Dagur - 01.07.1964, Blaðsíða 7
7
Fjórðungsmól hestamanna
Fjöldi manna og liesta, en veður illt á laugard.
UM 150 hross voru reynd eða
sýnd á fjórðungsmóti hesta-
manna í Húnaveri um síðustu
helgi. Þar var slegið upp tjald-
borg, því margt var um mann-
inn. Veður var hig versta á laug
ardaginn, fyrri mótsdaginn, og
spillti það ánægju viðstaddra.
En síðdegis á sunnudaginn var
komið glampandi sólskin og
fóru þá fram kappreiðar og sýn-
ing góðhesta.
Blaðið hefur ekki fengið úr-
slit í einstökum greinum þessa
móts í heild, en birtir nokkur:
í keppni alhliða góðhesta sigr-
aði Draumur Magna Kjartans-
sonar Árgerði, en beztur klár-
hestur var Fölskvi Sigurðar O.
Bjönrssonar. I 250 m hlaupi sigr
aði Gola Péturs á Krossastöðum
og í 300 m sigraði Grámann úr
Reykjavík. í 800 m sigraði Þröst
ur Ólafs Þórarinssonar, Hólmi.
LEITARSTOÐ TIL AÐ FINNA KRABBAMEIN
) (Framhald af blaðsíðu 8).
f Prófessor Níels Dungal segir,
að krabbamein í legi kvenna
hefði færzt í vöxt frá aldamót-
um og væi'i algengur sjúkdóm-
ur í öllum menningarlöndum.
Það væri og algengara í Reykja
vík en úti á landi. Krabbamein
í legi ætti sér jafnan langan að-
draganda unz það brytist út.
Mjög auðveldlega væri hægt að
greina það löngu áður, hvort
krabbamein væri að myndast og
mætti þá nema meinið burt án
nokkurs sársauka. Enginn
vandi væri að ráða við það á
byrjunarstigi.
Áætlað er, að þessi hjálp nái
til allra kvenna á íslandi, þeim
að kostnaðarlausu.
Alma yfirlæknir segir, að sé
krabbamein í legi uppgötvað á
byrjunarstigi, væru horfur á
lækningu 100%. Hún leggur
í'íka áherzlu á, að konur leiti til
stöðvarinnar, sem er til húsa í
Suðurgötu 22 í Reykjavík. □
! Frá Eiðaskóla
ALÞÝDUSKÓLANUM á Eið-
um var slitið laugardaginn 30.
maí við athöfn í Eiðakirkju.
Sóknarpresturinn, sr. Einar
Þ. Þor&teinsson, flutti hugvekju
og nemendur sungu undir stjórn
söngkennara skólans, Magnúsar
Kristinssonar.
Þórarinn Þórarinsson, skóla-
stjóri, flutti skólaslitaræðu,
skýrði frá starfsemi skólans og
úrslitum prófa, afhenti verð-
laun og viðurkenningar og
ávarpaði nemendur.
Skólinn starfaði með svipuð-
um hætti og áður, nema hvað
nú var í fyrsta sinn starfræktur
4. bekkur í skólanum til undir-
búnings fullgildu gagnfræða-
prófi, og nám í verknámsdeild
miðskóla var miðað við fram-
haldsnám í iðnskóla. Sýning á
handavinnu, teikningum og
vinnubókum nemenda var hald
in nokkru fyrir skólaslit í sam-
bandi við brottför nemenda úr
neðri bekkjum skólans.
Prófum luku 120 nemendur,
þar af 11 í gagnfræðadeild og
18 í landsprófsdeild miðskóla og
af þeim hlutu 15 framhalds-
einkunn, þ. e. meðaleinkunn 6
eða þar yfir í bóklegum grein-
um. Hæsta einkunn á gagnfræða
prófi hlaut Guðný Kristjáns-
dóttir frá Stöðvarfirði 8,29. Er
hún fyrsti gagnfræðingurinn
sem útskrifast eftir fjögurra ára
nám í Eiðaskóla.
Á landsprófi hlaut hæsta eink
unn Stefán Vilhjálmsson frá
Brekku í Mjóafirði 9,10 í lands-
prófsgreinum, sem jafnframt er
hæsta einkunn á landsprófi við
Eiðaskóla.
Á almennu miðskólapi'ófi
urðu hæst Hei'borg Jónasdóttir
frá Neskaupsstað úr bóknáms-
deild 7,24 en Daníel Sigui'ðsson
frá Halloi’msstað 7,36 úr verk-
námsdeild.
Við burtfararpi’óf eldri deild-
ar varð hæstur Jón Atli Gunn-
laugsson frá Setbergi í Fella-
hreppi, með einkunnina 9,02 að
meðaltali úr öllum greinum en
í yngi’i deild Sigui-bergur Frið-
riksson frá Vattai’nesi, 8,67 (9,04
í bóklegum greinum).
Margt gesta var við skólaslit-
in. — Skólinn er fullskipaður
næsta skólaár og vísa varð frá
fjölda umsókna.
Framkvæmdir eru hafnar við
framhaldsbyggingu skólahúss-
ins, og senn er lokið fram-
kvæmdum við sameiginlega
vatnsveitu fyrir staðinn.
SUMARLEYFI .
Vér viljum vinsamlegast benda viðskiptavin
um vorum á, að Prentverk Odds Björnsson-
ar h.f. verður lokað vegna sumarleyfa frá
21. ágúst til 14. september n.k.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
HAFNARSTRÆTI 88 . AKUREYRI
- Kjördmisþingið . . .
(Framhald af blaðsíðu 5).
innar um lagningu Strákaveg-
ar og leggúr ríka áherzlu á, að
undix’búningskramkvæmdum
við vegagerðina verði hraðað
sem allra mest.
Jafnframt telur fundurinn
sjálfsagt, að allar tekjur ríkis-
sjóðs af bifreiðum og benzíni
renni óskiptar til uppbyggingar
vegakerfi landsins og viðhalds
þess.
7) Þar sem í-afox’ka til heim-
ilisnota er eitt af frumskilyrð-
um fyrir því að byggð haldist
í sveitum, gerir fundurinn kröfu
til þess að framkvæmdum í raf-
orkumálum verði hraðað svo,
að öll heimili hafi fengið raf-
magn fyrir 1968.
8) Fundurinn telur brýna
nauðsyn bera á að bæta náms-
aðstöðu unglinga í kjördæminu
þannig að þeim sé a. m. k. gert
kleift að ljúka þar lögboðnu
skyldunámi.
Jafnframt telur fundurinn
eðlilegt að stefnt vei’ði að því,
að í kjöi’dæminu verði byggður
og stai’fi’æktur menntaskóli."
Guðmundur Jónasson í Ási í
Vatnsdal, sem lengst af hefur
verið formaður Kjördæmissam-
bandsins og gengt því stai’fi með
mikilli prýði, baðst nú undan
endui’kjöri í stjói-n og vottuðu
fundai-menn honum þakkir fyr-
ir ágæt störf. Magnús H. Gísla-
son á Frostastöðum mæltist
einnig undan endui’kosningu. í
stað þeii’ra voi’u kjörnir þeir
Olafur Svei’risson kaupfélags-
stjóri á Blönduósi og Haukur
Jörundsson skólastjói’i á Hól-
um. Að öðru leyti skipa stjórn-
ina þeir Jóhann Þorvaldsson
kennari Siglufirði, Guttoi’mur
Oskarsson gjaldkeri Sauðáx’-
króki, Gústaf Halldórsson verk-
stjóri Hvammstanga og frá fé-
lögum yngri manna Benedikt
Sigui-jónsson Siglufii’ði, Gunnar
Oddsson Flatartungu, Páll Pét-
ui-sson Höllustöðum og Bi-ynj-
ólfur Sveinbergsson Hvamms-
tanga.
I miðstjói’n flokksins voi-u
kjörnir: Bjarni Jóhannsson for-
stjóri Siglufii-lði, Gísli Magnús-
son bóndi Eyhildax’holti, Gutt-
ormur Oskai’sson gjaldkeri
Sauðái’kx’óki, Guðmundur Jón-
asson bóndi Ási, Gústaf Hall-
dórsson verkstjóri Hvamms-
tanga og frá yngri mönnum þeir
Gunnar Oddsson bóndi í Flatai’-
tungu og Páll Pétursson bóndi
Höllustöðum.
Kvenfélag Akrahi'epps sá
fundai’mönnum fyrir veitingum,
að mikilli rausn og myndarskap.
— mhg.
- Kraftfóður og hæfi-
legt magn afurða
(Fi-amhald af blaðsíðu 5).
Þá kemur takmörkun á notk-
un innflutts kjarnfóðurs til
gi-eina, hvernig sem henni yrði
fyi'ir komið, því líklegt verður
að telja, að það muni reynast
heilladi’ýgra, þegar á allt er lit-
ið, að hafa mjólkurkýrnar held-
ur fleiri en færri og byggja
mjólkux-framleiðsluna sem mest
á innlendu fóðri. H. E. Þ.
MESSAÐ í Akureyrarkii-kju n.
k. sunnudag kl. 10,30. Sálmar
nr. 579, 29, 420, 34 og 25. P. S.
KNATTSPYRNAN! Leikur í
júlímótinu (meistaraflokkur)
milli KA og Þórs í kvöld —
miðvikudag — kl. 8,30.
KVÖLDFERÐ á fimmtudag! —
Hringferð um Eyjafjörð. Far-
ið fram í Leyningshóla. Lagt
af stað frá Lönd & Leiðir kl.
8,30. — Þátttaka tilkynnist
fyrir kl. 6 á fimmtudag.
RANGT SÍMANÚMER. f síð-
ustu blöðum hefur símanúm-
er Ágústs Þorleifssonar dýra-
læknis verið prentað 1863, en
á að vera 1563.
Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessum mis-
tökum.
- Skozkir bændur og
ríkisvaldið
Nokkrar stökur
VORVÍSUR
Ljómar skart um lönd og sjá
lifnar hjartans gleði, kynni.
Vorið bjarta völdin á,
veitir margt af auðlegð sinni.
Sólin gyllir gi’óðurreit,
glaðir söngvar hljóma.
O, mig langar út í sveit
í angan vors og blóma.
Á SJÚKRAHÚSI
Órt þó lækki æfisól
og okkar fjölgi meinum.
Veitir ennþá von og skjól,
vor í hjartaleynum.
TIL VINKONU
Þó að oft sig ygli brá
og ógni myrkrið svarta.
Við skulum ti’eysta ætíð á,
allt hið góða og bjarta.
Dagný M. Benediktsdóttir.
- Bílstjóri og þúsund
þjala smiður
(Framhald af blaðsíðu 2).
Hvernig finnst þér veröldin og
mannlífið?
Mér finnst. veröldin ágæt, a.
m. k. það sem að mér snýr. Ég
hef verið svo lánsamur að kynn
ast aðeins góðum mönnum um
ævina. Og þetta slæma fólk,
sem talið er eð sé svo mikið af,
hef ég ekki rekist á. Ég hef alla
ævi verið fátækur af veraldar-
auð, en þegar ég hef þui-ft á
hjálp að halda, hefur hún ætíð
birzt mér í einhverri mynd.
Mér hefur alltaf þótt vænt um
landið mitt, sveitir þess og ör-
æfi. Ég hef fundið sannasta
gleði í skauti íslenzkrar nátt-
úru. Unað hag mínum vel á há-
lendi og heiðum uppi, með
myndavélina mína að förunaut.
Glaðst af hjarta yfir því að
sveifla stöng við sti-eymandi ár
og sitja á dorg á ísilögðum
vötnum, Ég hef ekki kunnað að
meta bæjai’lífið, en vil enda
þetta spjall með ljóðlínum Sið-
urðar á Arnai’vatni:
„Blessuð sértu sveitin mín,
sumar, vetui’, ár og daga.“
(Framhald af blaðsíðu 8).
bóndi væri bezti viðskiptavinur
bankanna. Þeir gætu fengið þar
£1000 (222.000,00 ísl. kr.) án
nokkurrar tryggingar, og víxla
til skamms tíma fá þeir eftir
þöi’fum. Þó er það skilyrði sett,
að þeir færi búreikninga og
skýrslu, sem sýni, hvaða bú-
grein gefi mestan arð, enda fer
það voxandi að bændur hafi
eina aðalbúgrein.
— Hvernig er aðstaða ríkis-
valdsins til bænda?
— Ríkið styður skozkan land-
búnað mjög mikið. Það gi’eiðir
Vá af öllum stofnkostnaði við
byggingar, ræktun og fram-
í-æslu, V2 af girðingai’kostnaði,
V4 af áburði og mai’gt fleira. í
hálendinu greiðir ríkið % a£
öllum byggingarkostnaði. Auk
þess greiðir ríkið beinan styx-k
á hverja holdakú, um 1500 ki\,
á hvern kálf 1160 kr. og um 300
kr. á hvei’ja vetrarfóðrara á.
Ríkið ábyrgist einnig lág-
marksvei’ð fyrir ýmsar landbún-
aðarvörur, m. a. ull og hvern
gi'ip, sem kemur á markaðinn,
bæði holdanaut og lömb. Þeir,
sem selja á hærra vei’ði, njóta
þess gi’óða sjálfir, og er skozka
kerfið því fullkomnara en hér
gerist. Ríkið greiðir enga beina
styi-ki til mjólkui'framleiðslunn-
ar, en ábyrgist lágmai’ksverð.
Lágmarksverð það sem ríkið
ábyrgist á koi’ni, er hæri’a en
mai’kaðsverðið, og er þá sama,
hvort bændui’nir selja koi’nið
eða nota það sjálfir til fóðurs.
— Hvað annað vakti sérstaka
athygli þína?
— M. a. tryggingakerfið þar í
landi. Þeir hafa lífeyriskerfi
fyrir alla landsmenn og miklu
víðtækari sjúki’asamlagsti’ygg-
ingar en hér tíðkast. Bænda-
efni hafa mjög góða aðstöðu til
menntunar og fer um helming-
ur þeirra í bændaskóla, enda
ber búskapurinn þess merki, að
flestir bændanna eru vel mennt-
aðir. Einnig er athyglisvert,
hversu litlu þeir þurfa að kosta
til bygginga. □
GÓÐ AUGLÝSING -
GEFUR GÓÐAN ARÐ
ODÝRIR, nýkomnir
MARKAÐURINN
Síml 1261