Dagur - 20.03.1965, Blaðsíða 2
2
Samþykktir U.M.S.E.
Ágætf skíðómót drengja í
Keppendur voru frá Akiirevri ug Húsavík
Hlíðarfial
SKÍÐARÁÐ Akureyrar gekkst
fyrir skíðamóti drengja um síð-
ustu helgi í fegursta veðri í
Hlíðarfjalli. Drengir frá Húsa-
vík voru gestir mótsins og með
þeim var hinn víðkunni skíða-
maður Haraldur Pálsson, sem
er þeirra leiðbeinandi
Stórsvig fór fram á laugar-
dag. Brautin var lengri en áð-
ur hefur þekkst fyrir drengi,
og erfið sökum hjarns. Hún
var 1550 m löng, með 38 hlið-
um og fallhæð 300 metrar.
Urslit urðu þessi:
12—15 ára. mín.
Jónas Sigurbjörnsson Þór 2:00,8
Bergur Finnsson Þór 2:20,0
Árni Óðinsson KA 2:27,2
Ingvi Óðinsson KA 2:46,9
12 ára og yngri. mín.
Guðm. Frímannsson KA 2:21,8
Þorsteinn Baldvinss. KA 2:32,2
Arngr. Brynjólfsson Þór 2:34,2
Þorsteinn Vilhelmss. KA 3:32,5
Það var ánægjulegt að sjá
þessa ungu drengi spennta af
tilhugsuninni um að fá nú að
„keyra stóra braut.“ Úrslitin í
eldri flokki er ekki hægt að
kalla óvænt. Jónas er ákveðinn
og mikill „keyrari,“ og hefur
gott vald yfir skíðunum á mikl-
um hraða og færði þetta hon-
um yfirburðasigur. Bergur
Finnsson fer oft á þá ferð sem
hann ræður ekki við, en það
mun lagast þegar hann fær
betri skíðaútbúnað. í þessari
ferð datt Bergur, en var fljótur
upp að vanda og var vel að
sínu sæti kominn. Árni Óðins-
III11IIIIIIMIIIII lllllllll 1111111II
j Akureyringar keppa I
1 í II. deild um helgina I
| SÍÐUSTU leikir Akureyr- j
| inga í Handknattleiksmóti ís- i
í lands, II. deild, fara fram að É
i Hálogalandi um helgina. — i
1 Leikið verður við Þrótt og I
I Keflvíkinga. Er vonandi að i
i piltamir standi sig vel í þess i
i um síðustu leikjum sínum. i
• MtllMIIIIIIMIIMMIMIIIIMIMHMIMMMMIIIIMIMI II1111111»
ÁRSÞING Í.B.A.
ÁRSÞING íþróttabandalags Ak-
ureyrar, fyrri hluti, fór fram í
íþróttahúsinu 17. þ. m. og sátu
það 37 fulltrúar og nokkrir
gestir. — ísak Guðmann for-
maður bandalagsins setti þing-
ið og rakti störf þess á síðasta
ári. Forseti þingsins var kjör-
inn Halldór Helgason og ritari
Jón P. Hallgrímsson.
Margar tillögur komu fram á
þinginu og var þeim vísað til
nefnda sem skila ályktunum á
síðari hluta þingsins 31. þ. m.
Sagt verður nánar frá þing-
inu síðar. □
son virtist eitthvað miðúr sírr í
þessari keppni, lét ekki skíðin
rehna nðgú frjálst og hélt ekki
nógu góðri línu gegnum hliðin;
stanzaði- einu sinni, sem varð
til þess áð hahn varð aftar í
keppninni en geta hans leyfir.
Ingvi Óðinsson „skíðaði“ hluta
brautarinnar' vél, en þarf að
taka beygjurnar fyrr og fá hald
betri línu .1 gegnum hliðin.
Það- er • athyglisvert hvað
frammisíaða 12 ára og yngri
drengianna er góð. Þeir fóru
sömu braut og þeir eldri. Guð-
mundur Frímannsson hefur
tekið stórframförum, hefur gott
vald á sinni „skíðun“ sem er
vel framkvæmd og hugsuð.
Með þeirri ástundun er Guð-
mundur hefur lagt við íþrótt-
ina er ljóst að hann hefur þegar
stungið sína jafnaldra af (a. m.
k. í bili) og ógnar nú fylkingu
þeirra eldri. Þorsteinn Bald-
vinsson sýndi sérstaklega góð-
ann vilja í að gera vel. Hann
datt í fyrsta hliði brautarinnar,
en það var engu líkara en hann
færðist í aukana við það og fór
brautina mjög vel og hratt og
hélt ágætri línu í gegnum hlið-
in. Arngrímur Brynjólfsson
sýndi oft góða spretti, en skíðin
reyndust honum full erfið.
Úr leik féllu 3 Húsvíkingar
og tveir Akureyringar. Það er
ljóst að brautin var Húsvíking-
um of erfið, en vonandi hafa
þeir lært nokkuð í þessari
keppni.
Svigkeppnin hófst klukkan
11,30 á sunnudag í glampandi
sól og hita. Br.autin var 170 m
löng, hlið 28 og fallhæð 85 m.
Úrslit urðu þéssi:
12 ára og eldri. sek.
Árni Óðinsson KA 62,4
Örn Þórsson KA 71,9
Ingvi Óðinsson KA 75,5
12 ára og yngri. sek.
Guðm. Frímannsson KA 73,6
Þorsteinn Vilhelmsson KA 79,5
Þorsteinn Baldvinsson KA 90,9
Ljóst var eftir fyrri ferð, að
keppnin um fyrsta sætið myndi
standa á milli Áma og Jónasar
Sigurbjörnssonar. Jónas náði
góðum brautartíma í fyrri
ferðinni 31,5 sek. og komst
enginn nálægt honum, þar til
Árni braust í gegn á 29.5 sek.
Nú var spennandi að vita hvað
Jónas gerði í seinni ferðinni.
Enda kom það á daginn að
hann var ekki á því að láta sæt-
ið með góðu. Hann „keyrði“
brautina hratt og vel en sleppti
einu hliði, og féll úr leik. Ái-ni
fór seinni ferðina af öryggi og
sigraði með yfirburðum. Öm
Þórsson náði sér nú loksins á
strik eftir fall í fyrri ferð og
náði öðrum bezta tíma í seinni
umferð: Ingvi Óðinsson fékk
jafna tíma í báðum ferðum sem
nægðu honum til þriðja sætis,
á undan Bjama Jenssyni, sem
„skíðar“ laglega, en skortir æf-
ingu. Bjöm Þórhallsson og Þór-
hailur Bjarnason eru einnig
efnilegir skíðamenn.
Mótið fór í alla staði vel fram
og var margt um manninn við
Strompinn og skíðalyftan mik-
ið notuð. — Snjór er nú góður
í Hlíðarfjalli. M. G.
HERMANNSMÓTIÐ
Á SUNNUDAG
HIÐ árlega Hermannsmót, svig-
mót, fer fram n. k. sunnudag
við Strompinn í Hlíðarfjalli og
hefst kl. 11 f. h.
Keppt verður í fjórum flokk-
um. í karlaflokkum: 16 ára og
eldri, 13—15 ára og 12 ára og
yngri. Einnig verður keppt í
kvennaflokki.
Ferðir verða frá Ferðaskrif-
stofunni Lönd & Leiðir kl. 10,
13 og 14. □
Skólaniál.
ÁRSÞING Ungmennasambands
Eyjafjarðar 1965 skorar á stjórn
fræðslumála í landinu og
fræðsluráð Eyjafjarðarsýslu, að
sem bráðast verði sköpuð skil-
yrði til að fullnægja núgildandi
fræðslulögum í héraðinu. Telur
þingið að úr þessu ástandi verði
ekki bætt, nema með byggingu
héraðsskóla. Skorar þingið á fé-
lög og einstaklinga í héraðinu til
virkrar samstöðu og leggur til
að komið verði sem fyrst á al-
mennum umræðufundi í hérað-
inu um skólabygginguna.
Þingið telur nauðsynlegt að
aukið samstarf verði í framtíð-
inni milli skóla héraðsins og
UMSE. Vill þingið leggja á-
herzlu á, að þessir aðilar hafi
samvinnu um ráðningu íþrótta-
kennara sem kenni leikfimi og
aðrar skólaíþróttir í skólunum
og annist einnig íþróttakennslu
hjá ungmennafélögunum, eftir
því sem aðstæður leyfa.
BINDINDISMÁL
Ársþing Ungmennasambands
Eyjafjarðar 1965 þakkar það sem
unnið hefir verið að bindindis-
málum í héraðinu. Leggur þing-
ið til að haldið verði áfram með
unglingadansleiki sambandsins
með svipuðu sniði og var á sl.
- IÍVENFÉLAG HÚSAVÍKUR SJÖTÍU ÁRA
(Framhald af blaðsíðu 1).
öðru starfsári félagsins stofn-
uðu þær bindindisfélag barna
og unglinga og starfaði það fé-
lag í nokkur ár. Kvenfélagið
hefur ávallt látið sér mjög annt
um Húsavíkurkirkju; gefið
henni góðar gjafir, prýtt hana
og annast hreingerningu á
henni í tugi ára. Þær hafa lagt
fram fé til sjúkrahúss Húsavík-
ur og gefið fé til annarra sjúkra
húsa, svo sem landspítalans og
fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri. Nú er verið að byggja
félagsheimili á Húsavík og er
kvenfélagið aðili að því. Það
hefur í mörg ár annast um leik-
velli á sumrum fyrir börn á
Húsavík. í júlímánuði árið 1963
tók til starfa á Húsav. dagheim-
ili fyrir börn. Húsavíkurbær
byggði heimilið, sem hlaut nafn
ið „Grænuvellir." Bæjarfélagið
lagði einnig til heimilisins öll
leiktæki utanhúss. Kvenfélagið
annast starfrækslu heimilísins,
fjóra mánuði sumar hvert og
starfa við það tvær stúlkur á
vegum félagsins. Félagið lagði
og heimilinu til öll leikföng til
nota innanhúss.
Lengst allra var formaður fé-
lagsins frú Þórdís Ásgeirsdótt-
ir frá Knarrarnesi. Hún var for-
maður þess í samfleytt 25 ár og
í stjórn þess í alls 35 ár. Nú-
verandi formaður félagsins er
frú Arnheiður Karlsdóttir og
hefur hún verið formaður fé-
lagsins í allmörg undanfarin ár.
Ásamt henni skipa stjórnina
frú Þuríður Hermannsdóttir,
varaformaður, frú Jónína Her-
mannsdóttir, frú Katrín Jóns-
dóttir og frú Friðný Steingríms-
dóttir.
Ár hvert, um jól, efna kven-
félagskonur til jólatrésfagnað-
ar fyrir börn. Það hafa þær
gert í meira en hálfa öld og
mun meiri hluti þeirra Húsvík-
inga, sem nú eru orðnir fimm-
tugir og þeir, sem yngri eru,
hafa einhvern tíma sótt þann
fagnað. Frú Arnfríður Karls-
dóttir segir í áðurnefndu sögu-
ágripi félagsins, að sá starfi
kvennanna, — að veita og
skemmta börnum, — sé þeirra
mestur gleðigjafi.
Starf Kvenfélags Húsavíkur
er orðið mikið á sjötíu árum og
það á sér að vinum þakkláta
hugi margra Húsvíkinga.
Þormóður Jónsson.
Frá ársþingi U.M.S.E.
(Framhald af blaðsíðu 8).
Að loknum þingstörfum
fyrra kvöldið efndi UMSE til
kvöldvöku með ýmsum skemmti
atriði að Grund. Við það tæki-
færi var afhentur í fyrsta skipti
veglegur bikar „Sjóvábikarinn“,
sem umboð Kristjáns P. Guð-
mundssonar gaf sambandinu.
Er það farandgripur sem það fé
lag innan sambandsins hlýtur
sem fær flest stig úr öllum mót
um UMSE yfir árið. Það félag
sem hlýtur bikarinn þrisvar í
röð eða fimm sinnum alls vinn-
ur hann til eignar. Umf. Þor-
steinn Svörfuður varð fyrsti
handhafi bikarsins, vann stiga-
keppnina með yfirburðum. Einn
ig var sama félagi afhentur eign
arbikar frá UMSE fyrir bezta
þátttöku í íþróttaviku FRÍ.
í Ungmennasambandi Eyja-
fjarðar eru nú 15 félög með 870
félagsmönnum.
ári. Þingið lýsir yfir ánægju
með það hve vel tókst til með
bindindismótið í Vaglaskógi á sl.
sumri og hvetur til áframhald-
andi þátttöku í slíkum mótum,
þar sem sú samkoma sýndi að
fólk getur skemmt sér án á-
fengis.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir
framkomnu frumvarpi á Alþingi
um útgáfu og notkun nafnskírt-
eina, en vill leggja áherzlu á,
að frumvarpinu sé breytt þann-
ig, að skylt sé að mynd af hand-
hafa sé í skírteininu. Hvetur
þingið til að nafnskírteinaskyld
an komi sem fyrst til fram-
kvæmda.
Þingið skorar á alla löggæzlu
menn að hafa strangara eftirlit
með því, að unglingum innan
lögákveðins aldurs sé ekki veitt
áfengi. Og að þeir sem sannir
verði að lögbrotum í þessum
málum, sæti ábyrgð.
Þingið fagnar frumv. Magn-
úsar Jónssonar alþingismanns
um bann við tóbaksauglýsingum
og leggur áherzlu á að Alþingi
samþykki það.
Þingið lýsir andúð sinni á
myndum sem birtast í blöðum
af prúðbúnu fólki með staup í
höndum.
Herseta. — Sjónvarp.
Fertugasta og fjórða þing
UMSE haldið að Húsabakka 13.
—14. marz 1965 skorar á Alþingi
að vinna að brottför varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli sem
fyrst.
Það fordæmir að leyft skuli
hermannasjónvarp hér á landi,
þar sem útsending þess nær til
meginþorra þjóðarinnar, og
krefst þess að slíkri útsendingu
verði hætt. Aftur á móti verði
komið á íslenzku menningarsjón
varpi sem fyrst.
Þingið skorar á öll ungmenna
félög í landinu að standa örugg
an vörð um menningarhelgi
þjóðarinnar og vera minnug
kjörorðsins „ísland allt“.
Minnisvarði.
Ársþing UMSE 1965 fagnar
þeim áfanga sem náðst hefur
með frjálsum framlögum til
væntanlegs minnisvarða Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi.
Þakkir.
Ársþing Ungmennasambands
Eyjafjarðar 1965 sendir umboði
Kristjáns P. Guðmundssonar Ak
ureyri, Bifreiðaverkstábðinu
Þórshamri Akureyri, Verksmiðj
um SÍS Akureyri, Kaupfélagi
Svalbarðseyrar, beztu þakkir
fyrir glæsilega bikara sem þessi
fyrirtæki gáfu UMSE á s.l. ári.
Einnig umf. Ársól og Þorgerði
Guðmundsdóttir fyrir rausnar-
legar peningagjafir, svo og öðr
um þeim aðilum sem styrkt hafa
starfsemi sambandsins.
Sá hlýtur viðskiptin,
scm athygli vekur
á þeim.