Dagur - 27.10.1965, Blaðsíða 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Líí kindarinnar er hærra metið en áður vegna hagstæðara afurðaverðs.
lömb á vetur sett.
nú verða mörg
(Ljósm: E. D.)
Grágæsamóðir ljáðu mér vængi
Fuglafriðunarlögin til umræðu á Alþingi
FYRIR ALÞINGI liggur nú
frumvarp til laga um fuglaveið-
ar og fuglafriðun, undirbúið af
fuglafriðunarnefnd og samstarfs
mönnum hennar. Þar er m. a.
ákvæði um bann við að brenna
sinu eftir 1. maí á vorin. Með
því á að koma í veg fyrir, að
hreiðrum fugla verði eytt. En
um þetta hefur stundum verið
rætt hér í blaðinu og sinu-
brennslan harðlega átalin um
varptíma farfuglanna. Einnig er
gert ráð fyrir, að dregið verði
úr friðun grágæsa, sem víða
valda tjóni í grónu landi og ökr-
um.
Tjónið af völdum grágæsanna
hefur oftar en einu sinni verið
til umræðu á Búnaðarfélags-
þingum og hefur þar komið
fram, að víða gera grágæsir
töluvert mikinn skaða á gróðri.
Árið 1963 kom hingað til lands
hópur enskra fuglafræðinga til
að telja grágæsirnar á íslandi
og ensk kona, sem er doktor í
fuglafræðum, dvaldi hér haust-
ið 1963 og vorið 1964 til að at-
huga tjón af völdum gæsa. Tal-
ið er, að í júlí 1963 hafi verið
hér á landi 19 þúsund grágæsir
og um haustið 40 þúsund. Er
sagt, að þriðjungur þessara
gæsa hafi verið við Lagarfljót
og í nágrenni þess, en þar fyrir
utan eru þær algengastar taldar
í Ausíur-Húnavatnssýslu, Skaga
firði, Austur-Skaftaíellssýslu,
Árnessýslu og Rangárvalla-
sýslu.
í 11 gr. frumvarpsins segir
svo: „Nú valda fuglar verulegu
tjóni á ræktuðu landi, veiði-
vötnum og ám, fiskiræktarstöðv
um eða á öðrum hliðstæðum
nytjum, og eru þá friðunar-
ELDEY SOKK
ELDEY frá Keflavík sökk sl.
laugardagsnótt 50 mílur suð-
austur frá Dalatanga. Var þá
verið að háfa gott kast, en skip-
ið fékk þá á sig brotsjó og fór
á hliðina. Áhöfninni, sem fór í
björgunarbáta þegar sýnt var
að hverju fór, var síðan bjarg-
að. Skipstjóri á Eldey var Pétur
Sæmundsson. □
ákvæði laga þessara ekki því til
fyrirstöðu, að ráðuneytið geti,
að fengnum tillögum fuglafrið-
unarnefndar, veitt ejnstökum
handhöfum fuglaveiði-réttar
tímabundið leyfi til að veiða
slíka fugla á hvaða tíma árs
sem er. Undanþáguheimild
þessi tekur. þó ekki til siald-
gæfra tegunda, svo sem arnar,
fálka og snæug2u“.
Um grágæsir segir í sömu
grein: „Þar sem grágæsir valda
miklum almennum spjöllum á
nytjagróðri getur ráðuneytið, að
fengnum tillögum fuglafriðun-
arnefndar, veitt hreppstjórum
fyrir hönd veiðiréttarhafa í um-
dæmum sínum undanþágu frá
friðunarákvæðum laga þessara
að því er veiði grágæsa varðar.
Þá slral taka grágæsareggja
heimií, þrátt fyrir ákvæði 8. gr„
án þess að sækja þurfi um leyfi
til eggjatökunnar“. í sömu grein
segir, að fuglar, sem veiddir eru
og egg, sem tekin eru samkvæmt
undanþáguheimildum greinar-
innar, megi hvorki bjcða til
sölu, selja né kaupa, og verður
að telja, að það ákvæði orki tví-
mælis.
Ýmsum mun þykja það und-
arlegt, að bannað er í 25. grein
frumvarpsins að greiða verð-
laun fyrir eyðingu fugla. Leyfa
má þó að greiða fé fyrir eyðingu
svartbaks, kjóa, hrafns með
„eitri eða svæfandi lyfjum“.
Enn eru í gildi lög um eyðingu
svartbaks, og er ætlast til, að
þau lög séu afnumin. í ritgerð
eftir Agnar Ingólfsson, sem fylg
ir greinargerðinni, er látin í
Ijósi vantrú á, að gagnlegt sé að
eyða svartbak með skotum.
Agnar gerir ráð fyrir, að hér á
landi séu 250 þúsund svaríbak-
ar að hausti og að drepa þurfi
125 þús. á ári til þess að fækka
þeim verulega. Q
Iðnskóianentendur á ferðinni
SL. MÁNUDAG fór 4. bekkur
Iðnskóla Akureyrar í kynnis-
ferð til nokkurra stórra fyrir-
tækja í bænum. Komu þeir
meðal annars í Prentverk Odds
Björnssonar, verksmiðjur SÍS
á Gleráreyrum, Gefjun, Iðunn
og Heklu, súkkulaðiverksmiðj-
una Lindu og að síðustu í Slipp-
stöðina. Á öllum stöðunum var
þeim vel tekið og fyrirmenn á
hverjum vinnustað fylgdu hópn
um. Vakti aðbúnaður og vél-
tækni yfirleitt undrun nemenda,
en, þó ef til vill mest er þeir
komu í Slippstöðina.
Vakti það einnig undrun
manna er framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar, Skapti Ás-
kelsson, lét þau orð falla í veizlu
er hann hélt nemendum í lok
ferðarinnar, að þennan hóp eða
álíká fjölmennan, um 60 manns,
þyrfti hann að ráða á stundinni,
því að óleyst verkefni hlæðust
upp.
Jón Sigurgeirsson skólastjóri
þakkaði fyrir hönd Iðr.skólans
þá gestrisni sem sýnd hafði ver-
ið og bað þess að þetta fyrirtæki
efldist og styrktist bæjarbúum
og þjóðinni allri til góðs. Tóku
nemendur undir þessa ósk með
ferföldu húrrahrópi.
Þess má að lokum geta sem
dæmi um það, sem er að ger-
ast á þessum stað, að járnsmíða-
verkstæðið hefur risið upp á sl.
hálfu öðru ári og er nú eitt hið
fulkomnasía sinnar tegundar á
öllu landinu. Þar vinna um 40
útlærðir járnsmiðir, svo til allir
útskrifaðir frá Iðnskóla Akur-
evrar. □
UaiFERÐARRADARINN
Lögregía Reykjavíkurborgar er
nú að taka í noíkun tæki eiíí,
sem mælir og segir til um hraða
þeirra bíla, sem því er beint að.
Þetta er einskonar radar, hand-
hægur við athuganir í umferð-
irini, og mun verða lögreglu-
þjónum hið nýtasta tæki við
rahnsóknir ökuhraðabroía.
fÞRÓTTAMENN RÚNIR
H EIÐURSMERK JUM
Það þykir tíðindum sæta, að
austur í Russlandi hafa margir
frægir knattspvrnukappar ver-
ið'dæmdir úr leik ævilangt, þ. e.
fá 'aldrei að taka þátt í knatt-
spyrnukeppni framar. Örsökin
er i sú, að þessir menn urðu
drtíkknir á almannafæri. Þá
vorú af þeim teknir verðlauna-
gripir fyrir unnin afrek og þeir
máðir út af afrekaskrá í sinni
grein. Þetta er liður í herferð
gegn áfengisböli þar í landi.
DRAUMAVÍSAN
Fyrir nokkru birtist hér í blað-
inu draumavísa. Margir hafa
kannazt við hana, en ekki kunna
hana allir á einn veg. Og eng-
inn hefur getað sagt um upp-
runa hennar eða höfund fyrr en
Sigurður Gíslason á Akureyri.
Hann segir vísuna eftir Hákon
Hákonarson og hana sé að finna
í Mansöng við rímu af Reimari
inum sterka, 7. erindi og ort
1832. Hljóðar hún svona:
Þó að bíási stundum sfrangt
stormur rauna-frekur,
ekki þarf að þykja langt
það, sem enda tekur.
SKATTANEFNDIR OG
SPARNAÐUR
f upphafi „viðreisnarinnar" var
nijög gumað af því, að niður
yrði lagður mikill fjöldi skatta-
nefnda og öll skaííálagning fal-
in skattstofum. Var íalið, að af
þessu mjmdi niikill spamaður
fyrir ríkissjóð. Nú kemur í
Ijós, að kostnaður við hið nýja
fyrirkomulag reyndist árið 1964
nálega 8 millj. kr. meiri en hann
hafði verið áætlaður af fyrrver-
anái fjármálaráðherra. Um
Fyrr í haust mætti blaðamaður Dags þessum „hestamönnum“
ofan við Náttúrugripasafnið. Voru drengirnir að færa safn-
inu þennan uppstoppaða gæðing að gjöf. Drengimir heita
Haraldur og Jakob Haraldssynir. (Ljósm: E. Ð.)
I >
þeíía sagði M. J. „Það heíur
hins vegar komið í ljós, að upp-
hafíegar áætlanir um mjög veru
legan, beman útgjalda'sparnað af
þessum sökum hafa ekki reynzt
raunhæfar“. Það hefur hér kom
ið fram, sem Frarnsóknarmenn
sögðu, að sparnaðurinn við
breytinguna myndi verða minni
en engínn.
RÆNDABLÚBBSFUNDIR
Bændaklúbbsfundirnir eyfirzku
eru nú orðnir landskunnir, cg
það sem meira er þó um vert,
þeir eru einskonar búnaðarhá-
skóíi bændanna við Eyjafjörð.
Þar flyíja kunnir búvísinda-
menn erindi og síðan hefjast
umræður. Flestar nýjungar í
landbúnaði eru þarna kynníar
og margþætt reynsla bændanna
sjálfra er jafnan til umræðu.
Eyfirzku bændaklúbbsfundirnir
þjóna bæði þörfu og þýðingar-
miklu hlutverki.
BLÁMAÐUR SEM BÍTUR
OG SLÆR
Að sunnan berast þær fregnir,
að blámaður einn frá Banda-
ríkjunum, sem hér á landi hef-
ur dvalið um tíma, hafi biíið
hótelstjóra, sem sýndi honum
reikning fyrir mat og gistingu.
Á öðru hófeli fór á sömu Ieið.
Og nú er maðurinn kominn í
steininn og slítur hann þar af
sér handjárn og lumbrar á
fangavörðum.
Vegatollurinn 40 kr.
fyrir minnstu bíla
Á REYKJANESBRAUT verða
vegfarendur að greiða nýjan
toll, 49 kr. af litlum bílum cg
300 kr. fyrir stærstu farartæki.
Gjaldið er innheimt af bílunum
á suðurleið og er þá greitt fyr-
ir báðar leiðir — eftir nánari
reglugerð.
Vegagerð sú, sem hér um
ræðir er 270 millj. kr. mann-
virki, steyptur vegur, sem byrj-
að var að leggja 1960.
Mikið hefur verið rætt um
réttmæti hins nýja vegatolls,
enda nýmæli hér á landi. Þá er
bruni tollskýlis við hinn mikla
veg, settur í samband við heitar
umræður cg æsingar um málið.
Afmælishóf á Efsta-
landi í Öxnadal
Á SUNNUDAGINN . lét hinn
aldni bónai frá Skjaldastöð-
um flytja sig af Fjórðungssjúkra
húsinu á Akureyri út í Öxna-
dal, til þess að taka þar á móti
gesíum þeim, er hann vildu
heiðra áttræðan.
Gestur bóndi Sæmundsson á
Efstalandi og kona hans stóðu
fyrir móttökum af mikilli rausn
og þangað kom fjöldi manns.
Jón hefur dvalið all-lengi á
sjúkrahúsi og var þar tekinn af
honum annar fóturinn. Þangað
fór hann aftur að veizlu lokinni
og var vel hress. Q