Dagur - 12.08.1964, Page 7
7
Eiður Sigtryggsson
MINNING
Hinn 23. maí s.l. barzt andláts-
fregn Eiðs Sigtryggssonar kenn-
ara.
Hann var fæddur að Stein-
kirkju 2. nóvember 1876, og því
87 ára að aldri er hann lézt. —
Sigtryggur faðir hans bjó lengi
á Steinkirkju, góður búhöldur,
fríður sýnum og hið mesta prúð-
menni. Þegar hann hætti búskap
fyrir aldurs sakar, skifti hann
jörðinni milli þriggja sona sinna.
Sátu þeir allir ættaróðalið til
dauðadags. Systir þeirra, Ólöf,
giftist Sigtryggi Guðlaugssyni
frá Þremi í Garðsárdal, er síðar
var prestur á Þóroddsstöðum í
Kinn og Núpi í Dýrafirði, þjóð-
kunnur maður.
Eiður mun að mestu leyti í
æsku hafa notið fræðslu mágs
síns, og orðið fyrir miklum og
góðum áhrifum frá honum. Þeir,
sem þekktu kennarann og nem-
anda hans, munu ekki hafa ef-
ast um, að sú alúð og vand-
virkni var lögð við námið, að
ekki varð betur gert.
Ungur að aldri byrjaði Eiður
barnakennslu í Fnjóskadal og
YÍðar, og hélt því áfram, fram á
efri ár. Hann var mjög ástund-
unarsamur kennari, lipur og þol
inmóður. Ekki leiðst nemendum
hans annað, en að lesa náms-
bækur þær, sem þá voru notað-
ar, með kostgæfni, og að vanda
sig vel, þegai-' skrifað var eftir
forskrift. JVþm hin fagra og
skýra rithönd kennarans hafa
hvatt nemendur til að ná sem
beztum árangri í þessari náms-
grein.
Allir þeir, sem nutu kennslu
Eiðs, voru að loknu námi þaul-
æfðir í þeim námsgreinum, sem
kenndar voru. Þótt hann færi
ekki yfir eins mikið námsefni,
eins og þeir kennarar, sem út-
skrifazt höfðu úr kennaraskól-
anum, lagði hann sterkan grund-
völl að framhaldsnámi, að því
leyti, að það sem við nemendur
hans höfðum lært hjá honum,
gleymdist ekki, enda þótt all-
mörg ár liðu þangað til farið var
í annan skóla. Eigum við, sem
nutum fræðslu hans og alúðar
við kennsluna, honum mikið að
þakka.
Árið 1900 kvæntist Eiður Jak-
obínu Guðnadóttur, bónda á
Skörðum í Reykjahverfi, gáf-
aðri og glæsilegri konu. Varð
þeim ekki barna auðið, en tóku
til sín frændstúlku Jakobínu,
Fjólu Jónsdóttur, 12 ára að
aldri, og var hún hjá þeim til
fullorðinsaldurs. Reyndust þau
henní sem beztu foreldrar.
Ekki verður Eiðs minnzt, með
réttu, svo að ekki sé getið um
sterkan þátt í fari hans, en það
var hin einstaka vandvirkni sem
einkenndi hann mjög. Kom það
Ijóst fram í kennslustarfi hans,
og einnig leiddi það til þess, að
hann var fenginn til að inna af
hendi ýms verk, þar sem að-
gæzlu og nákvæmni þurfti við,
s. s. að búa undir prentun,
markaskrá, Suður-Þingeyjar-
sýslu og Kelduneshrepps, 6 sinn
um. ;
Gestrisni þeirra hjóna, Eiðs
og Jakobínu, var oft viðbrugð-
ið. Rausnarlegar góðgjörðir,
stóðu gestum þeirra ætíð til
boða, og auk. þess fróðlegar og
skemmtilegar viðræður. Aldrei
heyrði ég þau hjón, leggja öðr-
um lastyrði. Yrði Eiður var mis-
klíðar, reyndi hann að koma á
sættum og góðvild manna á
milj,i. Söngmaður var hann góð-
ur - og hlynntur nytsömum fé-
lagsskap., Börn og unglingar
treystu honum vel og það var
ánægja og öryggi, að vera sam-
vistum með þessum hlýja og
prúða manni.
Konu sína missti Eiður 1. maf
1944, og var eftir það hjá Halli
bróður sínum og síðar Ingólfi
bróðursyni sfnum, sem veittu
honum góða aðhlynningu síð-
ustu æviárin.
Þegar ég sá Eið síðast, á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, voru kraftar hans þrotnir
og auðsætt að hverju fór. Hann
hafði skilað löngu og farsælu
dagsverki. Með honum er góður
drengur fallinn í valinn.
Marteinn Sigurðsson.
Hin þingræðislega leið
(Framhald af bls. 4.)
armanna hina þingræðislegu
og siðferðislega réttu leið og
baðst lausnar fyrir sig og þá
stjórn, sem ekki gat lengur
komið fram þeirri vfirlýstu
stefnu sinni, að hafa samráð
við stéttarsamtökin í land-
inu um efnahagsmál. Hann
sá hættuna, sem í því fólst
fyrir framtíðina, að láta
vinstri stjórn og stéttasam-
ráðshugmyndina lifa sjálfa
sig, með því að standa ekki
við stefnu sína. Hann af-
henti Alþingi umboð sitt og
gaf því þannig kost á að
mynda aðra ríkisstjórn og
móta nýja stjórnarstefnu.
A jólaföstu 1958 komst ný
stjóm á laggirnar og með
henni það samstarf milli
Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins, sem enn
stendur. En ferill þessarar
nýju stjórnarsamvinnu hófst
með því að lækka almenn
vinnulaun með lagaákvæð-
um, sem frægt er. Síðan var
kjördæmabyltingin undirbú-
in og tóku kommúnistar þátt
í þeim undirbúningi og fram
kvæmd, en léku af sér í þeim
ljóta leik, ekki síður en að
standa hikandi með vinstri
stjórninni áður. Alþýðu-
bandalagið hefur síðan sopið
seyðið af þessum glöpum sín-
um og er sjálfu sér sundur-
þykkt, eins og allir vita. □
Við sjáum ekki síld
Ólafsfirði 11. ágúst. Við sjáum
ekki síld hér og höfum ekki séð
á aðra viku. Tvö síldarsöltunar-
plön eru búin að salta ofurlít-
ið; Jökull h.f. 1174 tunnur á
móti 3693 á sama tíma í fyrra,
og Stígandi, sem saltað hefur
MALBIKUN í BÆNUM
AÐ undanförnu hefir verið unn-
ið að malbikun hér í bænum.
Búið er að. malbika neðsta
hluta Eyrarlandsvegar, Laugar-
götu, austan íþróttahússins og
neðsta hluta Þingvallastrætis,
svo og bílastæðið við Nýja-Bíó.
Samkvæmt upplýsingum bæj-
arverkfræðings á að malbika
Þingvallastrætið upp að Þórunn
arstræti. Unnið er við malbik-
un á Glerárgötu norður að
Eiðsvallagötu, Gránufélagsgötu
að Hólabraut. í sumar á að mal-
bika Hólabraut frá Geislagötu,
vestan við Búnaðarbankahúsið,
norður að Gránufélagsgötu.
Unnið er við nýju göturnar,
Áshlíð og Skarðshlíð, norðan
Lögmannshlíðar í Glerárhverfi.
Þá er unnið að byggingu Þór-
unnarstrætis til norðausturs, til
móts við nýju lögreglustöðina.
Er ætlunin að leggja framhald
af þeirri götu sunnan Þórsham-
ars og tengja hana við Glerár-
götu. Ekki mun þó þeirri fram-
kvæmd verða lokið í sumar.
í sumar verður byrjað á nýrri
götu vestan Mýrarvegar, norð-
an Þingvallastrætis. Við þá
götu verður byggingalóðum út-
hlutað í sumar. □
1301 tunnu á móti röskum 4 þús.
um þetta leyti í fyrra. Þriðja
stöðin, Auðbjörg, hefur ekkert
fengið, en saltaði í fyrra hátt á
fjórða þúsund tunnur.
Fiskafli hefur glæðzt á línu,
nú upp á síðkastið. Það er mest
ýsa sem veiðist, 1500 til 1800
pund í róðri hjá trillunum. —
Ufsaveiði er lítil nú en samt hef
ur hún bjargað okkur hér í
sumar, og kannski er bezti tím-
inn eftir.
Þrír þurrkdagar í röð björg-
uðu heyskapnum hér verulega,
því lengi höfðu þurrkar verið
stopulir og tafsamt að heyja. —
Bændur eru búnir með fyrri
sláttinn. B. S..
- Undirbúningur
dráttarbrautar . ..
(Framhald af blaðsíðu 1).
til vaxtar og viðgangs bæjarins,
að efla iðnað sinn til muna. Ak-
ureyrarkaupstaður býr að því
leyti vel, að margs konar iðnað-
ur, sem stálskipasmíðum er jafn
nauðsynlegur og járniðnaðurinn
sjálfur, er hér fyrir hendi, einn-
ig mjög færir tréskipasmiðir, en
kunnátta slíkra manna hefur í
öðrum löndum notast mjög vel
í stálskipaiðnaðinum.
Þótt engu verði hér spáð um
byrjunarframkvæmdir, gætu
menn gizkað á, að þær yrðu
einhverjar á þessu ári, ef hinn
margþætti undirbúningur geng-
ur að óskum. Q
MESSAÐ í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag. — Séra Jón
Bjarman í Laufási messar. —
Sóknarprestar.
MÖÐRU V ALL AKLAU STURS-
PRESTAKALL. — Messað á
Bakka sunnudaginn 16. ágúst
kl. 1,30 e. h. Séra Birgir Snæ-
björnsson messar. — Dggur
ungmennafélaganna. — Sókn-
arprestur.
RANGT SÍMANÚMER! — S.l.
laugardag slæddist sú mein-
lega villa í auglýsingu Sig-
tryggs J úlíussonar rakara-
meistara, að símanúmerið var
auglýst 2380, en á að vera
1380. — Hlutaðeigendur eru
beðnir margfaldrar afsökunar.
I.O.G.T. Stúkan Brynja nr. 99
heldur fund að Bjargi fimmtu
daginn 13. ágúst n. k. kl. 8,30
e. h. Dagskrá: Venjuleg funda
störf. Inntaka nýhða. Upplest-
ur. Kaffi o. fl.
FRÁ U.M.S.E. — Sund-
að Laugalandi næsta
laugardag kl. 2 e. h.
ÍÍSÍÍH Mm
Ungur Siglfirðingur ósk-
ar eftir HERBERGI frá
1. okt. n.k., hjá rólegu
fólki. — Helzt nálægt
Menntaskólanum.
Uppl. í síma 1232.
Skólapilt
VANTAR HERBERGI
í vetur og helzt fæði á
sama stað.
Uppl. í síma 2438.
Skólapilt vantar
FÆÐI og HÚSNÆÐI
á næsta vetri, hel/.t í
grennd við Menntaskól-
ann.
Aðalsteinn Sigurðsson,
sími 1662 eða 1932.
HERBERGI ÓSKAST
til leigu á Syðri-brekk-
unni.
Uppl. í síma 1024
milli kl. 3—5 síðd.
Kennara við M. A. vantar
rúmgott HERBERGI,
helzt á Suður-brekkunni,
frá 1. september n.k.
Upplýsingar gefur
Guðmundur Ketilsson,
sími 2738 eftir kl. 9 e. h.
Einhleyp, fullorðin kona
óskar að taka á leigu
STOFU og ELDHÚS
í haust.
Uppl. í síma 2649.
NÝLEGA opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Snjólaug Braga-
dóttir og Reynir Brynjólfsson
muraranemi.
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansað verður í Alþýðu-
húsinu laugardaginn 15.
ágúst kl. 9 e. lr. — Húsið
opnað fyrir miðasölu kl.
8 sama kvöld.
Stjórnin.
LAUGARBORG
Dansleikur laugardaginn
15. ágúst kl. 9.30 e. h.
Póló og Erla leika og
syngja.
Sætaferðir frá Ferðaskrif-
stofunni Túngötu 1.
Kvenfélagið Iðunn og
U.M.F. Framtíð.
SAUMAVÉL
Necchi, zig-zag, með
mótor, til sölu.
Uppl. í síma 2507.
TRILLUBÁTUR
18 feta, nýlegur, með 6
hestafla Penta-dieselvél
til sölu.
Sími 2570.
RABARBARI
Úrvals rabarbari enn til
sölu.
Gísli Guðmann, Skarði.
Sími 1291.
AÐVÖRUN TIL
AKUREYRINGA
Af fenginni reynslu und-
angenginna ára, eru Ak-
ureyringar vinsamlega
beðnir að fara ekki til
berjatínslu í Sundsland í
Höfðahverfi án leyfis.
Leyfi veita
Jóakim Guðlaugsson,
Bárðartjörn, og Hálmar
Kristjánsson, Hólabraut
15, Akureyri.
(ZEBRA)
APASKINNSJAKKAR
NÝ SENDING.
MARKAÐURINN
Sími1261