Dagur - 03.12.1966, Side 1
HOTEL
H«rbergis-
pantanir.
Ferða-
skriístofan
Túngötu 1.
Akureyri,
8ími 11475
XLIX. árg. — Akureyri, laugardaginn 3. desember 1966 — 86. tbl.
Ferðaskrifstofan
Túngötu 1.
Siml 11475
Skipuleggjum
ierðir skauta
á millL
Farseðlar með
FlugféL ísL og
Loitleiðum.
FRÁ BÆJARSTJÖRN
Á FUNDI bæjarstjórnar Akur-
eyrar í fyrradag voru mörg mál
tekin til afgreiðslu og er hér
minnzt á nokkur:
Lánveitmgar úr Byggingalána-
sjóði.
Teknar voru fyrir umsóknir
um lán úr A-deild Bygginga-
lánasjóðs bæjarins, sem aug-
lýst hafði verið eftir. Alls bár-
ust 126 umsóknir um lán.
Samþykkt var að úthluta 83
lánum, sem skiptist þannig:
73 lán á kr. 30.000 = 2.190.000
4 lán á kr. 20.000 = 80.000
6 lán á kr. 15.000 = 60.000
Samtals úthlutað 2.360.000
Fram kom í ræðu á fundin-
um að vænta megi, að útlán úr
sjóðnum hefjist um miðjan
þennan mánuð.
Krossanesverksmiðja.
Borizt hafði bréf frá formanni
Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri dags. 15. nóv. sl. þar sem
bæjarstjórn er tilkynnt sam-
þykkt sem gerð var á fundi í
félaginu 13. þ. m.
í fundarsamþykktinni er mót
mælt hai'ðlega þeirri ákvörðun
stjórnar Síldarverksmiðjunnar í
Krossanesi að loka verksmiðj-
unni og skorar fundurinn jafn-
framt á bæjarstjórn að hlutast
til um, að þessari ákvörðun
verði breytt og verksmiðjan
starfi áfram svo lengi sem hrá-
efni býðst.
Nokkrar umræður urðu í
bæjarstjórn um þetta mál.
Vegna mikilla óseldra birgða er
fjárhagur verksmiðjunnar erfið
ur og lokun hennar ekkert fljót
ræði. Bæjarstjórn vísaði mál-
inu frá.
íþróttaskemman.
Tekin var fyrir fundargerð
bygginganefndar íþrótta-
Lokuii búða á laugar-
dögurn í desember
VERZLANIR á Akureyri eru
opnar eins og hér segir í desem
bermánuði:
Laugardaginn 3. des. til kl. 16.
Laugardaginn 10. des. til kl. 18.
Laugardaginn 17. des. til kl. 22.
Þorláksdagur 23. des. til kl. 24.
Athygli skal vakin á því, að
Kjötbúð KEA og kjörbúðir í
úthverfunum ásamt Raflagna-
deild, Byggingavörudeild og
Véladeild eru opnar eins og hér
segir:
Laugardaginn 3. des. til kl. 12.
Laugardaginn 10. des. til kl. 16.
Laugardaginn 17. des. til kl. 18.
ÞorJáksdagur 23. des. til kl. 24.
Með þessu er komið lengra til
móts við óskir margra í jóla-
kauptíðinni en t. d. í kjöt- og
nýlenduvöruverzlunum í höfuð
borginni. □
Hér er á annað hundrað tonn öls á ýmsu stigi. (Ljósm.: E. D.)
á morgun, sunnudag
í DAG koma hingað til bæj-
arins stjórnarmenn Sam-
bands ungra Framsóknar-
manna. Formaður Sambands
ins, Baldur Óskarsson, enn-
fremur Ólafur Ragnar Gríms
son og Björn Teitsson, munu
flytja erindi og ávörp á al-
mennum fundi á Hótel KEA
á morgun, sxmnudag, kl. 2
eftir hádegi. Allir velkomn-
ir. Sunnanmenn munu nota
tíma sinn hér á Akureyri til
að kynna sér atvinnu- og
menningarlíf í bænum og
ræða við ungt fólk eftir því
sem tími vinnst til. Félag
ungra Framsóknarmanna á
Akureyri mun greiða götu
sunnanmanna, á meðan þeir
dvelja hér. □
Dansað af kappi á Þórshöfn
Gunnarsstöðum, Þórshöfn, 2.
desember. Stórhríðarveður er
hér í dag og einn versti dagur-
inn. Nú eru að koma skaflar og
færi innan sveitar er óðum að
þyngjast. Dansnámskeiði í Þórs
höfn lauk í gær og voru þátt-
takendur ánægðir með það.
Fyrst og fremst voru það skóla
börn úr þremur hreppum, sem
nutu danskennslunnar, en þar
að auki um 50 fullorðnir og
ekki síður sveitafólkið. Elzti
nemandinn mun hafa verið Sig
urður Jónsson oddviti á Efra-
lóni. Það verður áreiðanlega
mikið dansað hér á næstunni.
Kennarar voru tvær ungar kon
ur frá Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar, Svanhildur og Sig-
rún að nafni. Hingað var ekki
flogið í 8 daga, kom þó flugvél
hingað í gær og var það áætl-
unarvél til Kópaskers, sem tók
hér farþega.
Fyrir rúmri viku var farið í
eftirleit og fundust 8 kindur
Grunur er um fleira fé og bíða
menn þess að meira snjói því
að þá er hægt að leita á snjó-
bíl. Ó. H.
FÆRI ÞYNGIST
ALLIR bílar munu hafa komizt
leiðar sinnar í gær milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur með
hjálp Vegagerðarinnar í Langa
dal. Til Húsavíkur var stórum
bílum fært í gær, Dalsmynnis-
leið, en Vaðlaheiði er ófær, Á
Dalvíkurvegi er trukkum ein-
um fært. □
MIKIL AÐSÓKN
LEIKFÉLAG AKUREYRAR er
búið að sýna „Koss í kaupbæti“
fjórtán sinnum við mjög mikla
aðsókn og er ekkert lát þar á.
Er því sýnilegt, að sýningar
verða óvenju margar á þessum
létta gamanleik. Næstu sýning-
ar eru nú um helgina. □
skemmu dags. 13. okt. sl., þar
sem óskað er heimildar bæjar-
ráðs til óframhaldandi fram-
kvæmda við innréttingu skemm
unnar, en talið er að kostnaður
við að ljúka verkinu muni nema
ca. kr. 1.500.000.00, en útlagður
kostnaður er nú kr. 3.300.000.00.
Bæjarráð leggur til að fram-
kvæmdum við skemmubygging
una verði frestað að sinni,
vegna greiðsluerfiðleika bæjar-
sjóðs.
Framangreindu beindi bæjar
stjórn aftur til bæjarráðs vegna
nýrra upplýsinga í málinU. Von
ir standa til, vegna rýmri mögu
leika á fé til framkvæmdanna,
að ekki þurfi að stöðva verkið.
Frá vinstri: Magnús Þórisson, Henning Nielsen, Börkur Eiríksson, Eysteinn Ámason, Eyþór Tómas-
son og Jón M. Jónsson. Framleiðsluvörur Sana á borðinu. (Ljósm.: E. D.)
Hafnarvörður og varaslökkvi-
liðsstjóri.
Bæjarstjórn kaus Bjöm Bald
Nýja ölið er aS koma á markaSinn
Og sterkt öl verður framleitt til útflutnings
vinsson sem hafnarvörð í stað
Þorsteins Stefánssonar og Tóm-
as Búa Böðvarsson fyrir vara-
slökkviliðsstjóra í stað Jóns H.
Þorvaldssonar.
Bæjarstjórastarfið auglýst.
Bæjarstjórn samþykkti, að
starf bæjarstjóra á Akureyri
verði auglýst laust til umsókn-
ar frá 1. febrúar 1967. Umsókn-
arfrestur verði til 31. desem-
ber næstkomandi.
(Framhald á blaðsíðu 7.)
í GÆR var fréttamönnum á
Akureyri boðið að bragða hið
nýja öl, sem byrjað er að fram-
leiða í Sana. Hér er um tvær
tegundir öls að ræða, Thule-
lageröl og Maltöl. Þetta er góð
framleiðsla og aldrei þessu vant
geta Akureyringar og nágrann-
ar drukkið ódýrara öl en aðrir
landsmenn um þessi jól, sem
munar einni krónu á flösku,
vegna staðsetningar verksmiðj-
unnar.
Sana-verksmiðjan var stofn-
uð 1936 á Siglufirði en var flutt
til Akureyrar sjö árum síðar.
Hér hefur hún framleitt gos-
drykki og efnagerðarvörur. En
í apríl sl. voru hafnar fram-
kvæmdir í verksmiðjuhúsinu á
Gleráreyrum og undirbúin
bruggun nýrra tegunda drykkj
arfanga með tæknilegri aðstoð
þekktra sérfræðinga frá Kaup-
mannahöfn. Nú eru vélar allar
tilbúnar og eru þær miklar og
vandaðar, og geta skilað 40 þús.
flöskum gosdrykkja eða öls á
dag.
Stjórnarformaður Sana, Ey-
þór Tómasson, bauð fréttamenn
velkomna, en Henning Nielsen
ölbruggmeistari skýrði fram-
leiðsluaðferðir öls, og Eysteinn
Árnason framkvæmdastjóri
Sana sagði frá framleiðslu,
rekstri og dreifingu. En á með-
an sötruðu fréttamenn ölið og
þótti gott.
Sana framleiðir 7 tegundir
gosdrykkja eins og áður og auk
þess tvær áðurnefndar ölteg-
undir og einnig sterkan bjór til
útflutnings. Ö1 það, sem selt
verður á innlendum markaði
kemur í verzlanir eftir nokkra
daga og sterki bjórinn verður
framleiddur áður en langt um
líður. Geymar öls í verksmiðj-
unni taka hátt á annað hundr-
að tonn og eru þar nú yfir 100
tonn á ýmsum stigum fram-
leiðslunnar. Sjálfvirkni er
þarna á háu stigi og hreinlæti
ætti því að vera tryggt. Brugg-
meistari verður Magnús Þóris-
son. Sölustjóri er Börkur Eiríks
son. Umbúðakassar eru úr
plasti
Dagur óskar hinu nýja fyrir-
taeki til hamingju með starfsemi
sína og framleiðslu. □