Dagur - 09.09.1970, Page 2

Dagur - 09.09.1970, Page 2
2 (Framhald af blaðsíðu 5). stjóri Laxárvirkjunar fór, nokkru eftir að hann tók við starfi, austur að Mývatni og kynnti sér, ásamt eftirlitsmönn- um Laxárvirkjunar með þess- um mannvirkjum, þeim Finn- boga Stefánssyni, þá bónda á Geirastöðum og ívari Stefáns- syni, bónda í Haganesi, þessar ■íramkvæmdir og áhrif þeirra á fiskigengd milli vatns og ár. Þar sem veiðimálastjóri var þá væntanlegur skömmu síðar til Mývatns þá varð að samkomu- lagi að áðurnefndir bændur ræddu þessi mál við hann og óskuðu tillagna til úrbóta, en um fleiri leiðir virtist þarna vera að ræða, og var það gert. Því miður komu ekki tillögur frá veiðimálastjóra til úibóta, en eins og tekið var fram við áðurnefnda bændur, þá var því lýst yfir að ekki mundi standa á Laxárvirkjun að framkvæma þær aðgerðir, sem taldar væru, af sérfræðingi um þessi mál, líklegastar til árangurs. Um vatnsliæð Mývatns. Allmikið hefir verið rætt og ritað um vatnsstöðu Mývatns og hafa ýmsir haldið því fram að hún sé nú önnur en var áður en framkvæmdir þessar hófust og nú í Morgunblaðinu bann 28. ágúst 1970 er grein eftir Krist- ján Þórhallsson, Vogum, þar sem háu vatnsborði er kennt um litla silungsveiði, þverrandi fuglalíf o. fl. Vegna þessara skrifa vill stjórn Laxárvirkjun- ar gera grein fyrir þessu atriði: Fljótt eftir að stíflan í Syðstu- kvísl var gerð fór að bera á óánægju bænda með háa vatns- stöðu, sérstaklega voru það þeir bændur er bjuggu norðan og austan við vatnið, og með bréfi dags. 31. sept. 1952 er kvartað yfir of 'hárri vatnsstöðu og farið fram á að vatnið verði lækkað í 47 cm. á mælikvarða þeim sem við vatnið er. Á fundi Laxárvirkjunarstjórn ar, bæði 1952 og 1953 er bókað að Mývetningar geti sjálfir ráð- ið vatnsstöðunni og vatns- rennsli, að því tilskyldu, að vél- ar virkjunarinnar fái nægjan- iegt vatn og komizt verði hjá að gera Mývetninguih búsifjar. Stjórn Laxárvirkjunar benti sðlilega á, að hún hefði engan áhuga á að ákveða eitt eða neitt jm vatnsborðshæð Mývatns. Það ættu Mývetningar sjálfir að gera, en enn mun þeim hafa gengið illa að ná samkomulagi þar um. Þann 14. marz 1954, skrifar 3igfús Hallgrímsson, Vogum, Sigurjóni Rist bréf þar sem ihann kvartar um háa vatns- stöðu og óskar umsagnar hans. Þessu bréfi svaraði Raforku- málaskrifstofan og sendi stjórn Laxárvirkjunar afrit af því svari ásamt bréfi Sigfúsar. Á fundi stjórnarLaxárvirkj- unar dags. 30. marz 1954 var gerð svofelld bókun: „Ástæðan fyrir umkvörtunum þeim, sem fram hafa komið virð ist stafa af ósamkomulagi milli skuli vatnáhæð Mývatns, en Mývetninga um hvernig haga stjórn Laxárvirkjunar vill ekki blanda sér í þær deilur. Geti Mývetningar komið því svo fyrir að til verði ákveðinn aðili sem hafi vald til að segja fyrir um hver vatnshæðin skuli vera, þá er virkjunarstjórn fús til þess að leggja fyrir eftirlits- mann virkjunarinnar að haga vatnshæðinni eftir fyrirmælum þessa aðila á umræddum tím- um árs, en meðan enginn slíkur aðili er til getur stjórnin ekki annað en lagt fyrir eftirlitsmann inn, eins og hún þegar hefir gert, að halda vatnshæðinni sem líkastri því, sem hún hafði verið áður, á viðkomandi árstímum." Þann 1. ágúst 1954 skrifa margir ábúendur við Mývatn stjórn Laxárvirkjunar bréf, þar sem skýrt er frá því að nefnd sú, sem þeir kusu til þess að kanna hver hin raunverulega vatnshæð Mývatns hefði verið áður en stíflan í Syðstukvísl var gerð, hefði komizt að þeirri nið- urstöðu að hin náttúrlega staða Mývatns hefði verið 40—45 cm. á mælikvarðanum, þó nær 40 cm., og þann 11. ágúst 1954 er á fundi stjórnar Laxárvirkjun- ar rædd niðurstaða þeirrar nefndar er Mývetningar kusu til þess að kornast að raun um náttúrlega v’atnsstöðu Mývatns. Stjórn Laxárvirkjunar sam- þykkir éftirfarandi: „Þar sem Mývetningar hafa nú kosið nefnd til þess, meðal annars að „kveða nánar á um vatnsstöðuna,“ samþykkir stjórn Laxárvirkjunarinnar að fela eftirlitsmanni virkjunarinnar við Mývatn að haga vatnshæð í Mývatni í samráði við nefnd þessa á tímabilinu frá 1. maí til 1. okt. enda beri þá nefndin ábyrgð á vatnshæðinni gagn- vart Mývetningum. Samþykkt að senda Stefáni Helgasyni í Haganesi afrit af fundarsam- þykkt þessari.“ Frá þessum tíma er fullt sam- ráð haft við ábúendur við Mý- vatn um vatnshæðina og munn- legt samþykki þeirra fyrir því að fara mætti upp í 60 cm. á mælikvarðanum í byrjun vetr- ar og jafnvel hækka frekar eftir að vatnið væri orðið ísi lagt. Þó voru ekki allir sammála um þetta. Vatnssveiflur hafa verið mjög litlar síðan miðlunarmann virkin tóku til starfa og munu vatnsborðsbreytingar ekki að jafnaði hafa verið meiri en um 20 cm. Þann 26. apríl 1969 skrifar for maður Veiðifélags Mývatns, Dagbjartur Sigurðsson, Álfta- gerði, eftirfarandi bréf: Hr. rafveitustjóri. Til skamms tíma hefir hér ekki verið neinn sameiginlegur málsvari fyrir alla landeigendur við Mývatn. Nú hefir verið ráð- in bót á þessu. í Veiðifélagi Mý vatns eru allir þeir sem land eiga að Mývatni. Stjórn Veiði- félagsins hefir verið falið að gæta hagsmuna félagsmanna við víkjandi yfirborðsvatnshæð Mý vatns. Óeðlileg vatnsstaða í Mý- vatni getur haft alvarlegan skaða í för með sér, bæði hækk un og lækkun, sérstaklega lækk un. Vatnsstaðan var svo lág á sl. vetri að slíkt má ekki koma fyrir aftur. Við höfum eins og aðrir rafmagnsnotendur á orku svæði Laxárvirkjunar á'huga á því að sem minnstar truflanir verði á orku.framleiðslunni og álít ég því rétt að rafveitustjórn Akureyrar geri samning við stjórn Veiðifélags Mývatns um yfirborðshæð Mývatns á hverj- um tíma. Vil ég því biðja yður að koma þessu áliti mínu til réttra aðila. Virðingarfyllst, Dagbjartur Sigurðsson. HÉRAÐSMÓT Ungmennasam- bands Eyjafjarðar í frjálsum íþróttum var haldið á Lauga- fandsvelli í Öngulsstaðahreppi N orður landsmeis tara- mót í sundi 1970 SUNDMEISTARAMÓT Norður lands fer fram í Sundlaug Akur eyrar laugardaginn 11. sept. kl. 15.00 og sunnudaginn 12. sept. kl. 14.00. Keppendur verða víða af Norðurlandi. Keppt verður í alls 24 greinum og búast má við spennandi keppni. Því eru bæj- arbúar eindregið hvattir til að fjölmenna við sundlaugina. um næstu helgi. Sundfélagið Óðinn. Þetta vor fór vatnsstaðan nið ur í tæpa 47 cm., sem þá var töluvert fyrir ofan það sem áður var talið að hefði verið meðal- vatnsstaðan. Viðræður fóru fram milli full trúa Laxárvirkjunar og stjórn- ar Veiðifélags Mývetninga sum arið 1969, án þess að endanleg niðurstaða um vatnsstöðuna fengist, enda var stjórn Veiði- félagsins ekki reiðubúin að nefna neinar endanlegar tölur um efri eða neðri mörk vatns- ins. Af þessu má sjá að það hefir verið mjög erfitt að gera svo öllum líki í þessu máli, þar sem ábúendur við Mývatn hafa haft svo ólíkar skoðanii' á því hver vatnsstaðan skuli vera. Það er hins vegai' staðreynd, sem sézt af þeim mælingum, sem gerðar hafa verið, að vatns staðan hefir verið miklum mun stöðugri síðan miðlunarmann- virkin tólcu til starfa, heldur en áður vai'. Stjórn Laxárvirkjunar hefir eins og að framan segiv, ætíð viljað haga aðgerðum sínum í samræmi við óskir Mývetninga og er nú, er þetta er ritað, beð- ið eftir nánari óskum stjórnar Veiðifélags Mývatns, sem nú er 29. og 30. ágúst sl. Þátttaka var yfirleitt góð, en árangur með lakara móti í mörgum greinum, enda aðstæður ekki sem beztar, t. d. í hlaupagreinum. Keppni var mjög jöfn og skemmtileg í mörgum greinum. — Mótsstjóri var Sveinn Jónsson. Helztu úrslit: 100 m. hlaup. sek. Jóhann Jónsson, Sb.D. 11.7 Gísli Pálsson, Sk. 11.8 400 m. hlaup. sek. Sigvaldi Júliusson, Sv. 54.3 Jóhann Jónsson, Sb.D. 55.8 1500 m. lilaup. mín. Sigvaldi Júlíusson, Sv. 4.28.9 Þórir Snorrason, Dbr. 4.32.1 sá aðili sem semja á við. Það er því furðulegt þegr.r Kristján Þórhallsson, Vogum, vill kenna Laxárvirkjun um lélega veiði, átuskort, minnkandi fug’alíf, kulda í vatninu o. fl. og telur hann að allt þetta stafi af of hárri vatnsstöðu. Þar virðist fullyrðingar settar fram alveg að óathuguðu máli, og væri fróðlegt að vita álit stjórnar Veiðifélags Mývatns í því sambandi: Hver vill hún að vatnsborðsstaðan sé? Hvernig getur átuskortur í Mývatni ver- ið Laxárvirkjunarstjórn að kenna? Hefur Laxárvirkjunar- stjórn svæft mýið? Stóð Laxár- virkjunarstjórn fyrir kuldunum í vor og sumar? Var það henn- ar sök, að ekki komu ungar úr eggjum fugla? Er kannski allt illt frá Laxárvirkjunarstjórn komið? En hver á vatnsborðshæð Mý vatns að vera? Það eru Mývetn ingar sjálfir sem eiga að svara því, og stjórn Laxárvirkjunar er, og hefur alltaf vei'ið, .reiðu- búin að taka fyllsta tillit til óska þeirra í því efni. Akureyri í september 1970, 3000 m. hlaup. mín. Sigvaldi Júlíusson, Sv. 9.37.6 Þórir Snorrason, Dbr. 9.59.8 4x100 m. boðhlaup. sek. Sveit Þorst. Svörf. og Atla 48.8 Sveit Reynis 50.5 Langstökk. m. Gísli Pálsson, Sk. 6.02 Sigurður Viðar, Þ.Sv.A. 6.01 Þrístökk. m. Gísli Pálsson, Sk. 12.59 Atli Friðbjörnss., Þ.Sv.A. 12.56 Hástökk. m. Jóhann Jónsson, Sb.D. 1.65 Jóhannes Sigurgeirss., Ár. 1.60 Stangarstökk. m. Matthías Ásgeirsson, Sv. 2.37 Rögnvaldur Ólafsson, Sv. 2.20 Kúluvarp. m. Þóroddur Jóhannsson, M. 11.82 Jóhann Jónsson, Sb.D. 11.64 Krsnglukast. m. Þóroddur Jóhannsson, M. 33.99 Matthías Ásgeirsson, Sv. 33.26 Spjótkast. m. Matthías Ásgeirsson, Sv. 46.06 Jóhann Bjarnason, R. 45.43 KVENNAGREINAR: 100 m. hlaup. sek. Arna Antonsdóttir, Sv. 13.7 Sólborg Friðbj.d., Þ.Sv.A. 14.0 4x100 m. hoðhlaup. sek. A-sveit Umf. Svarfdæla 58.9 Sveit Þorst. Svörf. og Atla 60.6 Langstökk. m. Hildur Aðalsteinsd., Sv. 4.57 Dóroþea Reimarsdóttir, Sv. 4.30 Stjórn Laxárvirkjunar. Umf. Svarfdæla sioraði á Héraðsmóti UMSE Hér sækja Akureyringar fast að marki og skora. (Ljósm.: E. Ð.) >A og Valur gerSu jafnteilð -2:2 ÞAÐ var mannmargt á knatt- spyrnuvellinum á Akureyri sl. sunnudag, er Valur lék hér gegn ÍBA. Enda ekki að ástæðulausu þar eð fyrri leikur þessai'a liða í Reykjavík, fyrir skömmu, var talinn éinhver bezti knatt- spyrnuleikur sumarsins hér á landi og jafnvel þótt lengra væri skoðað aftur í tímann. í þeim leik voru skoruð hvorki meira né minna en 11 mörk. Og hvað mundi nú ske? Er skemmst af því að segja að þessi leikur var fjörugur og skemmtilega leikinn. Bæði liðin eru vel leikandi og sýna oft á tíðum mjög góða knattspyrnu. Bæði liðin fengu mörg tækifæri í þessum leik til að skora mark, en skotskórnir virtust ekki vera á fótum framiherjanna í þetta sinn. Valui' skoraði 2 mörk í fyrri hálfleik, bæði fyrir mistök þeirra Magnúsar Jónatanssonar og Gunnars Austfjörð. ÍBA skor aði 1 mark á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Valur átti öllu (Framhald á blaðsíðu 7). Hástökk. m. Dóroþea Reimarsdóttir, Sv. 1.35 Margrét Sigurðai'dóttir, R. 1.30 Kúluvarp. m. Emelía Baldursdóttir, Ái'. 9.99 Margrét Sigurðai'dóttir, R. 8.63 Kringlukast. m. Emelía Baldursdóttir, Ái'. 27.97 Guðrún Guðmundsd., Ár. 22.96 Spjótkast. m. Emelía Baldursdóttir, Ár. 29.88 Margrét Sigurðard., R. 29.42 (Framhald á blaðsíðu 7)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.