Dagur - 01.08.1964, Qupperneq 7
7
bændanua
fíin milda
í HINNI frægu veizluræðu sinni
á stéttarsambandsfundi bænda,
sagðj landbúnaðarráðherra m.
a. að meiri hluti bænda hefði
lífsafkomu „vel sambærilega við
það, sem aðrar þjóðfélagsstéttir
hafa,“ en að sumir bændur
hefðu dregizt aftur úr „vegna
óheppni.“ Þegar ræðunnar var
getið hér í blaðinu komst sú
villa inn í frásögnina, að fyrir
óheppni stóð óhyggni. Þessi
prentvillutilvitnun kom þarna
eins og skollinn úr sauðaleggn-
um og var villan auðsæ.
Ráðherrar eru veraldarvánari
en svo, að þeir brígsla drjúgum
hluta heillar stéttar um óhyggni
berum orðum, hvað sem þeir
kunna að spjalla saman í stjórn-
arráðinu — og þó að bændur
• hafi raunverulega verið ásakað-
ir fyrir það af landbúnaðarráð-
herranum á öðrum stað í marg-
nefndri ræðu, að þá skorti fyrir-
hyggju til að hafa verðlagsgögn
sín í lagi. En hvað um það, ráð-
herrann talaði þarna um
óheppni en ekki óhyggni og
komst þar raunar réttilega að
orði. Bændur hafa sem sé verið
verulega óheppnir nú síðustu
árin, ekki samt með tíðarfarið,
því það hefur ekki verið verra
en gengur og gerist á þessurn
árum, — heldur með stjórnar-
farið í landinu. Það hefur verið
þeim verulega óhagstætt á þess-
um tíma, og bændur, af völdum
þess, orðið fyrir hverju óhapp-
inu öðru verra.
Bændur voru óheppnir þegar
skjólstæðingar íngólfs Jónsson-
ar í stjórn Alþýðufloksins settu
bráðabirgðalögin haustið 1959
og dregið var úr möguleikum
framleiðsluráð„s._..til að skapa
eðlilegan rekstursgrundvöll fyr-
ir landbúnaðinn.
Þeir voru óheppnir, sem stóðu
í framkvæmdum og vélakaup-
um í sv^fum, að fá yfir sig
viðreisnardýrtíðina.
Bændur voru óheppnir þegar
núvei-andi stjórnarflokkar, með
aðstoS Einars Olgeirssonar,
breyttu kjördæmaskipuninni,
og það er óheppni fyrir þá, að
stjórn sú, sem Ingólfur Jónsson
situr í, skuli vera búin að vera
við völd hátt á fimmta ár.
Þeir bændur eru óheppnir,
sem biðu eftir því, að Ingólfur
kæmist í stjórn til að afnema
„Framsóknarskattana" á drátt-
arvélum, því hann hækkaði þær
í verði um meira en þriðjung.
Já, bændur voru óheppnir
þegar stjórnin hækkaði vextina
í Búnaðarbankanum og annars
staðar og þegar hún lækkaði af-
urðalánin og hætti að láta
(Framhald af blaðsíðu 8).
og fjölbreytt, þótt hrjóstrugt sé
það víða og fólkið er framúr-
skarandi. Allt hið ytra, svo sem
híbýli manna og atvinnutækni
hefur fleygt svo fram, að ekki
er hægt að bera það saman við
gömlu frásagnirnar. Allt er
þetta gleðilegt. Það er einkenni-
leg tilfinning að ganga yfir rúst-
ir þær af húsum, þar sem afi
minn bjó vestui' á Snæfellsnesi.
En þetta var eitt af því sem ég
þurfti að gera.
greiða jarðræktarframlagið sam
kvæmt hækkandi vísitölu.
Það var líka óheppni fyrir
bændur og fleiri, að samvinnu-
félög skuli vera neydd til að
skipta við heildsala af því að
þau fá ekki eðlilegt rekstrarfé í
gegn um bankakerfið.
Það er meira en lítil óheppni,
að sitja uppi með landbúnaðar-
ráðherra, sem tefur fyrir tíma-
bærum breytingum á jarðrækt-
arlögunum og annarri fram-
kvæmdalöggjöf, og þykist vita
betur en bændur sjálfir, hvað
þeim sé fyrir beztu í sambandi
við afurðasölulöggjöfina.
Núverandi landbúnaðarráð-
herra, sem er fyrsti maður í
þeirri stöðu, sem stendur í mála-
ferlum við bændastéttina, var
fyrrum brattur í máli. En gagn-
vart Faxaflóaráðherrunum sex
dignaði atgeirinn úr Rangár-
þingi. Það er ekki furða, þó að
ráðherrann hafi orð á því, að
bændur hafi verið óheppnir.
Ég heyri sagt að þú hafir
leigt þér flugvélar til að ferðast
hér á landi og flogið sjálfur?
Já, bæði í Reykjavík og á
Akureyri. Það er fljótlegt að
ferðast á þann hátt og hægt að
sjá mikið á skömmum tíma. Og
maður er öruggari í flugvél en
í bíl. Ég er búinn að fljúga sem
svarar vegalengdinni að hafa
farið 25 sinnum kring um jörð-
ina. Eiginlega hef ég aldrei ver-
ið hætt kominn í lofti, en ég get
ekki sagt hið sama á þjóðveg-
unum.
Þú munnt hafa kynnst lækn-
um hér á landi, og heilbrigðis-
málum?
Eftir föngum. Og alls staðar
eru sömu viðfangsefnin. Þið eig
ið góð sjúkrahús og vel mennt-
aða lækna, líklega mjög færa
lækna yfirleitt. Hins vegar vant
ar nokkuð á, finnst mér, að
rannsóknarstofurnar séu búnar
þeim tækjum, sem þurfa til að
unnt sé að ákveða mjög fljótt,
hvað gera ber hinum sjúku til
hjálpar. En breytingar á sviði
heilbrigðismála hafa hér orðið
furðulega miklar á skömmum
tíma. Já, læknarnir ykkar eru
eins góðir og okkar, ef ekki
betri. Ég var á læknaþingi á
ísafirði nýlega. Þar kannaðist
maður við sig, því læknisfræðin
er hin sama, hvar sem maður
kemur og sjúkdómarnir að
miklu leyti hinir sömu. Það eru
sömu læknabækurnar í hillum
lækna hér og hjá okkur fyrir
vestan.
Og nú liggur leiðin til Norð-
urlandanna og Þýzkalands, en í
haust fer ég til Alsír og starfa á
sjúkrahúsi um nokkurt skeið.
Blaðið þakkar svör læknisins
og óskar honum góðrar ferð-
ar. n
AUGLÝSIÐ í DEGI
Auglýsiiigasímiiin er
1167
ÚTSALA - ÚTSALA
SUMARÚTSALAN STENDUR SEM HÆST
KÁPUR úr ull með og án skinnkraga
SUMARKÁPUR, stærðir írá 34-52
POPLÍNIvÁPUR, verð frá kr. 500.00
HATTAR í úrvali, verð frá kr. 100.00
Einnig alls konar KJÓLAR o. fl.
Mikill afsláttur.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Mínar innilegnstu þakkir sendi ég vinum og vanda-
mönnum, sem glöddu mig d áttrceðisafmœli mínu,
þann 18. júli s.l. — Guð blessi ykkur öll.
JAKOB JAKOBSSON, Árbæ.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu
okkur vinarhug við andlát og jarðarför
JÓNS AÐALSTEINS SIGFÚSSONAR
Halldórsstöðum, Reykjadal.
Sérstakar þakkir flytjum við Karlakór Reykdæla og
Hestamannafélaginu Þjálfa fyrir þá virðingu er þau
félög sýndu hinum látna.
Vandamenn.
- Leigði flugvél til að sjá landið
SJÓNARHÆÐ. Unz annað verð
ur tilkynnt, verða almennar
sámkomur að Sjónarhæð á
sunnudagskvöldum kl. 8,30,
en ekki síðdegis. Allir vel-
komnir.
HEILSUVERNDARSTÖÐ AK-
UREYRAR: Eftirlit með þung-
uðum konum fimmtudaga kl.
4—5 e. h. — Ungbamaeftirlit
miðvikudaga og annan hvern
mánudag kl. 1—2 e. h. Þarf
að pantast í síma 1977 og
1773. — Hvorttveggja þetta
fer fram í Hafnarstræti 81,
neðsta hæð. — Berklavamir:
Þriðjudaga og föstudaga kl.
2—3,30 e. h. og bólusetningar
fyrsta mánudag hvers mánað-
ar kl. 1—2 e. h. — Hvort-
tveggja í húsnæði Berklavarn
arstöðvarinnar við Spítala-
stíg.
MATTIIÍASARSAFNIÐ opið
kl. 2—4 e. h. alla daga, nema
laugardaga.
MINJASAFNIÐ! Opið frá 1,30
til 4 e. h., alla daga, nema
mánudaga. Á öðrum tímum
fyrir ferðafólk eftir samkomu
lagi við safnvörð. Símar 1162
og 1272.
NONNAHÚSIÐ opið kl. 2—4
síðdegis, daglega.
DÝRALÆKN AVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Guðmund
Knutsen, sími 1724.
JVtnísLtóþasaftttð e r o p i ð
alla virka daga, nema laugar-
daga, kl. 4—7 e. h.
SUNDLAUGIN að Laugalandi,
Þelamörk, er opin föstudaga
kl. 20—23, laugardaga kl. 14—
23 og sunnudaga kl. 14—23.
- Jarðskjálftamælar
(Framhald af blaðsíðu 8).
mælum benda til, að þessi skoð-
un reynist rétt.
Stöðinni fylgir einnig full-
kominn útbúnaður til tímamæl-
inga. Er hann að mestu sjálf-
virkur, og þarf stöðin því litla
gæzlu.
Starfsmenn Landmælingastofn
unar Bandaríkjanna, þeir Mr.
Leonard Kerry og Mr. David
Vanevenhoven sáu um uppsetn-
ingu jarðskjálftamælanna ásamt
Leifi Steinarssyni, áhaldasmið.
Veðurstofan sér um rekstur
stöðvarinnar og úrvinnslu mæl-
inga, en dagleg gæzla stöðvar-
innar verður undir eftirliti
Gísla Ólafssonar, yfirlögreglu-
þjóns á Akureyri. Frumrit jarð-
skjálftamælinganna verða send
Landmælingastofnun Bandaríkj
anna, sem ljósmyndar þau, og
sendir afrit af þeim til vísinda-
stofnana er þess óska. Frumrit-
in verða síðan endursend til
Veðurstofunnar.
Gamli jarðskjálftamælirinn,
sem verið hefir í Menntaskólan-
um á Akureyri, undir umsjón
Árna Friðgeirssonar húsvarðar,
verður væntanlega fluttur að
Vík í Mýrdal, í stað mælisins
sem þar er nú, en þarfnast gagn
gerðrar viðgerðar.
(Fréttatilkynning frá Veður-
stofunni).
HESTAUNNENDUR eru beðnir
að muna eftir kappreiðunum
á Melgerðismelum sunnudag-
inn 2. ágúst kl. 2 e. h. —
Skemmtun í Sólgarði sama
dag kl. 9 e. h. Sýndar verða
litskuggamyndir, m. a. frá
Húnaveri í sumar. Dansað á
eftir.
KYLFINGAR! Flaggkeppninni
er frestað til sunnudags 2. ág-
úst kl. 8,30 árdegis.
HAPPDRÆTTI H. í.
(AKUREYR ARUMBOÐ)
í SJÖUNDA flokki Happdrættis
Háskólans komu þessir vinning-
ar upp í Akureyrarumboði:
Kr. 10.000,00 komu á miða nr.:
14935, 54079 og 56209.
Kr. 5.000,00 komu á miða nr.
1536, 7400, 15556, 16950, 23011,
37035, 49066 og 53838.
Kr. 1.000,00 komu á miða nr.
209, 211, 1533, 2143, 3152,
3827, 4014, 5218, 5936, 5945
6008, 6551, 7028, 7114, 7142,
7259, 7379, 7391, 8519,
8827, 9065, 9186, 10631, 11180,
11725, 14031,14791, 14893, 14932,
14950, 15013, 15985, 16934,17466,
17855, 17938, 19066, 20713, 21734,
21740, 22080, 22100, 23589, 23857,
23861, 24010, 24767, 24772, 25929,
25961, 27202, 28680, 29029, 30551,
31146, 31162, 31192, 31553, 31599,
33154, 33178, 33438, 33507, 33921,
35051, 37016, 42018, 42604, 43904,
45301, 46456, 47472, 48274, 48862,
49246, 49279, 50473, 51713, 51720,
51721, 52451, 52461, 52586, 52596,
53215, 53938, 57911, 58025.
(Birt án ábyrgðar).
- VOPNAFJÖRÐUR
(Framhald af blaðsíðu 5).
miðju mannvirkjanna. Upp af
sundlauginni eru grónar brekk-
ur hátt upp í hlíðar Selfjallsins.
Selár-veiðimenn halda jafnan
til á Ytri-Nýpum, hafa þar
gnægð matar, hlýtt viðmót og
fyrirgreiðslu alla í bezta lagi.
Þar búa hjónin Þorsteinn Þor-
geirsson og Helga Helgadóttir
frá Grænavatni, og þar er lítill
Helgi að leik. Tíu manns eru í
heimili, m. a. móðir bónda og
systur. Af bæjarhlaði blasir
Nýpslón við, einnig Kolbeins-
tangi, þar sem kauptúnið er
byggt á, þó þeim megin, sem frá
veit og sést ekki að heiman.
Hvítan reykinn frá síldarverk-
smiðjunni ber þó hátt yfir Tang
ann, þegar kyrrt er í veðri.
Báran hjalar við sandinn,
sólin glitrar í morgundögginni,
fuglar syngja og hugað var að
hestum til að smala til rúnings.
Önn dagsins er mikil, grózka
jarðar með mesta móti. Sumt
af túninu er slegið og hirt. Kálf-
ar sleikja sólskinið úti á túni.
Og veiðimenn koma og fara. □
FERÐIR
VIKULEGA
TIL
BRETLANDS
'/t/y/ri 'far/ ÁZe///ds
----1 ICEI-ÆJVD/Ujn