Dagur - 29.04.1964, Page 8
8
4
æCT' '3tV»Z' .......w • ' T ' ^
i “ "C - - '#? <£* >4 v 4* ^ „
•<' ''í *>' • ***** ***' í» ' :
ÆijiÉfcÍÍI
r~~\ »—.
ÍNÝI KNATTSPYRNUÆFINGAVÖLLURINN á Oddeyri var tekinn í notkun á laugardaginn. Þór og KA háðu fyrstu knattspymu-'
zkeppnina á hinum nýja velli og sigraði Þór með 5:0. Margt manm horfði á leikinn og sýndu áhorfendur áhuga á þessari íþrótta-?
Jgrein, sem jafnan áður. Blaðið óskar knattspymumönnum til hamingju með hinn nýja æfingavöll. (Ljósmynd: E. D.);
Hátíðaliöld verkalýðsfélaganna á Akureyri
HÁTÍÐAHÖLD verkalýðsfélag-
anna 1. maí fara fram hér á
Akureyri með líku sniði og und
anfarin ár. Hefjast þau með
leik Lúðrasveitar Akureyrar
við Verkalýðshúsið kl. 13.15, eif
kl. 13.30 hefst útifundur með á-
varpi formanns Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna, Arnfinns
Arnfinnssonar, en síðan flytur
Björn ■ Jónsson alþingismaður,
form. Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar ræðu.
Að lokinni ræðu Björns verð-
ur farin kröfuganga að mestu
§ömu leið og undanfarin ár, að
því undanskildu, að staðnæmzt
verður við Alþýðuhúsið og verð
ur þar samkoma. Flutt verða
stutt ávörp, Hjálmar Gíslason
leikari skemmtir og sýnd verð-
ur kvikmynd frá hátíðahöldum
verkalýðsfélaganna á Akureyri
1. maí 1947, tekin af Kjartani Ó.
Bjarnasyni. Samkomunni stjórn
ar Arnfinnur Arnfinnsson.
Kl. 15.30 (3.30 e. h.) hefst svo
barnasamkoma í Samkomuhúsi
bæjarins, þar skemmtir Hjálm-
ar Gíslason, sýnd verða töfra-
brögð, kvikmyndir o. fl.
Að venju verður dansleikur í
Alþýðuhúsinu um kvöldið og
leika Komet og Hjalti fyrir dans
inum, en auk þess skemmtir
Hjálmar Gíslason.
Merki dagsins verða seld á
götunum allan daginn.
1. maí nefnd verkalýðsfélag-
anna hefur beðið blaðið að
koma þeirri áskorun á fram-
færi við alla launþega bæjarins,
að þeir taki þátt í hátíðahöld-
unum 1. maí og að allir beri
merki 1. maí dagsins.
Sfofnun veiðifélags á vatnasvæði Skjálfandafljófer
Stórutungu, Bárðardal 27. apríl.
Hinn 7. þ. m. átti fimmtugsaf-
mæli Páll Jónsson bóndi á
Lækjavöllum og hinn 18. þ. m.
varð Sölvi Jónsson hreppstjóri
á Sigurðarstöðum 60 ára.
Fé er hvarvetna hýst og gefið
og gengur það vel fram. Fóður
er nægilegt, enda veturinn með
eindæmum góður.
Ýmsir bændur, sem land eiga
að Skjálfandafljóti eða ám og
vötnum á því vatnasvæði, hafa
áhuga á að hraða rannsóknum
á möguleikum til að gera Fljót-
ið laxgegnt.
Starfandi er þriggja manna
nenfd, einn úr liverjum hreppi,
Ljósavatnshreppi, Reykdæla-
hreppi og Bárðdælahreppi, sem
hafa á hendi ýmsar athuganir
varðandi þetta mál og undirbún
ing að stofnfundi veiðifélags.
Formaður nefndarinnar er Þor-
steinn Jónsson á Bjarnastöðum.
Möguleikar á laxveiðum í
Skjálfandafljóti eru án efa mikl
ir, þegar rutt hefur verið úr
vegi hindrunum á laxagöngum,
og á okkar tímum er aðstaða
til laxveiði mjög dýrmæt. Mik-
ið skal til mikils vinna. Þ. J.
KARLAKÓRINN HEIMIR í Skagafirði, sem er bændakór og
íelur bálfan fjórða tug söngmanna, kom ó laugardaginn til Ak-
ureyrar og söng í Samkomuhúsinu kl. 5 og síðar sama dag á
Dalvík. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson (lengst til hægri)
og einsöngvarar Steinbjörn M. Jónsson, Stefán Haraldsson og
l’étur Sigfússon. Undirleikari að þessu sinni var Guðmundur
Jóhannsson Akureyri. — Þetta mun vera í fyrsta sinn, að
Karlakórinn Ileimir heldur sjálfstæða söngskemmtun á Akur-
eyri, en bæjarbúar liafa áður kynnst kórnum á Heklu-söng-
mótum. Karlakórinn Heimir er í góðri þjálfun, þróttmikill og
hressilegur. Og sönggleðin leynir sér ekki, enda óhugsandi
með öllu, að æfa karlakór í strjólbýlum sveitum með veruleg-
um órangri, án sönggleði og félagsþroska í ríkum mæli. Jón
Björnsson, söngstjórinn, hefur um langt árabil haldið merki
söngsins hátt á lofti í Skagafirði. Sjálfur er hann tónskáld og
mjög smekkvís stjórnandi. Og efniviðurinn í þeim karlakór,
sem liingað kom, liinir sí-syngjandi Skagfirðingar, er mjög góð-
ur. Það þykir ekki miklum tíðindum sæta að heyra karlakórs-
söng í jafn miklum kórahæ og Akureyri. Sönggestunum var
þó vel fagnað, svo sem vera har, og alveg sérstaklega einsöngv-
unum þrem. (Ljósmynd: E. D.)
Ausfin Gipsy valt hjá Laugum
Laugum 28. apríl. Síðdegis á
sunnudaginn, 26. apríl, ko’mu 6
piltar í Austin Gipsy-bíl sunnan
Reykjadal. Á síðustu stundp
tók bílstjórinn þá ákvörðun að
beygja heim að Laugum, og
lagði þá svo snögglega á , að
bíllinn valt á vinstri hliðina, en
hafnaði á þeirri hægri, utan
vegar. Yfirbyggingin brotnaði
algerlega af. Bifreiðastjórinn og
einn farþegi sluppu ómeiddir,
en hinir hlutu skrámur og einn
missti meðvitund sem snöggv-
ast. Héraðslæknirinn á Breiðu-
mýri gerði að sárum manna og
lögreglan frá Húsavík kom á
staðinn og gaf hún framan-
greindar upplýsingar. G. G.
skólasetur?
NÚ eru skólamál á dagskrá
í Eyjafjarðarsýslu, og ekki
of snemma. í smágrein um
■ þetta efni hér i blaðinu s.l.
vetúr, var vikið að nokkr-
um stöðum, sem til mála
gætu komið fyrir væntanleg-
an héraðsskóla sýslunnar og
að sjálfsögðu ekki gengið
framhjá jarðhitastöðum. Nú
mun innan fárra vikna hefj-
ast jarðborun á vegum Ak-
ureyrarkaupstaðar á Lauga-
landi á Þelamörk. Verði ein
hver verulegur árangur þar,
opnast möguleiki á enn ein-
um skólastað, þ. e. Möðru-
völlum í Ilörgárdal, sem
vegna sögu sinnar og liins
heita vatns í nágrenninu,
kæmi vissulega til greina.
í sambandi við héraðsskóla
mál sýslunnar hefur enn
ekki komið fram það veiga-
mikla atriði; hve þörfin á
héraðsskóla er raunverulega
mikil, þ. e. ekki birtar tölu-
legar staðreyndir um þann
fjölda nemenda, sem slíkur
skóli er einkum ætlaður.
Þá er nauðsynlegt nú, að
gera sér þess fulla grein,
hvort Eyfirðingar vilja ein-
göngu fara troðnar slóðir í
héraðsskólamálum eða reyna
nýjar.
Menntaður og víðsýnn fé-
lagsmálafrönluður sagði ný-
lega, að þrátt fyrir fjárhags-
lega erfiðleika bændanna,
virtist sér annað mál dreif-
býlisins einnig vinna hratt
og öruggt að uppgjöf þar.
Það væri hin misjafna mennt
unaraðstaða þéttbýlis og
dreifbýlis. □
Gæsirnar para sig
Blönduósi 27. apríl. Eitt og eitt
nýfætt folald ber fyrir augu þó
snemmt sé. Gæsirnar eru farnar
að para sig. Þeim fer fjölgandi
hér um slóðir og eru þær tald-
ar valda einhverjum skemmd-
um. Þær verpa hér nokkuð á
sumrin, einkum á Þinginu og
mikið á Þingeyrum.
Töluvert verður byggt hér í'
sumar eða svipað og áður. Brátt
fer laxinn vonandi að ganga í
Blöndu, og vonandi virðir hann
þá nýja laxastigann í ánni, sem
byggður er til að greiða götu
hans. Ó. S.