vegna bilunar 22. þ. m.
með smáslatta. Sléttbakur er
búinn að vera lengst úti, en
fyrir helgi var vitað að hann
hafði aðeins fengið 25 tonn.