Dagur


Dagur - 01.08.1964, Qupperneq 5

Dagur - 01.08.1964, Qupperneq 5
4 S Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Simar 1166 og 1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. BUSKAPUR Breta og ísleudinga ÞAÐ mun vera almenn skoðun, að auðveldara sé að stunda sveitabúskap í Bretlandi en á íslandi. Loftslag er |>ar mildara en hér. Snjóalög yfirleitt ekki lík þar á vetrum eða veður- harka, að ekki sé hægt að beita sauð- fé eða holdanautum. Af þessum sök- um m. a. verður kostnaður við bygg- ingar útihúsa tniklu minni þar en hér. Ætla má, samkv. framansögðu, að fóðrunin sé þar líka ódýrari en hér. OG nú kann líka einhver að segja sem svo, að þessi góðu búskaparskil- yrði segi til sín. Þessvegna sé kjöt- verðið svo lágt í Bretlandi að greiða þurfi útflutningsuppbætur á íslenzkt kjöt, sem þangað cr flutt. Og ein- hverjir kunna að hugsa sem svo, að í landi hins milda veðurfars og búfjár- ræktar á háu stigi, þurfi ríkisvaldið ekki að hafa áhyggjur af afkomu bændastéttarinnar. Hún muni sjá um sig sjálf og sinn búrekstur, án þess að fjárframlög frá ríkinu þurfi til að koma. EN því fer fjarri, að svo sé. Samkv. upplýsingum, sem fram komu á stétt- arsambandsfundinum í Reykjavík í júní í sumar, greiðir ríkissjóður Breta samkv. nýgerðum verðlags- samningum við bændur, hvorki meira eða minna en 320 millj punda eða 38 milljarða íslenzkra króna til landbúnaðarins á einu ári — árið 1964—1965. Innlendu landbúnaðar- aíurðirnar seljast í samkeppni við innfluttar vörur, en ríkið ábyrgist, að brezkir bændur fái það verð, sem um er samið. Þótt hér liggi ekki fyr- ir, á hvern hátt ríkið innir af hendi ábyrgðargreiðslur í einstökum atrið- um, hefur þó verið upplýst, að þær greiðslur hins opinbera til brezkra bænda, sem hér er um að ræða, svari til þess, að bóndi fái tvo þriðju hluta af nettotekjum sínum á þann hátt. NEFND starfar nú að því að afla gagna um aðstöðu bænda í Bretlandi og öðrum nálægum löndum gagnvart ríkisvaldinu og í samanburði við aðrar atvinnugreinar. Verður fróð- legt að kynnast þeim niðurstöðum í samanburði við íslenzku bændastétt- ina. □ Vopnafirði. Ekki er ennþá unnt að segja um áhrif þess á fram- leiðsluhætti bændann'a, en Þor- steinn taldi, að auk þess sem það bætti úr þeirri þörf kaup- túnsbúa að fá gerilsneydda neyzlumjólk, væri um leið sköp uð aðstaða til hins frjálsa vals milli búgreina og væri það einn- ig nokkurs virði. Sumir bænd- ur vildu aðeins annast sauðfjár- búskap, aðrir hefðu dálæti á, kúm. Nú gætu þeir valið um. Um afkomu bænda almennt í Vopnafirði, sagði Þorsteinn Þor- geirsson, að hún þyrfti að vera mun betri. Hann taldi, að eng- þessar mimdir í Vopnafirði, að því er séð varð. Þegar laxveiðimenn hafa rennt fyrir konung fiskanna á öllum veiðistöðum árinnar, dag eftir dag, án verulegs árangurs, er ekki úr vegi að leiða hugann að öðrum hlutum með árniðinn fyrir eyrum, glampandi hylji og breiður fyrir augum, sitjandi á steini með veiðistöngipa og létt an bakpokann sér við hlið. Lax- veiðimenn með litla veiði ,eða enga hafa ekki stórfenglegar veiðisögur að segja við heim- komuna og sjá ekki ástæðu til að þenja út brjóstkassann fram- í GÓÐU VEÐRI opnast óvenju fagurt útsýni þegar ekið er til Vopnafjarðar og komið á Bursta bellsbrúnir. Vopnafjarðarhérað er breitt og búsældarlegt, fjalla hringurinn tignarlegur allt í kring og lokar raunar hringnum frá hafi til hafs og torveldar mjög landleiðir til héraðsins tímum saman. Vopnafjörður er því, eins og raunar margar byggðir á íslandi, heimur út af fyrir sig, með þrjá grösuga og byggða dali, sem hálsar aðskilja. Þar eru greiðar götur á milli og þéttbýlismyndun hefur orðið á Kolbeinstanga, þar sem Vopna- fjarðarkauptún stendur við nátt úrulega höfn, byggt í klettaborg um, en framundan eru hólmar og sker, sem brjóta odd af of- læti úthafsöldunnar. Frá Burstafellsbrúnum og nið ur í sveitina er löng brekka og nokkuð brött. Framundan liðast Hofsá milli bakka sinna, full af laxi, að áliti veiðimanna á aust- urleið. Til hægri handar er Burstafell, Burstafellsbærinn forni (sumt af þeim bæ er allt að 200 ára), myndarlegri hlið á vegum en ferðamaður á að venjast, nýtt íbúðarhús í smíð- um og e. t. v. stendur óðals- bóndinn Metúsalem í hlaði, þétt vaxinn, vel klæddur og virðu- legur eldri maður, með hóp af bamabörnum í kring um sig. Handan Hofsár, litlu utar, eru Þorbrandsstaðir, skýldir háum melhólum. En nú er þar ekkert fólk og grösugt tún óslegið. í túnjaðri Þorbrandsstaða er nýr veiðimannabústaður. Á eyrum við ána er flokkur brúarsmiða að hefja smíði nýrrar brúar, undir stjóm Þorvaldar Guðjóns sonar frá Akureyri. Á vinstri hönd beygir þjóð- vegurinn áleiðis til Vopnafjarð- arkauptúns. Hlið eru á þeirri leið og hliðstólparnir á hæð við símastaura og vírstrengur á milli þeirra fest. Það er betra fyrir tunnubílana, að þar sé „hátt til lofts.“ Á hægri hönd og fast við veg- inn er allstór byggakur. Bygg- ið var skriðið og lofar þroskaðri uppskeru eftir 6—7 vikur, eða snemma í september, ef tíð verð ur sæmileg. Brátt er komið út að sjó. í vík einni liggja hvít bein hinna miklu hvala, sem Vopnfirðingar ráku á land fyrir nokkrum ár- um. Kauptúnið, sem að nokkru er byggf í fallegum klettaborgum, en stundum hulið reyk og fúlli gufu síldarverksmiðjunnar, og svo dimmt getur þar orðið, af þessum sökum, að umferð tefj- ist. Hitt er þó verra, að utan á íbúðarhúsin setzt fitulag, mikill óþverri og ekki laust við að þess gæti líka innanhúss. En Vopnfirðingar fá meira en reyk- inn af réttunum siðan sildar- verksmiðjan var byggð. Þeir hafa notið mikils hagnaðar af verksmiðjunni, sem veitir fjölda manns atvinnu hin síðari ár. En óneitanlega hefði verið skemmti legra að byggja háan reykháf á síldarverksmiðjuna og raunar furðulegt ef Vopnfirðingar una lengi þeirri vöntun. Nokkur hlaðin síldarskip bíða löndunar í höfninni. Það er líka verið að salta síld, en söltunin gengur illa því síldin er mjög misjöfn að stærð! Allir, sem vettlingi valda, eru í vinnu. Verzlunin er lífleg, því sjó- menn og húsmæður staðarins þurfa margs við, og þar eru sveitamenn, sem kaupa meira en til næstu máltíðar. Aðalverzl unin er hjá Kaupfélagi Vopnfirð inga. Kaupfélagsstjóri er Hall- dór Halldórsson.. f Vopnafjarðarhéraði búa á áttunda hundrað manns. Þar af um 440 í kauptúninu og þar er nú verið að vinna við 12 millj. króna hafnargerð. Búizt er við, að fyrsti áfanginn kosti 6—7 millj. og á að ljúka honum í sUmar. Hér er um að ræða haf- skipabryggju með 50 m löngum bryggjuhaus. En vonandi fæst 28 m viðlegupláss fyrir næsta vetur. Hér er verið að vinna fyr- ir framtíðina og áætlanir byggð- ar á reynslu undanfarinna ára af hraðvaxandi athafnalífi, eink- um þó í sambandi við síldariðn- aðinn. Hin bræluspúandi síldarverk- smiðja hefur nú tekið á móti VOPNAFJÖRÐUR bæjum, sem vegna veikinda eða af öðrum ástæðum þurfa nauð- synlega á tímabundinni aðstoð að halda. Mun þetta e. t. v. fyrsta búnaðarfélag landsins, sem á þann veg skipar málum. Blaðið leitaði umsagnar Þor- steins Þorgeirssonar bónda á Ytri-Nýpum um þetta atriði o. fl. Hann taldi að með félagsleg- um aðgerðum myndi vera hægt að leysa mörg erfið úrlausnar- efni bændastéttarinnar. Mjólkur samlag tók nýlega til starfa á þær veiðar mega heita lagðar níður hér á Jandi. í vor stund- uðu 5 trillur þann gráa. Einu sinni fékk einn bátanna 6 fuJl- orðna hákarla á 10 króka línu og var það góður róður. í gamla daga var „kjaftstóri gráni“ stunginn og ristur með sveðjum miklum er söfn geyma nú. Vopn firðingar skjóta hákarlinn með haglabyssu um leið og hausinn kemur upp úr sjó. Og nú er það ekki fyrst og fremst lifrin, sem er eftirsótt, heldur hákai’linn sjálfur, sem er kæstur og hengd ur upp og síðan seldur háu verði um land allt. Þrjár aðalár renna til sjávar í Vopnafirði: Hofsá, Vestur- dalsá og Selá. Lax er í þeim öllum og leggja því margir lax- veiðimenn leið sína austur og eignast þeir sína kjörstaði til veiðanna. Og skammt frá ósum Selár er ein af fáum laxakistum eða laxanótum í sjó. En þótt mikið vatn renni er Vopnafjarðarkauptún svo sett, að þar hefur orðið vatnslaust. Tvisvar hefur verið borað eftir neyzluvatni en ekki hefur það borið þann árangur sem skildi. Á hæðinni fyrir ofan kauptúnið, Búðaröxl, eru firnastórir vatns- geymar. Þangað er vatninu dælt úr Ljótsstaðalandi og það- an rennur það niður í kauptún- ið. í Vopnafirði eru yfir 50 bænd ur og formaður búnaðarfélags- ins er Sigurjón Friðriksson, Ytri-Hlíð. Félag þetta hefur tek- ið upp þá nýbreytni, að fastráða ungan mann, Aðalgeir frá Refs- stað, til að vinna bústörf á þeim Vopnafjarðarkauptún. — Eyjar og hólmar skýla liöíninni. (Ljósmynd: E. D.) allt að 150 þúsund málum síldar (17. júlí). Fjórar stöðvar taka á móti söltunarsíldinni og hafa þær á að skipa allt að 130 síldar söltunarkonum, þar af er önnur hvor aðkomin. Margt er líka um aðkomukarlmenn, einkum í síldarbræðslunni. Nú hefur bræðsla verið stöðug síðan hún hófst á þessu sumri og verk- smiðjumenn hafa um 750 krón- ur á sólarhring eða 500 krónur fyrir vaktina. Má því með sanni segja, bæði með tilliti til tekiu- vona síldarstúlknanna, kaups verksmiðjumanna og svo allrar verðmætasköpunar í góðu síld- arári, að peningailmur liggi í loftinu, þótt grútarbræla sé það í vitum aðkomumanna. Og svo er nýi læknirinn, Frið- þjófur Björnsson, loksins kom- inn í Vopnafjörð. En undan- farna mánuði hefur héraðslækn- Sundlaugin í Selárdal. irinn á Þórshöfn, Friðrik Sveins son, vitjað Vopnafjarðar einu sinni í viku hverri og innt af hendi hina nauðsynlegustu þjón ustu. Haförninn, 40 tonna þilfars- bátur, stundar þorskveiði og afl ar töluvert upp á síðkastið. Nokkrir menn stunda þorskveið ar á trillum. Á Vopnafirði eru hákarlaveið ar stundaðar með allgóðum ár- angri síðustu árin. Hafa Vopn- firðingar sérstöðu í því efni, því Á tröppunum á Ytri-Nýpum um leið og lagt er af stað heimleiðis. Veiðimenn koma og fara, en fólkið á þessum vopnfirzka bæ er ætíð viðbúið að taka á móti næstu gestum. — (Ljósmynd: E. D.) an í konu og börn, við það tæki- færi. Allt er þetta náttúrulega sorglegt, en því einu um að kenna, að laxinn gekk ekki í þennan eða hinn strauminn. Því koma hin velheppnuðu „köst“ að engu haldi, flugurnar allar jafn gagnslausar, maðkur- inn iðandi öngum án þess að glepja konunglega vatnabúa, málmbeitur eins og hvert ann- að jámarusl, nýja 2 þús. króna hjólið álíka gagnsmikið og gam all spólurokkur og stöngin, sem kostaði meira en eiginkonu er hollt að vita, svignaði ekki við spennandi átök við laxinn. Við vorum staddir við Selá í Vopnafirði, dýrlega sólskins- daga, og rökræddum hverju lax leysið sætti. Sjávarföllin, birt- an, vatnsmagnið í ánni og hita- stigið, breyting við árósinn, of- veiði, hrikaleg jakahlaup í ánni, sem drepið hefði þar hvern ugga, átan í sjónum, ferðir lax- ins um úthöfin, selir við ósinn o. s. frv., o. s. frv. Allt þetta og miklu fleira bar á góma, ásamt goðsögnum vitr- inga um stórstreymi og fisk- göngur. En yfirleitt er engu að treysta í sambandi við lax, ekki einu sinni því, sem spakir menn kunna um hann að segja. En það var þetta með selinn í árósnum. Einhver veiðimaður hafði einu sinni elt sel niður alla á á sokkaleistunum, skotið á hann á löngu færi fast út við ós og sent hann með riffilkúlu beint inn í eilífðina. Sá þóttist góður af, enda óð þá laxinn snarvitlaus fram alla á, hafði víst beðið eftir þessu dögum og vikum saman. Þá kættist marg- ur maðurinn. Sá okkar, sem léttastur var á inn bóndi þar hefði meiri netto- tekjur af búum sínum en verka- menn hefðu fyrir vinnu sína 3—4 mánuði við síldrabræðslu eða álíka launuð störf í Vopna- fjarðarkauptúni, en flestir mun minni. Bændur á einstökum hlunnindajörðum e. t. v. frá- dregnir. En þegar svo væri komið tekjum bænda, væri tæp (Ljósmynd: E. D.) ast hægt að búast við grósku í landbúnaðinum, eða að ungt fólk sæktist eftir því að leggja landbúnað fyrir sig, a. m. k. ekki af peningalegum ástæðum. Hitt væri svo annað mál og nokkur spurning hvort önnur atvinnugrein væri í raun og veru betur við hæfi vel gerðra og dugmikilla manna af okkai' kynstofni en einmitt landbúnað- urinn. Jósep, bróðir Þorsteins bónda, er að byggja nýbýli á Fremri-Nýpum, hið eina um Það er von að maður nemi staðar, þegar þessi aldraði Vopnfirðing- ur ckur slíku farartæki framhjá — merktu A 319 svo ckki verður um villzt —. (Ljósmynd: E. D.) fæti, fór nú ‘könnunarferð út að ósi. Og viti menn. Tvo sá hann selina. Ekki var að furða þótt báglega gengi að veiða lax, þeg- ar slíkar skepnur voru þar til hindrunar göngufiskum. Riffil- inn vantaði að vísu, en minn maður greikkaði heldur betur sporið, þegar hann hafði komið auga á hina svamlandi seli með hundshausana; sjóhunda hafa sumir kallað þá. Og þá skyldi hann minni maður heita ef hann gæti ekki komið kvikind- unum í skilning um, að þau væru ekki aufúsugestir á þess- um stað. Nógir voru steinarnir á árbakkanum, hæfilegir til þess, ef vel væri á eftir fylgt, að láia þá dansa á hausum sjó- hundanna og vita hver legði á flótta og kæmi aldrei aftur. En sem hann kom í sæmilegt kast- færi, rann upp fyrir honum sá furðulegi sannleikur, að hér væri ekki um seli að ræða, held- ur smalahunda frá næstu bæj- um. Þeir eltu æðarkollur, sem þar syntu með unga sína. Hví- líkir heimilishundar! Stundum er laxinn tregur, eins og hér var minnst á. Þá þarf veiðimaðurinn að leita un- aðar í öðrum greinum og hafa augu og eyru opin. En svo koma hinar miklu náðarstundir, þeg- ar veiðimanninum gengur allt í haginn, stórir laxar gína við agni og byltast í hyl eða streng með öngul í munni og veiðimað- urinn er altekinn veiðigleði. Það eru stundir, sem ekki gleymast. En frásagnir af þeim hafa tak- markað gildi utan veiðimanna og verður sleppt að sinni. Frá ósum Selár og upp að ólaxgengum fossi, eru um 8 km. Á þessu svæði veiddust í fyrra háJft fjórða hundrað laxar eða um það bil. En upptök sín á áin í Þjóðfelli og Dimmafjallgarði og er vatnasvæðið töluvert stórt. Selárdalur er lítt byggð- ur, en þó mjög grösugur og vina legur. Þar hafa á síðustu 15 ár- um margar jarðir farið í eyði. Sunnan ár eru þessar eyðijarð- ir: Breiðumýri, Lýtingsstaðir og Fagurhóll. Norðan ár eru eyði- jarðirnar þessar: Áslaugsstaðir, Leifsstaðir og Þorvaldsstaðir. Peningamenn ætla nú að eign- ast þessar jarðir óg hafa af þeim laxanytjar þegar Selár- foss verður sptrengdur eða laxa- stigi byggður. Hróaldsstaðir er fremsti byggði bærinn að norðan í Sel- árdal, og er þangað stutt leið frá þjóðvegi þeim, sem nýlega er endurbyggður og liggur yfir Sandvíkurheiði, og raunar í fleiri áttir. Að sunnan er enginn bær í dalnum sjálfum. En Fremri-Nýpur er næsti bær og á land að Selá. Svo sem hálftíma gang frá þjóðveginum fram með ánni að sunnan eru heitar upp- sprettur og sundlaug. Þar var margt unglinga við sundnám er við félagar vorum þar á ferð. Sundlaug þessi stendur á landa merkjum Ytri-Nýpa og Fremri- Nýpa — merkjalínan liggur um (Framhald á blaðsíðu 7). GORMAVÉL NÝLEGA hefi ég fengið upplýs ingar um, að í smærri kaupstöð um landsins, hafi bæjarfélögin keypt gormavél knúna mótor- afli, til að bora upp stoppuð frá- rennslisi'æsi íbúðarhúsa og verk smiðja, og stífluð niðurföll í götunum. Munu smávélar þess- ar ekki kosta nema um tuttugu þúsund krónur, en eru, auk þess að vera mannsæmandi vinnu- tæki, fljótvirkar og velvirkar. Spara þannig tíma og vinnu- kraft. Og það sem mest er um vert: Þrek og þol verkamanna. Svona nokkuð lætur verkfæra stjórn Akureyrarkaupstaðar sér ekki detta í hug að til sé. Hvað þá hugsa þá hugsun til enda, ef nokkur nokkurntíma yrði, og panta verkfærið. Væri skárra en ekki þótt pöntunin „væri lengi á leiðinni," eða „lægi stundarkorn óútleyst á hafnar- bakkanum i Reykj avík.“ Ein- hverntíma kæmi að útlausnar- og dómsdeginum. Einu sinni voru þrjú tröll í helli. Eitt sagði: „Mér heyrðist kýr baula!“ Svo liðu hundrað ár. Þá mælti ann- að tröllið: „Það hefði eins getað verið naut!“ Enn liðu hundrað ár. Þá sagði þriðja tröllið: „Ef þið haldið þessu kjaftæði áfram, helzt ég ekki við hér lengur!“ Nú er spurning hvort þessu verður svarað af verkfærastjórn Akureyrarkaupstaðar. Reynslan með Dúa Björnsson spáir ekki góðu. Ekki þar fyrir, að ég er á móti Dúa í hans máli. Hann ræð ur hvort hann verður á móti mér í mínu máli. Ég vil láta bæjarverkfræðing athugasemda laust fá lóð á Barðstúni. En ég vil alveg vitlaus líka fá gorma- vél í ræsin. Ef þetta gengur ekki eins og í sögu, þá gengur það bara eins og í þjóðarhistoríu ís- lendinga. Það er sneypa að láta sjást vinnu með kjánalegum verkfærum, og að unna mönn- um ekki hússtæða án auglýs- inga. Sneypulegast er þó fyrir nútímamann að láta lesa þetta um sig í blaði, sem ég hefi nú sagt, til fróðleiks fyrir sagn- fræðinga framtíðarinnar. S. D. ÁTTUNDI VIÐAUKI VIÐ BARÐTÚNSMÁLIÐ FIMMTUDAGSINS 30. júlí 1964 kemur til með að verða minnst í sögu Akureyrarkaupstaðar, en þann dag var tekin fyrsta skóflu stungan fyrir þeim veglega minnisvarða, sem núverandi bæjarstjórn hefir samþykkt að reisa ríkjandi siðleysi og póli- tískum hrossakaupum, sem virð ast ráða miklu um gang opin- berra mála hér í bæ. Ekki gátu þessir ágætu menn fundið heppilegri stað, en ein- mitt Barðstúnið — þarna blasir listaverkið við manni, svo að segja hvaðan sem er úr bænum og sannar manni það, að allt virðist vera hægt, ef einbeittur vilji er að verki. Rétt væri að benda bæjarstjórn á, að fylgjast vel með því, að allar mælingar og staðsetningar séu vandlega frágengnar — það er svo ansi leiðinlegt að þurfa alltaf að vera að rifa og færa til. Þá er einn- ig athugandi hvort ekki er hægt að drífa verkið dálitið myndar- lega af stað — fyrst farið er í það á annað borð — það hlítur að vera nóg af hálfköruðum verkum hér og þar um bæinn, sem hægt er að kippa mannskap úr. Það er allt í lagi með að láta annað sitja á hakanum, eins og gömul loforð um fram- kvæmdir og þótt verk séu búin að vera nokkur ár í áætlunum — það raunar liklega ekki um eitt til tvö ár í viðbót — þetta hljóta nú bæjarbúar að skilja og sætta sig við, þegar svona mik- ið er í húfi. Eitt er athyglisvert við þessa skóflustunguathöfn, og það er hversu hljóðlega hún fór fram. Ég hefi ekki getað haft upp á neinum, sem viðstaddur var, og grunur minn er sá, að þar hafi enginn glasaglaumur verið og jafnvel að blaðamenn hafi ekki verið til staðar, sem þó er algengt. Ég átti leið þarna um skömmu eftir að athöfnin fór fram og held ég, að mér hafi tekizt að ná sæmilegri mynd af vegsummerkjum. Nú — svo er hér gáta dags- ins, sem öllum — jafnt bæjar- stjórn sem öðrum — er ætlað að glíma við: Hver er munur á strætisvagni og hópferðabifreið? Með beztu kveðju. Dúi Björnsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.