Dagur - 16.01.1965, Page 8

Dagur - 16.01.1965, Page 8
8 Þannig mun hin nýja verksmiðjubygging SÍS í Bandaríkjunum líta út. SÍS byggir verksmiðju vestra Forstöðumaður er Sverrir H. Magnússon SMÁTT OG STÓRT ÁRIÍ) 1951 stofnaði Samband ísl samvinnufélaga sölufélag í Bandaríkjunum, Iceland Prod- ucts. Reyndist þetta nauðsyn- legt vegna bandarískra skatta- laga. Hlutafé Iceland Products er 62 þús. dollarar. Af þeirri upphæð á Sambandið $61.600-, en $400,- eru á nafni íslenzkra starfsmanna Iceland Products, en þetta fyrirkomulag var nauð synlegt til að uppfylla bandarísk ar reglur um hlutafélagið. Iceland Products hefir starf- rækt litla verksmiðju í Harris- burg í Pensylvaníu síðan 1959, en þá voru skrifstofur félagsins fluttar þangað frá N.Y. Verk- smiðja þessi hefir framleitt til- búna fiskrétti úr ísl. fiskblokk- um. Hefir þessi framleiðsla þótt lítil væri gefið góða raun sér- staklega síðustu árin. Það vill of oft brenna við að blokkir frá ísl. frystihúsunum eru ekki gallalausar og hefðu því ekki selzt til hinna stóru blokkkaup enda nema með afslætti. Með því að vinna þessar blokkir í verksmiðju Iceland Produces hefir hins vegar verið unnt að skila fullu andvirði til íslands. Á sl. 10 árum hefir sala Ice- land Products vaxið úr nálægt 4 millj. Ibs. í 23,3 millj. Ibs sl. ár og hefir aldrei verið meiri en þá. Vegna hinnar auknu starf- semi Iceland Products undan- farin ár og vegna þess að eftir- spurn eftir tilbúnum fiskrétt- ILL FÆRÐ í HÚNA- VATNSSÝSLU Blönduósi 12. jan. Hér hefir ver- ið norðanátt með snjókomu að undanförnu. Færð á vegum er víða slæm, einkum fram til dala. Mjólkurflutningar hingað hafa verið erfiðleikum bundnir. í dag er von á bílalest að sunn an yfir Holtavörðuheiði, og var jarðýta lesoinni til aðstoðar. Leikfélag Blþnduóss sýndi gamanleikurinn Hringinn tvis- var um síðustu helgi. Ö. S. um hefir farið ört vaxandi í Bandaríkjunum, ákvað stjórnin og framkvæmdastjórn Sam bandsins á sl. sumri, að byggja nýja verksmiðju í Harrisburg, til að bæta óg auka aðstöðu sölufélagsins. Framkvæmdastjóra Iceland Products, Sverri H. Magnússyni var síðan falið að sjá um allar framkvæmdir, en hann hafði samráð við nýstofnaðan félags- skap í borginni Harrisburg Aera Industrial Development Corp, um útvegun fjár til byggingar nýs verksmiðju og skrifstofu- húss. Þessi fyrrnefndi félags- skapur hefur það markmið, að vinna að uppbyggingu atvinnu fyrirtækja í borginni og ná- grenni hennar og stuðla með því að jafnvægi í atvinnumálum Bandaríkjanna. Fjármagn til byggingarinnar er lagt fram úr MÁL það, sem Framsóknar- menn flytja enn á Alþingi um ráðstöfun til að stuðla að jafn- vægi í byggð er eitt þýðingar- mesta þjóðniál, sem á dagskrá er um þessár ínundir. Hér birt- ist niðurlag á ræðu Gísla Guð- mundssonar framsögumanns þessa mál, er það nú var flutt á Alþingi. Eins og ég sagði áðan, yrðu árlegar tekjur jafnvægissjóðs, miðað við ’sennilega afgreiðslu fjárl. 1965, að líkindum eitthvað kringum 50 millj. kr. eða rúml. það samkv. þessu frv. Þetta er ekki mikið fjármagn miðað við þau verkefni, sem fyrir hendi eru, en miklu skiptir, að ekki sé lengur dregið að hefjast handa. Jafnvægisstofnunin þarf að komast á fót sem fyrst. Fram kvæmdastjóri norsku jafnvægis stofnuninnar sagði hér á dögun um, að ráðamenn í Noregi vildu stöðva fólksflóttann úr dreifbýl inu, stöðva strauminn, eins og Iiann orðaði það. En getum við stöðvað þennan straum? spurði hann, og spurningunni svaraði hann sjálfur á þessa leið: já, við getum það, þ.e.a.s. við Norð sjóði félagsins og er Iceland Products fyrsta fyrirtækið, sem nýtur þeirrar fyrirgreiðslu. Byggingarframkvæmdir hefj- ast í þessum mánuði og verður lokið á komandi sumri. Þetta nýja hús verður 3800 ferm. að stærð og er gert ráð fyrir að það kosti um 350 þús. dollara. Vegna hárra innflutningstolla í Bandaríkjunum á tilbúnum fiskréttum hefir ekki verið grundvöllur hér á landi fyrir verksmiðju, slíka sem hér um ræðir. Harrisburg er höfuðborg í Pensyivaniuríki og hefur þá sérstöðu, að vera á krossgötum meira en nokkur önnur borg í austurfylkjum Bandaríkjanna. Um Harrisburg liggja allar aðal fiutningabrautir frá austri til suðurs. Er því mjög góð aðstaða fyrir verksmiðju Iceland Pro- ducts til að koma framleiðslu sinni á markað vítt og breitt um Bandaríkin. menn getum það — ef við vilj- um. Við íslendingar getum það líka ef við viljum. Þjóðfélagið getur gert þær ráðstafanir, sem til þess þarf, að ísland verði áfram byggt land. Hér er fvrst og (Framhald á blaðsíðu 7). „ÞAÐ ER BARA SNJÓFÖL A AKUREYRP1 Norðlendingar eru vanir mikl- um snjó einhvern hluta vetrar þótt eldri mönnum finnist mjög snjólétt síðustu áratugi, kyngir oft niður miklum snjó á skömm um tíma. En við minnumst líka góðviðriskafla, svo að jafnvel blóm springa út á þorra. Um þessar mundir eru allar samgöngur á landi lamaðar vegna fannfergis á vegum. Má segja, að allir vegir hafi uni tíma verið ófærir venjulegum bílum í nágrenni Akureyrar og einungis færir öflugustu bílum, sem sérstaklega eru til þess ætl- aðir að ösla snjóinn og hafa drif á öllum hiólurn. Og nú er snjórinn umræðu- efni og víst þykir hann mikill. Ferðamaður, sem hingað kom og heima á norðantil við Eyja- fjörðinn, lét svo ummælt, að sér sýndist bara snjóföl á Akureyri miðað við snjódyngjuna þar nyrðra. TRÉIN BROTNA UNDAN SNJÓÞUNGANUM í Lystigarðinum hafa orðið mikl ar skemmdir á trjám, sem brotn að hafa undan snjóþunganum eða einstakar greinar, að því er garðyrkjuráðunauturinn, Jón Rögnvaldsson, sagði blaðinu í fyrradag. Við hin ýmsu hús í bænum er trjám einnig hætt við skemmdum og stöku stað hafa trén ekki þolað snjóþungann. Húseigendur geta hreinsað snjó inn af trjám, þar sem ekki er uin skóg að ræða, og ættu að veita þessu athygli á meðan snjórinn enn er laus og ekki kominn í hjarn. BÍLDEKKIN OG SNJÓRINN Bílstjórar á Akureyri hafa haft orð á því, að eftir að snjórinn kom, hafi myndast klístur utan á lijólbörðum bílanna. Þetta er rétt og límast fingur manns ef við er komið. Telja sumir að hér sé um einskonar tæringu að ræða. Blaðið spurði Sigurð Bald vinsson forstöðumann Gúmmí- viðgerðarinnar á Akureyri, sem manna bezt ætti að vera slíkt kunnugt. Sigurður sagði, að utan á dekkin myndaðist tjörukennt efni, sem hægt væri að skafa af. Menn yrðu svartir á höndum af að handleika dekkin. Þetta efni bráðnaði við loga af eldspítu og tæki síðan að loga. Ennfremur sagði hann, að þetta væri ekk- ert nýtt, því fyrir um það bil 10 árum hefði farið að bera á þessu en einungis þegar snjór væri, svo sem nú er. Hann sagðist geta giskað á, að þetta gæti staf- að frá olíukyndingunum í bæn- um og útblæstri bifreiðanna, sem olíu brenndu. Um tæringu væri naumast að ræða. Og því miður, sagði hann, eru allar teg- undir hjólbarða undir þessa sök seldir. MIKILHÆFUR FULLTRÚI FALLINN Á fimmtudaginn var jarðsungin í Washington Tlior Thors ambassador og fastafulltrúi ís- lands hjá Sameinuðu þjóðunum, 61 árs að aldri. Með honum er mikilhæfur maður og góður ís- lendingur genginn. Fyrir fáum árum átti sá er þesar línur rit- ar, kvöldstund á heimili hans og þeirra hjóna vestra. Þar var vel tekið á móti gestum og á ýms- um stöðum varð þess vart, svo ekki varð um villst, að þar áttu íslendingar fulltrúa er naut fyllstu virðingar. Mun mörgum í hug koma við fráfall Thor Thors það, sem Stephan G. Stephansson kvað: „Ég finn til skarðs við auðu ræð- in allra/sem áttu rúm á sama aldarfari“. PILTURINN STÓÐ I BJÖRTU BÁLI Mörgum þykir „sopinn góður“ og mörgum liefur hann yljað fyrir brjósti. En stundum verð ur hitinn of mikill, eða svo mun pilti einum í Þórskaffi, Reykja- vík liafa fundizt. Pilturinn komst með vin á dansleikinn og hafði það undir fötum í plast belg. Þegar til átti að taka, reyndist tappinn fastur. Piltur- inn brenndi þá gat á belginn með eldspýtu, en vissi þá ekki fyrri til en hann stóð í björtú báli, því óöar kviknaði í áfeng- inu í höndum hans. Piltur þessi liggur nú á sjúkrahúsi. EKKI ER ÞAÐ SÖK DAGS Ritstjóri Alþýðumannsins seg- ir stuðning Dags við staðsetn- ingu alumíníumverksmiðju við Eyjafjörð lítinn verið hafa. Má vera að of lítill hafi stuðning- ur blaðsins verið við norð- lenzka stórvirkjun og stóriðju mál. Þó hefur Dagur haft algera sérstöðu í þessu efni. Ef það hefur farið fram hjá ritstjóra A1 þýðumannsins er það sök hans sjálfs. Kyrnning á hinum norðlensku sjónarmiðum, varð- andi mál þessi er nauðsynleg, og því ætti það nú ekki að vefj- ast lengur fyrir ritstjóranum, sem á sínum tíma var ritari á Jökulsárfundinum á Akureyri 1962, að senda út fundargerð- ina. AÐ TAKA SKARID AF Risíj. Alþýðuinannsins fagn- ar því live skarplega formaður Framsóknarflokksins hefur tek- (Framhald á blaðsíðu 7). Fjárhagsáæílun bæjarins afgreidd FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjarsjóðs Akureyrar var afgreidd á fundi bæjarstjórnar Akureyrar þriðjudaginn 12. janúar. Niðurstöðutölur áætlunarinnar eru Kr. 74.512.500.00 Hæstu gjaldaliðir eru: Félagsmál ........................................ Kr. 18100.000.00 Gatna- og holræsagerð ............................ Kr. 13.175.000.00 Nýbyggingar ...................................... Kr. 8.450.000.00 Hæstu tekjuliðir eru: Útsvör ........................................... Kr. 45.167.500.001 Aðstöðugjöld .................................... Kr. 12.500.000.00 Framlag úr Jöfnunarsjóði ..........................Kr. 10,100.000.00 Heildarupphæð útsvara hækkar frá áætlun fyrra árs um kr. 8.175.400.00 — eða um 22% Eiti þýðingarmesta þjóðntálið eru ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.