Dagur - 29.01.1966, Blaðsíða 1
XLIX. árg. — Akureyri, Iaugardaginn 29. jan. 1968
— 7. tbí.
Dagur
kcmur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
mán. í lausasölu kr, 5.00
Aukin kjðisala til Norðurlanda
TALÐIR eru möguleikar á stór-
aukinni sölu dilkakjöts til Norð
urlandanna. T. d. munu 700 tonn
af því fara til Noregs og fyrir
hagstætt verð, en alls verða a.
m. k. 3000 tonn dilkakjöts seld
úr landi af framleiðslu ársins
1965. En það er meiri útflutn-
ingur á þessari vörutegund en
hefur verið undanfarin ár. —
Talið er, að markaðir fyrir
þessa vöru kunni að opnast veru
lega í Svíþjóð og jafnvel Dan-
mörku. Nokkurt magn kaupa
Færeyingar. Til Noregs hefur
jafnan verið selt saltað dilka-
kjöt. Nú verður selt þangað
fryst kjöt í fyrsta sinn. □
Niðursuðuverksm. á Egilsstöðum?
'Egilsstöðum 27. janúar. Fyrir
hálfum mánuði var haldinn borg
arafundur í Egilsstaðakauptúni.
Þar voru ræddir möguleikar á
stofnun niðurlagningarverk-
ingi kvatt saman
FORSETI íslands hefur samkv.
tillögu forsætisráðherra kvatt
Alþingi til framhaldsaðalfundar
mánudaginn 7. febrúar 1966 kl.
14.00.
BREZKIR TOGARAR
Á FIMMTUDAGSMORGUN
komu tveir brezkir togarar til
Akureyrar vegna vélarbilunar.
Auk þess var lítilsháttar leki
kominn að öðrum þeirra, en
hann mun hafa lent i smá-
ásiglingu við Færeyjar nýlega.
Togarar þesir eru af „eldri gerð
inni“. □
smiðju fyrir síld og aðrar sjáv-
arafurðir. Mál þetta fékk hinar
ágætustu undirtektir og voru á
fundinum kosnar nefndir til
undirbúningsstarfa.
Síðasta sunnudag var aftur
boðað til borgarafundar. Þar
lögðu nefndirnar fram sínar nið-
urstöður og hlutafélag var stofn
að, og voru á fundinum skráðir
23 stofnendur og er hlutafjár-
söfnun nú í fullum gangi í Egils-
staðahreppi og nærliggjandi
sveitum.
Framkvæmdanefnd var kjör-
in á síðari fundinum, og skipa
hana þessir menn:
Jón Helgason rafveitustjóri,
Páll Halldórsson skattstjóri,
Sveinn Jonsson oddviti, Gunn-
ar Gunnarsson kaupmaður og
Villhjálmur Sigurbjörnsson.
Verður nú gengið að því, að
afla fullnaðarteikninga og síðan
fjármagns til framkvæmda. V.S.
ísafjarðarkaupstaður varð 100 ára hinn 26. janúar og minntist þess á margvíslegan hátt þann
dag. Þar er fjölmennust byggð á Vestfjörðum og miðstöð margra þátta atvinnu- menningar-
lífs í þeim landshluta.
Alvarlegnr vatnsskortur á Akur-
e v ri vegna frostsins
Fólk beðið að eyða ekki vatninu að óþörfu
AKUREYRIN GAR eyða að
jafnaði 100 lítrum vatns á sek-
úndu frá lindunum góðu í Hlíð-
arfjalli. En nú renna aðeins 80
Stórbruni og sprengingar við Lagarfljót
Yerksmiðja og viðgerðarverkstæði eyðilagðist plastframleiðslu, fyrr en nýja
húsnæðið verður tilbúið.
angrunarplast fyrir Austurland. Hlutafélag á staðnum átti plast-
í smíðum er nýtt verksmiðju- verksmiðjuna, sem var í leigu-
hús. í athugun er að hefja á ný húsnæði. V. S.
Egilsstöðum 27. jan. Aðfarar-
nótt sl. miðvikudags, litlu eftir
miðnætti varð elds vart í íbúða-
hverfinu Hlöðum við Lagarfljót.
Eldurinn var í plastverksmiðj-
unni Ylur og brann hún ásamt
öllu því, sem í henni var, efni,
hálfunnum vörum og vélum.
Ennfremur brann gúmmívið-
gerðaverkstæði Vignis Brynj-
clfssonar er þar stóð, með því
sem í því var, þ. á. m. vörubif-
reið. Varð af öllu þessu mikill
eldur, enda sprungu olíugeym-
ar, er nærri stóðu. Slökkviliðið
á Egilsstöðum, sem kom á stað-
inn, er eldsins varð vart, fékk
ekki að gert, enda stóðu logar
upp úr húsunum, þegar að var
komið.
Plastverksmiðjan hefur starf-
að nær tvö ár og framleitt ein-
Stórhríð á Norðurlandi
í GÆR voru 11—12 vindstig á
Skagaströnd, 10 á Sauðárkróki
og 8—9 vindstig á Raufarliöfn.
Á Húsavík var hörkustórliríð,
einnig hvöss norðanátt og liríð
á Akureyri. □
Fjórtán millj. kr. j
gjöld og sektir j
Iijá fyrsta skattsvikarahópnum
i
í OKTÓBER sl. var þess getið í frétt hcr í blaðinu, að ríkis- |>
skattanefnd hefði hækkað tekjuskatt, söluskatt o. fl. g.'öld |
á 22 gjaldendum uni 6.8 millj. kr. IMál þessara aðila fóru
síðan til viðkomandi framtalsnefnda og hækkuðu útsvör
þeirra um 3.8 millj. kr. Ólokið er álagningu útsvara á 3
þeirra. Nú hefur nefnd sú, er ákveður sektir út af brotum á
söluskatti og skaítalögum afgreitt mál 19 fyrrgreindra manna
með þeim úrslitum, a.ð þeim hefur verið gert að greiða sektir
að fjárhæð u. þ. b. 3.1 millj. kr. Munu þannig heildarhækk-
anir á þessum gjaldendum nema nálægt 14 millj. kr.
ílér er um að ræða fyrstu máíin frá skattarannsóknar-
deildinni, sem fengíð hafa fullnaðarafgreiðslu hjá vsðkom-
andi yfirvöldum. Á næstu mánuðum mun mega vænta af-
greiðslu margra mála, sem nú eru að komast á lokastig í
raimsókn.
<í>
lítrar á sekúndu til bæjarins.
Vatn lindanna hefur minnkað
hin síðustu ár í svipuðu hlut-
falli og snjórinn í fjöllunum.
Nú leggjast frosthörkur á sömu
sveif og þær staðreyndir blasa
við, að okkur vantar fimmta
hluta þess vatnsmagns, sem við
erum vön að nota. Um þetta efni
er auglýsing frá Vatnsveitu Ak
ureyrar í blaðinu í dag.
Blaðið hafði tal af vatnsveitu
stjóranum, Sigurði Svanbergs-
syni, í gær og spurði hann nán-
ar um neyzluvatn bæjarbúa.
Staðfesti hann það sem hér er
að framan sagt. Hann sagði einn
ig, að nú í augnablikinu riði
mest á skilningi bæjarbúa og
góðu samstarfi borgaraima og
Vatnsveitunnar um að spara
vatnið. Ef þess væri gætt að
láta vatn ekki renna að óþörfu,
væri bæjarbúum tryggt nægi-
legt vatn. Reynt er að saína sem
mesíu vatni jrfir nóttina, fólk
þyrfti því að gæía þess einnig,
áð hafa ekki vatnskrana opna
um nætur. Hann sagSi: „Ég óska
eftir vinsamlegu samsíarfi við
bæjarbúa, til að fyrirbyggja
óþægindin af vatnsskortinum“.
Með öðrum orðum: Við kom-
umst af með 80 sekúndulítra
vatnSj ef það er ekki látið renna
að þarfiausu. Við það vatns-
magn verður við að una þar til
forsjóninni þóknast að sýna
meira örlæti — og þar til Vatns
veitan hefur. leyst málið með
(Framhald á blaðsíðu 2.)
VEGIRIEPPT-
IR í GÆR
SAMKVÆMT upplýsingum
Guðmuudar Benediktssonar
vcgaverkstióra á Akureyri í
gær, voru allar aðalleiðir á
landi Iokaðar um norðan-
vert landið vegna stórhriðar.
Ferðir allar milli Akureyrar
og Reykjavíkur lágu því
niðri, einnig milli Akureyrar
og Húsavíkur. Dalvikur-
mjólkurbílar sneru við
skammt innan við Dalvík í
gærmorgun og er haft fyrir
satt, að þá sé ckki öðrum
fært. í sveiíum við innan-
verðan Eyjafiörð var veður
skárra frainan af degi og
barst næg mjóik til bæjarins.
Strax og upp birtir verður
reynt að opna vcgin til
Reykjavíkur cg hjálpa þeim
mörgu bílum, scm nú bíða i
Fornahvammi, Bíönduósi og
hér á Akureyri, til þess að
komast Ieiðar sinnar. □
Leitað með ímndum
að póstinum
Á RAUFARHÖFN var í gær
hið versta veður, 9 vindstig og
grenjandi hríð. í fyrradag komu
þangað fjórir menn frá Hafnar-
firði með tvo hunda, þjálfaða
til leitar. Var þá enn víðtæk
leit gerð að hinum hoi-fna póst-
manni, en án árangurs. í gær
féll leitin niður vegna óveðurs.
Dagur
SÍAiAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (aígreiðsla)