Dagur - 02.04.1969, Blaðsíða 8

Dagur - 02.04.1969, Blaðsíða 8
«Í5ÍÍÍÍ55ÍÍ55ÍÍÍÍÍÍ5ÍÍSÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍ5Í55Í55ÍÍÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍSÍ5ÍÍ5ÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍ5ÍÍÍÍS555$5^ SMÁTT & STÖRT Sjórinn er kaldur um þessar mundir og ísing mikil. Hér er Drangur, nýkominn að austan. — (Ljósm.: E. D.) 555555555555555555555555555555555555 ííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííi Sana aflient nýju lilutafélagi BLAÐIÐ leitaði frétta af Sana- málinu umtalaða hjá bæjar- fógetanum á Akureyri, Ofeigi Eiríkssyni, í gær. Efnislega sagði hann: Búið er að stokka gjaldþrotamál Sana h.f. upp og stofna nýtt hlutafélag með um eða yfir þrjátíu eigendum, ein- staklingum og fyrirtækjum. Eig endur eru flestir kröfuhafar, sem hafa nú samþykkt, að breyta skuldunum í hlutafé og er hlutaféð nú 20 milljónir króna. Hafa nær allir kröfu- hafar samþykkt þessa meðferð nauðarsamninganna við hið gjaldþrota fyrirtæki og verður endanlega gengið frá málum einhvern næstu daga og nýjum eigendum afhentar eignir Sana. Það kemur svo í hlut hinna -nýju eigenda, að kjósa fyrir- tækinu stjórn og framkvæmda- stjóra, sagði skiptaráðandi að lokum. Með þessu má segja, að tryggt sé, að rekstur og framleiðsla öls og annarra framleiðsluvara verksmiðjunnar haldi áfram hér og er það að sjálfsögðu nokkurs vert og vonandi, að sá grundvöllur sé nú lagður, sem tryggi verksmiðjunni sómasam- lega framleiðsluaðstöðu. □ NYJA ORKUNEFNDIN Ríkisstjórnin er nýbúin að skipa fjölmenna orkumálanefnd og eru nefndarmenn að venju flestir úr nágrenni stjórnarráðs ins. Einn Akureyringur er þó í nefndinni, Knútur Otterstedt, og hefur hann látið hafa eftir sér ýmislegt, sem varðar raf- orkumál Norðlendinga, en hann er að sjálfsögðu allvel kunnug- ur þeim málum. Hann segir, að nú á næstunni verði til umráða á vegum Laxárvirkjunar 22500 kw. Þar af eru aðeins 12500 frá Laxá sjálfri, en 7500 kvv. frá disilrafstöð og 2500 kw. frá gufu aflstöð í Bjarnarflagi. Ennfrem- ur ræðir Knútur um stórvirkj- xm í Jökulsá á Fjöllum og Laxá og segir í því sambandi, að fram lialdsrannsóknir við Jökulsá taki 3 ár og kosti 16—20 millj. króna. ÞURFA AÐ REIKNA AFTUR? Fyrir noldirum árum voru þó spakvitrir menn í Reykjavík búnir að rannsaka þessa virkj- unarmöguleika við Jökulsá svo vel, að þeir gátu reiknað ná- kvæmlega raforkuverðið pr. kílóvattstund og borið saman við verð frá Búrfellsvirkjun! En nú er eins og eitthvað hafi á skort til að setja dæmið rétt upp í þann tíð. Því mun mega treysta, að Knútur Otterstedt rafveitu- stjóri á Akureyri geri það sem í hans valdi stendur til þess að virkjunarrannsóknir hér nyrðra Fjölþætf efni á bændaklúbbsfundi Skíðavika á Akureyri 3.-7. APRIL 1969 EINS og að undanförnu verður skíðavikan á Akureyri haldin um páskana. Þar verður að venju margt til skemmtunar fyrir hina fjölmörgu sem þang- að koma, en samkvæmt viðtöl- um við hótel og þá sem að ferða málum vinna, er búist við að ferðamenn skipti mörgum hundruðum. Að sjálfsögðu ber hæst hin stórglæsilega aðstaða til skíða- iðkunar í Hlíðarfjalli, en þar er einmitt núna jafn og nýfallinn snjór yfir öllu. Þar verða tvær skíðalyftur í gangi allan daginn og auk þess eina stólalyftan á íslandi. Skipulögð verða skíða- mót fyrir alla liæfnisflokka skíðagesta, en þátttaka er öll- um heimil frá 6 ára aldri og upp úr. Reynt verður einnig að útvega skíðakennara fyrir þá sem þess óska. Kvikmyndasýningar verða í Samkomuhúsinu og má þar t. d. nefna franska mynd frá Olym- píuleikunum í Grenoble 1968 o. fl. góðar franskar skíða- myndir. Kvöldskemmtanir verða að venju í Sjálfstæðishúsinu, en þar leikur og syngur hin marg- lofaða Hljómsveit Ingimars Ey- dals ásamt söngvurunum Þor- valdi og Helenu. Þar mun einnig skemmta gestum söng- konan ágæta, Sigrún Harðar- dóttir. Skíðavikunni lýkur með dans leikjum í Sjálfstæðishúsinu og í Alþýðuhúsinu, en þar mun hin vinsæla hljómsveit Geislar sjá um stanzlaust fjör, en sá dansleikur er aðallega ætlaður yngri kynslóðinni. Hópferðis s.f. sér um ferðir í Hliðarfjall á klukkutíma fresti alla skíðavikuna. Fyrsta ferð kl. 9 á morgnana. (Fréttatilkynning) Á MÁNUDAGINN var þriðji bændaklúbbsfundurinn á þessu ári haldinn á Hótel KEA og sóttu hann um 90 manns. Ármann Dalmannsson stjórn aði fundi. Framsöguerindi N ÁMSKEIÐ KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA hefur ráðið Baldur Oskarsson í nokkrar vikur til að koma á fót félagsmálanámskeiðum á fé- lagssvæði sínu og veita fræðslu um samvinnufélagsskapinn og er þetta hið þarflegasta. Ungmennasamband Eyjafjarð ar verður þátttakandi í þessari góðu viðleitni, hvað snertir hina almennu félagsmála- fræðslu. Nánari fregnir er væntanlega hægt að segja af þessu í næsta eða næstu blöðum. □ BÚSTÓLPI H.F. BÚIÐ er að stofna félag, Bú- stólpa h.f. til þess að sjá bænd- um fyrir fóðurvörum og e. t. v. fleiri vörum á kostnaðarverði, eins og segir í fréttatilkynningu þar um. Ástæðan fyrir félags- stofnun þessari telur félagið vera þá, „að mál þessi hafa verið í slæmu standi undanfarið og virðist því ekkert annað ráð tiltækt en að bændur taki í sín- ar hendur sölu þessara vara.“ Formaður Bústólpa h.f. er Jónas Halldórsson, Sveinbjarn- argerði, en framkvæmdastjóri er Eiríkur Sigfússon á Sílastöð- um. □. fluttu, Ævar Hjartarson, ráðu- nautur og ræddi um jarðrækt og sérstaklega um áburðar- notkun. Hvatti hann bændur eindregið til að halda áburðar- bækur. Ólafur Vagnsson ráðu- nautur ræddi um sauðfjárrækt- ina í héraðinu og sauðfjárrækt- arfélögin. Taldi hann skýrslu- gerðir hjá félögum hina mestu nauðsyn, enda væri hún auð- veldari en áður, vegna breyttra skilyrða. Sigurjón Steinsson ræddi um nautgriparæktina og lagði hann einnig áherzlu á skýrslugerð til að auðvelda kyn bótastarfið. Einnig ræddi hann um fóðrun og kynbætur naut- gripa. (Framhald á blaðsíðu 7) verði ekki liornreka í annað sinn. Flokksblað Sjálfstæðis- marnia hér sagði í vetur, að fyr ir lægi loforð um, að næsta stór virkjun yrði á Norðurlandi. Vera má, að það sé fleipur eitt hjá blaðinu eða klaufalega fram sett óskhyggja. En vert er þó að hafa þau orð í huga. FÉLAGSRÆKTUN OG HEYKÖGGLAGERÐ Fimm Framsóknarmenn flytja á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um, að athuga möguleika á því, að Landnám ríkisins taki að sér aukinn stuðning við fé- lagsræktun, þar sem hennar er þörf og að stuðla að því að kom ið verði á fót fóðurvinnslu úr innlendu liráefni (heyköggla- verksmiðju) ásamt fóðurbirgða stöðvum. Stefán Valgeirsson og Jónas Jónsson eru meðal flytj- enda tillögunnar og er Jónas framsögumaður málsins. Um þessi mál var allmikið rætt á Búnaðarþingi og oft ber þau á góma manna á milli í sambandi' við heyskort og hina gífurlegu verðhækkun kjarnfóðurs. Trú- legt er, að framkvæmdir af þessu tagi sé það landnám, sem að miklum notum komi eins og nú standa sakir. RANNSÓKN ÁFENGISMÁLA Ingvar Gíslason og Sigurvin Einarsson Ieggja til á Alþingi, að komið verði upp rannsóknar stofnun í áfengismálum, sem vinni að vísindalegum rannsókn um áfengismála, félagslegum og læknisfræðilegum. Höfð verði hliðsjón af slíkum rannsóknum, sem gerðar hafa verið á Norður löndum og leitað samstarfs við Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- ina. Ingvar er framsögumaður máls þessa, sem er í senn aðkall andi og hefur verið herfilega vanrækt. LOÐNAN OG FRAMTÍDIN Loðnuveiðin mikla fyrir sunnan land undanfarið glæðir vonir við sjávarsíðuna, ekki sízt vegna þess, að síldaraflinn reyndist svipull. Leiða menn hugann að því, að ýmislegt sé ennþá ónotað í sjónum, sem komið geti í stað síldarinnar, ekki aðeins þegar hún er vand- (Framhald á blaðsíðu 2). 5Kí5í«ííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííííí5íííiíííííííí Lítill snjóblásari, festur á dráttarvél, notaður uppi í Hhðar- fjalli. (Ljósm.: E. D.) «Í5ÍÍÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍÍÍ«ÍÍÍÍ5ÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ5ÍÍÍI«

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.