Dagur - 01.07.1964, Page 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
Tvær flugvélar Tryggva Helga-
sonar eru á heimleið
Koma ef til vill til Akureyrar í k\ öld
TVÆR flugvélar, scm Tryggvi Helgason flugniaðnr á Akureyri
keypti í Bandaríkjunum og frá var sagt á sínum tíma, eru nú
á heimleið.
Tveir bandarískir flugmenn Síðdegis í gær fékk blaðið
eru á hvorri þeirra og með þær fregnir, að vélarnar væru á
þeim er Björn Sveinsson flug- leið til Grænlands og myndu
virki. væntanlega lenda á Syðri-
SALTSÍLDARVERÐ ÁKVEÐID
VERÐLAGSRAÐ sjávarút-
vegsins ákvað á fundi sínum
á laugardaginn lágmarksverð
á síld til söltunar og frysting-
ar, það er síld, sem veidd er
við Norður- og Austurland.
Verð á síld til söltunar er kr.
230,00 fyrir liverja uppmælda
tunnu, 120 lítra. Verð fyrir
hverja uppsaltaða tunnu,
með þremur lögum í hring,
er kr. 313,00.
Verð á síld til heilfrysting-
ar er kr. 230,00 fyrir hverja
uppmælda tunnu, 120 lítra.n
Síldarsöllun hófsí í gærdag
Um 50 Söitnnarstöðvar biðu söltunarleyfis
SÍLDARÚTVEGSNEFND gaf
s.l. mánudag út svofellda frétta-
tilkynningu:
„Síldarútvegsnefnd ákvað á
fundi sínum 29. júní að heimila
löggiltum síldarsaltendum norð-
anlands og austan, söltun síldar
frá kl. 12,00 á hádegi, þriðjudag
inn 30. júní. Skilyrði fyrir sölt-
un er, að síldin sé a. m. k. 20%
feit og fullnægi einnig að öðru
leyti stærðar- og gæðaákvæðum
þegar gerðra samninga.
Ennþá hafa samningar ekki
tekizt við Sovétríkin."
Gerðir hafa verið samningar
um sölu á 300 þús. tunnum salt-
síldar, þar af 200 þús. til Sví-
þjóðar.
í fyrra voru söltunarstöðvar
norðanlands og austan 40 tals-
ins, en talið er að síld vei’ði
söltuð á 50 söltunarstöðvum í
sumar. □.
Straumfirði, á vesturströnd
Grænlands, kl. 18,45.
Næsti áfangi er svo þvert yfir
Grænlandsjökul til Kulusuk. —
Þaðan verður svo flogið í ein-
um áfanga til Akureyrar.
Ef veður verður hagstætt á
þessari flugleið, gætu vélarnar
komið í kvöld eða nótt til Akur-
eyrar.
Flugvélar þær, sem hér um
ræðir, eru 8—10 farþega Beeh-
craft C—45 vélar, eins og áður
var frá sagt hér í blaðinu. □
Þrjár byrjuðu
á slaginu
Raufarliöfn 30. júní. Þrjár sölt-
unarstöðvar byrjuðu kl. 12 í dag
að salta — á slaginu tólf — en
þá var fyrsta söltun leyfð. Það
voru þessar stöðvar: Norður-
síld, Hafsilfur og Óðinn. Útlit
er fyrir að Borgir og ný söltun-
arstöð, Síldin, fái síld til söltun-
ar fyrir kvöldið.
í gærkveldi var síldarverk-
smiðjan búin að taka á móti
126 þúsund málum í bræðslu.
Veður er nú gott og góð veiði
í nótt. 60 skip fengu yfir 40 þús.
mál.
Margt um manninn.
Hér er að verða mannmargt.
Síldarstúlkurnar hafa komið í
stórum hópum undanfarna daga
og einnig karlar til margs kon-
ar starfa.
O
111 ■ 111111 • 111 ■ 11 ■ 11 ■ 111111 ■ ■
i m ■ ■ ■ i ■ 11 ■ 11 ■ 1111 ■ ■ i ■ i ■ ■ i ■ ■ 111M11 ■ ■
i ■ 11 ■ ■ 11 ■ ■ 111 ■ i ■ ■ 11 ■ 111 ■ 1111111 ■ i ■ 11111 ■ ■ i ■ 11 ■ ■ ■ ■ i ■ ■ i >
Hans konunglega tign prins Philip, hertogi af Edinborg, — eigin-
maður Elísabetar Englandsdrottningar. — Myndin er tekin í
Buchingham-höll. (Ljósmynd: British Official Photograph)
Hertoginn af Edinborg kemur í dag
PHILIP PRINS, hertogi af Edinborg, og eigin-
maður Elísabetar Englandsdrottningar, og for-
seti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, koma vænt-
anlega til Akureyrar um kl. 7 í kvöld, eins og
áður hefur verið tilkynnt.
Frá flugvellinum verður ekið í Lystigarðinn,
þar sem opinber móttaka fer frain. Forseti bæj-
arstjórnar, Jón G. Sólnes, flytur ávarp og hertog-
inn svarar. Lúðrasveitin leikur Jjjóðsöngva ís-
lands og Englands.
Síðan verður snæddur kviildverður í Sjálf-
stæðishúsinu, en flogið að honum loknum til
Mývatnssveitar og gist í Reykjahlíð. (Ekki Höfða
eins og áður hafði verið ákveðið).
Á morgun ætlar hertoginn, sem er áhugamað-
ur um fugla, að skoða fuglalífið í Mývatnssveit
fram eftir degi, en halda þaðan beint til Reykja-
víkur, flugleiðis.
Heimsókn Philips hertoga er ekki formleg, og
fylgja henni ekki slíkar veizlur, sem við komu
ýmsra annarra þjóðhöfðingja. Eigi að síður er
lieimsókn þessi opinber og með henni goldin
heimsókn forseta íslands til Englands í fyrra.
Norðlendingar, sem aðrir landsmenn, munu
fagna vel hinum tigna, erlenda gesti. Því auk
]>ess, sem hann er fulltrúi vinaþjóðar, mun hann,
samkvæmt fréttum um hann, falla íslendingum
velí geð.
Hann er sagður liugrakkur maður og frjáls-
mannlegur, hneykslar fólk stundum með hrein-
skilni sinni, hefur brotið margar kreddur á bak
aftur, er fágætum íþróttum húinn og lætur jafn-
vel að stjórna slcipi sem flugvél.
Sagt er að hann sé góður, heimilisfaðir og
jafnan málsvari æskunnar. Einnig er sagt að
hann veiti drottningunni, eiginkonu sinni, ómet-
anlegan styrk í vandasömum störfum hennar.
Að sjálfsögðu er margt rætt um mann þeirrar
konu, sem tignust er talin meðal drottninga.
Slíkir menn verða að sætta sig við satt og logið,
sem útgefendur blaða og tímarita kunna að sjá
hagnað í að birta. Þó er augljóst hve hertoginn
nýtur mikilla og vaxandi vinsælda meðal þjóðar
sinnar.
Og hið vandasama hlutverk sitt virðist hann
skilja vel. Þótt hann gangi ekki feti framar á
opinbernm vettvangi en manni drottningar ber,
stendur hann enganveginn í skugga hennar og
er orðinn mikill áhriíamaður á ýmsum sviðum,
einkum á sviði vísinda, iðnaðar og uppeldismála.
Hin síðari árin, eftir að hann tók að gefa sig
af alvöru að félagsmálum, er ræðum hans jafnan
mikill gaumur gefinn. Enn hneykslar hann fólk,
bæði í ræðum og samtölum — og hrífur þó
margfalt fleiri. — Og nú vita menn það, sem
menn ekki vissu, þegar hann var óbreyttur sjó-
liðsforingi, að þar er maður, sem meinar J>að
sem hann segir og veit hvað hann vill.
Brúðkaup Jieirra Elísabetar, þá prinsessu, og
Philips fór fram 1947 að 2000 boðsgestum við-
stöddum, sem skipað var eftir aldri, til að forð-
ast meting.
Börn Jjeirra eru: Charles prins fæddur 1948,
Anna prinsessa fædd 1950, Andrew prins fæddur
1960 og Edward prins fæddur 1964.
Þau Elísabet drottning og Philip prins eru
bæði afkomendur Kristjáns IX. Danakonungs.
Viktoria Englandsdrottning var langa-lang-amma
þeirra beggja. □