Dagur - 22.12.1968, Blaðsíða 8

Dagur - 22.12.1968, Blaðsíða 8
t^^v/s/v/v/Vv/vAA/Wv/sAVv^A/v/\A>^^\A/S/NA>>^v/W>/'/VVV^AA^^^^/s/'A/sArVs/sAy'AA/>AA^/^W f SMÁTT & STÓRT Dagur ÞH GG er 2G tonna cikarbátur frá Skipasmíðastöð KEA, sá 101. frá þeirri skipasmíðastöð og er gerður út frá Þórshöfn. (Ljósm.: E. D.) K$$$$$$í$í$í3S$S$554$$3S$SS5S$$S$5æSÍ54$í$«S53$$S«$$S$5$5S$SÍ$$$$S5$$$5«3$$í35S4á*í$$$$í$«3S$$$S$$í$í$/ J1 AFSLATTUR Á FAR- GJÖLDUM Flugfélagið veitir skólafólki 25% afslátt af fargjöldum um jólin, ef keyptir eru farmiðar báðar leiðir. Ennfremur eru fjölskyldufargjöld í gildi. Þá greiðir fyrirsvarsmaður fullt gjald en aðrir í fjölskyldunni hálft fargjald. KANNSKI MÖRG SKRÍMSLI? Háskólamaður einn í Chicago, líffræðingur að menntun, sagði á fundi blaðamanna, að eitthvað stórbrotið væri að gerast í Loch Ness-vatni í Skotlandi. Taldi hann margt benda til þess, að þar væru skrímsli, svo sem munnmæli herma, kannski mörg. En það hefur verið kann- að með vísindalegum aðferðum, hvort sögusagnir af skrímslum í Lokabindið í Alfræða- safni AB er komið út NÝLEGA er komið út 21. bókin í Alfræðasafni AB, og er það jafnframt lokabindi þessa mikla ritverks. Hófst útgáfa þess á ís- lenzku fyrir u. þ. b. þrémur ár- um og hlaut strax óvenjumiklar vinsældir meðal allra aldurs- flokka og stétta. Mun og sann- mæli, að ekki hafi í annan tíma verið gert stærra átak til að koma.nýjustu þekkingu í vís- indum og tækni á framfæri við íslenzka lesendur. Bók sú, sem hér er síðust á ferðinni, nefnist Efnið. Aðal höf undur hennar er eðlisfræðingur inn Ralph E. Lapp, sem „hefur lagt drjúgan skerf til framvindu vísindanna á kjarnorkuöld“ og einnig verið vísindalegur ráð- gjafi Bandaríkjastjórnar. ís- lenzku þýðinguna gerði Magnús Magnússon prófessor, og skrifar hann jafnframt formála fyrir Þar sem Efnið nær yfir harla víðtæk svið og snertir að meira eða minna leyti öll viðfangsefni nýjustu raunvísinda, segir það sig sjálft, að ekki er með neinu móti unnt að gera innihaldi bók arinnar skil í fáum orðum. En þar er m. a. greint í stórum drátt um frá þeirri þróun, sem hug- myndir manna um efnið og efnis heiminn hafa tekið allt frá önd- verðu og fram á vora daga. Lengi fram eftir öldum virðast þær hafa verið æði frumstæðar, og ekki eru t. d. meira en 500 ár frá því að „gullgerðarmenn“ voru önnum kafnir við að breyta óæðri málmum í gull, og aðrlr kepptust við að finna hinn eina og sanna „lífselexír“, er gæti gert mennina ódauðlega. En þeim mun meir hefur þekk- ingu manna á efninu fleygt fram á síðustu mannsöldrum og þó stórkostlegast á næstliðnum 25 árum, eða frá því að upp hófst hin ógnvænlega öld kjarnork- unnar. Bókin um Efnið er 200 bls. að stærð, sett í Prentsmiðjunni Odda, en prentuð í Hollandi. Eins og aðrar bækur Alfræða- safnsins er hún prýdd miklum sæg mynda og eru þar á meðal litmyndir á 60 heilsíðum, sem auk þess að vera til fræðslu og skilningsauka, eru margar hverj ar afburðafagrar. Þá er í bók- inni skrá um rösklega eitt hundr að frumefnaheiti, sem dr. Þor- steinn Sæmundsson hefur ís- lenzkað. Verð Efnisins er kr. 350.00, en það er hið sama og verið hefur á bókum Alfræðasafnsins. □ Fagra veröld í viðliafnarútgáfu UT ER KOMIN hjá Almenna bókafélaginu viðhafnarútgáfa ljóðabókarinnar FAGRA VER- OLD eftir Tómas Guðmundsson. Almenna bókafélagið hefur und anfarin ár gefið út allstóran flokk ljóðabóka, og þótti því við eiga, að velja til viðhafnarút- gáfu í ár einhverja íslenzka ljóðabók, til að auka enn til Bók um lmattspyrnu- snillingino ÞAÐ er ekki á hverjum degi, að íslenzkum íþróttaunnendum berst bók eins og þessi upp í hendurnar, en hún fjallar um einn mesta og vinsælasta knatt- spyrnusnilling allra tíma, Eusé- bio da Silva Ferreira, eða Svarta pardusinn eins og hann er stund um nefndur. Hingað til íslands hafði frægð hans borizt löngu áður en hann lék hér með fé- lögum sínum í Evrópubikar- keppninni í sl. septembermán- uði fyrir átján þúsund áhorf- endum, en það er met, ssm lík- lega verður seint farið fram úr. Bók þessi er frumsamin á portúgölsku, og hefur hún á rúmu ári farið mikla sigurför. Fernando F. Garcia, sem er kunnur höfundur í heimalandi sínu, hefur skráð hana eftir frá- sögn Eusébios, en Jón Birgir Pétursson hefur snúið henni á íslenzku. Að sjálfsögðu mun knatt- spyrnumönnum og öðrum íþróttaunnendum leika mest for vitni á þessari bók. En saga drengsins, sem hóf sig úr fátækt til heimsfrægðar, á í raun jafn- mikið erindi við hvem heilbrigð an ungling og æskumann. Hún sýnir, að afburðahæfileikar hi-ökkva mönnum skammt einir saman á leikvangi lífsins, en komi jafnframt til skjalana óbrigðult viljaþrek, árvekni og drenglund, geta þeir vissulega skilað margföldum árangri. Bókin er 173 bls. að stærð og þar að auki eru myndir á sextán síðum. Prentsmiðjan Oddi og Sveinabókbandið hafa gert hana úr garði, en útgefandi er Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundsson- ar. Verðið er kr. 275.00 án sölu- skatts. □ muna veg þessa þáttar í útgáfu starfsemi félagsins. Mjög hefur .vferið vandað til þessarar útgáfu, fjölmargir aðil- ar lagt hönd að verki og allir sem einn kappkostað að búa þessum ástsælu ljóðum Tómas- ar Guðmundssonar þann ytri búningi, sem hæfa mundi boð- skap þeirra og fegurð. Atli Már ■ hefur séð um útlit bókarinnar og teiknað allar myndir, sem eru fjölmargar, þ. á. m. 8 litmyndir, og falla að efni ljóðanna. Atli Már hefur unnið að gerð þessara mynda um áraraðir. Bókin er sérkenni- leg í útliti og lögun. Formála ritar prófessor Stein grímur J. Þorsteinsson. Fagra veröld er prentuð í Lit- IVÆR BÆKUR SÖGUR úr sveit og bæ eftir Margréti Jónsdóttur. Leiftur h.f. 1968. í þessari bók eru barnasögur og leikþættir eftir Margréti Jóns dóttur, skáldkonu. Allit- þekkja hve hugljúfar barnasögur henn- ar eru. Sumat- þeirra hafa áður birzt í Æskunni. Leikritin eru handhæg fyrir þá, sem vinna að félagsmálum með börnum. Þetta er sönn jólabók. Úrvalsljóð Sigurðar Júl. Jó- hannessonar er í afmælisbóka- flokki Æskunnar í ár. Dr. Ric- hard Beck valdi kvæðin og ritar inngang. Sigurður var fyrsti rit- stjóri Æskunnar en fór svo til Vesturheims og gerðist þar læknir. Sum af barnaljóðum hans hafa náð miklum vinsæld- um eins og „Gleraugun hans afa“. Þetta er hugþekk og snyrti leg bók til jólagjafa. □ brá h.f., bundin í Félagsbók- bandinu, setningu texta annað- ist Lithoprent h.f. og Prentþjón- ustan s.f. sá um undirbúnings- vinnu svart-hvítra mynda. Félagsmannaverð AB er kr. 600.00. □ vatnl þessu liefðu vlð rök að styðjast. Hreyfingar og hljóð niðri í vatninu, sem náðzt hafa, eru áður óþekkt og talið fráleitt, að þau stafi frá venjulegum fisk um eða öðrum þekktum lagar- dýrum. HÆTTUSTAÐIR Blaðinu hefur verið bent á, að í bæjarlandinu séu nú nokkrir opnir og mjög djúpir skurðir, er hættulegir geti talist, t. d. skammt frá KA-skúrnum í suð- ur af spennistöðinni. blaðið þessari ábendingu á fram færi, ef úr má bæta. HREINN HRAFNSSON SIGRAÐI í SKÁKINNI HRAÐSKÁKMÓT Ungmenna- sambands Eyjafjarðar fór fram á Akureyri 12. þ. m. Keppendur voru alls 16. Sigurvegari varð Hreinn Hrafnsson Umf. Skriðu- hrepps. Röð fyrstu manna varð þessi: 1. Hreinn Hrafnsson, Skriðu- hr., 12% v. 2. Gunnar Jónsson, Saurbæjarhr., 11% v. 3.—4. Rún ar jBúason, Skriðuhr., 10% v. 3.—4. Randver Karleson, Skriðu hr., 10% v. 5.—7. Hlynur Jónas- son, Öngulsstaðahr., 9% v. 5.— 7. Atli Benediktsson, Saurbæjar hr., 9% v. 5.—7. Guðmundur Eiðsson, Skriðuhr., 914 v. Skákstjóri var Gunnlaugur Guðmundsson, Akureyri. □ 1 ■ 111111 ■ 1111111 Slökkvilið Akureyrar eignaðist þennan körfubíl í sumar og \ nær armur hans 16 metra, og í körfunni á enda armsins geta § 2—3 menn verið. Við slökkvistarf í háum húsum, er þetta | nauðsyn. (Ljósm.: E. D.) \ •"illlllllllliilllilliiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu lllllllllllllllllllll■llllllllllllllllllllllllllll■llllllllllllllllllllll«lllllllV Geislinn gegn um Ljósavatnsskarð Reynihlíð 20. des. Hið óvænta og ánægjulega skeði hér í Mývatns sveit, að í norðanverðri sveit- inni sást sjónvarp vel er það var prófað, en ekki var gert ráð fyrir því áður. En það virðist svo, að sjónvarpsgeislinn nái til okkar gegn um Ljósavatnsskarð ið. Búið er að kaupa 20 sjón- varpstæki hér í sveitinni og setja flest þeirra upp. JOLASNJÓRINN ER KOMINN TIL HRÍSEYJAR Hrísey 20. des. Nú drekkum við •bara það léttasta og holla því brennivín er orðin alltof dýr vara. Sjómenn hafa lagt bátum sínum og eru að ganga frá einu og öðru, svo sem þurfa þykir fyrir jólin. Konurnar ganga berserksgang í hreingerningum og bakstri. Laufabrauð er búið til í flestum húsum og þykir mér það hinn ágætasti siður. Snæfellið landaði 25 tonnum á mánudaginn og var hér vinna í frystihúsinu þar til í gær. Með minna móti er verzlað. Vera má, að hin mörgu sjón- varpstæki, sem hingað voru keypt eigi sinn þátt í því. Hrís- eyingar eignuðust nýjan borg- ara og glöddumst við yfir auknu liði og það því fremur, sem of mikil deyfð ríkir á því sviði hér hjá okkur. f okkar frægu rjúpna byggð verða ekki rjúpur á jóla- borði. Sakna margir þess, en þá er að sætta sig við það næst- bezta, en það er hangikjötið. Jólasnjórinn er kominn og var kærkominn því við viljum hafa hvít jól. S. F. Vel hefur gengið með sauðféð og búið að sækja það á Austur- fjöll, þar sem það gekk og fór vel með sig. Þar austurfrá var októbermánuður góður fyrir sauðfé því þá stóð það á grænum mellöndum og gæddi sér á meljurtinni ágætu. Starfsmenn, sem hér hafa ver ið við ýmis störf, eru að fara héðan í jólaleyfinu. Borholan fræga hefur reynzt erfið, en unnið hefur verið látlaust að því að tryggja hana og til þess notuð mörg ráð. Búið er að fylla hana nokkuð niður en síðan á að bora hana upp að nýju og fóðra betur. Jarðhiti sá, sem skyndilega kom upp á yfirborðið í vetur þar ná- lægt, hefur lítið eða ekki rénað, en eitthvað samband er talið þar á milli. Rafstöðin, sem orku fær frá borholunni, er langt komin og einnig gufuleiðslan til hennar. Það er mjög spennandi að vita, hvernig til tekst að beizla þann ógnar kraft, sem jarðhitinn hér (Framhald á blaðsíðu 4)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.