Dagur - 12.02.1969, Page 4

Dagur - 12.02.1969, Page 4
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. SITURENN NÆR DAGLEGA berast okkur hingað norður fregnir af því, að ríkisstjórn íslands sé í þann veginn að leggja upp laugana og segja af sér. Hér mun bæði um sterka ósk- hyggju að ræða hjá almenningi úr öllum stjórnmálaflokkum og hina augljósu efnahags- og atvinnuörðug- leika, er gefa þessum lausafiegnum byr undir báða vængi. En stjórnin streitist enn við að sitja, hefur í engu breytt stefnu sinni, sem er á góðri leið með að kollvarpa efnahagslegu sjálfstæði landsins og hefur þegar komið á meiri ringulreið innanlands en áður hefur þekkzt. Ráðherrarnir standa úrræðalausir og rúnir því trausti, sem fólk áður sýndi þeim og endurtaka í sífellu, að allt stafi þetta af aflabresti og veríý hruni, en segja þar aðeins liluta af sannleikanum. Arið 1968 er í röð beztu afla- og markaðsára, sem þjóð- in liefur nokkru sinni búið við og hefur það áður verið sýnt hér í blað- inu með óvéfengjanlegum tölum, þótt munurinn sé allmikill frá topp- árinu 1966. En hvernig mættu Is- lendingar þeim vanda, er metárum lauk og minna aflaðist? íslendingar brugðust óskynsamlega við, með stjóm og þingmeirihluta íhalds og krata í fararbroddi. Innflutningur var örvaður og hin almenna eyðsla með síendurteknum gengisfelling- um, en skuldum safnað erlendis. Samkvæmt yfirliti um verzlunar- jöfnuðinn á síðasta ári var 5000 milljón króna halli á honum, gagn- vart útlöndum á því eina ári. Jafn- vel á mestu uppgripaárunum 1964— 1966 var verulegur viðskiptahalli og gjaldeyrisvarasjóðurinn fals eitt og herfileg blekking. Innflutningur var örvaður, einnig eyðsla og fjárfest- ingar gerðar af handahófi. Það var jafnvel hrúgað inn í landið iðnvör- um, og margar tegundir innlendra iðngreina ýmist drepnar eða lam- aðar. Á flótta frá erfiðleikunum eygir stjórnin nú helzt inngöngu í EFTA. Af hræðslu við dóm kjósenda eru kosnar margra tuga nefndir til at- hugunar á atvinnumöguleikum, boð ið erlent lánsfé til eins og annars og nýju stóriðjumáli hreyft. Á meðan allt þetta er sett á svið, berst stjómin við vaxandi andstöðu alls almenn- ings og samtaka hans. En þrátt fyrir tortryggni er vert að styðja alla góða viðleitni til að bæta úr því eymdar- ástandi, sem röng og úrelt efnahags- stefna hefur leitt yfir þjóðina á und- anfömum ámm. □ At\ innumálanef ndirnar og verlcsvið þeirra Erindi og umsóknir til Atv.málanefndar NorðurL þurfa að berast bið fyrsta, Hvernig var stofnaS til at- vinnumálanefndanna? Með samkomulagi milli vinnu veitenda, Alþýðusambands ís- lands og ríkisstjórnarinnar hinn 17. janúar sl. voru stofnaðar at- vinnumálanefndir í öllum kjör- dæmum landsins, ein fyrir hvert kjördæmi nema sameigin leg nefnd f yrir Norðurlands- kjördæmin bæði. Nefndirnar eru þannig skipaðar, að samtök vinnuveitenda tilnefna 3 menn, ASÍ 3 menn og ríkisstjórnin 2 Valur Arnþórsson, fulltrúi. og útnefnir annan þeirra for- mann viðkomandi nefndar. Auk þessa er svo atvinnumálanefnd ríkisins, sem skipuð er 9 mönn- um, skipuð á sama hátt nema að 3 eru frá ríkisstjórninni og er forsætisráðherrann þar for- maður. Hvernig er Norðurlandsnefnd in skipuð? Tilnefndur af ríkisstjórninni er Lárus Jónsson, Akureyri, for maður og Þorsteinn Hjálmars- son, Hofsósi, frá ASÍ eru Tryggvi Helgason, Akureyri, Oskar Garibaldason, Siglufirði og Freyr Bjarnason, Húsavík, frá samtökum atvinnuveitenda eru Árni Árnason, Akureyri, Stefán Friðbjarnarson, Siglu- firði og Valur Arnþórsson, Ak- ureyri. Hlutverk nefndanna? Samkvæmt áðumefndu sam- komulagi er hlutverk nefnd- anna í kjördæmunum það, að fylgjast sem bezt með atvinnu- ástandi og þróun atvinnumála og gera tillögur til atvinnumála nefndar ríkisins um eflingu at- vinnulífsins á hverjum stað og áherzla lögð á, að ná sem skjót- ustum árangri til að útrýma nú verandi atvinnuleysi, sem nú er svo alvarlegt. Atvinnumála- nefnd ríkisins hefur svo með höndum athugun á öllum skýrsl um og tillögum frá öllum kjör- dæmanefndunum og hún tekur ákvarðanir á grundvelli þeirra eða að eigin frumkvæði um úr- bætur. Þess vegna fellur það í hennar hlut að ákveða skipt- ingu á þeim 300 millj. kr., sem verja á til að útrýma atvinnu- leysinu. En það var hluti sam- komulagsins 17. janúar, að ríkis stjórnin útvegaði nefnda upp- hæð til að auka atvinnuna. Enn fremur er xað hlutverk atvinnu málanefndar ríkisins, að gera tillögur til lánastofnana og fjár- festingarsjóða, sem að gagni megi koma í þessu máli. Og nefndimar komu á sam- eiginlegan fund í Reykjavík? Já, rétt fyrir síðustu mánaða- mót. Sá fundur var haldinn til þess að menn gætu skipst á skoðunum og til að gera bráða- birgðakönnun á ástandinu og til að samræma störf nefndanna. Við gerðum grein fyrir því, norðanmenn, hvernig ástandið væri hér. Samkvæmt því yfir- liti, sem við lögðum fram, voru um 1600 manns atvinnulausir í Norðurlandskjördæmunum. Við höfðum reynt að gera okkur grein fyrir því, hversu mikill hluti atvinnuleysins stafaði beint af sjómannaverkfallinu og virtist okkur, að ef eðlileg sjó- sókn hæfist að nýju, myndu um 400 manns fá vinnu á ný. En ýmsar hugmyndir um aukningu sjósóknar myndu veita 200 manns atvinnu, ef framkvæmd- ar yrðu. Ég held að allar nefnd- irnar hafj lagt ríka áherzlu á það, að fjármagn til íbúðalána- kerfisins yrði aukið verulega til að draga úr atvinnuleysi í bygg ingariðnaðinum. Jafnframt lögð um við í Norðurlandsnefndinni mikla áherzlu á, að fjármagn yrði útvegað til að koma tunnu verksmiðjunum á Siglufirði og Akureyri í gang. Hefur það nú verið gert, en nú beðið eftir efni til verksmiðjunnar á Akureyri. Ennfremur hafa 100 millj. kr. verið útvegaðar til veðlánakerf isins. Auk þessa lögðum við svo fram athyglisverðar greinar- gerðir frá atvinnumáianefnd- argerð kom einnig frá Siglu- firði. Hvernig starfar svo atvinnu- málanefnd Norðurlands nii? Hún starfar að því nú, og einkum formaðurinn, Lárus Jónsson, að safna skýrslum, til- Vestur VÉR íslendingar vestan hafs erum komnir í ómælda þakkar- skuld við séra Benjamín Kristj- ánsson fyrir alla elju hans við að safna efninu í hið mikla og merka ritsafn Vestur-íslenzkar æviskrár, og búa það undir prentun. Fer sú skuld vor við hann, og aðra þá, sem hafa stutt hann að því þarfa og mikilvæga starfi, vaxandi með hverju nýju bindi ritsafnsins, en 3. bindi þess kom út síðastliðið haust. Er það mikið rit að vöxtum, 450 bls. í stóru broti, prýtt 955 mannamyndum, gefur það eitt sér nokkra hugmynd um það, hve yfirgripsmikið þetta bindi er um feni, og hve margir koma þar við sögu. Þeim ummælum til áréttingar má ennfremur á það benda, að nafnaskráin aftan við bindið tekur yfir nærri 70 blaðsíður. Hafa hliðstæðar nafnaskrár fylgt fyrri bindum ritsins (1961 og 1964), en sam- anlegt ná mannanafnaskrár bmdanna þriggja, sem út eru komin, yfir um það bil 16 þús- und nöfn manna, sem getið er í ritstfninu. Framanskráð lýsing á því, þótt beinaber sé, ber því nokk- urt vitni, hvílíkt feikna starf séra Benjamín hefir lagt í undir búning ritsins. Augljóst er, að það er unnið af djúpstæðri ást á viðfangsefninu og af sambæri legri vandvirkni. „í þessu nýja bindi ævi- skránna“, svo fylgt sé orðalagi tilkynningar útgefandans, „er sami háttur hafður á og í hin- um fyrri, að teknir eru heilir ættbálkar, þar sem kostur hef- ur verið nægra upplýsinga, sagt frá landnámsmönnunum vestan hafs og síðan gerð grein fyrir ölium þeirra afkomendum, lífs Akureyrar og hugmyndir henn ar um úrræði. Samskonar grein lögum og umsóknum af Norður landssvæðinu og hefur í því sambandi sent gögn til allra bæjarstjóra, sveitarstjóra og oddvita í kaupstöðum og kaup- túnum á Norðurlandi og óskað eftir upplýsingum þeirra og að- stoð við þetta aðkallandi verk- efni. Þessar tillögur og umsókn ir tekur nefndin svo til athug- unar og gerir svo sína skýrslu til atvinnumálanefndar ríkisins og er stefnt að því, að nefndin haldi fund hér á Akureyri í lok þessarar viku og er því nauð- synlegt, að erindi berist nefnd- inni án tafar. Tillögur, sem síð- ar berast verða þó að sjálfsögðu einnig teknar til athugunar og afgreiðslu. Hvaða tillögur eru helztar til úrbóta hér á Akureyri? í þeirri skýrslu, sem atvinnu- málanefnd Akureyrar lagði fram, er sérstök áherzla lögð á skjóta endurbyggingu sam- vinnuverksmiðjanna. En það teljum við eitt þýðingarmesta átakið, sem unnt er að gera, einnig með langa framtíð í huga. í sambandi við Skinna- verksmiðjuna er nú sú aukning og liðnum.“ Þessi aðferð hefir mikla kosti frá ættfræðilegu og mannfræði- legu sjónarmiði, því að með þeim hætti er unnt að fylgjast með ferli og þróun ættbálksins ættlið eftir ættlið. í þessu nýja bindi ritstfnsins er vitanlega einnig að finna marga þætti um einstaklinga, sem fróðlegt er að kynnast, enda eru í þeim hópi, eigi síður en innan hinna ýmsu ættbálka, margir, bæði karlar og konur, sem getið hafa sér frægðarorð á starfssviði sínu. Sannleikurinn er sá, að Vestur-íslenzkar ævi- skrár eru, að eigi litlu leyti, athafnasaga vor íslendinga vest an hafs, og um leið, góðu heilli, ósjaldan saga frásagnarverðra afreka í sannasta skilningi þess orðs, drýgðra dáða fram yfir það, sem almennt gerist. En um hið mikla gildi þess ritsafns og hlutverk þess fer séra Benjamín, meðal annars, þessum eftirtektarverðu orðum í formála sínum, og þau orð hans eiga jafn brýnt erindi til íslendinga beggja megin hafs- ins: „Enda þótt óðum fenni yfir íslenzka tungu og bókmenntir í Vesturheimi, hafa samt þau gleðilegu tíðindi gerzt á seinni árum, að niðjar íslands hafa á hverju ári komið í stórhópum kynningarferðir heim til ætt- landsins. Þessum heimsóknum ættingja og vina fögnum við einlæglega. Æviskrárritun Vestur-íslend inga er lykill að frekari og vax- andi kynnum. Hvra er þetta fólk, sem fór frá íslandi endur fyrir löngu, bræður og systur þeirra, sem heima sátu? Hvað hefur það á dagskrá hjá forráðamönnum, sem þyrfti um 150 fleiri starfs- menn en hún hafði áður. Stækk un er einnig fyrirhuguð hjá Skó deildinni. Ef svo verður, sem samvinnumenn ráðgera nú, verður fjöldi starfsfólks við verksmiðjurnar þá 700 talsins í stað 500—550 manns áður. Þá er mjög þýðingarmikið atriði að athugaðir séu möguleikar á stækkun hraðfrystihúss U. A. með það fyrir augum að geta aukið vinnslu í neytendapakkn- ingar. Við þá aukningu myndu 50 fá atvinnu, auk þess sem nú er. Þá bindum við verulegar vonir við störf svonefndar fiski skipanefndar, en hennar hlut- verk er að finna hentuga gerð fiskiskipa til hráefnisöflunar fyrir frystihúsin. Við byggingu slikra skipa verður vart gengið fram hjá Slippstöðinni h.f. á Akureyri og telur atvinnumála nefnd Akureyrar mjög þýðing- armikið fyrir þróun atvinnulífs ins, að Slippstöðinni verði séð fyrir auknum verkefnum. Þetta eru nokkur af stærstu atriðun- um, en margt fleira hefur þó verið bent á, segir Valur Arn- þórsson að lokum og þakkar Dagur svör hans. E. D. verið að gera, og hverjir eru afkomendur þess? Þessar spurningar brenna á vörum margra hér heima á ætt jörðinni, alveg eins og þeir, sem að vestan koma, spyrja eftir ætt ingjum sínum hér. Til þess að leysa úr þessum spurningum þurfa upplýsingar að vera fyrir hendi í handhægu formi og sá er meðal annars tilgangurinn með þessari bók. Með þessu verki er verið að reyna að treysta böndin milli ættingja og vina í austri og vestri á raunhæfan hátt. Og þegar þess er gætt, að niðjar fslendinga í Vesturheimi skipta mörgum tugum þúsunda, ætti ekki að þurfa mikið ímyndunar afl til að sjá, hvílíkur ávinn- ingur það er að halda sem traustustu sambandi við þá, auk ánægjunnar, sem að því er að eiga svo mikinn og gervi- legan frændgarð hinum megin við hafið.“ Þökk sé séra Benjamín fyrir þetta raunsæja og skynsamlega viðhorf til þess nauðsynjamáls, sem hér um ræðir, og fyrir drengileg orð hans í garð vor Vestur-íslendinga. En þá er það vor hlutur að bregðast jafn drengilega við, og styðja hann og útgefanda ritsafnsins í starfi, bæði með því að kaupa ritið og bregðast fljótt og vel við beiðn- um um upplýsingar fyrir það, því að þegar er hafinn undh- búningur á 4. bindi ritsafnsins. En jafnframt því og vér Vest- ur-íslendingar stöndum í vax- andi þakkarskuld við séra Benjamín Kristjánsson fyrir hið geysimikla og fórnfúsa starf hans að undirbúningi ritsafns- ins, eigum vér Sigurði O. (Framhald á blaðsíðu 7) Dr. RICHARD BECK: -íslenzkar æviskrár 5 Konur á Akureyri vinna að því að koma upp heimavistarskóla í gamla húsmæðraskólaniun. (Ljósm.: E. D.) Frá umræðum um ÞelamerkurskóEa ISLANDSKYNNING I OSLO UM ÞAÐ LEYTI, sem fjárlög ársins 1969 voru til umræðu á Alþingi fyrir jólin, var sam- kvæmt tillögu ríkisstjórnarinn- ar gerð sú breyting á nýju skóla kostnaðarlögunum frá árinu 1967, að framlag ríkisins til skólahúsa skyldi greiða á fjór- um árum í stað þriggja. Við um ræður um þessa lagabreytingu lét menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, svo um mælt, að hann liti svo á, að eftir að þessi breyting hefði verið gerð, væri hægt að taka tillit til „allra skynsamlegra og rökstuddra óska“ um ríkisframlag til skóla bygginga á þessu ári. í samræmi við þessa fjögurra ára reglu og áætlanir rnennta- málastjórnarinnar eru nú í ár t. d. veittar 5.7 millj. kr. til skóla á Hafralæk í Aðaldal, 6.5 millj. kr. til skóla á Stórutjörn- um í Ljósavatnsskarði og 4.7 millj. kr. til skóla á Hrafnagili í Eyjafirði. Er þá litið svo á, að hver upphæð sé sú fyrsta fjár- veiting af fjórum. Þegar tillögur lágu fyrir um framlög þessi bar Stefán Val- geirsson fram nýja tillögu þess efnis, að til Þelamerkurskóla yrðu einnig á þessu ári veittar 4.3 millj. kr., sem svaraði til fjórða hluta af áætluðum fram- kvæmdum á þeim stað. Sagði hann tillögu sína flutta í fram- haldi af ummælum menntamála ráðherra um, að nú ætti að vera hægt að taka tillit til „allra skynsamlgera og rökstuddra óska“ í þessu efni. Um Þela- merkurskólann sagði Stefán Valgeirsson meðal annars í ræðu sinni um þetta mál: „Að beiðni skólanefndar Þela merkurskóla og oddvita þeirra hreppa, sem að honum standa, ætlaði ég að flytja breytinga- tillögu við þriðju umræðu fjár- laga fyrir árið 1968, þess efnis að fá framkvæmdaleyfi, þó án hækkunar á fjárveitingu. Á ár- inu 1968 til skólans voru hrepp- arnir búnir að tryggja sér að geta gert bygginguna fokhelda á liðnu sumri, ef þetta leyfi hefði fengizt. Ég ræddi þetta við háttvirtan 6. þingmann Norður- landskjördæmis eystra, Magnús Jónsson, og varð það að sam- komulagi, að ég legði ekki til- lögu mína fram, en hins vegar ætlaði háttvirtur þingmaður að vinna að málinu með mér til þess að byggingarleyfi fengist. Þar sem ég var búinn að sjá, að allar tillögur stjórnarandstöð- unnar voru stráfelldar, hvaða nafni sem þær nefndust, taldi ég það vænlegra til árangurs að fara þessa leið í málinu. Síðan þetta gerðist, hefur nú liðið lieilt ár og málinu hefur sannar lega verið haldið vakandi. Fyrir utan allar mínar tilraunir til þess að fá byggingarleyfið hafa tveir af skólanefndarmönnum Þelamerkurskólans komið hing að til Reykjavíkur, gengið á milli Heradesar og Pílatusar, en árangurinn hefur lítill orðið þrátt fyrir mikið erfiði. í vor var því borið við af hinum vísu mönnum, að sú teikning, sem búið var að ganga frá, væri ekki í réttum mælikvarða, þó að það væri teiknað á sama hátt og undanfarið hefði tíðkazt um slíkar byggingar. En nú er ekki hægt að bera því við, teikning- unum, þær eru frágengnar og samþykktar og fyrir liggur stað fest skeyti frá öllum oddvitum viðkomandi hreppa, að þeir séu reiðubúnir til þess að leggja fram sitt framlag til byggingar- innar. Eftir því sem hæstvirtur menntamálaráðherra upplýsti hér á Alþingi í fyrradag, þegar skólakostnaðarlögin voru til um ræðu, hefur hæstvirtur ráð- herra mælt svo fyrir, að skóla- skyldunni skyldi fullnægt í öll- um skólahverfum landsins og að viðkomandi aðilar hefðu fengið bréf upp á það. Hæstvirt ur menntamálaráðherra sagði ennfremur, að það hefði ekki staðið á því opinbera með þær skuldbindingar, sem því bæri í sambandi við að framkvæma skyldunámið. Með þetta í huga vil ég upplýsa eftirfarandi stað- reyndir: Skólaskyldunni hefur aldrei verið framfylgt í skóla- hverfi Þelamerkurskólans, vegna þess að það er ekkert hús næði til, sem fullnægir þörfum að slíkum skóla. En ef hæstvirt ur menntamálaráðherra veit betur en ég um þetta, óska ég eftir ábendingu til úrlausnar þessum vanda. Um langt árabil höfðu unglingar af þessu svæði aðgang að Menntaskólanum á Akureyri, gamla Möðruvalla- skólanum, þar til fyrstu bekkir hans voru lagðir niður sam- EINS og flestum bændum mun vera kunnugt um, hefur Verk- færanefnd ríkisins á undanförn um árum unnið að prófun bú- véla og gefið árlega út eitt hefti um niðurstöðurnar. í því er að finna skýrslur um allar tilrauna niðurstöður viðkomandi ár. Með lögunum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna var nefndin lögð niður, en starfs- svið hennar lagt undir Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, Bútæknideild. Þó að starfsemin sé rekin áfram með sama sniði og áður, hefur Rannsóknastofn- unin ákveðið að taka upp aim- að form á útgáfu og dreifingu kvæmt ákvörðun löggjafans núna fyrir fáum árum. Það má því segja, að það opinbera hafi tekið skólann af Eyfirðingum án þess að láta nokkuð í stað- inn enn sem komið er þrátt fyrir yfirlýsingar hæstvirts menntamálaráðherra, að ekki hafi staðið á ríkinu að sínu leyti til að framfylgja lögum um skyldunámið. Skólinn var af okkur tekinn til annarra þarfa fræðslunnar í landinu, án þess að um það væri séð, að tiltæk úrræði væru fyrir hendi til unglingafræðslu í hans stað í þessum héruðum. Um nokkurra ára skeið var hægt að koma nokkrum unglingum úr byggð- um Eyjafjarðar á Gagnfræða- skólann á Akureyri, en það er liðin tíð, því að sá skóli er þeg- ar ofsetinn af mörnurn frá Akur eyri. Foreldrar í þessu skóla- hverfi koma því ekki auga á neinn skóla fyrir börn sín og telja því, áð fyrir því sé vægast sagt fullur rökstuðningur að byggja nú þegar við Þelamerk- urskólann og þó að fyrr hefði verið. í þessu sambandi má geta þess, að heimavistin á Lauga- landi er aðeins fyrir 24 börn, en á þessu skólasvæði eru 95 börn fædd á árunum 1955—62. Og í Arnarnesskólahverfi eru 60 börn af sömu árgöngum, en unglingafræðslan fyrir Arnar- neshrepp er einnig fyrirhuguð í Þelamerkurskóla. Sést því á þessu, hvemig ástandið er í þessum hreppum.“ í lok ræðu sinnar gat Stefán þess, að hann teldi sig sam- kvæmt viðræðum í fyrra, eiga vísan stuðning Magnúsar Jóns- sonar fjármálaráðherra í máli þessu. En þegar til atkvæða- greiðslunnar kom, reyndist sá stuðnipgur ekki fyrir hendi, og var tillaga Stefáns um fjárveit- ingu til Þelamerkurskóla felld á Alþingi. □ tilraunaskýrslnanna en áður var. Verður nú horfið að því að birta sérprentaða skýrslu um prófun hvers einstaks verkfæris að lokinni prófun. Með þessu fyrirkomulagi þarf útgáfa einn- ar skýrslu ekki að tefjast vegna prófunar á öðrum verkfærum, og má því ætla, að hægt verði að koma niðurstöðunum á fram færi fyrr en ella. í samráði við ritstjórn bún- aðarblaðsins Freys hefur verið ákveðið að senda prófunar- skýrslur Bútæknideildar sem fylg'irit Freys. Fastir áskrifend- ur að blaðinu munu því fá HINN 3. febrúar var opnuð í Oslo sérstök íslandskynning sem standa mun út febrúar- mánuð. Þessi Islandskynning, sem á norsku hefur hlotið nafn- ið SAGA-SAS, er til húsa í hinu glæsilega veitingahóisi Caravella við Fornebu flugvöll í Oslo. Að íslandskynnmgunni standa Flugfélag íslands, Hótel Saga, SAS, Norræna húsið og íslenzka sendiráðið í Oslo. Þar sem hún fer fram hefur m. a. verið komið fyrir íslenzk- um listaverkum. Ennfremur eru veitingasalir skreyttir stækkuðum ljósmyndum, vegg- teppum og íslenzkum munum. Allan tímann sem íslandskynn- ingin stendur, verður íslenzkur matur á boðstólum á Caravelle veitingahúsinu og hefur Hótel Saga séð um það í samráði við SAS Catering. Mikilvæga aðstoð veittu, Sölu miðstöð hraðfrystihúsanna, Samband íslenzkra samvinnu- félaga, Osta- og smjölsalan og Mjólkursamsalan. Flugfreyjur frá Flugfélagi íslands klæddar íslenzkum þjóðbúningi munu verða í Oslo meðan á íslands- kynningunni stendur. Þær NÚ HAFA safnazt í Biafra- hjálp Rauða krossins krónur 540.387.42 til viðbótar við aðal- söfnunina sl. haust, en hún nam 7.7 millj. króna, sem þegar hef- ur borizt hjálparþurfandi fólki í Biafra. Allir bankar og sparisjóðir í landinu, ásamt útibúum, hafa góðfúslega fallist á að veita við- FRÁ LAXÁ í I VIÐTALI „Dags“ við rafveitu stjórann á Akureyri 14. jan. sl. segir meðal annars: „Smáhlaup varð í ánni í gærmorgun en það varð ekki að tjóni.“ - GÆÐINGAR SELDIR (Framhald af blaðsíðu 1). um undirbúið þessa hrossasölu. Vinsældir íslenzka hestsins í ýmsum Evrópulöndum eru vax andi og gert ráð fyrir auknum viðskiptum þar. í haust send- um við nokkuð af norðlenzkum hryssum til Danmerkur, en hross þau, sem nú bíða flutn- ings vestur um haf, eru víða af landinu, m. a. úr Skagafirði, sagði Agnar Tryggvason að lok um. □ skýrslurnar sjálfkrafa jafnóðum og þær koma út. Áskrifendur að prófunar- skýrslunum, sem ekki eru kaup endur að Frey munu fá þær sendar í póskröfu tvisvar á ári. Með hinu breytta fyrirkomu- lagi á útgáfu og dreifingu, vill Rannsóknastofnun landbúnaðar ins stuðla að því, að niðurstöður búvélaprófana nái sem fyrst til bænda og vonar, að þessum ný- mælum verði vel tekið. (Rannsóknarstofnun landbún aðarins. Bútæknideild — Hvann eyri). munu bjóða gesti velkomna. íslandskynningin var opnuð af ambassador íslands í Noregi og Guðmundur Jónsson óperu- söngvari söng íslenzk lög. □ geð- j verndarmálin GEÐVERNDARFÉLAG ÍS- LANDS hefur undanfarin ár unnið að frímerkjasöfnun, en fyrrverandi sjúklingar og vel- imnarar félagsins, vinna síðan úr frímerkjunum og setja þau á spjöld, sem seld eru, og renn- ur ágóðinn óskiptur til starf- seminnar. Frímerkjanefndin, sem sér um þennan lið starf- seminnar, hefur þegar afhent félaginu þrjú sjónvarpstæki í hús þau, sem félagið er að byggja að Reykjalundi í Mos- fellssveit. Félagið vill vekja athygli almennings á þessu starfi, og vonast til, að sem flest ir leggi þessu lið og sendi frí- merki, innlend og erlend, til skrifstofu félagsins, Veltusundi 3, pósthólf 1308, Reykjavík. (Geðverndarfélag íslands) töku framlögum til Rauða kross ins. Er því fólki um allt land gert auðveldara en áður að koma framlögum sínum til skila með því að leggja gjafafé sitt inn á reikning Rauða krossins í næsta banka eða sparisjóð. Framlög til Rauða krossins eru frádráttarhæf til skatts, skv. lögum þar um. □ LAXARDAL Við hér í Laxárdal teljum að hér sé villandi frásögn, og köll- um svona hreyfingu á krapinu ekki hlaup. Það sem í fréttinni er kallað hlaup var ekki annað en yfirborðskrap þjappaðist saman á dálitlum kafla — nokk ur 'hundruð metra — milli Hóla og Auðna, sunnan við ísinn sem kominn var. „Hlaupið“ var ekki meira en að það fór ekki upp á ísinn eða bakkana. En orða- lagið á fréttinni getur gefið til efni til að álíta, að það hefði getað orðið að tjóni. Frá „Sog- inu“ og suður að ísbrúninni, eru um 7 km. á þeirri leið var samfelldur og sterkur ís á ánni, og með ekki meira vatnsmagni en var í ánni nefndan dag, gat hlaup ekki brotið upp þann ís sem kominn var, sem sýndi sig í stórhríðinni 15. jan. þegar margfaldur vatnsþungi hvíldi á ísbruninni, þá rótaðist hún ekki, og ekki þó hlaðist í ána sunnna við það mikið að hún hækkaði verulega. Það er lögð mikil áherzla á að kynna fyrir alþjóð hverja hi'eyfingu á Laxá hér í Laxái'dal, og það er sjálf- sagt nauðsynlegt, en sú kynning verður að vera rétt. Þessi orð eru skrifuð til skýringar og leið réttingar á frétt um ána. Gunnl. Tr. Gunnarsson. - SMÁTT OG STÓRT dagskrá, en vinnsla þess er orkufrek og því athugandi að nýta jarðliitann til framleiðsl- unnar. En öll þessi atriði eru á dagskrá Iijá Rannsóknarráði ríkisins í ár. SKÝRSLA AÐ LOKINNIPRÓFUN BÚVELA ALLAR PENINGASTOFNANIR Á LANDINU TAKA VIÐ FRAMLÖG- UM TIL RAUÐA KROSSINS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.