Dagur - 29.04.1964, Síða 8

Dagur - 29.04.1964, Síða 8
8 4 æCT' '3tV»Z' .......w • ' T ' ^ i “ "C - - '#? <£* >4 v 4* ^ „ •<' ''í *>' • ***** ***' í» ' : ÆijiÉfcÍÍI r~~\ »—. ÍNÝI KNATTSPYRNUÆFINGAVÖLLURINN á Oddeyri var tekinn í notkun á laugardaginn. Þór og KA háðu fyrstu knattspymu-' zkeppnina á hinum nýja velli og sigraði Þór með 5:0. Margt manm horfði á leikinn og sýndu áhorfendur áhuga á þessari íþrótta-? Jgrein, sem jafnan áður. Blaðið óskar knattspymumönnum til hamingju með hinn nýja æfingavöll. (Ljósmynd: E. D.); Hátíðaliöld verkalýðsfélaganna á Akureyri HÁTÍÐAHÖLD verkalýðsfélag- anna 1. maí fara fram hér á Akureyri með líku sniði og und anfarin ár. Hefjast þau með leik Lúðrasveitar Akureyrar við Verkalýðshúsið kl. 13.15, eif kl. 13.30 hefst útifundur með á- varpi formanns Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, Arnfinns Arnfinnssonar, en síðan flytur Björn ■ Jónsson alþingismaður, form. Verkalýðsfélagsins Ein- ingar ræðu. Að lokinni ræðu Björns verð- ur farin kröfuganga að mestu §ömu leið og undanfarin ár, að því undanskildu, að staðnæmzt verður við Alþýðuhúsið og verð ur þar samkoma. Flutt verða stutt ávörp, Hjálmar Gíslason leikari skemmtir og sýnd verð- ur kvikmynd frá hátíðahöldum verkalýðsfélaganna á Akureyri 1. maí 1947, tekin af Kjartani Ó. Bjarnasyni. Samkomunni stjórn ar Arnfinnur Arnfinnsson. Kl. 15.30 (3.30 e. h.) hefst svo barnasamkoma í Samkomuhúsi bæjarins, þar skemmtir Hjálm- ar Gíslason, sýnd verða töfra- brögð, kvikmyndir o. fl. Að venju verður dansleikur í Alþýðuhúsinu um kvöldið og leika Komet og Hjalti fyrir dans inum, en auk þess skemmtir Hjálmar Gíslason. Merki dagsins verða seld á götunum allan daginn. 1. maí nefnd verkalýðsfélag- anna hefur beðið blaðið að koma þeirri áskorun á fram- færi við alla launþega bæjarins, að þeir taki þátt í hátíðahöld- unum 1. maí og að allir beri merki 1. maí dagsins. Sfofnun veiðifélags á vatnasvæði Skjálfandafljófer Stórutungu, Bárðardal 27. apríl. Hinn 7. þ. m. átti fimmtugsaf- mæli Páll Jónsson bóndi á Lækjavöllum og hinn 18. þ. m. varð Sölvi Jónsson hreppstjóri á Sigurðarstöðum 60 ára. Fé er hvarvetna hýst og gefið og gengur það vel fram. Fóður er nægilegt, enda veturinn með eindæmum góður. Ýmsir bændur, sem land eiga að Skjálfandafljóti eða ám og vötnum á því vatnasvæði, hafa áhuga á að hraða rannsóknum á möguleikum til að gera Fljót- ið laxgegnt. Starfandi er þriggja manna nenfd, einn úr liverjum hreppi, Ljósavatnshreppi, Reykdæla- hreppi og Bárðdælahreppi, sem hafa á hendi ýmsar athuganir varðandi þetta mál og undirbún ing að stofnfundi veiðifélags. Formaður nefndarinnar er Þor- steinn Jónsson á Bjarnastöðum. Möguleikar á laxveiðum í Skjálfandafljóti eru án efa mikl ir, þegar rutt hefur verið úr vegi hindrunum á laxagöngum, og á okkar tímum er aðstaða til laxveiði mjög dýrmæt. Mik- ið skal til mikils vinna. Þ. J. KARLAKÓRINN HEIMIR í Skagafirði, sem er bændakór og íelur bálfan fjórða tug söngmanna, kom ó laugardaginn til Ak- ureyrar og söng í Samkomuhúsinu kl. 5 og síðar sama dag á Dalvík. Stjórnandi kórsins er Jón Björnsson (lengst til hægri) og einsöngvarar Steinbjörn M. Jónsson, Stefán Haraldsson og l’étur Sigfússon. Undirleikari að þessu sinni var Guðmundur Jóhannsson Akureyri. — Þetta mun vera í fyrsta sinn, að Karlakórinn Ileimir heldur sjálfstæða söngskemmtun á Akur- eyri, en bæjarbúar liafa áður kynnst kórnum á Heklu-söng- mótum. Karlakórinn Heimir er í góðri þjálfun, þróttmikill og hressilegur. Og sönggleðin leynir sér ekki, enda óhugsandi með öllu, að æfa karlakór í strjólbýlum sveitum með veruleg- um órangri, án sönggleði og félagsþroska í ríkum mæli. Jón Björnsson, söngstjórinn, hefur um langt árabil haldið merki söngsins hátt á lofti í Skagafirði. Sjálfur er hann tónskáld og mjög smekkvís stjórnandi. Og efniviðurinn í þeim karlakór, sem liingað kom, liinir sí-syngjandi Skagfirðingar, er mjög góð- ur. Það þykir ekki miklum tíðindum sæta að heyra karlakórs- söng í jafn miklum kórahæ og Akureyri. Sönggestunum var þó vel fagnað, svo sem vera har, og alveg sérstaklega einsöngv- unum þrem. (Ljósmynd: E. D.) Ausfin Gipsy valt hjá Laugum Laugum 28. apríl. Síðdegis á sunnudaginn, 26. apríl, ko’mu 6 piltar í Austin Gipsy-bíl sunnan Reykjadal. Á síðustu stundp tók bílstjórinn þá ákvörðun að beygja heim að Laugum, og lagði þá svo snögglega á , að bíllinn valt á vinstri hliðina, en hafnaði á þeirri hægri, utan vegar. Yfirbyggingin brotnaði algerlega af. Bifreiðastjórinn og einn farþegi sluppu ómeiddir, en hinir hlutu skrámur og einn missti meðvitund sem snöggv- ast. Héraðslæknirinn á Breiðu- mýri gerði að sárum manna og lögreglan frá Húsavík kom á staðinn og gaf hún framan- greindar upplýsingar. G. G. skólasetur? NÚ eru skólamál á dagskrá í Eyjafjarðarsýslu, og ekki of snemma. í smágrein um ■ þetta efni hér i blaðinu s.l. vetúr, var vikið að nokkr- um stöðum, sem til mála gætu komið fyrir væntanleg- an héraðsskóla sýslunnar og að sjálfsögðu ekki gengið framhjá jarðhitastöðum. Nú mun innan fárra vikna hefj- ast jarðborun á vegum Ak- ureyrarkaupstaðar á Lauga- landi á Þelamörk. Verði ein hver verulegur árangur þar, opnast möguleiki á enn ein- um skólastað, þ. e. Möðru- völlum í Ilörgárdal, sem vegna sögu sinnar og liins heita vatns í nágrenninu, kæmi vissulega til greina. í sambandi við héraðsskóla mál sýslunnar hefur enn ekki komið fram það veiga- mikla atriði; hve þörfin á héraðsskóla er raunverulega mikil, þ. e. ekki birtar tölu- legar staðreyndir um þann fjölda nemenda, sem slíkur skóli er einkum ætlaður. Þá er nauðsynlegt nú, að gera sér þess fulla grein, hvort Eyfirðingar vilja ein- göngu fara troðnar slóðir í héraðsskólamálum eða reyna nýjar. Menntaður og víðsýnn fé- lagsmálafrönluður sagði ný- lega, að þrátt fyrir fjárhags- lega erfiðleika bændanna, virtist sér annað mál dreif- býlisins einnig vinna hratt og öruggt að uppgjöf þar. Það væri hin misjafna mennt unaraðstaða þéttbýlis og dreifbýlis. □ Gæsirnar para sig Blönduósi 27. apríl. Eitt og eitt nýfætt folald ber fyrir augu þó snemmt sé. Gæsirnar eru farnar að para sig. Þeim fer fjölgandi hér um slóðir og eru þær tald- ar valda einhverjum skemmd- um. Þær verpa hér nokkuð á sumrin, einkum á Þinginu og mikið á Þingeyrum. Töluvert verður byggt hér í' sumar eða svipað og áður. Brátt fer laxinn vonandi að ganga í Blöndu, og vonandi virðir hann þá nýja laxastigann í ánni, sem byggður er til að greiða götu hans. Ó. S.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.