Dagur - 21.12.1968, Síða 1
BLAÐ I
EFNAVERKSMIÐJAN SJOFN
LI. árg. — Akureyri, laugardaginn 21. desember 1968 — 57. tbl.
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SERVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KÐPIERING
Hugsum vonglaðir til jólaháfíðar
Egilsstöðum 20. des. Skipt hefur
um veður og nú síðustu daga
allt upp í 13 stiga frost og eru
það mikil viðbrigði frá hinni ein
dæma veðurblíðu undanfarið
með allt að 11 stiga hita. En það
er þó engin harðneskja ennþá
og allir vegir færir í byggðum
og um Fagradal. Snjóföl nokk-
urt er á Héraði utanverðu en til
dala er snjólaust.
Flugferðir hafa verið tvær á
dag vegna mikilla ferðalaga
skólafólks heiman og heim, svo
sem venja er. Svo eru vörur
nokkuð fluttar hingað austur
frá Sultarflóanum.
Mannlífið er svipað og undan
farin ár, er að jólum líður. Hús-
freyjur keppast við að baka og
búa heimilin að öðru leyti undir
komu jólanna. Værð er farin að
færast yfir karlmennina. Við
bruggum jólamaltið sjálfir í stað
þess að kaupa það frá Sana á
Akureyri. En það má þó Thule-
ölið frá Sana eiga, að það er
gott.
Atvinna hefur verið sæmileg
en óttast er, að verkamenn vanti
vinnu eftir áramótin en iðnaðar
menn síður. Stærri verkefni eru
ekki sjáanleg í næstu framtíð.
Fjárlögin gefa ekki tilefni til
bjartsýni í þeim efnum. Norð-
lendingar verða víst hólpnir
með féð úr hjálpasjóði flótta-
manna. Við vonum bara, að við
verðum ekki afskiptir þegar far
ið verður að deila Nato-styrkn-
um. í þeirri trú hugsum við von
glaðir til hinnar miklu hátíðar,
sem framundan er. V. S.
Blómskrúð í Grímsey
Grímsey 17. des. í hinni ágætu
tíð og miklu hlýindum er stóðu
í sex vikur og er nýlokið,
sprungu blóm út hér í Grímsey.
Nú er aðeins föl.
Heita mátti að daglega væri
róið í nóvembermánuði og fram
í desepiber. Lengra var sótt en
venjulega á þessum árstíma og
veiddist mjög vænn fiskur og
oftast var mikill afli. Mikið af
saltfiski liggur nú hér og það er
einmitt bezti fiskurinn. Við er-
um ekki róleg yfir því, að koma
ekki fiskinum frá okkur.
Það er nú búið að gefa fénu
2 daga í stað tveggja mánaða í
fyrra. Fé var fækkað í haust
vegna lítils heyfóðurs og sjá
sumir eftir því nú, að hafa fækk
að. Féð er mjög vænt og hefur
farið vel með sig úti í vetur.
Tvær kýr aðeins eru nú í
Grímsey, en 5 hross. Maður
einn, sem hingað flutti, kom
með tvær hryssur og hest. í vor
áttu báðar hryssurnar folöld og
er þetta hinn fallegasti hópur.
Jólin eru nú að koma til okk-
ar, sómenn hættir að fiska í bráð
og unga fólkið kemur í jólafrí.
Þótt seint væri byrjað að
sækja sjóinn í vor, vegna ísa, er
heildar fiskaflinn orðinn góður
á þessu ári og við höfum ekki
ástæðu til að kvarta. S. S.
Veiðiskipin flest komin til hafnar.
(Ljósm.: E. D.)
Ný f járliagsáætlun fyrir Akur-
eyri rædd í bæjarstjórn i gær
í GÆR, föstudaginn 20. desem-
ber, fór fyrsta umræða fram í
bæjarstjórn Akureyrar um fjár-
hagsáætlun bæjarsjóðs fyrir ár-
ið 1969. Samkvæmt henni
hækka niðurstöðutölur úr 113.4
millj. kr. í 118.6 millj. kr. Áætl-
FÓLK AÐ FLYTJA BROTT AF LANDINU
AÐALRÆÐISMAÐUR Breta á
íslandi, Brian Holt, hefur sagt
frá því, að rúmlega 250 íslend-
ingar hefðu spurzt fyrir um það
á ræðismannsskrifstofunni síð-
ustu vikur og fengið upplýsing-
ar um möguleika á innflutningi
og atvinnu í Ástralíu, Kanada
og fleiri samveldislöndum.
Þá sagði ræðismaðurinn, að
HAUSTMOT SKÁKFÉ-
LAGS AKUREYRAR
HAUSTMÓTI Skákfélags Akur
eyrar er nýlokið. Úrslit urðu
sem hér segir:
Meistaraflokkur. vinn.
1. Halldór Jónsson 8V2
2.—4. Kristinn Jónsson 7%
2.—4. Jón Björgvinsson 7V2
2. —4. Hjörleifur Halldórss. 7 Va
5. Þorgeir Steingrímss. 6
1. flokkur. vinn.
1. Rúnar Búason 6
2. Þóroddur Hjaltalín 5xf>
3. —4. Sveinbjörn Sigurðss. 4V2
3.—4. Jóhann Sigurðsson 4%
í hraðskák sem háð var sl.
mánudagskvöld varð Júlíus
Bogason efstur, annað varð Jón
Björgvinsson og þriðji Ólafur
Kristjánsson.
Næsta verkefni félagsins er
Jólahraðskákmót kl. 2 e. h. þann
29. des. □
allt að 60 íslendingar hefðu flutt
til Ástralíu á yfirstandandi ári,
og væri ætlun þeirra að setjast
þar að til langframa, eða a. m. k.
um árabil og sjá svo til. Brian
Holt sagði, að á framfæri hinna
250 manna, sem fengið hefðu
eyðublöð og upplýsingar um inn
flutning til samveldislandanna,
mætti búast við að væru um
400 manns.
Það er ískyggileg þróun mála,
ef svo margir hyggja á flutning
úr landi og framanskráðar upp-
lýsingar benda til. Ekki þarf að
draga í efa, að áhugi á brott-
flutningi er að einhverju leyti
sprottinn af þeirri óstjóm, sem
hér á landi ríkir, í efnahags- og
atvinnumálum og hinni miklu
óvissu í framvindu mála hér á
landi. Karlmannlegra er, að tak
ast á við vandann í íslenzku
efnahagslífi, en að flýja land.
Og fyrir þjóðina er meiri nauð-
syn en flestar eða allar aðrar,
að fólki fjölgi í landinu og flytj-
ist ekki brott. □
uð hækkun útsvara er 3.9% og
miðað við, að þau verði álögð
samkvæmt sama skala og árið
áður. Útsvarsupphæðin er 71.6
millj. kr. og aðstöðugjöld 17.6
millj. kr. En hæstu útgjaldaliðir
eru félagsmál, 31.8 millj. kr. og
gatnagerð 26.2 millj. kr.
Vitnar um erfiðleikana.
Þessi áætlun ber ekki þau
merki framfara, sem nauðsyn-
leg eru vaxandi bæ. En sú nauð
syn er augljós. Áætlunin ber
hins vegar vott um það hrörn-
unar- og ófremndarástand, sem
núverandi ríkisstjórn hefur leitt
SÍLDARAFLINN
SÍLDARSKIPIN, sem stund-
uðu síldveiðar austan við
land fram eftir vetri, eru öll
hætt veiðum. Árni Friðriks-
son var þó enn á miðunum
fyrir fáum dögum og leitaði
síldar.
Mörg skipanna voru á
Norðursjó og eru þau einnig
hætt þar veiðum, sum komirt
heim en önnur á leiðinni.
Síldaraflinn í ár er aðeins
124 þúsund tonn en var í
fyrra 443 þúsund tonn. Þess-
ar tölur segja sína sögu. Um
200 skip stunduðu veiðarnar
um lengri eða skemmri tíma.
Ekki var unnt að salta upp
í gerða samninga og vantaði
mikið á. Talið er, að flest
síldarskip hafi verið rekin
með tapi þetta ár. □
Dalvík 19.? des. Leitað er að
heitu vatni á Hamri í Svarfaðar
dal, ekki langt frá Dalvík. Þar
er búið að bora 181 m. djúpa
holu. Renna nú 5 lítrar á sek.
af 50 gráðu heitu vatni upp á
yfirborðið. Vatnsmagn jókst og
hiti líka, eftir að neðar dró, og
líklega lofar það góðu ef dýpra
verður borað eftir áramótin. En
nú verður borholan rannsökuð
um jólin og síðan tekin ákvörð-
un um framhaldið. En leit þessi
er gerð með varmaveitu á Dal-
vík fyrir augum.
Margir vona, að heita vatnið
á Hamri sé jólagjöf Dalvíkinga
í ár, eða a. m. k. að það feli í sér
mikil fyrirheit.
Allir Dalvíkurbátar eru nú
yfir þjóðina. Erfiðleikar norð-
lenzkra bæja hafa verið gífur-
legir á undanförnum árum, en
í ár munu þeir þó vera meiri en
nokkru sinni áður.
Fjárhagsáætlun sú, sem var
til fyrstu umræðu í bæjarstjóm
Heitt vatn jólagjöf til Dalvikinga?
komnir heim og liggja nú hér
allir í fyrsta sinn og er það nýju
hafnargerðinni að þakka. En
hafnarframkvæmdum er nú lok
ið svo ekki þarf að flýja með
bátana til Akureyrar eða annað,
eins og tíðkazt hefur.
Nýr snjóblásari er væntanleg
ur hingað bráðlega, til að halda
opnum vegum. J. H.
Akureyrar í gær, lítur þannig
út:
REKSTRARÁÆTLUN 1969
TEKJUR:
Útsvör 71.600
Aðstöðugjöld 17.600
Útsvör samkv. sérstök-
um lögum 400
Framlag úr Jöfunarsjóði 13.600
Skattar af fasteignum . 6.880
Tekjur af fasteignum .. 2.900
Hagnaður af rekstri bif-
reiða og vinnuvéla .... 2.000
Hluti bæjarsj. af vegafé 3.000
Vaxtatekjur 350
Ymsar tekjur 250
Samtals þús. kr. 118.580
GJÖLD:
Stjórn bæjarins og
skrifstofur .. . 4.470
Löggæzla 3.440
Eldvarnir 3.290
Félagsmál 31.820
Menntamál 11.293
íþróttamál 2.390
Fegrun og skrúðgarðar 1.940
Heilbrigðismál 3.040
Hreinlætismál 8.400
Gatnagerð, skipulag og
byggingaeftirlit 26.150
Fasteignir 2.290
Styrkir til félaga 1.655
Framlag til Fram-
kvæmdasjóðs 4.000
Vextir af lánum 2.310
Ýmis útgjöld 2.350
Afborganir af lánum . . 3.192
Nýbyggingar 5.300
Vélakaup 1.250
Samtals þús. kr. 118.580