Dagur - 24.09.1966, Síða 7

Dagur - 24.09.1966, Síða 7
7 - Viðfðl við búnððarmálasfjóra (Framhald af blaðsíðu 1). auð í fyrravetur og frost gekk dýpst í jörðu. Svo var vorið kalt svo jarðargróður var seinn til vaxtar og þrif búfjár miður en skyldi. Á túnræktuðum mýr um kom áburður víða að litlu gagni. Enn er klaki í lágsveit- um á Suðvesturlandi. Háar- spretta varð óvíða meiri en til kúabeitar og naumlega það. Kartöfluuppskeran er víðast hvar á landinu mjög lítil. Heyfengurinn er svo rýr um land allt, að mjög lítið er falt og verðið mun.hærra en í fyrra. Það skyldi enginn treysta því, að geta keypt hey á næstu út- mánuðum að þessu sinni. Þetta skyldu allir búfjáreigendur hafa í huga nú, og haga ásetn- ingi samkvæmt því, hvaða bú- grein sem um ræðir. Sýnilegt er, að bændur verða að fækka á fóðrunum í haust. Ég vil leggja áherzlu á, hvar sem er á landinu, að menn setji vel á. Hver og einn verður að sjá sér farborða. Fóðurforðinn einn verður að ráða því, hvað sett er á vetur nú í haust. Ástæðulaust er fyrir bændur að fækka kúm sínum vegna „smjörfjallsins" í stórum stil. En þegar þarf að fækka á ann- að borð, er sjálfsagt að ganga heldur á kúastofninn en fjár- stofninn, með því að lóga göll— uðum kúm og lélegum. Gæta þarf hófs í að gera of stórar byltingar í búskapnum. Síðasta vetur var fleira fé á fóðrum hér á landi en nokkru sinni áður, eða nokkuð yfir 800 þús. fjár. Margt vár tvílembt í vor og um 17—1800 þús. fjár á fjalli í sumar. Sláturfé á Suður- og Vesturlandi er mun rýrara en í fyrra og ber mikið á mjög lélegum lömbum. Austanlands munu dilkar sæmilega vænir, fremur rýrir á austanverðu Norðurlandi, en sæmilegir á Norður- og Norðvesturlandi. Jarðklaki og kuldi kom harð- ar niður á erlendum grasteg- undum túnanna, en innlendu tegundunum. Að síðustu, og það vil ég und irstrika: Látið fóðurmagnið ráða ásetningi, segir búnaðar- málastjórinn að lokum og þakk ar blaðið upplýsingar hans og heiiræði. □ - Kartöfluuppskeran brást (Framhald af blaðsíðu 1) um stöðum en algengast var og iengdist þar sprettutíminn nokkuð. Margir bændur við Eyjafjörð tapa nú tilfinngnlega á kartöflu ræktinni. En í heild mun kart- öfluuppskeran á landinu öllu naumast helmingur af því, sem hún var á sl. ári. Margt ber til, en þó einkum þetta: Það voraði seint og klaki var lengi í jörð svo að óvíða var unnt að setja niður kartöflur nægilega snemma, sumarið var kalt og næturfrost komu snemma. □ BókmenntaviðburSur í gær kom út ný ljóða- bók eftir þjóðskáldið Davíð Stefónsson frá Fagraskógi, sem heitir SÍÐUSTU LJÓÐ. En handrit að bók- inni fannst að skáldinu látnu og hafa Ijóð þessi, alls f45 að tölu, ekki birzt fyrr á prenti. Þetta er stór bók, 308 blaðsíður og prentuð á góðan pappír. Hún er bundin í fallegt band. KOMIÐ SEM FYRST OG TRYGGIÐ YÐUR EINTAK. BÓKAVERZLUNIN EDDA SKIPAGATA 2 . SÍMI 1-13-34 . AKUREYRI VERZLUNAR- 0G SKRIFSTOFUFÓLK . AKUREYRI Félagsfundur verður í Alþýðuliúsinu mánudaginn 20. sept. íkl. 20,30. Fundarelni: Kosnir 3 aðalfulltrúar og 3 varaíulltrúar á 30. þing ASÍ. Stjómin. Vogmeyjar rekur við Eyjafjörð NÁTTÚRUGRIPASAFNINU hafa í sumar borizt nokkrar fyr irspurnir vegna einkennilegra fiska, sem rekið hefur, í ná- grenni Akureyrar og víðar í firðinum. Eftir lýsingum að dæma, hef ur hér oftast verið um að ræða fisk, sem gengur undir nafninu vogmeri eða vogmær en á fræði máli kallast Trachypterus arcticus. Fiskurinn er auðþekktur á löguninni, sem er h'k hnífsblaði, og htunum; silfurgljáandi búk- ur og rauðir uggar. Auk þess eru augun mjög stór. Heimkynni vogmeyjarinnar eru hin dimmu djúp í hafinu milli Noregs og íslands, eri straumar virðast geta borið hana upp á grunnin, og jafnvel inn í firði, eins og hér eru dæmi um. Verður hún þá ósjálfbjarga, og endar venjulega líf sitt með því að hana rekur uþp á ein- hverja fjöruna. Vogmærin getur ekki talizt vera mjög sjaldgæfur fiskur hér við land, enda mörg dæmi um að hana hafi rekið, jafnvel í stórum stíl. Árið 1912 rak t. d. 10—20 fiska á Dalvík og ná- grenni. Heldur þótti vogmeyjareki fyrir illum tíðindum, hér fyrr á árum. □ TVÖ HERBERGI helzt -samliggjandi, ÓSKAST TIL LEIGU. Uppl. í síma 1-24-52 Menntaskólanemi óskar eftir herbergi til leigu. Ujiplýs. í sírna 4-12-32 Kópavogi. SVEFNSÓFI til sölu í Brekkugötu 19, neðstti hæð. Til sölu: Hoover þvotta- vél, með handvindu. Uppl. í síma 1-28-84. Til sölu úr Opel ’55: Mótor, gírkassi, drif o. fl. Einnig Pedegree barna- vagn. Uppl. í síma 2-11-62. Til sölu: Barnavagn, barnakerra og páfagauk- ur í búri. Uppl. í síma 1-28-58. Notað uppsláttartimbur til sölu. Selst mjög ódýrt. Steindór Kr. Jónsson Sími 1-15-05 HULD ga 59669287 — IV-V Fjárhst. HJÓNAEFNI. Nú nýlega hafa kunngjört heitbindirigu sína ungfrú Dýrleif Bjarnadóttir píanóleikari, og Örn Ingi Gíslason bankastarfsmaður. HARPA heldur bazar sunnu- daginn 2. okt. kl. 4 í Geisla- götu 5. Félagskonur vinsam- legast skilið munum sem fyrst. Nefndin. GOLFKLÚBBUR Akureyrar. Keppni um Stigabikarinn á laugardaginrt 24. Vept. k-lj 1.30 eftir hád. Kappleikjanefnd. GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar þingaprestakalli. Kaupangi, sunnudaginn 2. okt. n. k. kl. 2 e. h. Munkaþverá, sunnu- daginn 9. okt. kl.’ 1.30 e. h. PRESTKOSNING í Hríseyjar- prestakalli. Prestkosning fer fram í Hríséyjarprestakalli sunnudaginn 2 okt. n. k. Um- sækjandi er einn, séra Kári Valsson. Kjörfundir Jiefjast kl. 1 eftir hádegi og verðúr kosið í sóknarkirkjunum. DÝRALÆKNAVAKT næstu helgi, kvöld og næturvakt næstu viku hefur Ágúst Þor- leifsson, sími 11563. TAPAÐ GULLRHINGUR merktur „Eirílkur" tapað- ist s.l. miðvikudag. Skilist á afgreiðslu Dags. NÝSKOÐAÐUR FORD JUNIOR árgerð 1941, til sölu. Sími 1-15-12. QPEL REKORD, A 505, TIL SÖLU. Rambler-umboðið. Sími 2-13-44. OPEL REKORD. Til sölu er Oper Rekord, árg. 1955, með nýjum mótor. Uppl. í síma 1-20-24. TIL SÖLU OPEL KADET, árgerð 1963. Ekinn aðeins 13 þús. km. Upplýsingar í Timbur- afgreiðslu KEA. RANDVER JÓHANNESSSON fyrrum bóndi í Hleiðargarði í Eyjafirði, nú á Dvergsstöð- um, varð sjötugur 22. sept. sl. MINNINGARSPJÖLD kvenfé- lagsins Hlífar. Öllum ágóða varið til fegrunar við bama- heimilið Pálmholt. Spjöldin fást í bókabúð Jóhanns Valde marssonar og hjá Laufeyju Sigurðardóttur Hliðargötu 3. MINNINGARSJÓÐUR Jakobs Jakobssonar. — Minningar- spjöld fást í Verzluninni Ás- byrgi h.f., og Bókaverzlun Jóhanns Valdimarssonar. MINNINGARSPJÖLD Hjarta- og æðasjúkdómsvarnarfélags- ins fást í öllum bókabúðum bæjarins. MINNINGARSPJÖLD Fjórð- ungssjúkrahússins á Akur- eyri fást í Bókaverzlun Jó- hanns Valdimarssonar og á skrifstofu sjúkrahússins. MINNINGARSPJÖLD Minn- ingarsjóðs Guðmundar Dags- sonar fást í Kristneshæli og á Akureyri í Bókaverzlun Jóhanns Valdimarssonar og hjá Jórunni Ólafsdóttur Brekkugötu 19. MINNINGARSPJÖLD Styrkt- arfélags vangefinna fást í Bókabúð Jóhanns Valdemars sonar og í Verzluninni Fögru hlíð í Glerárhverfi. HKEPPTI SÝNING- ARLAMPA HÉR í blaðinu var áður sagt frá konu frá Akureyri, sem hlaut hálsmen í verðlaunagetraun á iðnsýningunni í Reykjavík, sem ■ lauk sl. sunnudag. Á sýningunni hlaut önnur kona frá Akureyri happdrættisvinning næstsíðasta sýningardag, sýningarlampa frá Stálumboðinu. Sú heppna var frú Sigriður Ingimarsdót’tir Víðimýri 9, og lampinn hinn ágætasti gripur. □ REGLULEGT „TRYLLITÆKI“ HÉR á Akureyri var nýlega sýnd kvikmynd af loftpúðabíl , — þ. e. farartæki, sem fer jafnt á landi og sjó. En slík tæki eru í notkun á vötnum og fljótum á nokkrum stöðum úti í heimi. Allt upp í 500 farþega trylli- tæki af þessari gerð, er nú verið að undirbúa smíði á. Vélsmiðja Njarðvíkur kynnti hið nýja farartæki og hefur fengið söluumboð fyrir þau frá British Hovercraft Co. Ltd. Q ÓVENJU MIKIÐ ÚRVAL AF HAUST- OG VETRARKÁPUM DRÖGTUM OG JÖKKUM ÚR ULL OG GERVI-RÚSKINNI NÝ FJÖLBREYTT SENDING AF KJÓLUM Á MÁNUDAG VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.