Dagur


Dagur - 08.07.1970, Qupperneq 7

Dagur - 08.07.1970, Qupperneq 7
7 • Virkjunmíi á Norðuríandi (Framhald af blaðsíðu 5). andafljótsvirkjunar hafa mjög lítið verið rannsakaðir til þessa og hefur í S.-Þing. komið fram á'hugi fyrir því, að rannsókn fari fram. Hvernig eru eignarhlutföll í Laxárvirkjun? Akureyri á að lögum 65% og 'hefur þrjá menn í stjórn, ríkið 35% og hefur tvo menn í stjórn nú búsetta á Akureyri. Eyfirð- ingar, Suður-Þingeyingar og Húsvíkingar, sem nota orku frá Laxá, eru ekki aðilar að fyrir- tækinu og ekki heldur N.-Þing- eyingar, sem ráðgert er að fái rafmagn þaðan. Þetta fyrirkomu lag er ættað að sunnan. Sogs- virkjun var sameign Reykja- víkur og ríkisins og Landsvirkj un er það nú. Aðrir ráða þar engu um. Reykjavík og Akur- eyri höfðu á sínum tíma frum- kvæðið við framkvæmdir með ríkisábyrgð og hafa kannski lengst af talið sér hag af þessu fyrirkomulagi. Þó ætla ég, að sumir stjórnendur Laxárvirkj- unar hafi talið eðlilegt, að hér yrði breyting á og er ég þeim sammála um það — nú þegar virkjun er aukin, er gert ráð fyrir helmingaskiptum milli ríkisins og Akureyrar, og að oddamaður í stjórn sé kkipaður með samkomulagi eða af Hæsta rétti. Hvað segir þú um að fá lím? að sunnan þegar tímar líða? Það yrði nokkuð löng lína, ca. 250 km. milli Búrfells og Akureyrar og línustæðið lítt rannsakað ennþá. Flutningsgeta línunnar skiptir miklu máli ef til kæmi. Til samanburðar skal ég nefna, að frá Búrfel'li ti] Reykjavíkur eru 120 km., frá Dettifossi til Akureyrar 91 km. og frá Laxá til Akureyrar 53 km. Þessar tölur fékk ég hjá Orkumálastofnuninni. Þegar rætt ar um að virkja Dettifoss fyrir 5—6 árum, var gert ráð fyrir álverksmiðju á Gáseyri. En styttzt leið til hafn- arstaðar frá Dettifossi er að Fjallahöfn í Kelduhverfi, innan við 40 km. Þingmenn úr Norður landskjördæmi eystra fluttu einu sinni tillögu um rannsókn á hafnarstæði þar. Til Kópa- »«><®*S><S><$kS*ÍxS><$kS>^Í><í><S><S'<Í>^^ AUGLÝSIÐ I DEGI skers og Húsavíkur eru um 50 km. frá Dettifossi, til Leirhafn- ar 64 km. og til Raugarhafnar 76 km. Þessar tölur eru sam- kvæmt grein eftir Björn Har- aldsson í Tímanum 3. júní sl. Hvað viltu segja að lokum? Að við Norðlendingar og norð 'lenzkt samstarf hefur verið að ganga undir próf í þessum mál- um og því ekki lokið. — Og að ekki megi gleyma þeim, sem enga rafveitu hafa. Að ríkið eigi að taka rögg á sig og ljúka raf- væðingu sveitanna á viðunandi hátt, segir Gísli Guðmundsson alþingismaður að lokum og þakkar Dagur svör hans. E. D. Haglabyssur Oclýru, rússnesku HAGLABYSSURNAR eru komnar. Póstsendum. BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F. STÚLKA óskast í vist. Sími 1-17-83. - Barngóð UNGLINGS- STÚLKA óskast til að gæta tveggja <barna. Uppl. í síma 2-10-80, milli kl. 9 og 4. UPPHLUTSBOLUR og belti óskast til kaups. Uppl. í síma 1-21-32. Vil kaupa góða BARNAKERRU. Uppl. í síma 2-15-14 til kl. 12 og eftir kl. 20. V ..........“ ■ c* I 4 -t & t vi* 4 •i- t 1 <r J t <a Hjartans þakkir til allra, sem glöcldu mig á áttatíu og fimm ára afmceli minu 30. f. m. Guð blessi ykkur öll. GUNNAR TRYGGVASON frá Bretlingsslöðum. Eiginmaður minn, BRYNJÓLFUR PÁLMASON frá Teigi, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. júní síðastliðinn. — Jarðarförin fer fram frá Ak- ureyrar-kinkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 1.30 e. h. Blóm. afþökkuð. Sigríður Jóhannsdóttir. Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og anima, KAROLÍNA SIGURBJÖRG KARLSDÓTTIR, andaðist í Kristneshæli þann 4. júlí. Snorri Jónsson og börn. 30 ferm. GEYMSLA til leio'u og lítið notaður barnavagn til sölu. Upjrl. í Brekkugötu 6. Nýkomið ULLARJERSEY — svart, brúnt blágrænt. VERZLUNIN RÚN Tilboð óskast í VOLKSWAGENBÍL, skemmdan eftir árekstur. Bíllinn er til sýnis á Baug. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 11. þ. m. Til sölu PLYMOUTH, árg. 1948, í góðu lagi, ásamt miklu af varahlut- um. Uppl. í síma 2-12-77. Til sölu OPEL Caravan, árg. 1951, selst ódýrt. Uppl. í síma 1-25-61. Vil kaupa GYPSY- JEPPA á fjöðrum með díselvél. Ujrpl. í síma 6-11-23, Dalvík. Til sölu Skoda BIFREIÐ árgerð 1956. Þarfnast viðgerðar. Ódýr. Sigfús Árelíusson, Geldingsá. TAUNUS 17M til sölu. (Mjög vel með farinn). Kjartan Magnússon, sími 2-15-70. Til sölu er VOLKS- WAGEN bifreið, árg. ’64. Uppl. í síma 6-11-32. Gunnþór Sveinbj., Dalvík. Til sölu OPEL Caravan, árgerð 1955. Góður bíll. Greiðsluskihnálar. Uppl. í síma 2-10-15, á kvöldin. Til sölu er gamall 5 tonna VÖRUBÍLL í góðu lagi, selst ódýrt. Uppl. í síma 2-17-14 og 1-19-09. Víkingur Guð- mundsson, Grænhóli. Vil kaupa VOLKSWAGEN, árg. ’62—’64. — Útborgun. Uppl. gefur Tryggvi Jónsson, Munkaþverár- stræti 34, milli kl. 12—1 og 7—8 á kvöldin. MESSAÐ verður í Akureyrar- kirkju n. k. sunnudag kl. 10.30 f. h. Gunnar Sigurjónsson cand. theol. prédikar. — B. S. OPINBER fyrirlestur: Biblían sannar sjálf guðlegan uppruna sinn, að Þingvallastæti 14, II hæð, sunnudaginn 12. júlí kl. 16.00. Allir velkomnir. — Vottar Jehóva. FÍLADELFÍA, Lundargötu 12. Almenn samkoma á fimmtu- dag (9. júlí) kl. 8.30 e. h. Ræðumenn verða hjónin Hólmfríður Magnúsdóttir og Hallgrímur Guðmannsson. Söngur og musik. Allir vel- komnir. — Fíladelfía. I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan nr. 1. Fundur fimmtudaginn 9. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Kaup- vangsstræti 4. Fundarefni: Vígsla nýliða, önnur mál. Eftir fund: Kvikmynd. — Æ.t. GJAFIR og áheit til kirkju- hjálpar kr. 1.000 frá N. N. Perúsöfnunin kr. 1.000 frá ónefndum. Til mæðrahjálpar á Akureyri kr. 100. — Beztu þakkir. — Séra Pétur Sigur- geirsson. SAMKOMA í Aku-r- eyrarkirkju föstudags- kvöldið 10. júlí. Gídeon félögin á íslandi minn- ast 25 ára afmælis síns með móti á Akkureyri dagana 8.— 12. júlí n. k. í sambandi við mótið verður almenn sam- koma í Akureyrarkirkju föstu dagskvöldið 10. júlí. Þar verð ur fjölbreytt dagskrá. Ræðu- menn verða: Bjarni Eyjólfs- son, ritstjóri, Reykjavík, Dr. David Anderson, prófessor í guðfræði við Trinity College, Illinois, USA og Scott Myer, fulltrúi í Pentagon, og deildar stjóri Gídeon á Norðurlönd- um og írlandi. Einsöng syng- ur Árni Sigurjónsson, Reykja vík. Auk þess verður svo mikill og almennur söngur. Allir eru hjartanlega vel- komnir. HERBERGI til leigu í Hafnarstr. 88, gengið inn að sunnan, austari dyr. Uppl. eftir kvöldmat. ÍBÚÐ! — Mig vantar O tveggja herbergja íbúð á leigu. Uppl. í síma 1-24-89. 2-3 hebergja ÍBÚÐ óskast til leigu strax eða í baust. Uppl. í síma 1-17-83. Lítl ÍBÚÐ óskast til leigu. Uppl. í síma 2-14-25. 4—6 herbergja ÍBÚÐ eða einbýlishús óskast til leigu sem fyrst. Hörður Þórleifsson, tannlæknir, sími 1-27-82 og 1-13-90. BRÚÐHJÓN. Hinn 4. júlí voru gefin saman í hjónaband í Akukreyrakirkju ungfrú Hólmfríður Davíðsdóttir og Stefán Árnason trésmiður. Heimili þeirra vei'ður að Reynivöllum 2, Akureyri. HJÚSKAPUR. Hinn 28. júní sl. voru gefin saman í hjónaband í Möðrudalskkirkju, af síra Ágúst Sigurðssyni, ungfrú Sigurbjörg Jónsdóttir frá Fífilgerði, Akureyri og Jón Aðalsteinn Stefánsson frá Möðrudal. Heimili þeirra er á Austurvegi 36, Seyðisfirði. FERÐAFÉLAG AKUREYRAR. Öræfasveit á laugardag. Þátt- taka tilkynnist í kvöld. Askja — Herðubreiðarlindir 2 ferðir í næstu viku. FORELDRAR! Sjáið auglýsingu í blaðinu í dag um dvöl telpna í sumarbúðunum að Hóla- vatni. MINJASAFNIÐ á Akureyri er opið alla daga kl. 1.30—4.00. Sími safnsins er 1-11-62 og safnvarðar 1-12-72. NONNAHÚS er opið daglega kl. 2.00—4.00 e. h. Sími safn- varðar er 1-27-77. NÁTTÚRU GRIP AS AFNIÐ er opið alla daga, nema laugar- daga, sem hér segir: Sunnu- daga kl. 2.00—4.00, mánudaga kl. 4.00—7.00, þriðjudaga, mið vikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 2.00—3.30. Skrif stofa og bókasafn er opið mánudaga kl. 4.00—7.00. Sýn- ingarvörður er Sigurlaug Skaptadóttir, sími 1-21-87. MATTHÍASARIIÚS — Sigur- hæðir — er opið daglega kl. 2.00—4.00. DAVÍÐSHÚS — Bjarkarstíg 6 — er opið daglega kl. 5.00— 7.00. LYSTIGARÐURINN er opinn daglega frá kl. 9.00 árd. til kl. 10.00 síðd. ÉFRA SJÁLFSBJÖRG. Sumarmót allra Sjálfs- bjargafélaganna verð- ur í Húnaveri dagana 10.—12. júlí n. k. Sam- eiginlegt kaffi verður fyrir þátttakendur en að öðru leyti þarf að nesta sig sjálfur. Ein- ungis er um svefnpokapláss að ræða í Húnaveri svo að hafa verður með sér viðlegu- útbúnað. Allar nánari upplýs ingar eru gefnar á skrifstofu félagsins. Sjálfsbjargarfélagar, tökum myndarlega þátt í ferð inni. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu félagsins fyrir 9. júlí. — Sjálfsbjörg. ) Sumarkjólai( seldir með miklum afslætti þessa viku. ____ f SUMARFRÍIÐ: BUXUR, BLÚSSUR, PEYSUR, STAKKAR. MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.