Dagur - 22.07.1964, Page 5

Dagur - 22.07.1964, Page 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1166 og 1167 Ritstjóri og óbyrgðarmaSur: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. BLANÐAÐUR BUSKAPUR EÐA VERKASKIPTING HÉR í blaðinu birtist 4. júlí s.l. við- tal við Eggert Ólafsson bónda í Lax- árdal í Þistilfirði um bændaförina til Skotlands í vor. í þessu viðtali og í frásögnum annarra þátttakenda í þessari bændaför kemur margt at- hyglisvert frarn uin búnaðarhætti Skota og aðbúð ríkisvaldsins að bændum þar í landi. Mörgum mun t. d. þykja það fróðlegt og athugun- arvert fyrir stjórnarvöldin hér, að skozkir bændur skuli fá eins konar uppeldisstyrk út á búfjárstofn sinn og að áburðarverðið skuli vera svo miklu lægra í Skotlandi en hér á landi, sem raun ber vitni, svo og það, að bændur skuli almennt hafa hærri tekjur en þeir, sem laun taka. Hitt er svo jafnframt umhugsun- arvert, sem fram kemur í þessum frá- sögnum um verkaskiptinguna, sem er meiri meðal skozku bændanna innbyrðis. Framleiðsla einstakra búa eða byggðarlaga virðast almennt tak- mörkuð við eina aðalbúgrein, t. d. annaðhvort mjólk eða kjöt, en ekki hvort tveggja, og að sumir bændur framleiða eingöngu holdanautakjöt, aðrir eingöngu kindakjöt o. s. frv., að sums staðar er eingöngu ungt bú- fé, sem síðar er flutt milli héraða og fóðrað þar síðan við önnur skilyrði, o. s. frv. Þessir búskaparhættir minna á mál, sem mikið hafa verið rædd með- al bænda og búfræðimanna hér á landi fyrr og síðar. Fyrir 20—30 árum átti sú skoðun talsverðu fylgi að fagna, að íslenzkir bændur ættu að skipta með sér verkum þannig, að í þeim héruðum, sem til þess eru bezt fallin, ætti að stunda sauðfjárrækt eingöngu, en ekki mjólkurfram- leiðslu til sölu, en að í öðrum héruð- um ætti að stunda nautgriparæktina eingöngu og leggja sauðfjárræktina niður. Lítið eða ekkert varð þó af því, að gerðar væru ráðstafanir til að stuðla að þróun í þessa átt. Og í seinni tíð virðist hið almenna viðhorf hafa breytzt í þessum efnum. Blandaður búskapur varð eins konar kjörörð í stað verkaskiptingar. Þróunin hefur líka orðið á þá leið að sauðfjárrækt hefur færst í aukana í sumum aðal- mjólkurframleiðsluhéruðunum þótt jtar væri um tíma sauðlaust orðið vegna fjárpestanna. Jafnframt hefur víða verið hafin eða stóraukin mjólk- urframleiðsla til sölu og komið upp mjólkurbúum, Jjar sem áður var ekki um slíkt að ræða og skiíyrði til sauðfjárræktar í bezta lagi. Talið er, að verðlagning landbúnaðarafurða hafi stuðlað mjög að jiessari Jnóun, J>ar sem sauðfjárbændur hafa talið sig' bera mjög skarðan hlut frá borði. Veizluræða Ingólfs ráðlierra ÞEGAR Stéttarsamband bænda hélt aðalfund sinn í Reykjavík í vor, gat Ingólfur Jónsson land- búaðarráðherra ekki þegið boð stéttarsambai dsstjórnar um að mæta á fundinum og taka þar til máls, og hafa sjálfsagt legið til þess gildar ástæður. En í fundarhléi annan fundardaginn bauð ráðherrann fundarmönn- um til miðdegisverðar í veizlu- -sölum ríkisstjórnarinnar. Vel létu menn af því, sem þar var framreitt. Hitt þótti tíðindum sæta, og kom ýmsum á óvart, áð ráðherrann flutti þarna yfir gestum sínum langa ræðu eða fyrirlestur, og var veizluhjal þetta ekki léttara en svo, að þess var getið í blöðum, að ein- hverjir fundarmanna hefðu lát- ið sér í hug koma að ganga frá borðum til að láta í ljósi van- þóknun sína á þessum ábæti ráð herrans, með því að þar var hvorki staður né stund til and- svara með öðrum hætti. Svo var ræðan prentuð. Blaðafréttir þessar vöktu þá þegar mikið umtal í sveitum. En ekki höfðu menn þá aðstöðu til að leggja dóm á það, hvort þessi ráðherraræða í gestaboði hefði gefið tilefni til gagnrýni eða hvort um einhverja óþarfa viðkvæmni hefði verið að ræða hjá fundarmönnum. En hinn 24. júní var þessi veizluræða prent- uð í ísafold með viðeigandi fyr- irsögnum og mun hafa borizt allmörgum í hendur. Er skemmst frá því að segja, að telja má til eindæma, að maður í tignarstöðu skuli hafa flutt slíka ræðu í mannfagnaði yfir stéttarfulltrúum bænda., eins og nú er í pottinn búið, þótt hún hinsvegar sómi sér allvel sem áróðursplagg í flokksblaði þeirra Sjálfstæðismanna. Bændur dragast aftur úr „vegna óhyggni.“ í þessari veizluræðu gerði ráð herrann m. a. athugasemdir við ýmislegt, sem honum hafði ver- ið sagt af fundinum. Hann lýsti yfir því, að meirihluti bænda hefði lífsafkomu „vel sambæri- lega við það, sem aðrar þjóðfé- lagsstéttir hafa,“ en að sumir hefðu dregizt aftur úr „vegna óhyggni." Þetta síðasta má raun- ar til sanns vegar færa, því að bændur í landinu hafa orðið fyr- ir þeirri miklu „óhyggni,“ að stjórnarfar í landinu er þeim mjög óhagstætt um þessar mundir. Varla hefur þó ráðherr- ann átt við það, og er þá vand- séð hvað hann meinti með þessu óhyggnistali sínu. Næst kom áminning þess efn is að bændum bæri að ræða mál sín af „raunsæi og skilningi" og yrði þá „tekið meira mark á málfíutningi þeirra og því, sem samþykkt er.“ Stéttarfelagar, sem höfðu flutt mál umbjóð- enda sinna af þeirri einurð og samþykkt, eða voru í þann veg- inn að samþykkja mikilsverðar fundarályktanir í lífshagsmuna- málum bænda, skildu hér ef- laust hvað klukkan sló. Síðar í ræðunni voru svo bændur fræddir um það, að bændum myndi vegna vel „ef þeir rökstyðja mál sitt tölum og rökum.“ Það hefur þá með öðrum orðurn ekki verið gert hingað til. Fyrsíi landbúnaðarráðherrann, sem stendur í málaferlum við bændur. í síðari hluta ræðunnar tók ráðherrann sér svo fyrir hend- ur að rökstyðja ýms ágreinings- mál milli hans og bændafull- trúanna. í þeim hluta ræðunnar ræddi hann m. a. um lagabreyt- ingarnar 1959—1960 (fram- leiðsluráðslögin), viðmiðunina við tekjur annarra stétta í verð- lagsgrundvellinum, skuldaaukn- ingu bændastéttarinnar s.l. ár, afurða- og rekstrarlán landbún- aðarins, stofnlánadeildir Búnað- arbankans og lánsfjárskattinn á landbúnaðarafurðir, svo og máls höfðun bænda á hendur Búnað- arbankanum og landbúnaðar- ráðherra út af álagningu þessa skatts, sem honum er bersýni- lega mjög viðkvæmt mál, enda fyrsti landbúnaðarráðherrann, sem stendur í málaferlum við bændastéttina. „Vér einir vitum.“ Um öll þessi mál ræddi ráð- herrann á þann hátt, að ekki átti við að tala þannig til manna á andstæðri skoðun nema á um- ræðufundi eða opinberum vett- vangi, þar sem svörum verður við komið. Eins langt gekk þó ósmekkvísin þegar hann lýsti Fjölmenn útför Langanesi 14. júlí. Utför Karls Hjálmarssonar frá Ljótsstöðum, fyrrverandi kaupfélagsstjóra, sem undanfarin ár hefur verið framkvæmdastjóri fiskiðjusam- lagsins hér og varð bráðkvadd- ur á skrifstofu sinni á Þórshöfn 4. þ. m., var gerð frá Sauðanes- kirkju laugardaginn 11. þ. m. Karl var hér kaupfélagsstjóri (hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórshöfn) í 17 ár. 1931—1947 og síðan í 14 ár kaupfélagsstjóri á Hvammstanga. Þessi jarðarför var hin allra fjölmennasta, sem sézt hefur hér og voru sumir mjög langt að komnir, m. a. vandamenn hins látna af Suður- og Vestur- landi og tvö börn hans, sem bú- sett eru erlendis og komu nú þaðan. Séra Ingimar Ingimarsson flutti líkræðuna. Blandaður kór annaðist útfararsöng undir stjórn Bjargar Björnsdóttur í Lóni. Þráinn Þórisson söng ein- söng: „Nú ríkir kyrrð í djúpum dal“, en Ragnar H. Ragnars lék undir á kirkjuorgelið. Daníel Þórhallsson söng: „Lýs milda ljós“, með undirleik Bjargar Björnsdóttur. Eftir útförina var öllum viðstöddum boðið til kaffi drykkju í félagsheimilinu á Þórshöfn. Karl Hjálmarsson var fæddur því yfir á þessum stað, að hann hefði, án þess að ræða við með- ráðherra sína, stungið undir stól vandlega undirbúnum til- lögum fundar í fyrra um breyt- ingar á framleiðsluráðs lögun- um, en þessar tillögur voru hon- um sendar í fyrrahaust og stjórnin beðin um að flytja þær á Alþingi. Ráðherrann kvaðst hafa stungið þessum tillögum undir stól af því að hann sjálf- ur hefði ekki talið það „bænda- stéttinni til gagns“ og ýms atriði í þeim „mjög hæpin og vafa- söm.“ — „Vér einir viturn," sagði einvaldskonungur fyrrum, og nú þykist ráðherra þessi i Reykjavík vita betur en bænd- ur sjálfir eða kjörnir fulltrúar þeirra, hvað þeim sé fyrir beztu eða hvar skórinn kreppir. Bollaleggingar ráðherra um meðferð þessarar tillögu á Stéttarsambandsfundi, gáfu vissulega tilefni til athuga- semda, eins og margt annað í þessari dæmalausu veizluræðu Ingólfs ráðherra. Sumir segja raunar, að hér sé um mannalæti að ræða hjá ráð- herranum. Sannleikurinn sé sá, að hann hafi ekki treyst sér til þess að hreyfa málinu í ríkis- stjórninni, eftir þá útreið, sem stjórnardeild sú, sem hann hélt sig mann til að veita forstöðu, hefur hlotið í ríkisstjórninni á undanförnum árum, og kjósi nú fremur að taka á sig ábyrgðina af því að hundsa tillögur Stétt- arsambands bænda á sínar herðar, þótt burðarþol þeirra megi varla minna vera. Karls Hjálmarss. á Ljótsstöðum í Laxárdal 17. febrúar 1900. Hann naut mikils trausts og vinsælda og er hér öllum almenningi minnisstæður, eins og glöggt kom fram við út- för hans. □ - DAUÐASLYS (Framhald af blaðsíðu 8). en án árangurs. Þegar þetta gerðist var laugarvörðurinn ný- genginn frá lauginni og inn í laugavarðarklefann, þegar kall- að var til hans og sá hann þá konuna með barnið í fanginu. Um það leyti er slysið skeði var margt baðgesta í lauginni en flest voru það börn. Þar á meðal var 13 ára gömul stúlka sem sagðist hafa séð að Þórey heitin hoppaði fram að brettinu með fæturna á undan, en fylgd- ist svo ekki með henni örstutta stund og eigi fyrr en kallað var upp um slysið og hafði hún þá strax kallað til laugarvarðar, sem rétt var genginn fram hjá og inn í varðklefann. Engir áverkar sáust á barn- inu og er talið að um drukknun hafi verið að ræða. Foreldrar barnsins voru Jóna Petersen, Þingvallastræti 39, og Guomundur Valgeirsson. (Frá bæjarfógeta). a 5 Dr. Ricliard Bech og frú Margrét. (Ljósmynd: E. D.) Sfytta Vilhjálms Stefáns- sonar reist í sumar segir dr. Richard Beck á blaðamannafuiidi BELGI VALTÝSSON: Glerá kvödd vinarkveöju DR. RICHARD BECH prófessor er kominn til Norðurlands ásamt frú sinni og átti viðtal við blaðamenn í Varðborg á mánudaginn. Hann er einn af þessum mönnum, sem aldurinn vinnur ekkert á, hvorki líkam- lega né andlega, að því er virð- ist, og er enn gæddur þessum fágæta kjamorkukrafti, sem hrífur og vekur. Ekki þarf að kynna manninn hér, svo kunn- ur er hann bæði austan hafs og vestan, af ræðum sínum, ritum, vísindastörfum, kennslu skáld- skap og ýmsum umsvifamiklum menningar og bókmenntastörf- um. Hinsvegar er síðari kona hans frú Margrét Brandsson, minna kunn og hefur sjaldnar til ís- lands komið. Hún er fædd vestra, í Viktoríuborg í Kanada en á ættir sínar að rekja í Mýr- dalinn. Foreldrar hennar voru Einar Brandsson og Sigríður Einarsdóttir, sem voru meðal vesturfara árið 1886. Prófessorinn sagðist hafa ótal kveðjur að flytja að vestan, „fangið fullt af kveðjum til ís- lands,“ sagði hann. Hann var líka fulltrúi Þjóðræknisfélagsins vestra á þjóðhátíðinni hér á landi 17. júní s.l. og hefur víða annars staðar komið fram, sem fulltrúi Vestur-íslendinga í þess ari íslandsferð sinni. En nýr maður, Filip M. Pétursson, hef- ur nú tekið við formannsstörf- um í Þjóðræknisfélaginu af dr. Riehard Bech, og er hann bróð- ursonur Rögnvaldar Pétursson- ar. Prófessorinn sagði, að í störf- um Þjóðræknisfélagsins væri mjög á brattann að sækja, því íslenzk-ættaða fólkið fjarlægð- ist bæði íslenzkt mál og einnig uppruna sinn, þótt trygglyndi þess væri ótrúlega mikið og ræktarhugurinn til íslands að- dáunarverður. Hin félagslega starfsemi Vestur-íslendinga fær ist meira yfir á enskuna, sagði prófessorinn, og við því er ekki hægt að sporna. Hins vegar væru enn þúsundir vestra, sem töluðu og skildu íslenzku mjög vel. Þetta fólk vildi, ásamt mörg um öðrum, halda tryggð við allt, sem íslenzkt er. í Þjóð- ræknisfélagi íslendinga vestan hafs eru 9 deildir starfandi, flestar í Dakota. Deildir félags- ins halda vel í horfinu og félag- ið heldur íslenzk-ættaða fólkinu saman á meðan unnt er. Aðspurður um merka at- burði vestra sagði dr. Bech fyrst frá því, að verið væri að undirbúa 75 ára afmælishátíð á Gimli 3. ágúst í sumar. En það er afmæli íslenzku þjóðhátíð- anna, sem aldrei hafa fallið nið- ur og jafnan verið mjög fjöl- sóttar. Á þessari afmælishátíð verður dr. Bjami Benediktsson forsætisráðherra aðalræðumað- ur. Verið er að undirbúa, á veg- um Þjóðræknisfélagsins og stjórnarvalda í Manitoba, að reisa styttu mikla af Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði á bernskuslóðum hans í Nýja ís- landi. í þriðja lagi er ákveðið, að í sumar verði vígður stór skemmtigarður á Akra í Norður Dakota, allsérstæður. Gefendur eru systkinin Gunnlaugur Gunn laugsson verkfræðingur og Lóa Gunnlaugsson, en þau eru börn landnámsmannsins Eggerts Gunnlaugssonar frá Baugaseli í Hörgárdal Magnússonar og konu hans Rannveigar Rögn- valdssonar frá Skíðastöðum í Tungusveit í Skagafirði. Þessi hión fluttust til Manitoba árið 1880. Skemmtigarður þessi. sem er mikið landsvæði og landnáms jörð, mun bera nafn íslands. Gunnlaugur verkfræðingur er mikill áhugamaður um landbún að og landbúnaðarrannsóknir og aðdáandi sveitalífs, vinnur að því, að í sambandi við garð þennan verði komið upp rann- sóknarstöð í vissum greinum ræktunar. Dr. Richard Bech telur út- gáfu á Vestur-íslenzkum ævi- skrám, sem sr. Benjamín Kristj- ánsson hefur búið til prentunar og út koma í fleiri bindum, hin- ar merkustu, bæði sagnfræði- lega og mannfræðilega. En út- (Framhald á blaðsíðu 2.) I. Fyrri hluti „HVERNIG eigum við annars að losa okkur við árskrattann!“ Þannig lýkur einni hinna fjöl- mörgu greina H. V. um Glerá í „DEGI“ 2. apríl 1960. Þessi léttúðugu orð eru lögð í munn borgarstjórnar Akureyr ar framtíðarinnar, eftir áratuga eða jafnvel heillar aldar van- rækslu og vanhirðu Glerár, hátt og lágt, í stað þess að hafa þegar um miðja 20. öld gert hana að gleðigjafa og fegurðarauka Ak- ureyrarbæjar og borgar! — Hér er það saga Tjarnarinnar í Reykjavík, sem endurtekur sig í engu- fegurri mynd! — En þess gerðist engin þörf að bíða slíkra ummæla í áratugi! — Þau komu fyrr en varði! í „DEGI“ birtist 12. febr. s.l. fremur stutt, en allrækileg grein og athyglisverð um Glerár- vandamálið mikla, sem þar er talið „stórt vandamál“ og rök- stutt með peningaverðmæti því, sem bænum myndi hlotnast, ef hann „losaði sig við árskratt- ann!“ Fyrirsögn greinarinnar hljóðar svo: „Ef Glerá hyrfi af Gleráreyr- um, fengjust 15—18 dagsl. dýr- mætra byggingarlóða!“ Hér er „peningalyktin“ öflug- ustu rökin, eins og forðum, er við nokkrir ungir menn vildum bjarga Orfirisey sem sjálfkjorn- um fegurðarauka og friðarreit vaxandi höfuðborgar! — En þar bar „peningalyktin" sigur af hólmi — í svip! Nú eru sömu rökin borin fram hér á Akureyri: .....Glerá hin óþarfasta á þessum stað og notar sjálf 15— 18 dagsl. af verðmiklum bygg- ingarlóðum. . . . “ og „einmitt þetta land þarf bærinn að fá. . ..“ „Nú er áin ,Þrándur í götu‘ allra framkvæmda á hinu dýr- mæta landi hins norðlenzka höf uðstaðar. .. .“ ,,....En hann (bærinn) getur veitt henni úr farvegi sínum uppi hjá Banda- gerði og vísað henni til vegar allt til Jötunheima. . . .!“ Og loks koma hin furðuleg- ustu ummæli greinarinnar: „....! Glerárhverfi yrði stöðu vatn milli fagurra hóla og kletta borga, sem gætu orðið hrein bæjarprýði. ...“ (Leturbr. mín- ar. H. V.) Auðvitað yrði þessi bæjar- prýði Glerárhverfis — áin og stöðuvatnið — orðin miðbæjar í hraðvaxandi bæjarhluta eftir tiltölulega skamman tíma, en yrði þá að víkja fyrir hinum „dýrmætu byggingarlóðum í feg ursta hólahverfi borgarinnar!“ — Og þá þyrfti að flytja „ár- skrattann" á ný! „Núverandi farvegur árinnar yrði þá sennilega eins konar „Fossvogs-skólpræsi‘‘ fyrir mik-- inn hluta bæjarins", segir enn- fremur í greininni.------- Hér er gefið í skyn, að Glerá gæti orðið „hæjarprýði“ í Gler- árhverfi, en þá óefað með all- miklu meiri heildar-kostnaði heldur en með því að gera hana að bæjarprýði á sínu sjálfseign- aróðali, Gleráreyrum! (Sbr. Síð ari hluta!) --------Ein fyrsta afleiðingin af flutningi Glerár yrði óefað sú, að árgljúfrin írá gömlu brúnni og upp að stíflu gömlu rafstöðvarinnar yrðu talin til- valin sorpkista vaxandi borgar og afar hagkvæm, svo að eigi þurfi framvegis að gerspilla gróðurhvömmum árinnar í und- irhlíðum, eins cg nú er gert og drepið hefur verið á áður! — En eigi yrði það fegurðarauki Akureyrar né bæjarprýði frem- ur en „Fossvogs-skólpræsið“ í farvegi Glerárinnar sáluðu! II. Síðari hluti Nokkrum dögum áður en fyrr nefnd grein um vistaskipti Gler ár birtist í „DEGI“, hafði þar einnig birzt 5. s. m. grein um virkjun Glerár gegnum bæinn frá Gefjunar-stiflu til sjávar. Nefnist grein þessi: Nýr og grjót fóðraður farvegur Glerár. Er þetta afar athyglisverð grein og fjallar um farveg árinnar, sem „Nú gengur sól að gyltum beð, því ganga vel ég feginn með að hvíldarhægu rúmi. Mín vinna gekk mér vel í hag og var án slysa þennan dag frá birting hans að húmi.“ ÞETTA kvöldvers orti Benedikt Gröndal skáld, eldri, fyrir hálfri annari öld og dásamaði þannig sólarlagið fagra. En mætti ekki heimfæra það líka upp á fagurt mannlíf? Mér kom erindi þetta í hug, þegar ég frétti andlát Stefáns bónda á Svalbarði, jafnaldra míns og vinar, sem var húsbóndi okkar í Tóvinnuskólanum þau 9 ár, sem hann starfaði. — Það leið ekki sá dagur, að Stefán liti ekki inn í skólann til okkar, glaður og hress að vanda, hafði gleðjandi og örfandi áhrif á alla. Það þótti öllum vænt um Stef- án, það hýrnaði yfir stúlkunum, sem sátu við rokkana sína, voru að taka ofan af ull, hæra, kemba eða vefa, þegar Stefán birtist í dyrunum. Sá skóli hefði áreiðanlega aldrei komizt upp, ef stofnend- um hefði ekki boðist þetta góða, stóra húsnæði, með mjög væg- um kjörum. Þarna leið öllum vel, og aldrei féll neinn skuggi á sambýlið við Stefán og hans ágæta fólk þessi ár. Það skildi áreiðanlega, og kunni að meta, þessa tilraun okkar Rannveigar H. Líndal, að viðhalda íslenzku ullarvinnunni og vefnaðinum. Stefáni þótti vænt um ís- lenzku ullina, var um fjölda ára ullarmatsmaður um Norðurland og því mikill ferðamaður, þótti hvarvetna góður gestur á ferð- — Verkfræðiskrifstofa Sigurð ar Thoroddsen hafði þá nýlega skilað áliti um, hversu búa megi um farveg árinnar, og hafði álit þetta verið rætt í bæjarráði. — Álit þetta virðist vera prýði- leg Iausn á þessu Glerár-vanda- máli á þann hátt, að full tök séu höíð á rennsli árinnar á þessu svæði, en þó samtímis þannig, að bæjarprýði sé að! Og hvorttveggja þetta getur rætzt, sé verkið framkvæmt með verk- hyggni og hagleik starfsglaðra handa! Farvegur árinnar er áætlaður 20 m breiður og 2.5 m djúpur, með fláandi hliðum, grjótfóðruð um, og tveimur 1.3 m háum „fossum“ (þrepum). Er slíkur farvegur talinn fullnægjandi, jafnvel í mesta vexti árinnar! Væri árbakka-fláinn hlaðinn úr steinlímdu hnullungsgrjóti og tyrfður að ofan, svo að ár- bakkarnir yrðu grænir og grón- ir, ætti þessi lokasprettur Gler- ár að geta orðið sviphýr á og prýðileg á frjálsri ferð fram til sjávar! —o— Talið er að árfarvegur þessi myndi kosta um 8 milljónir kr., og ætti bæjarbúum Akureyrar um sínum. Lengstu ferðina fór hann áttræður, heimsótti þá ýms Evrópulönd. Stefán var skemmtilegur mað ur, hrókur alls fagnaðar á fund- um og í samkvæmum, með gam ansemi sinni, glaðværð og fyndni. Stefán var höfðingi heim að sækja. Gaman var að vera sam- nátta góðum vinum vestan frá Ameriku 1949: Vilhjálmi Stef- ánssyni og Evelyn konu hans og Gu^imundi Grímssyni dóm- ara. Karlarnir voru glaðir og hreifir. Stefán og Vilhjálmur, bróðursonur hans, voru mjög líkir í sjón. Stefán hélt sér ekki síður vel en heimskautafarinn. Hann stóð sem eik í stormi til hins síðasta. Maðurinn var ógleymanlegur, bæði að útliti og framkomu, þeim sem honum kynntust. Blessuð sé minning þessa góða heiðursmanns. Halldóra Bjamadóttir. ekki að blöskra sú upphæð til fegurðarauka og bæjarprýði í braðvaxandi borg og fagurri! Enda myndi allmikill hluti þessa kostnaðar brátt endurheimtur í hinum „dýrmætu byggingarlóð- um, þar sem hver fermetri lands yrði talinn gulls ígildi." — Og svo að lokúm: Eitt er og víst, að ætti hin fjölmenna og glæsilega æska Akureyrar, þótt eigi væri nema brot af þeim hug sjóna- og áhugans eldi, sem gerði feður þeirra og frændur guðuga að drengskap og mann- gildi á fyrstu áratugum aldarinn ar, væri þeim fríða hóp starfs- glaður leikur og æsku-yndi að taka talsverðan hluta þessara „litlu 8 milljóna" í þegnskapar- vinnu á sínar ungu herðar, — og gleðjast síðan ævilangt við „. . . íslenzkra borga stærsta ævintýr: Hin litla á, sem feimin hjá sér fór, félli um bæinn, orkuglöð og stór með strauma-blik, unz land og lögur mætast. — Og áratuga draumar þannig rætast! Til Rebekkusystra á Akureyri NOKKUR ÞAKKARORÐ FRÁ EINUM í HÓPI GAMLA FÓLKSINS Þá aldurinn færist yfir og alls konar kvillar þjá, ’ allflestum gengur illa yndi? að njóta þá. Þar eruð þið til hjálpar þreytta að hressa við, þeim öldnu, einnig að veita, yndið og sólskinið. Þið farið með gamla fólkið á fagran og góðan stað, og gerið allt sem þið getið ! að gleðja og hressa það. ■ Allt ykkar verk er unnið, af alúð ag kærleiks luhd, | svo þeir sem ellin angrar eigi sér glaða stund. Munu þau ykkur minnast, sem mædd eru og ellihrjáð, og þöglar þakkir senda. — Það skal að lokum tjáð: Votta hér dáð óg dyggðir að dæmi frelsarans, verk, sem svo vel eru unnin á vegum kærleikans. HITTI FLUGYÉL MEÐ VODKAFLÖSKU ÞAÐ bar við í Rússíá að flokks- bundinn maður þar í landi, í þeim eina og sanna flokki aust- ur þar, var að skemmta sér úti í náttúrunni og varð fyrir því óláni að áburðarflugvél dreif á hann áburði. Maðurinn greip þá vodkaflösku, sem í var þjóðar- drykkurinn, og kastaði henni að flugvélinni, hæfði hana og skemmdi. Flugmaðurinn, sem varð að lenda eftir flöskuárás- ina, kærði til yfirvaldanna. Flöskumaðurinn var rekinn úr flokknum og félagi hans einn var sviptur starfi, sem meðsek- ur! p Stefán Stefánsson, bóndi á Svalbarði við Eyjafjörð

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.