Dagur - 29.01.1966, Page 5

Dagur - 29.01.1966, Page 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Súnar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgSarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiSsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Vltnin i Morgunblaðinu TALSMENN ríkisstjórnarinnar bregða andstæðingum hennar um, að þeir haíi, þegar stjómin hóf göngu sína, verið með hrakspar an tilefnis. Þeir hafi sagt, að stjórnar- stefnan mundi leiða til vandræða í efnahagsmálum, jafnvel atvinnuleys- is og skorts. Fráleitt er að þetta liafi rætzt, segja stríðsmenn stjórnarinnar. Og stundum bæta þeir við: Andstæð- ingarnir þóttust vera að vara við stjórnarstefnunni, en þeir hafa orðið sér til skammar, því hér er ekkert at- vinnuleysi og enginn skortur. En vom spárnar skakkar, þegar á allt er litið? Nei, reynslan heíur sýr.t, að rétt var lesið úr spilunum, eins og þau lágu fyrir á borðinu. Hins vegar gripu öfl inn í, sem enginn gat vit- að fyrir, að það mundu gera, og eng- in ríkisstjórn má reikna með. Sam- fellt aflagóðæri hefur verið ár frá ári og erlendir markaðir fyrir sjávarafl- ann opnari og hagíelldari með hverju ári, sem liðið hefur. Þess vegna hefur atvinna verið og enginn liðiö skort í venjulegri merkingu þeirra orða. En er það bónda að þakka, sem setur gálauslega á, þótt veðráttan verði, þegar til kemur svo góð, að bústofninn bjargist? Hugsum okkur hvernig ástandið væri í landinu, ef góðæris-gæfan hefði ekki gefizt. Og hvernig er ástatt þrátt fyrir góðærið? Lesið í Morgunblaðinu 14. janúar sl. grein Gunnars Friðrikssonar form. Félags íslenzkra iðnrekenda um stöðu iðn- aðarins við áramót. Staðan er ekki góðærisleg, enda játar sjálft blaðið það daginn eftir í leiðara og- ségir: „Það er vissulega áhyggjuefiíi“l Lés- ið líka það, sem Sjálfstæðismaðtiriiin Haraldur Böðvarsson, hinn mikli út'- gerðarhöldur á Akranesi, segir í Morgunblaðinu 22. jan. uití ástand- ið í fiskvinnslustöðvunum vegna láns fjárskorts, eftir hin miklu góðæri. Lesið ltvað sjómenn segja í blöðun- um um grundvöllinn fyrir rekstri báta af stærðinni 45—120 lestir. Lés- ið Alþýðublaðið 18. janúar og sjáið hvað Hanncs á Horninu hefur í því stjórnmálablaði að segja, um alkomu verkalýðsins „að ekki sé annað fram- undan fyrir lægst launaða fólkið en skera upp herör ... Kaup þeirra næg- ir ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynj- um“. Matsreglur og hundraðshluti lána af matsverði ÞEGAR bændur taka lán í Stofnlánadeild landbúnaðarins, er hámai'k lánsupphæðar, sam- Fjós og fjárhús Hlöður (þurrhey og vothey) Áburðarhús Geymsluhús Dráttarvélar með sláttutækjum Nýrækt og girðingar Vélgrafnir skurðir Til áburðai'húsa teljast fjár- húskjallai-ar, venjulega ca. 1 m á dýpt, ásamt grindum. Til geymsluhúsa teljast hér áburð- argeymslur, kjarnfóðurgeymsl- ur, vélahús, mjólkurhús o. fl. þ. h. Búnaðarbankinn eða þeir, sem hann hefir til ráðuneytis (teikni stofa, landnámsskrifstofa) meta búr.aðarmannvirkin ár hvert og síðan ákveða bankastjórar láns- upphæð. Umsóknum svai'ar bankinn bréflega, hvort lán vex’ði veitt eða eigi á árinu. Ef menn vilja vera öruggir um að lán fáist, þurfa þeir af hafa slíkt svar eða leyfi í höndum. Bændur, sem óska eftir láni á árinu 1966, áttu að vera búnir Fjós í I. fl. Fjós í II. fl. Fjárhús, vönduð með einangrun á þaki .... kr. Fjái'hús án einangrunar..................... kr. Grindakjallai’i með steyptu gólfi............kr. Grindakjallari með ósteyptu gólfi............kr. Hlöður í I. fl. allt að 450 m3.............. kr. Stærri hlöður í I. fl., viðbót við 450 m3..kr. Stálbogahús með járnklæðn- ingu eru metin 15% lægra en um hús hér að framan segir. Um fjósamatið tók Þ. B. þetta fram: í I. flokki teljast þau fjós, sem eru í alla staði vönduð að efni, einangrun og vinnubrögð- um. Skal einangrun örugglega varin gegn röku fjóslofti, og má t. d. ekki nota óvarið frauðplast. Um fjárhúsin segir hann, að gert væri ráð fyrir 37 cm rými á garða fyrir kind og matið við það miðað. Um þuri’heyshlöður tók Þ. B. fx’am, að rúm í risi væri ekki reiknað heldur aðeins rúmmál í vegghæð, en sé risið lægra en 2 m, eru 5% dregin frá virðingai’- upphæðinni. Aðspurður sagði Þ. B., að skipting á fjósum og hlöðum í I. og II. flokk færi eftir því, hve vönduð byggingin væri, og ef frágangur fullnægði ekki skil- yrðum þessax-a flokka, mætti bú ast við lægra mati en hér er til- greint. Þórir sagði, að byggingar- kdstnaður væri að sjálfsögðu nokkuð misjafn eftir staðháttum og öðrum skilyrðum, sem fyrir hendi væru hvex-ju sinni, og mætti búast við, að hinn raun- verulegi byggingarkostnaður væri sumstaðar meiri og sum- staðar minni en matsreglurnar segðu til um. Áður hafa trún- aðarmenn bankans í hverjum hreppi metið útihúsin, en nú væri matið framkvæmt af bygg- ingafulltrúum í umdæmum, sem kvæmt starfsreglum deildarinn- ar, sem hér segir: 60% af matsverði 50% af matsverði 40% af matsverði 50% af matsverði 30% af matsverði 30% af matsverði 20% af matsverði að sækja um það til bankans fyrir 15. jan. sl. Dagur taldi því tímabært, og til hagræðis fyrir bændur, að afla sér upplýsinga um það, hverjar matsreglurnar væru á þessu ári. Spurðist blað- ið fyrir um útihúsamatið lijá Þóri Baldvinssyni forstöðu- manni Teiknistofu landbúnaðar- ins í Reykjavík. í viðtali við blaðið sagði Þór- ir að matsreglur fyrir ái’ið 1966 væru enn ekki ákveðnar, en reglur þær, sem farið hefði ver- ið eftir á árinu 1965 hefðu verið þessar, að því er varðar algeng- ustu útihúsaframkvæmdirnar, þ. e. fjós, fjáx’hús og þurrheys- hlöður: kr. 13.500.00 á bás kr. 12.000.00 á bás 970.00 á kind 873.00 á kind 350.00 á kind 225.00 á kind 400.00 rúmm. 330.00 rúmm. LÖGREGLA bæjarins vill sér- staklega vekja athygli á 20. grein lögreglusamþykktar bæj- ai'ins. En þar segir svo: 20. gr. „Lögreglustjóra er heimilt að banna öllum óviðkomandi, sem eiga ekki brýnt erindi, umfei’ð út í skip, sem liggja í höfninni, frá kl. 20—8 á tímabilinu 1. október til 1. maí, en frá kl. 22 —8 á tímabilinu 1. maí til 1. október. Ennfremur getur lög- reglan jafnan bannað börnum innan 16 ára aldurs umferð um bryggjur og ferð út í skip og báta í höfninni, telji hún ástæðu ttl. Unglingum innan 16 ára er óheimill aðgangur að almennum knattboi’ðsstofum, dansstöðum og ölstofum. Þeim er og óheim- ill aðgangur að almennum kaffi stofum eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum, sem bera ábyrgð á þeim. Eigendum og umsjónarmönnum þessara stofn ana ber að sjá um, að ungling- ar fái ekki þar aðgang né hafist þar við. Börn yngri en 12 ára mega ekki vera á almannafæri seinna en kl. 20 á tímabilinu frá 1. októ ber til 1. maí og ekki seinna en kl. 22 frá 1. maí til 1. október nema í fylgd með fullorðnum vandamönnum. tækju yfir 2—3 sýslur. Mötin hefðu svo verið og væru endui’- skoðuð og samræmd syðra. Um áburðarhús, votheyshlöð- ur og geymsluhús sagði Þ. B., að gerð þeirra væri enn ekki komin í eins fast horf (stöðluð) og þeirra húsa, sem nefnd eru hér að framan, og því ekki um eins ákveðnar matsi’eglur að ræða. Súgþurrkunarkerfi í hlöðu væri metið eftir fermeti-a tölu þess sjálfs, en ekki lánað út á mótor eða blásai’a. En sam- kvæmt jai’ðræktarlögum fæst á árunum 1965—69 óafturkræft framlag % af stofnkostnaði alls kerfisins að meðtöldum mótor og blásai’a. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefir aflað sér hjá Búnað- arbankanum og lántakendum, voru ræktunarmannvirki þann- ig metin til lántöku á ái’inu 1965: Nýrækt 10 þús. kr. hektari. Gii’ðingar 14 kr. pi\ lengdarm. Vélgrafnir skurðii- 5 kr. pr. lengdarmetra. Lánin voru, eins og fyrr var sagt, 30% af matsverði nýi-ækt- ar og girðinga en 20% af mats- verði vélgrafinna skurða. Hámarkslán út á íbúðarhús í sveit, sem byi’jað var að byggja 1965 og síðar, er 260 þús. ki\, en til þeirra er einnig greitt óaftur- kræft framlag, sem getur orðið allt að 60 þús. kr. Q nafíiskirteinl Börn frá 12—14 ára mega ekki vera á almannafæri seinna en kl. 22 á tímabilinu frá 1. októ ber til 1. maí og ekki seinna en kl. 23 frá 1. maí til 1. október, nema í fylgd með fullorðnum vandamönnum. Þegar sérstaklega stendur á getur bæjarstjórn sett til bráða- birgða strangari reglur um úti- vist bama allt að 16 ára aldri. Foreldrar og húsbændur barn anna skulu að viðlögðum sekt- um sjá um, að ákvæðum þess- um sé framfylgt“. Ennfremur vill lögreglan vekja athygli á, að því aðeins eru nafnskírteini tekin gild, sem sönnun um aldur, að mynd viðkomandi sé fest á það, með stimpli lögreglustjóra. Ber dyra vörðum og umsjónarmönnum samkomuhúsa, að krefjast slíkra skilríkja ef vafi leikur á um aldur. r-i - Aðalfundur . . * (Framhald af blaðsíðu 8). þar sem með hann er verzlað“. í lok fundarins var kosin ný stjórn og skipa hana þessir menn: Sveinn Jónsson, bóndi, Egilsstöðum, Björn Kristjáns- son, bóndi, Grófarseli og Sævar Sigbjarnarson, bóndi, Rauð- hoití. n 5 „lOerkar í klípu” í Freyvangi í Eyjafirði ENGINN þarf að láta sér leið- «t, sem horfir á leiksýningu hjá Leikfélagi Ongulsstaðahrepps á leikritinu: Klerkar í klípu, eftir Philip King, sem frumsýnt var í Freyvangi síðastliðinn þriðju- dag. Þetta er gamanleikur af léttustu tegund, svo að ekki þarf að búast við djúpsærri lífs speki til að geispa yfir. Svona leikir eru ekki saman settir til annars en að gera að gamni sínu, og vissulega er það holit að velta af sér reiðingnum stöku sinnum og gera sér glaðan dag. Þetta sýndust mér leikhúsgest- irnir gera á frumsýningunni. Húsið lék á reiðiskjálfi af kát- ínu áhorfendanna. Þegar um skopleik er að ræða af þessari tegund (farsa), er meiri áherzla lögð á það að gera Fanney og Vignir í hlutverk- um sínum. Úlfar og Sigurður. Báðar mynd- irnar úr II. þætti. (Ljm.: N. H.) persónurnar spaugilegar en sennilegar, og þá heldur ekki ætíð hirt um, þó að talsverðir bláþræðir séu í sjálfri uppistöðu leiksins. En einmitt þess vegna geta viðvaningar í listinni oft gert leikjum af þessu tagi furðu lega góð skil með leiðbeiningu góðs þjálfara, og svo var í þetta sinn. Leiðbeinandinn var Jó hann Ögmundsson, en leikend- urvoru: Úlfar Hreiðarsson, sem lék séra Lionel Topp, Fanney Theodórsdóttir, sem lék Pene- lópu konu hans, Hólmfríður Guðmundsdóttir lék Idu, þjón- ustustúlku, Vignir Gunnarsson lék Clive Winton liðþjálfa, Gunnlaug Björnsdóttir ungfrú Skillon, Birgir Þórðarson lék biskupinn af Lax, Baldur Krist- insson lék lögreglumann og Sig urður Snæbjarnarson lék ókunn an mann. Enda þótt margt af þessu fólki sé nýliðar og hafi naumast kom ið á leiksvið fyrr, gerði það hlut verkum sínum svo góð skil með hröðum og fjörlegum leik, að áhorfendur skemmtu sér hið bezta, og er tilganginum þar með náð. Að lokum var leik- endum þakkað með dynjandi lófataki og leikstjóranum færð- ur fagur blómvöndur. Ekki er vert að segja of mik- ið af efni leiksins, því að það kynni að slæva forvitni þeirra, sem eftir eiga að sjá hann. Þess má þó geta, að klerkarnir eru hið kostulegasta samsafn fáráðl inga og biskupinn aumastur allra. Ekki er lögreglan heldur látin stíga í vitið. Kemur það í hlut prestfrúarinnar og vinnu- konu hennar að spila með þessa fugla og láta þær ekki allt fyrir brjósti brenna. Madaman er að vísu frænka biskupsins, en hún hefur það á móti sér að vera afdönkuð leikkona og er þess vegna litin mjög tortryggum augum í sókninni, enda er hún laus við að vera grandvör í orð um og þykir helzt til glanna- fengin. Inn í þetta kemur svo gamall kunningi hennar úr leik stússinu, hálfgalin en bráð- skemrhtileg piparmey, og nazisti af grimmustu tegund, ný sloppinn úr fangelsi, sem slær menn niður, hvern á fætur öðr- um. Allt stuðlar þetta að því að gera atburðarásina sem skop- legasta og rekur hvert hneyksl- ið annað á prestssetrinu. — En menn hafa líka gott af því að hneykslast og skopið er heilsu- samlegt mótvægi hræsninnar. Svona leikir eru góð til- breytni í skammdeginu og vel til þess fallnir að hrista af sér drungann. Benjamín Kristjánsson. - Bændahöllin (Framhald af blaðsíðu 8). og launagreiðslur eru 11—12 millj. kr. á ári. Hið svipmikla og fríða hús bændanna í höfuðborg landsins, auðveldar hina ýmsu félagsstarfsemi stéttarinnar og gefur henni nokkra reisn. Q GISTING í HÓLNUM ÍSLENZKI fjallarefurinn er duglegur að bjarga sér, svo mörgum hefur verið það lítt skiljanlegt, hvernig hann hafi lifað af hin mörgu harðinda- tímabil, þegar mennirnir gátu ekki hjálpað sínum dýrum til að lifa, naumast sjálfum sér, en lögðust á eitt með fimbulvetr- um til að útrýma hinu villta dýri fjallanna. Og fjallarefurinn er slægur, hefur mörg líf og er undarleg- um náttúrum gæddur, segja fornar sagnir. Eitur, skotvopn, bogar og grimmir hundar eru vopn manna gegn refum. En refurinn heldur velli. Stundum leggst hann á sauðfé. Margar sögur eru sagðar af viðureign manna og refa. Af þeim er auðséð, að þótt refur- inn sé illur og hataður, nýtur hann nokkurrar virðingar. Og víst er um það, að þar sem ref- urinn er, er ævintýra von. Ekki er langt síðan það bar við á Norðurlandi, er nú skal greina. Tvær vel vopnaðar grenjaskyttur héldu úr byggð og leituðu grenja. Gengu þeir á gömul gren, sem vitað var um, en urðu einskis varir. Að lok- inni langri göngu um fjöll og heiðar, voru þeir orðnir svo þreyttir, að þeir hugsuðu með gleði til gangnakofa eins þar á heiðinni, til að gista í um nótt- ina. Héldu þeir nú þangað. f kofanum, sem grafinn var inn í svolítinn hól, var þreytt- um gott að vera. Þar var nesti snætt og þreytan látin líða úr kroppnum. En sem þeir nú eru að hreiðra um sig undir nótt- ina, heyra þeir torkennileg hljóð, margbreytileg og dular- full. Hlusta þeir. á þetta um stund og hugsar hvor sitt, án þess að ræðast við. Ekki voru þeir smeykir, enda ekki hjátrú- arfullir og björt vornóttin ekki neinn uppáhaldstími drauga eða slæðinga. Samt datt þeim sitt hvað í hug, mönnunum tveim, og er þeir báru saman bækur sínar, fannst þeim hljóð- in líkjast masi tófuhvolpa í greni, en trúðu þó ekki sínum eigin eyrum. Önnur skyitan brá sér nú út, gekk að lind þar nærri og sótti vatn. Fannst honum þá hljóðin fjarlægjast. Hvort sem þeir töl- uðu um þetta lengur eða skem- ur, fannst þeim þetta allt með hinum mestu ólíkindum og sofn uðu áður en þeir leystu gátuna. Næsta morgun vöknuðu skytt- urnar snemma og litu út. Veð- ur var hið fegursta. Nú var ríslað með potta og könnur, kaffi hitað og áætlun lögð fyrir grenjaleit þann daginn. Það, sem fyrir hafði borið kvöldið áður, var eins og draumur. Samt bar það nú við, að þeir greindu sömu hljóðin, ,ef :-þiéir höfðu hljótt um sig. Tók riu sú hugsun að sækja á huga þéiri-a, í alvöru, að tófugreni myndi á næstu grösum, þótt ótrúlegt væri. Gengu þeir nú stóra hringi og síðan smærri, allt umhverf- is, en heyrðu ekki neitt eða sáu, er til þess benti. Fóru þeir enn inn í kofann og enn heyrðu þeir hið sama og áður. Gat verið, að tófa hefði lagzt fast við gangnamannakof- ann? Ómögulegt — það reynd- ist nú samt svo. Grenið var í sama hólnum og kofi gangna- manna. Menn og dýr höfðu val- ið sér sama staðinn, grafið sig saman svo vel heyrðist á milli. Þetta var nýtt grenj og það reyndist rebba og tófu vondur staður, því áður en sól gekk til viðar, var fjölskyldan fallin nema refurinn, sem náðist aldrei. Barátta við ólæsi (Framhald af blaðsíðu 2). lögð mest áherzla kennslumála millistigs og æðsta stigs, og í Arabalöndunum var veittur styrkur til miðstöðvar æðri menntunar í Beirut og til fræðslumiðstöðvar nálægt Kaíró. Þá má enn nefna, að Palestínu-flóttamönnunum veitt ust víðtækari möguleikar til menntunar fyrir samstarf UNESCO við Hjálparstofnun Palestínu-flóttamanna (UNR- WA). Á árinu 1965 komst meðlima- tala UNESCO upp í 120 ríki. | Mill j ónamærin gur | Saga eftir ARNOLD BENNETT að Minnie og Marmion höfðu boðið honum byrginn og þverskallazt. . . . — Bíddu! þrumaði hann og þrammaði inn í svefnherberg- ið. Hann reif lyklakippuna úr vasa sínum á leiðinni. Pen- ingaskápur hans var í svefnherberginu. Þegar hann kom aft- ur inn í stofuna, hélt hann á erfðaskránni. Hún var ekkert stórkostlegri öðrum skjölum að sjá. Hann fletti henni sund- ur og barði á blaðið með flötum lófa. — Sérðu Jaetta? sagði hann. Þetta blað gildir fimmtíu Jdús- und pund á ári fyrir jiig. En að mínútu liðinni er Jraö einsk- is virði, Jdví að ég brenni Jiað. Ég ætla að gefa mestan hluta eigna minna meðan ég er ofan moldar, en það, sem eftir verður, fer til góðgerðastarfsemi samkvæmt nýrri erfðaskrá. Ilann hélt áfram að berja blaðið með flötum lófa og æpti hástöfum. — Líttu á það! Lestu Jaetta! Líttu bara sem snöggvast. . . . Einmitt á Jiessu augnabliki gekk Samuels í stofuna með bréf, sem komið hafði með sex-póstinum. Mr. Hollins, sem kannaðist við umslagið, hrifsaði Jsað til sín, en fleygði frá sér erfðaskránni. Bréfið var, eins og hann hafði getið sér til, frá mr. Shelton Shelton. Hann sýndi Minnie Jsað sem frekari sönnun um ætlun hans og ráðagerðir. Bréfið hljóðaði á þessa leið: „Kæri mr. Hollins. Með tilvísun til hins ánægjulega samtals okkar, leyfi ég mér að taka fram, að ég met mjög mikils ósk yðar um að láta mér í té svo mikla fjárhæð sem hálfa milljón punda, sem nota á til eflingar góðgerðastarfsemi minnar. Þetta er vottur um meira traust en mér hefur oftast áður verið sýnt og er mér mikil hvatning ti! Jsess að einbeita mér enn ötul- legar að æviafreki mínu. Ef þér vilduð vera svo góður að hitta mig um fjögurleytið á morgun, þá skal ég leggja fram greinargerð varðandi það, hvernig fé þessu yrði varið. Einn- ig væri gott, ef þér þá gætuð tjáð mér, hverjar ráðstafanir þér hafið í hyggju varðandi afhendingu hlutabréfa þeirra, eða annarra eigna, sem hér væri um að ræða. Ég kveð yður, kæri mr. Hollins, með vinsemd og virðingu. I. Shelton Shelton." Viðtakandi bréfsins stóð á öndinni, reyndi að segja eitt- hvað, en gat Jrað ekki, stappaði bara fætinum æðislega í gólfið, kramdi bréfið í kúlu í hnefa sínum og fleygði Jdví í eldinn. Umslagið fór sömu leið. Það var hræðilegt að horfa á þetta mállausa æði, svo hræðilegt, að Minnie gat ekki á sér setið, en reis á fætur og hrópaði: — Pabbi! Hún hafði aldrei á ævi sinni séð neitt líkt þessu. Kippir fóru um andlit gamla mannsins, og það virtist allt þrútna. Hálsæðarnar tútnuðu út..Hann andaði í rykkjóttum sogum, og augun ranghvolfdust í höfðinu. Ofsalegar tilraunir hans til þess að mæla einhver orð af vörum enduðu í skjálfta, er fór um allan líkama hans og gerði hann svo lémagna, að loks hneig hann niður í hægind^stólinn. Minnie kraup niður við kné hans og uppgötvaði, að hann hefði drukkið viskí. Hún hringdi, og þegar ekki var svarað samstundis, stökk hún fram á loftskörina. — Samuels! Samuels! Pabbi er mikið veikur. Ég held hann hafi fengið krampa. Símið strax eftir lækni. Rödd hennar bergmálaði í húsinu. Hún heyrði fótatak og skark á neðstu hæðinni. Þegar hún kom aftur inn til föður síns, var enni hans náfölt og hendurnar bláar. Hún reyndi að hagræða hægra fæti hans, sem snúizt hafði undir honum. En fóturinn var jDiingur sem blý. Faðir hennar var meðvitundarlaus og lamaður. Hálftíma síðar, fáeinum mínútum eftir komu læknisins, dó mr. Hollins. Óskammfeilni og hégómaskapur.mannvin- arins mikla hafði orðið hans bani. Marmion kom ekki fyrr en fullri klukkustund síðar. Mr. Hollins hvíldi í sæng sinni. Öllu hafði verið vel fyrir komið. Allt í bezta lagi. ; — Kvaggí! hvíslaði Minnie og brast í grát. En grátur hennar var ekkalaus og tár. hennar Joornuðu eins og rekjan eftir skyndiskúr á sólheiðum sumardegi. Marmion hafði bara aldrei séð hana gráta fyrr, og enginn í húsinu. Hann vafði hana ntjúklega örmum. Hún var sorgmædd vegna gamla mannsins, sem örlögin höfðu fellt svo hranalega. Ef visst bréf hefði ekki komið á vissu augnabliki, hefði hann getað eyðilagt iífc hennar. Hún var að velta því fyrir sér, hvað mundi hafa- staðið í Jressu bréfi. — Það er alltof áhættusamt fyrir þig að standa í Jsessu, elskan mín, sagði maður hennar. Komdu með mér. Hún endurheimti rósemi sína og stillingu. | — Hvaða blað ertu mfð? spurði hún. — Það er erfðaskráin. Hún sneri sér frá rúnainu. Hún viðurkenndi hyggindin í ráðunt eiginmannsins. Hugsunin um hina miklu ábyrgð, sem fylgir miklum. au,ðæfum og hugsunin um hlutverk hennar sem verðandi móðir vöktu hátíðlegar kenndir í sál hennar. Hún hallaði sér ástúðlega að breiðum barmi Mar- mions Coggleshall. Hann lokaði lutrðinni á herbergi Jrví, sem geymdi jarðneskar leifar þessa hálftrölls, sem nú var magnþrota. — Aumingja karlinn, tautaði Marmion fyrir munni sér, Jrví að hálft í hvoru dáði hann Jrá víkingslund, sem stund- um birtist í villimennskunni. Og hann var ein af Jjessum einföldu sálum, sem minnast Jress og viðurkenna, að við erum öll Skaparans börn, hvert með sínum hætti. Endir. j

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.