Dagur - 11.03.1970, Blaðsíða 7

Dagur - 11.03.1970, Blaðsíða 7
7 Innilegar þalikir til ykkar, sem heimsóttuð mig, fœrðu mér gjafir og skeyti á sextíu ára afmceli mínu 5. marz. Guð blessi ykkur öll. HÖRÐUR KRISTJÁNSSON. <■ © ■5- f f I 1 V © <■ a!'- © t f f f © -»• Mitt innilegasta þakklœti sendi ég börnum, % tengdabörnum og barnabörnum fyrir heimsókn- ir og gjafir á áttatíu ára afmæli mínu, '4. þessa f mánaðar. Sömuleiðis vinum og öðru skyldfólki, * sem sendu mér blóm og skeyti og glöddu mig á < margan annan hátt. Enn fremur kvenfélaginu I | Baldursbrá fyrir sina vinalegu gjöf. ? f Guð blessi ykkur öll. -j » © |- KRISTIN SIGURÐARDOTTIR, % © Glerárholti 1, Akureyri. % & X Sonur okkar og bróðir, ÚLFAR MAGNÚS JACOBSEN, lézt af slysförum 3. þ. m. Svana Karlsdóttir, Gudm. St. Jacobsen og systkini. Systir okkar og móðursystir mín, ÞÓRHILDUR VALDIMARSDÓTTIR KVALSVIK, andaðist að heimili sínu, Kvalsviköy í Noregi, hinn 8. þ. m. Árni Valdimarsson, Margrét Valdimarsdóttir, Helga Valdimarsdóttir, Sigríður Valdimarsdóttir, Gréta Halldórs. GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu laugard. 7. þ. m., verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugárdaginn 14. marz kl. 13.00. o o Vinir hinnar látnu. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hjálp við andlát og jarðarför ÞORGEIRS JÓNSSONAR, Helluvaði. Sérstaklega viljum við þakka yfirlæknum á Krist- neshæli, Jónasi Rafnar og Snorra Ólafssyni. Frændfólk. Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR frá Syðra-Holti, Svarfaðardal. Sigurður Ólafsson, Ástdís L. Óskarsdóttir, Jón G. Ólafsson, María Brynjólfsdóttir, Kjartan Ólafsson, Klara Kristinsdóttir, ívar Ólafsson, Valgerður Aðalsteinsdóttir, Sveinn B. Ólafsson, Anna Þorgilsdóttir og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför systur okkar, GUÐNÝJAR STEFÁNSDÓTTUR, Eyjardalsá. Anna Stefánsdóttir, Jón Stefánsson, Sigrún Stefánsdóttir. iLi^gsaaiiBBaaaBaMaMt^iWECTiBasBaaHBTOSMaMwaBi iiiMiii'iiiii"iiin""niBwai I.O.O.F. Rb. 2 — 1193118V2 — I.O.O.F. — 1513138y2 — □ RÚN 59701137 = 5 .:. AKUREYRARKIRKJA. Mess- að á sunnudaginn kemur kl. 2 e. h — Boðunardagur Maríu. — Stuttar predikanir flytja Anna Soffía Daníels- dóttir og Pétur Þórarins- son. — Sálmar: (Unga kirkjan) 31 — 13 — 41 — 65 — 42. Unglingar frá Garða- kirkju á Álftanesi koma í heimsókn og aðstoða í mess- unni. Öldruðum veitt aðstoð til kirkjunnar. Hringið í síma 2-10-45 fyrir hádegi á sunnu- dag. — P. S. AKUREYRARKIRKJA. Föstu- messa í kvöld (miðvikudag) kl. 8.30. Sungið úr Passíu- sálmum: 19. sálmur 1—7, 20. 1—4, 24. 1—3 og „Son guðs ertu með sanni.“ Takið þátt í sálmasöngnum og syngið litaníuna. — P. S. MÖÐRUVALLAKLAUSTURS- PRESTAKALL. Föstuguðs- þjónusta að Möðruvöllum á morgun (fimmtud. 12. marz) kl. 8.30 e. h. Séra Birgir Snæ- björnsson predikar. — Sókn- arprestur. KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION. Sunnudaginn 15. marz. Sunnu dagaskóli kl. 11 f. h. Öll böm velkomin. Samkoma kl. 8.30 e. h. Allir hjartanlega vel- komnir. FÍLADELFÍA, Lundargötu 12. Sunnudagaskóli hvern sunnu dag kl. 1.30 e. h. Öll börn vel- komin. — Almenn samkoma hvern sunnudag kl. 8 e. h. (athugið breyttan tíma). Söng ur og vitnisburðir. Allir vel- komnir. — Saumafundir fyrir telpur hvem föstudag kl. 5.30 e. h. Allar telpur velkomnar. — Fíladelfía. OPINBER FYRIRLESTUR. — Notið tunguna til góðs, að Þingvallastræti 14, 2. hæð, sunnudaginn 15. marz kl. 16.00. — Allir velkomnir. — Vottar Jehóva. FRA SJÓNARHÆÐ: Drengjafundir á mánudögum kl. 5,30. — Saumafundir fyrir telpur á fknmtudögum kl. 5.15. Samkoma að Sjónarhæð kl. 5 á sunnudaginn. Sunnudagaskóli að Sjónar- hæð kl. 1.30 á sunnudaginn. #LIONSKLÚBBUR AKUREYRAR Fundur í Sjálfstæðishús inu fimmtudaginn 12. marz kl. 12. I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr. 275. Fundur n. k. fimmtudag kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar fjölmennið. — Æ.t. Es. ÁRSHÁTÍÐ félagsins verður n. k. sunnudag að lokinni messu í Akureyrarkirkju. Árs hátíðin verður í Sjálfstæðis- húsinu með sameiginlegri kaffidrykkju. Nánar auglýst síðar. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99. Fundur n. k. fimmtudag kl. 20.30 í Kaupvangsstræti 4. Venjuleg fundarstörf og vígsla nýliða. Skemmtiatriði að fundi loknum. — Æ.t. FRA SJÁLFSBJÖRG. Spilakvöld verður að Bjargi föstudaginn 13. marz kl. 8.30 e. h. — Síðasta spilakvöld fyr- ir páska. M.F.Í.K. KONUR. Munið fund- inn í félagsheimili Einingar — Þingvallastræti 14 — mið- vikudaginn 11. marz kl. 8.30 e. h. Mætið stundvíslega. — Stjórnin. AÐALFUNDUR Austfirðinga- félagsins á Akureyri verður haldinn að Hótel Varðborg fimmtudaginn 19. marz kl. 8 síðdegis. Nánar auglýst síðar. MINNIN G ARSPJ ÖLDIN fást í verzlununum BÓKVAL og FÖGRLHLÍÐ. — Styrktar- fólag vangefinna. FERMINGAR- GJAFIR FÁIÐ ÞIÐ í MESTU ÚRVALI HIÁ OSS. JARN- OG GLERVORUDEILD BIFREIÐAEIGENDUR - BIFREIÐAVERKSTÆÐI! Nýkomnir VATNSLÁSAR fyrir ýmsar tegundir bifreiða, m. a.: CHEVROLET, OPEL, LAND- ROVER, TAUNUS, BRONCO. - 80-92°. Ennfremur HÁSPENNUKEFLI — 6—12 V. VELADEILD BRÚÐHJÓNIN Guðlaug Harð- ardóttir og Sveinn Jónsson, Gunnarsbraut 36, Reykjavík. Ljósmyndastofa Páls. FRÁ Þingeyingafélaginu. Árs- hátíð félagsins er fyrirhuguð laugardaginn 21. marz n. k. Góð skemmtiatriði. Nánar auglýst í næsta blaði. — Skemmtinefndin. SLYSAVARNAFÉLAGSKON- UR! F'undur verður í Hús- mæðraskólanum sunnudag- inn 15. marz kl. 3 e. h. Eftir stuttan fund verður sýni- kennsla til gagns og gamans. Konur! Takið með bollapör, en kaffi fæst keypt fyrir vægt verð. — Stjórnin. ALÞÝÐUMAÐURINN kemur ekki út þessa viku. FRÁ Krabbameinsfélagi Akur- eyrar. Leitarstöð félagsins opnar að nýju 18. marz n. k. Konur, sem hafa fengið bréf frá félaginu, geta pantað skoð un 16. marz og framvegis á þann hátt, sem lýst er í bréf- inu. AÐALFUNDUR Akureyrar- deildar KEA verður annað kvöld (fimmtudag) kl. 8.30 á Hótel KEA, eins og auglýst hefur verið. HLÍFARKONUR, Akureyri! — Fundur verður fimmtudaginn 12. marz kl. 8.30 síðd. að Hótel Varðborg. Nefndar- kosningar og kaffi. — Stjórn- in. MINJASAFNIÐ á Akureyri er lokað um óákveðinn tíma. Þó verður tekið á móti skóla- fólki eftir samkomulagi. VISTHEIMILINU SÓLBORG hafa borizt þessar gjafir: Frá B. O. 500 kr., frá Soffíu 200 kr., frá Nonna og Dúnu til minningar um Pétur Jónsson 500 kr., frá fimm öskudags- flokkum 2.162 kr., frá A. K. og K. I. 2.000 kr., frá Guðbj. Árnadóttur, Akranesi 6.000 kr., frá Þ. D. til minningar um Guðnýju Stefánsdóttur 500 kr. og til hljóðfæra- og sjónvarpskaupa með kveðju frá Húsavík 120.000 kr. — Alls 131.862.00 kr. — Kærar þakkir. — Stjórn Sólborgar. BÓKMENNTAKLÚBBUR Ak- ureyrar heldur framhalds- stofnfund í Amtsbókasafninu sunnudaginn 15. marz n. k. kl. 15.30. Á fundinum flytur. Árni Kristjánsson mennta- skólakennari erindi: Rabb í kringum Ijóðagerð Halldórs Laxness. Nýir félagar vel- komnir, en félagsmenn geta allir þeir orðið, sem áhuga hafa á bókmenntum. Á eftir fundinum kl. 17 verður opn- uð yfirlitssýning á bókum eftir núlifandi rithöfunda á Akureyri og í Eyjafirði. Einnig bækur nokkurra höf- unda, sem átt hafa heima á Akureyri eða í Eyjafirði, en fluttir eru nú burtu. Bóka- sýning þessi verður opin til 25. þ. m. á þeim tíma, sem bókasafnið er opið. — Stjórn- in.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.