Dagur - 10.10.1964, Blaðsíða 7
7
Góðhesfasýning
SUNNUDAGINN 9. ágúst s.l.
hafði hestamannafélagið Þjálfi
í Suður-Þingeyj arsýslu góð-
hestasýningu og kappreiðar að
Einarsstöðum.
Dagskráin hófst kl. 15,30 með
hópreið hestamanna inn á sýn-
ingarsvæðið. Þar ávarpaði for-
maður félagsins, Sigfús Jónsson,
samkomugesti og bauð þá vel-
komna. Að því loknu hófst sýn-
ing hrossa, en dómar höfðu
gengið daginn áður. Fyrst voru
sýndir alhliða góðhestar, síðan
alhliða reiðhryssur og síðast
klárhestar með tölti.
Af alhliða góðhestum voru
eftirtaldir þrír dæmdir beztir:
Nr. 1 Blesi, 9 vetra, brúnbles-
óttur, eigandi Gestur Kristjáns-
son. Nr. 2 Þjálfi, 10 vetra, brúnn,
eigandi Sigfús Jónsson. Nr. 3
Glámur, 10 vetra, grár, eigandi
Forni Helgason.
Af alhliða hlyssum voru eft-
irtaldar þrjár dæmdar beztar.
og kappreiðar
Nr. 1 Jörp, 11 v., jörp, eigandi
Ásvaldur Jónatansson. Nr. 2
Gríður, 6 vetra, grá, eigandi
í - :
Jónas Stefánsson. Nr. 3 Kol-
brún, 6 vetra, brún, eigandi
Kristinn Guðmundsson.
Af klárhestum með tölti voru
eftirtaldir þrír dæmdir beztir:
Nr. 1 Neisti, 10 vetra, rauður,
eigandi Gísli Ólafsson. Nr. 2
Blakkur, 10 vetrá, brúnn, eig-
andi Árni Kr. Jakobsson. Nr. 3
Glanni, 5 vetra, brúnn, eigandi
Höskuldur Þráinsson.
Þá fóru fram kappreiðar og
var keppt í stökki á 300 metra
sprettfæri og 250 metra fyrir
fola 4—6 vetra.
í 300 metra stökki voru eftir-
taldir þrír hestar fljótastir: 1.
Blesi, 10 vetra, rauðbl., eigandi
Jón Baldvinsson, 22,5 sek. 2.
Vængur, 10 vetra, jarpur, eig-
andi Jón H. Ólafsson, 22,5 sek.
3. Neisti, 10 vetra, rauður, eig-
andi Gísli Ólafsson, 23,3 sek.
í stökki, 250 m. urðu eftir-
talin þrjú hross- hlutskörpust:
1. Stjarna, 6 vetra, brúnstj., eig-
andi Jón A. Jónsson, 20,9 sek.
2. Eldur, 6 vetra, rauður, eig-
andi Egill Jónasson, 21,3. 3.
Gustur, 6 vetra, gráskj., eigandi
Jón A. Jónsson, 21,4 sek.
Um kappreiðarnar skal þess
getið, að þær fóru fram með
öðru sniði en venjulegt er að
því leyti, að hver hestur hafði
sína braut afmarkaða með snúr-
um, til þess að fyrirbyggja það,
sem oft hefur átt sér stað, að
einn hestur hlypi í veg fyrir
ir annan og tefði fyrir honum.
Þessi aðferð reyndist í alla staði
vel og komu engin mistök fyrir,
enda sýnir tíminn það, því að
hann er mjög góður í 300 metra
hlaupinu.
Um kvöldið var dansleikur
að Laugum á vegum hesta-
mannafélagsins. Sarhkoman fór
að öllu leyti hið bezta fram,
enda veður með ágætum og bar
mjög lítið á ölvun.
Starfsmenn við góðhestasýn-
ingu og kappreiðar voru sem
hér segir:
Dómnefnd góðhesta: Karl Ág-
ústsson, Akureyri; Þorsteinn
Jónsson, Akureyri og Hólmgeir
Sigurgeirsson, Völlum.
Dómnefnd kappreiða: Árni
Magnússon, Akureyri; Jón
Árnason, Akureyri og Hólmgeir
Sigurgeirsson, Völlum.
Tímaverðir voru 6, yfirtíma-
vörður Vilhjálmur Pálsson,
íþróttakennari, Húsavík og ræs-
ir Sigurður Þórisson, Græna-
vatni. G. G.
- Kosningar í Sjó-
mannafélaginu
(Framhald af blaðsíðu 5).
menn sem munu teljast til allra
stjórnmálaflokkanna. Þannig
stendur á að Sjómannafélag Ak
ureyrar er eitt af þeim fáu stétt
arfélögum þar sem lítið ■ eða
ekki hefur gætt pólitískra átaka
og hefir það því ekki bagað fé-
lag þetta hingað til. Enda er
þetta vel staðfest með því að
formaður félagsins mun hafa
verið kjörinn formaður þess í 29
ár og nær því alltaf einróma.
Eins og að framan greinir er
því A-listinn, ekki síður borinn
fram og studdur af lýðræðissinn
um. En athyglisvert er það þeg-
ar nú er stofnað til kosningabar-
áttu í þessu félagi, að einmitt nú
eru nær öll Akureyrarskipin að
veiðum og flestum sjómönnum
því fyrirmunað að taka þátt í
kosningu.
- Bætt skemmtanahald
(Framhald af blaðsíðu 2).
leggist á eitt til að færa
skemmtanalífið til betri vegar.
Mælir fundurinn eindregið
með því að ríkisstyrkur til U.
M. F. í. verði hækkaður ríf-
lega með tilliti til starfsemi
sambandanna í þessum málum
6. Fundurinn telur, að sam-
þykkt bæjarstjórnar Akureyr
ar um aldurskírteini, sé spor
í rétta átt og væntir þess, að
það komi sem fyrst til fullra
framkvæmda“.
SKÍÐAHÓTELIÐ
HLÍÐARFJALLI
opnar aftur um helgina. Hótelið verður fyrst unr sinn
opið um helgar. Tökum ávallt á rnóti stærri og minni
hópum. Teikið á móti pöntunum í síma 02 og 1774.
H ÓTELSTJ ÓRI.
Til sláturgerðar:
RÚGMJÖL - HAFRAMJÖL
HEILHVEITI - RÚSÍNUR
SALT (gróft og fínt)
SLÁTURGARN - RÚLLUPYLSUGARN
SALTPÉTUR - KALK
BLANDAÐ RÚLLUPYLSUKRYDD
PLASTPOKAR, margar stærðir
KJÖRBÚÐIR K.E.A.
Vínberin eru komin
Góð og ljúffeng.
KJÖRBÚÐIR K.E.A.
Símaskráin 1965
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár, eru þeir símanotend-
ur, sem óska að koma að leiðréttingum, eða breyting-
um í skrána, beðnir að senda þær skriflega á skrifstofu
mína fyrir 15. október.
Viðbætis við símaskrá 1964 má vitja á skeytaaf-
greiðsluna 3. hæð.
SÍMASTJÓRINN.
Frá Tryggva Hallgrímssyni
kr. 200, Ingu Jónu og tengda-
móður 200, systrunum Hafdísi
og Freydísi 200, vinnufélög-
um Byggingarfélags Akureyr-
ar 200, Kristínu Kolbeinsdótt-
ur 100, Valtý og Guðnýju
Hömrum 100, systkinunum
Ásveg 21 250, G. J. 200, M og
G Kópavogi 200, Sigurbjörgu
Jónsdóttur 500, Jóhanni Krist
inssyni og fjölskyldu 1000.
Frá afgreiðslu smjörlíkisgerð-
anna, Reykjavík, 5000, þriggja
barna móður, Reykjavík, 100,
Tryggva flugmanni og frú
Petru 500, Margréti og
Katrínu Sigurgeirsdætrum
600, starfsfólki bæjarfógeta-
skrifstofunnar Akureyri 2000,
Ess emm 5000, gömlum sjó-
manni, Reykjavík 1000, Sig-
fúsi Blöndal 300, Jóni S. Odds
syni útgm. 200, Steinunni B.
Guðlaugsdóttur 100. — P. S.
TIL AKUREYRARKIRKJU: --
Frá Ónefndum kr. 200, brúð-
hjónunum Guðmundi Péturs-
syni og Hergerð Gunnarstein
200, N. N. 200.
TIL SUMARBÚÐANNA: Frá
Sveinbirni Jónssyni kr. 1030,
ónefndri konu á Akureyri
2000. — Beztu þakkið — P.S.
Bæjarskrifstofan verður opin
frá 1. okt. til áramóta kl. 5—7
síðd. á föstudögum til mót-
töku á bæjargjöldum.
MINJASAFNIÐ! Safnið er að-
eins opið á sunnudögum frá
kl. 2—5 e. h. Á öðrum tímum
fyrir ferðafólk eftir samkomu-
lagi við safnvörð. Símar 1162
og 1272.
GJAFIR og áheit til Lögmanns-
hlíðarkirkju: Gjöf frá hjónun-
um frú Jórunni Þórðardóttur
og Friðriki Jóhannssyni fyrrv.
hótelstj. í Hlíðarfjalli kr. 500.
Áheit N. N. kr 300. — Innileg-
ustu þakkir. — H. G.
Þróimarsjóðurinn
fær nýtt f jármagn
ALÞJÓÐLEGI þróunarsjóður-
inn (IDA) tilkynnti 8. júlí s.l.,
að formsatriðum í sambandi við
aukningu sjóðsins um 750 millj.
dollara hefði nú verið fullnægt.
12 ríki höfðu þá tilkynnt, að þau
mundu leggja fram yfir 600
millj. dollara, en sú lágmarks-
upphæð var skilyrðið sem sjóð-
urinn hafði sett fyrir aukningu
hans. Af ríkjunum 12 ætluðu
Bandaxákin að leggja fram 312
millj., Bretland 96,6 millj. og
Vestur-Þýzkalands 72,6 millj.
dollara. Framlag Danmerkur
nemur 7,5 millj., Noregs 6,6
millj. og Svíþjóðar 15 millj.
dollara.
Búizt er við að fjögur lönd til
viðbótar tilkynni síðar væntan-
leg framlög sín, þeirra á meðal
Finnland með 2,29 millj. doll-
ara.
Upphaflegur höfuðstóll Al-
þjóðlega þróunarsjóðsins var
790,9 millj. dollara. Til þessa hef
ur sjóðurinn veitt vaxtalaus lán,
sem nema 778,3 millj. dollara,
til vegagerða, áveitugerða, skóla
bygginga, orkuvera og annarra
áþekkra framkvæmda í 22 van-
þróuðum löndum. Q
TIL BLINDU BARNANNA:
Sigurlína Haraldsdóttir 1000,
Petrea Magnúsdóttir 500, Á
Þ Þ 500, N N 200, Fimm syst-
kini 500, Ón. kona 100, Stef
anía Péturdóttir 200, Systkin-
in Reynivellir 6 250, V M 200,
I Þ 200, N 300, Aðalbjörg
Helgadóttir 100, Jóhann Gísli
100, N N 300, A H 500, N N
100, R S og H F 400, G og J
100, Sigrún og Brynjólfur 200,
Á S 300, V N og B S 1000, M
Schiöth 500, Fjölskylda í Rvík
1000, T H 200, Jóna Magna
100, Þ Ó 500, X 9 200, Z J 200,
Frá heimilisfólkinu í Villinga
dal 800', Þ J 1000, Rósa Guð-
jónsdóttir 100. — Afgr. Dags.
LJÓSASTOFA Rauðakrossins
Hafnarstræti 100, tekur til
starfa miðvikudaginn 14 okt.
Opið fyrst um sinn kl. 4—6
e.h. mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga, Sími 1402.
HJÚKRUNARKONUR! Munið
fundinn að Hótel KEA mánu
daginn 12. október kl. 9.
SUNNUDAGASKÖLINN AÐ
Sjónarhæð byrjar nk. sunnu
dag kl. 1. Öll börn og ungling
ar velkomin.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: —
í vetur, frá 1. okt., verður
safnið opið almenningi á
fimmtudögum kl. 4—6 s.d. —
Einnig verður það eins og áð
ur, opið á sunnudögum kl. 2
—4. — Ferðamenn og hópar
geta fengið að skoða safnið á
öðrum tímum eftir samkomu
lagi við safnvörð. — Sími
safnv. er 2983.
MINNINGARSPJÖLD Kvenfél.
Hlífar fást í Bókaverzl. Jó-
hanns Valdimarssonar og hjá
Laufeyju Sigurðardóttir Hlíð
arg. 3. Öllum ágóða varið til
Dagheimilisins Pálmholt.
FÉLAGSVIST. — Laugardag-
inn 10. okt. kl. 8,30 hefst að
Bjargi hin vinsæla félagsvist
Sjálfsbjargar fyrir félaga og
gesti — Mætið stundvíslega.
Nefndin.
DÝRALÆKNAVAKT næstu
helgi, kvöld og næturvakt
næstu viku hefur Guðmund
Knutsen, sími 1724.
Gott
KVENREIÐHjÓL
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 2670.
LÓN H.F. auglýsir!
Getum bætt við nokkrum
föstum
EGGJAKAUPENDUM
Sendum heim.
Kr. 75.00 pr. kg.
Pantanir teknar í
síma 2948.