Dagur - 20.06.1968, Blaðsíða 5

Dagur - 20.06.1968, Blaðsíða 5
4 S Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaSur: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. „Gæti þetta gerzt liér” MORGUNBLAÐIÐ veltir fyrir sér þeirri spumingu, hvort hér á landi gætu gerzt svipaðir atburðir og í Bretlandi, að ráðherrar víki úr sæti vegna málefnalegs ágreinings. Gísli Magnússon ræðir þetta nánar í Ein- herja og segir m. a.: „Nei, það hefur ekki gerzt síðan í árslok 1958 að ráðherrar hafi látið „málefnin ráða, en ekki persónuleg- ar vegsemdir“. Þá baðst Hermann Jónasson lausnar vegna þess að hann fékk ekki samstöðu í ríkisstjóminni um nauðsynlegar ráðstafanir til að stöðva verðbólguna. Hann lét „mál- efnin ráða“. Þá tók við íhaldsstjórn. Alþýðu- flokkurinn skreið þá undir klæða- fald íhaldsins og hefur kúrt þar síð- an. Sú stjóm hét því hátíðlega að stöðva alla verðbólgu. Það heit hefur verið efnt með þeim hætti, að svik- um hefur sífellt verið bætt á svik ofan, allt til þessa dags. Þannig er af- staða stjórnarinnar til „málefnanna“ annars vegar og „persónulegra veg- semda“ hins vegar. Sitthvað var það fleira, sem ríkis- stjórnin letraði stórum stöfum á stefnuskrá sína. Allar niðurgreiðslur og uppbætur skyldu af teknar og at- vinnuvegunum komið á svo traustan grunn, að eigi þyrfti til að koma beinn fjárstuðningur af opinberri hálfu. En um það fyrirheit hefur far- ið svo, að niðurgreiðslur og uppbæt- ur í einhverri mynd nema nú á ann- að þúsund milljónum króna. Svo miklu þýðingarmeiri eru ráðherra- stólarnir — hinar „persóntdegu veg- semdir“ — en stefnuskrármálin. Ann- ars er það svo um niðurgreiðslurnar, að þær eru hreyfanlegar nokkuð eftit því, hvemig á aljíingiskosningum stendur: Fyrir kosningar eru niður- greiðslur hækkaðar, eftir kosningar lækkaðar. Enn er það stóla-pólitíkin, sem ræður. Árið 1960 taldi ríkisstjórnin það eitt hið mesta bjargráð, að banna með lögum vísitölutryggingu launa. 1964 var það orðið „bjargráð" að hverfa frá liinu fyrra „bjargráði“ og taka verðtryggingu kaupgjalds upp að nýju. Síðla árs 1967 er verðtrygg- ingin enn felld niður. Á öndverðu ári 1968 er hún aftur tekin upp. Allt eru þetta bjargráð. Allt er þetta við- reisn! Áttræður maður í Öxnadal Rætt við Brynjólf Sveinsson í Efstalandskoti • 111111111111111111111111111111 HIN FJÖLFARNA þjóðleiS um Öxnadal liggur um hlaðið á Efstalandskoti. Þar hefur lengi búið hreppstjóri sveitarinnar, Brynjólfur Sveinsson. Þar á hann enn heima, búlaus ekkju- maður og býr sjálfur hjá sér í ; sínu húsi, en yngsti sonur hans, Árni, býr á nýbýli í sama túni. Ég sá Brynjólf hlaupa léttilega á því sama túni í fyrrasumar og sýndist mér þar ekki fara gam- all maður. En 17. júní sl. átti hann áttræðisafmæli og hélt þann dag tvöfalda hátíð í fjöl- mennum frændgarði á Akur- eyri, þar sem búsett eru 10 af bömum þeirra hjóna, Brynjólfs og Laufeyjar Jóhannesdóttur, sem andaðist fyrir hálfum öðr- um áratug. Brynjólfur Sveinsson hrepp- stjóri hefur alið allan sinn ald- ur í Öxnadal, eftir að hann fluttist, hálfsmánaðar gamall, með foreldrum sínum, Sveini Björnssyni og Soffíu Björns- dóttur, að Steinsstöðum, og síð- ar voru þau á fleiri bæjum í dalnum. En búskap hóf Brynj- ólfur á Steinsstöðum árið 1911 og bjó þar í tvíbýli til ársins 1936, að hann flutti í Efsta- landskot og hefur átt þar heima síðan. Má segja, að hann hafi lengi dvalið á sömu slóðum og skáldið góða, Jónas Hallgríms- son, sem opnaði augu almenn- ings fyrir fegurð og fjölbreyttni náttúrunnar meira en nokkur annar íslendingur. Þegar Brynjólfur leit inn á skrifstofur Dags til að biðja fýrir þakkarávarp í tilefni af- mælis síns, greip ég tækifærið og ræddi við hann litla stund. Fer viðtalið hér á eftir. Þú hefur lifað tvenna tíma í búskapnuni, Brynjólfur? Já, svo sannarlega, bæði í bú- skapnum og á mörgum sviðum öðrum, svo mjög hefur þjóðlíf- ið breytzt. Hvað áttu marga afkomend- ur? í fyrra, að þú gætir hlaupið, sem ungur værir? Ég er orðinn frekar mæðinn. Ég hleyp ef ég þarf þess, en auðvitað sem gamall maður en ekki ungur og fer ekki í mikl- um loftköstum, núorðið. Fyrr- um var ég fremur þolinn göngu maður, og eins og þá var títt vandist maður meira göngulagi og erfiðari ferðalögum, en nú er. Viltu segja mér söguna af því þegar þú sprengdir hundinn? Það eru nú ýkjur. Ég var á Brynjólfur Sveinsson. Börnin mín höfðu safnað saman myndinn af þeim í eina bók fyrir afmælið og gáfu mér. Þeir reyndust vera 103 talsins. Við eignuðumst 15 börn, en misstum tvö, annað ungt en hitt uppkomið. Hin eru öll á lifi og 10 þeirra búsett hér á Akureyri. Það var því nokkuð stór hópur afkomenda og tengdafólks, sem gladdi mig á áttræðisafmælinu, auk allra annarra. Og þú hefur verið hrepp- stjóri langa tíð? Frá 1942 og hrósa happi yfir því, að það skyldi ekki lenda á mér að verða oddviti. Svo illt sem það er að vera hreppstjóri, er það þó hálfu verra að vera oddviti. Hefurðu svo illa reynslu af starfinu? Opinber störf hafa aldrei átt við mig. Til þess vantar mig bæði þrek og þekkingu. Og það var þetta sem ég átti við, en ekki hitt, að erfitt væri að gegna opinberum störfum í minni sveit. Ég hef aldrei þurft að taka lögtak hjá nokkrum manni, en einu sinni þurfti ég að sitja sáttafund með deiluað- ilum. En deilan leystist og undu allir vel. í minni sveit hefur ekki þurft að beita hreppstjóra- valdi eða valdboðum yflrleitt. Þar hefur verið ágætt nágrenni meðal manna og menn verið hjálpsamir þegar einhvers hef- ur þurft með og vil ég nota tækifærið til að þakka þá hjálp- semi í minn garð og minna. Er það rétt, sem mér sýndist heimleið vestan yfir Öxnadals- heiði og lagði upp frá Fremri- Kotum að morgni í versta norð- anveðri og ófærð. Ég var einn, nema hundurinn minn fylgdi mér. Það var ekki skynsamlegt ferðalag, að vera einn á ferð að vetri til í slíku veðri. Þetta gekk þó vonum framar. Ég kaf- aði snjóinn móti veðrinu. Þetta var veturinn 1918 og 20 stiga frost í byggð. Og enginn hefur villt þig á leiðinni? Litlu munaði með það, segir Brynjólfur og glottir við. Mér gekk ágætlega norður á Sel- grundir, norðan við Grjótá. Ég hafði farið eftir vindstöðunni. En nú fann ég, að annað hvort var hún breytt eða ég orðinn villtur. Nam ég nú staðar og hugsaði ráð mitt. Auðvitað flaug mér ýmislegt í hug, sem þarna hafði fyrrum skeð, e. t. v. á þessum sama stað. Þarna hag- ar svo til, að tveir þverdalir skerast inn í fjöllin, Grjótárdal- ur í vestur og Kaldbaksdalur í austur. Þama eru veðraskil, sem margan manninn hafa villt, jafnvel svo, að menn hafa geng- ið upp Kaldbaksdal. Eftir nokkrar hugleiðingar gekk ég nokkur skref og rakst þá á vörðu, ,sem ég þekkti. Reyndi ég nú að átta mig á stefnu á næstu vörðu og fann hana reyndar. Þá var ég sloppinn yfir heiðina og náði heim um kvöldið. Ekki sprengdi ég hund inn. Ég tapaði honum að vísu á heiðinni, en hann skilaði sér um nóttina. Mér varð ekki meint af ferðinni, að öðru leyti en því, að ég var dálítið kalinn í andliti. Nú er Sesseljubúð ná- lægt þeim stað, sem veðraskil- in eru mest á Öxnadalsheiði og á hún sjálfsagt eftir að veita mörgum vegmóðum skjól. Hvort finnst þér lieiniur batnandi? Ekki get ég svarað því á breiðum grundvelli. Að sumu leyti fer heimur versnandi, af mínum sjónarhóli, en fleira horfir þó til betri vegar, þar sem ég þekki til, sem er nú lítill heimshluti. Hin auknu lífs- þægindi síðari ára hafa gjör- breytt uppeldinu. Æskufólkið er mun glæsilegra nú en fyrr- um og hefur fengið betri mennt un. Og það hefur um margt að velja nú. Hitt er svo annað mál, að ýmislegt óæskilegt fylgir í kjölfar batnandi lífskjara. Nokk ur spilling er staðreynd. En þegar á allt er litið, er ég ekki hræddur um framtíð þessa fólks, svo mikill meirihluti þess hefur þroskazt svo vel í „með- lætinu“. Og siðgæðið virðist mér svipað. Mér þykir samt leiðinlegt hvað margt ungt fólk talar óskýrt, íslenzkt mál, og tæpir nánast á orðunum. Ertu ekki vongóður um fram- tíð landbúnaðarins? Við höfum frá upphafi verið landbúnaðarþjóð. Enn býr kjarni þjóðarinnar í sveitum og sjávarplássum þessa lands. Sveitirnar ala upp, nú sem fyrrum, þjóðholla og hrausta þegna. En til þess að landbún- aðurinn haldi sínu og valdi sínu virðulega hlutverki, þarf bændastéttin að standa vel sam an. Hún verður að halda jafn- rétti sínu við aðrar stéttir og má t. d. ekki sætta sig við verri menntunarskilyrði en aðrir. Samvinna og samhjálp á mörg- um sviðum er aðal skilyrði fyr- ir framförum og ánægjulegu lífsstarfi í sveitum. Þar eru dæmin augljós og óumdeilan- leg, ekki aðeins í Öxnadal eða á öðrum stöðum hér á landi, heldur einnig meðal þjóða heims. Ég vil svo að lokum biðja blaðið fyrir þakkir til barna minna, tengdabarna og til sveitunga minna, sem hafa reynzt mér svo vel á langri ævi, og sýnt mér margvíslegan trúnað, segir afmælisbamið að lokum. Brýnjólfur Sveinsson er hár maður vexti og þreklegur, stór- skorinn í andliti og brúnamik- ill og skarpeygur, maður háttvís, mikill drengskaparmaður talinn og mannasættir. Mesti þrek- maður mun hann hafa verið og er það raunar ennþá, enda að- eins einu sinni á ævinni legið á sóttarsæng. Hann les gleraugna laust, nýtur einveru með góðum bókum og endurminninga margra og giftudrjúgra starfs- daga. Á erfiðleika búskapar hins barnmarga heimilis, vill hann lítið minnast. Þar hafi kona sín verið meginstoð sín og heimilisins, síðan börnin, er þau uxu úr grasi. Þeim og for- sjóninni þakkar hann gæfu sína. Dagur þakkar viðtalið og óskar honum blessunar á með- an ævisól er enn á lofti. E. D. Verkfa! sisdar sjómanna HINN 18. þ. m. hófst verk- j fall síldarsjómanna á Suð- i vesturlandi og við Eyjafjörð. j Sátta- og samningafundir j höfðu ekki borið árangur í j ; gær. Sjómannafélögin á við- ; i komandi stöðum fara fram j j á hliðstæðar kjarabætur og ; i bátasjómenn fengu á vetrar- j ; vertíð. Talið er líklegt, að i j verkfallið breiðist brátt út i j ef samningar takast ekki inn j j an skamms tíma. Mun það j von allra, að ekki komi til j stöðvunar og að samningar j takist áður en mikilvæg at- j vinnugrein lamast. □ 111 ■ 1111111 ■ 11111111 UM ALDAMOTIN sat Geir Zoéga, hraustur og efnilegur verkamannssonur. í Reykjavík, utan við dyr foreldrahúsanna og fordæmdi tilveruna. Hann langaði að fá inngöngu í latínu- skólann, en faðir hans hafði ekki fé til að borga áukakennslu í grísku og latínu, en þess þurfti með til að fá inngöngu í skól- ann. Um sama leyti sat St. G. St. fram við hlaðvarpann á litlum heiðarbæ í Vatnsskarði. Drengn um vöknaði um augu. Hann sá jafnaldra sína neðan úr byggð- inni á góðum hestum. Þeir voru á leið í latíntiskólann. Foreldr- ar þeirra höfðu fjárráð til að tryggja þeirra skólavist. Móðir og sonur báru saman sorg sína. Síðan fluttu þau til fjarlægs lands. Austur á Síðu var stórgáfað- ur sveitapiltur. Hann hét Bjarni Runólfsson í Hólmi. Hann dreymdi um rafmagn og skóla- göngu. En á þeirri. leið var hvorki skóli né peningar. Nú höfum við íslendingar bæði marga skóla og dálítið af aurum. Við höfum mikið kerfi til að stíga inngangsspor í menntahöllina. Sú leið er köll- uð landspróf. Á þeirri leið eru Til Egils Jóhannssonar KVEÐJA FRÁ SNJÓLAUGU Á 75 ÁRA AFMÆLINU 14. JÚNÍ 1968 í dag ég sé þig standa, stóri bróðir, við stýrisvöl á knerri þinnar ævi með augu skyggn og seglið hvítt við hún. Úr öllum áttum flögra fuglar góðir sem fylgdu þér á hinum víða sævi og lögðu þér við hjarta dýran dún, svo hlýtt og mjúkt Jrar yrði jafnan inni og athvarf búið henni systur Jrinni. Því átti nokkur systir betri bróður? Ég brosi við — og svara þarf ég eigi né leita að örðum til að þakka þér. En þess ég óska, að eins og þú varst góður, eins allt þér verði gott á þessum degi og sérhvern dag þíns lífs sem eftir er. — Og síðast verði segl Joitt ljóma vafið, er sálarknörrinn ber Joig yfir lrafið. nú tólf 'hundruð ungmenni, pilt- ar og stúlkur. Þrátt fyrir mik- inn undirbúning getá sumir, ef til vill margir, fallið. En neðan við þau tólf hundruð, sem miklu fé og tíma hefur verið varið til að gera langskólahæfa, er önn- ur stærri fylking, tvö þúsund ungmenni. Þessi hópur er að aldri, vexti og líkamshreysti jafningjar , þeirra, sem fylla landsprófsfylkinguna. Sumir hafa ekki viljað langa skóla- göngu. Aðrir eru lítt bókhneigð ir. Enn aðra hefur vatnað und- irbúning og fé. Og svo vita margir unglingar, að hægt er að lifa án landsprófs. St. G. St. varð eitt af frægustu skáldum landsins. Geir Zoéga átti í æsku þrjá opna róðrarbáta. Síðan gerði hann Reykjavík að út- gerðarbæ. Þá mátti sjá eitt hundrað íslenzkar, seglprúðar skútur á sundinu milli Viðevjar og lands. Og Bjarni Skaftfell- ingur kveikti hundrað rafljós á sveitaheimilum og skólum. Afburðamenn geta klofið hamra björg, en það er ekki hvers- dagsverk. Fvrir 40 árum gerðu gamlir Möðruvellingar, . áhrifamiklir bændur og starfsmenn við norð lenzka skólann, átak til að opna nýja námsbraut í landinu fyrir þróttmikla menn sem voru and- lega skyldir þremenningunum, sem hér var vikið að. Það hefur lánazt vel. í landinu eru 2000 ungmenni, misjöfn að gáfum. í þessari fylkingu eru margir efnilegir menn. í þeirri sveit býr mikið af framtíð lands og þjóðar engu síður en í landsprófs- mönnum. Framsýnir menn hafa tekið hlýlega undir hönd þeirra, sem brjótast oft yfir lítt rudda leið. Fyrir 40 árum andaði kuldalega frá gamla latinu og gríska skól- anum til þeirra, sem þá komu að norðan. Nú er þar bræðralag milli þessara æskumanna, sem vel fer á o g sýnir, að rétt var stefnt hér á Akureyri. Landsprófið er táknmerki um unnið afrek. En þar þarf að bæta við nýju prófi, nýrri þraut, sem gæti heitið þjóðpróf. Þjóð- félagið þarf slíka prófraun. Hún þarf að ná til ungmenna, sem hafa vakandi auga fyrir nýjum leiðum. Hér er ekki tími eða rúm til að fjölyrða um þessar nýju leiðir. Þar bíður starfið eftir bjartsýnni kynslóð með þýðingarmikið framtíðarstefnu- mark fyrir augum. Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri NOKKUR MINNINGARORÐ JONAS ÞORBERGSSON fyrr- um ritstjóri og útvarpsstjóri andaðist í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík 6. júní sl., 83 ára. Hann var fæddur 22. janúar 1885 á Helgastöðum í Reykja- dal í S.-Þing. Atvikin höguðu því svo, að hann varð snemma að standa einn og óstuddur, ef svo má segja og vinna fyrir sér, strax barn að aldri eins og bræð ur hans, Hallgrímur fyrrum bóndi á Halldórssíöðum í Laxár dal og Jón H. Þorbergsson bóndi á Laxamýri. En allir urðu þeir þjóðkucmir menn, hver með sínum hætti. Hallgrímur er látinn fyrir nokkrum árum. Það má segja um þessa bræður, að þeir hófust af sjálfum sér vegna gáfna og atgervis. Jónas Þorbergsson varð kunn ur maður, er hann hóf ritstörf sem ritstjóri Dags á Akureyri og síðan tók hann við ritstjórn Tímans í Reykjavík. Bæði blöð in nuíu gáfna hans og stílsnilli í ríkum mæli og hefur Dagur sérstaka ástæðu til að þakka blaðamannsstörf Jónasar hér á Akureyri og minnist hans með þökk og virðingu. En aðal ævistarf Jónasar Þor bergssonar mun þó jafnan verða talið á öðrum vettvangi. Hann varð fyrsti útvarpsstjóri Ríkisúfvarpsins og gerði það fyrirtæki að menningarstofnun. Komu mannkostir hans, list- hneigð og sá manndóms- og menningararfur, sem samtíð og fortíð veitti honum í ríkum mæli, alþjóð að góðum notum í þvi brautryðjendastarfi. Stjórn Jónasar á Ríkisútvarpinu mun mega að teljast þrekvirki, sem lengi verður í minnum haft. Jónas Jónsson frá Hriflu. Jónas Þorbergsson „braust til mennta“ og lauk gagnfræða- prófi við Gagnfræðaskólann á HINN 16. júní voru 122 stú- dentar brautskráðir við Mennta skólann á Akureyri. Skólaslit- in fóru fram í Akureyrarkirkju að viðstöddu fjölmenni. Stein- dór Steindórsson skólameistari gerði grein fyrir skólastarfinu á liðnum vetri og afhenti ný- stúdentum prófskírteini sín. Síra Arngrímur Jónsson og Örn Guðmundsson tannlæknir töluðu af hálfu 25 og 10 ára stúdenta, og afhentu skólanum að gjöf brjóstmynd af Þórarni heitnum Björnssyni skólameist- ara, eftir Ríkharð Jónsson. Var þessi samciginlega gjöf vel við- eigandi og sýnir mikla ræktar- semi við hinn merka skólamann. Heiðursgestur við þessi skóla slit var Jónas Jónsson fyrrv. ráðherra, sem fyrir 40 árum gaf skólanum rétt til að brautskrá stúdenta. Var þess minnzt á Akureyri árið 1909, sigldi síðan til Vesturheims og vann margs- konar störf næstu sex árin í Kanada, m. a. var hann járn- brautarstarfsmaður í hiiium víð áttumiklu sléttum. Heim kom inn úr þessari för kvæntist liann fyrri konu sinni, Þorbjörgu Jóns dóítur frá Arnarvatni og eign- uðust þau tvær dætur, en önn- ur þeirra dó ung og konu sína missti hann einnig eftir skamma sambúð. Hinn þungbæri ástvina missir mun liafa átt sterkan þátt í áhuga Jónasar á sálarrann- sóknum og þess bera bækur hans, ritaðar á efri árum, Ijóst viíni. Hann var mikill sam- vinnu- og félagshyggjumaður og áhugi hans á þeirn sviðum mjög víðfeðmur. Og hann gekk livarvetna fram heill, drengi- legur og vopnfimur í sókn og vörn. Sem dæmi um eitt af baráttumálum hans er stofnun Kristneshælis. Jónas kvæntist í annað sinn, Sigurlaugu Jónsdóttur frá Bandagerði og eru börn þeirra, Kolbrún og Jónas. Jónas Þorbergsson var stór maður vexti, karlmannlegur og fríður sýnum. Hann var ræðu- maður góður og einn af snjöll- ustu blaðamönnum og rithöf- undum landsins á þessari öld. Myndu ritstörfin em lialda nafnii hans á lofti um langa framtíð. Enn liærra ber þó nær aldar- fjórðungs forysta hans í útvarps málunum, sem áður er að vikið.. f því starfi bar hann gæfu til að nýta fjölhæfa hæfileiga sína, og á þehn vettvangi hefur þjóð- in notið hans á þann veg, aíi sagan mun geyma nafn hansi meðal ágætustu manna, sem ís- land hefur alið. E. D. HELGI VALTYSSON: BLOMA-GÆLA r Alfameyjar syngja og dansa á Jónsmessunótt (Úr ævintýrasjónleiknum JÓNSMESSUNÓTT) Ilmbirki og anganþeyr. — Ástmóðir á vori. Blessuð veri börnin þín. Blóm í hverju spori! Blessuð vertu, Blómmóðir á vori! Út um holt og heiðarmó, hjalla, börð og klettató, upp til dala, út með sjó dotta blóm í blundi. Sveimar í lofti væng við væng vorsins fugl ó léttum væng. — Dreymir undir daggarsæng Draumsóley í lundi. Sofðu rótt, unz bregður aftur blundi! Lyngbúi og Lambablóm, Laugadeplan bláa, Bjöllulilja, Baldursbró og Bládeplan smáa, Holtasóley hýjalíni hjúpar melinn gráa. Hýjalíni hjúpar melinn gráa. Dagstjarna og Dvergsóley, Dagsauga og Gleymmérei. Náttstjarna í næturþey njóttu drauma þinna! Morgunblómum þarf nú senn að sinna. Blóðberg klæðir blásinn niel, brúnt og rautt fer prýðisvel við hrjósturjurtar hjartaþel í helgrar nætur skrúða. Brönugrös mín, bí og blak, bíddu, Gullbrá, andartak. Burknar rétta bogið bak við bunulækjar úða, Iauga sig i gljúfragilja-úða. Glóir döggin Glitrós á, Gullintoppa og Freyjubrá, Akurperla Augnfró hjá útum græna haga, — Hrafnaklukka, Klettafrú, Kvöldstjarna, — hvar ertu nú? Alstaðar er anganbú útum græna haga í sólardýrð um sumarlanga daga! Blikið, skínið blómaljós, Blátoppa og Þyrnirós, undurfagra Eyrarós, öræfanna prýði! Jöklasóley, Jökul-hranna prýði. Fjalldalsfífill fjær og nær, Fjallabrúða yndis-keer, Silfurtoppur, Sóldögg skær, j Sóley björt á túnum Týsfjóla mín, lyftu bláum brúnumj Máríá létt um lundinn fer með Lykilinn í hendi sér, Vöndinn mæta með sér ber, , því margt þarf hún að prýða | útum veröld víða! Upp til dala, út með sjó, | einna helzt í næturró, tifar hún létt með lipra skó, —• um laufi gróna bakka sindrar Ijómi Silíurmáríu- stakkaí Melasól og Munablóm, Máríá á gullnum skóm. Lifið syngur sætum róm ( sólnótt bjarta á vori. — | Vorbrúða, Vorperla spretta í i hverju sporij -K I Yndisleg eru öll þín börn, , Ástmóðir á vori! — Ljúfmóðir, Blómmóðir bezta á vori! | Ástarþökk fyrir unað þinn ) og yndi á vori! .], verðugan hátt. Skólameistari ávarpaði að lokum hina nýju stúdenta og hvatti þá til dáða. Eðv. Sig. tók meðfylgjandi mynd í Lystigarðinum af Ak- ureyrarstúdentum 1968. ATH. Um ævintýrasjónleik Helga Valtýssonar — Jóns- messimótt — sagði Guðmundur skáld Frímann á sínum tíma: „Leikritið er stórfagurt. í þessum ævintýraleik H. V. er Ijóðræn fegurð á hveri'i síðu, Sennilega á blómaþulan í síðari þætti enga hliðstæðu í íslenzk- um bókmenntum og mun lengi geymast....“ j J

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.