Dagur - 09.09.1970, Síða 2
2
(Framhald af blaðsíðu 5).
stjóri Laxárvirkjunar fór,
nokkru eftir að hann tók við
starfi, austur að Mývatni og
kynnti sér, ásamt eftirlitsmönn-
um Laxárvirkjunar með þess-
um mannvirkjum, þeim Finn-
boga Stefánssyni, þá bónda á
Geirastöðum og ívari Stefáns-
syni, bónda í Haganesi, þessar
■íramkvæmdir og áhrif þeirra á
fiskigengd milli vatns og ár.
Þar sem veiðimálastjóri var þá
væntanlegur skömmu síðar til
Mývatns þá varð að samkomu-
lagi að áðurnefndir bændur
ræddu þessi mál við hann og
óskuðu tillagna til úrbóta, en
um fleiri leiðir virtist þarna
vera að ræða, og var það gert.
Því miður komu ekki tillögur
frá veiðimálastjóra til úibóta,
en eins og tekið var fram við
áðurnefnda bændur, þá var því
lýst yfir að ekki mundi standa
á Laxárvirkjun að framkvæma
þær aðgerðir, sem taldar væru,
af sérfræðingi um þessi mál,
líklegastar til árangurs.
Um vatnsliæð Mývatns.
Allmikið hefir verið rætt og
ritað um vatnsstöðu Mývatns og
hafa ýmsir haldið því fram að
hún sé nú önnur en var áður en
framkvæmdir þessar hófust og
nú í Morgunblaðinu bann 28.
ágúst 1970 er grein eftir Krist-
ján Þórhallsson, Vogum, þar
sem háu vatnsborði er kennt um
litla silungsveiði, þverrandi
fuglalíf o. fl. Vegna þessara
skrifa vill stjórn Laxárvirkjun-
ar gera grein fyrir þessu atriði:
Fljótt eftir að stíflan í Syðstu-
kvísl var gerð fór að bera á
óánægju bænda með háa vatns-
stöðu, sérstaklega voru það þeir
bændur er bjuggu norðan og
austan við vatnið, og með bréfi
dags. 31. sept. 1952 er kvartað
yfir of 'hárri vatnsstöðu og farið
fram á að vatnið verði lækkað
í 47 cm. á mælikvarða þeim sem
við vatnið er.
Á fundi Laxárvirkjunarstjórn
ar, bæði 1952 og 1953 er bókað
að Mývetningar geti sjálfir ráð-
ið vatnsstöðunni og vatns-
rennsli, að því tilskyldu, að vél-
ar virkjunarinnar fái nægjan-
iegt vatn og komizt verði hjá
að gera Mývetninguih búsifjar.
Stjórn Laxárvirkjunar benti
sðlilega á, að hún hefði engan
áhuga á að ákveða eitt eða neitt
jm vatnsborðshæð Mývatns.
Það ættu Mývetningar sjálfir að
gera, en enn mun þeim hafa
gengið illa að ná samkomulagi
þar um.
Þann 14. marz 1954, skrifar
3igfús Hallgrímsson, Vogum,
Sigurjóni Rist bréf þar sem
ihann kvartar um háa vatns-
stöðu og óskar umsagnar hans.
Þessu bréfi svaraði Raforku-
málaskrifstofan og sendi stjórn
Laxárvirkjunar afrit af því
svari ásamt bréfi Sigfúsar.
Á fundi stjórnarLaxárvirkj-
unar dags. 30. marz 1954 var
gerð svofelld bókun:
„Ástæðan fyrir umkvörtunum
þeim, sem fram hafa komið virð
ist stafa af ósamkomulagi milli
skuli vatnáhæð Mývatns, en
Mývetninga um hvernig haga
stjórn Laxárvirkjunar vill ekki
blanda sér í þær deilur.
Geti Mývetningar komið því
svo fyrir að til verði ákveðinn
aðili sem hafi vald til að segja
fyrir um hver vatnshæðin skuli
vera, þá er virkjunarstjórn fús
til þess að leggja fyrir eftirlits-
mann virkjunarinnar að haga
vatnshæðinni eftir fyrirmælum
þessa aðila á umræddum tím-
um árs, en meðan enginn slíkur
aðili er til getur stjórnin ekki
annað en lagt fyrir eftirlitsmann
inn, eins og hún þegar hefir
gert, að halda vatnshæðinni sem
líkastri því, sem hún hafði verið
áður, á viðkomandi árstímum."
Þann 1. ágúst 1954 skrifa
margir ábúendur við Mývatn
stjórn Laxárvirkjunar bréf, þar
sem skýrt er frá því að nefnd
sú, sem þeir kusu til þess að
kanna hver hin raunverulega
vatnshæð Mývatns hefði verið
áður en stíflan í Syðstukvísl var
gerð, hefði komizt að þeirri nið-
urstöðu að hin náttúrlega staða
Mývatns hefði verið 40—45 cm.
á mælikvarðanum, þó nær 40
cm., og þann 11. ágúst 1954 er
á fundi stjórnar Laxárvirkjun-
ar rædd niðurstaða þeirrar
nefndar er Mývetningar kusu
til þess að kornast að raun um
náttúrlega v’atnsstöðu Mývatns.
Stjórn Laxárvirkjunar sam-
þykkir éftirfarandi:
„Þar sem Mývetningar hafa
nú kosið nefnd til þess, meðal
annars að „kveða nánar á um
vatnsstöðuna,“ samþykkir stjórn
Laxárvirkjunarinnar að fela
eftirlitsmanni virkjunarinnar
við Mývatn að haga vatnshæð
í Mývatni í samráði við nefnd
þessa á tímabilinu frá 1. maí til
1. okt. enda beri þá nefndin
ábyrgð á vatnshæðinni gagn-
vart Mývetningum. Samþykkt
að senda Stefáni Helgasyni í
Haganesi afrit af fundarsam-
þykkt þessari.“
Frá þessum tíma er fullt sam-
ráð haft við ábúendur við Mý-
vatn um vatnshæðina og munn-
legt samþykki þeirra fyrir því
að fara mætti upp í 60 cm. á
mælikvarðanum í byrjun vetr-
ar og jafnvel hækka frekar eftir
að vatnið væri orðið ísi lagt. Þó
voru ekki allir sammála um
þetta. Vatnssveiflur hafa verið
mjög litlar síðan miðlunarmann
virkin tóku til starfa og munu
vatnsborðsbreytingar ekki að
jafnaði hafa verið meiri en um
20 cm.
Þann 26. apríl 1969 skrifar for
maður Veiðifélags Mývatns,
Dagbjartur Sigurðsson, Álfta-
gerði, eftirfarandi bréf:
Hr. rafveitustjóri.
Til skamms tíma hefir hér
ekki verið neinn sameiginlegur
málsvari fyrir alla landeigendur
við Mývatn. Nú hefir verið ráð-
in bót á þessu. í Veiðifélagi Mý
vatns eru allir þeir sem land
eiga að Mývatni. Stjórn Veiði-
félagsins hefir verið falið að
gæta hagsmuna félagsmanna við
víkjandi yfirborðsvatnshæð Mý
vatns. Óeðlileg vatnsstaða í Mý-
vatni getur haft alvarlegan
skaða í för með sér, bæði hækk
un og lækkun, sérstaklega lækk
un. Vatnsstaðan var svo lág á
sl. vetri að slíkt má ekki koma
fyrir aftur. Við höfum eins og
aðrir rafmagnsnotendur á orku
svæði Laxárvirkjunar á'huga á
því að sem minnstar truflanir
verði á orku.framleiðslunni og
álít ég því rétt að rafveitustjórn
Akureyrar geri samning við
stjórn Veiðifélags Mývatns um
yfirborðshæð Mývatns á hverj-
um tíma.
Vil ég því biðja yður að koma
þessu áliti mínu til réttra aðila.
Virðingarfyllst,
Dagbjartur Sigurðsson.
HÉRAÐSMÓT Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar í frjálsum
íþróttum var haldið á Lauga-
fandsvelli í Öngulsstaðahreppi
N orður landsmeis tara-
mót í sundi 1970
SUNDMEISTARAMÓT Norður
lands fer fram í Sundlaug Akur
eyrar laugardaginn 11. sept. kl.
15.00 og sunnudaginn 12. sept.
kl. 14.00. Keppendur verða víða
af Norðurlandi. Keppt verður í
alls 24 greinum og búast má við
spennandi keppni. Því eru bæj-
arbúar eindregið hvattir til að
fjölmenna við sundlaugina. um
næstu helgi.
Sundfélagið Óðinn.
Þetta vor fór vatnsstaðan nið
ur í tæpa 47 cm., sem þá var
töluvert fyrir ofan það sem áður
var talið að hefði verið meðal-
vatnsstaðan.
Viðræður fóru fram milli full
trúa Laxárvirkjunar og stjórn-
ar Veiðifélags Mývetninga sum
arið 1969, án þess að endanleg
niðurstaða um vatnsstöðuna
fengist, enda var stjórn Veiði-
félagsins ekki reiðubúin að
nefna neinar endanlegar tölur
um efri eða neðri mörk vatns-
ins.
Af þessu má sjá að það hefir
verið mjög erfitt að gera svo
öllum líki í þessu máli, þar sem
ábúendur við Mývatn hafa haft
svo ólíkar skoðanii' á því hver
vatnsstaðan skuli vera.
Það er hins vegai' staðreynd,
sem sézt af þeim mælingum,
sem gerðar hafa verið, að vatns
staðan hefir verið miklum mun
stöðugri síðan miðlunarmann-
virkin tólcu til starfa, heldur en
áður vai'.
Stjórn Laxárvirkjunar hefir
eins og að framan segiv, ætíð
viljað haga aðgerðum sínum í
samræmi við óskir Mývetninga
og er nú, er þetta er ritað, beð-
ið eftir nánari óskum stjórnar
Veiðifélags Mývatns, sem nú er
29. og 30. ágúst sl. Þátttaka var
yfirleitt góð, en árangur með
lakara móti í mörgum greinum,
enda aðstæður ekki sem beztar,
t. d. í hlaupagreinum. Keppni
var mjög jöfn og skemmtileg í
mörgum greinum. — Mótsstjóri
var Sveinn Jónsson.
Helztu úrslit:
100 m. hlaup. sek.
Jóhann Jónsson, Sb.D. 11.7
Gísli Pálsson, Sk. 11.8
400 m. hlaup. sek.
Sigvaldi Júliusson, Sv. 54.3
Jóhann Jónsson, Sb.D. 55.8
1500 m. lilaup. mín.
Sigvaldi Júlíusson, Sv. 4.28.9
Þórir Snorrason, Dbr. 4.32.1
sá aðili sem semja á við. Það er
því furðulegt þegr.r Kristján
Þórhallsson, Vogum, vill kenna
Laxárvirkjun um lélega veiði,
átuskort, minnkandi fug’alíf,
kulda í vatninu o. fl. og telur
hann að allt þetta stafi af of
hárri vatnsstöðu.
Þar virðist fullyrðingar settar
fram alveg að óathuguðu máli,
og væri fróðlegt að vita álit
stjórnar Veiðifélags Mývatns í
því sambandi: Hver vill hún að
vatnsborðsstaðan sé? Hvernig
getur átuskortur í Mývatni ver-
ið Laxárvirkjunarstjórn að
kenna? Hefur Laxárvirkjunar-
stjórn svæft mýið? Stóð Laxár-
virkjunarstjórn fyrir kuldunum
í vor og sumar? Var það henn-
ar sök, að ekki komu ungar úr
eggjum fugla? Er kannski allt
illt frá Laxárvirkjunarstjórn
komið?
En hver á vatnsborðshæð Mý
vatns að vera? Það eru Mývetn
ingar sjálfir sem eiga að svara
því, og stjórn Laxárvirkjunar
er, og hefur alltaf vei'ið, .reiðu-
búin að taka fyllsta tillit til
óska þeirra í því efni.
Akureyri í september 1970,
3000 m. hlaup. mín.
Sigvaldi Júlíusson, Sv. 9.37.6
Þórir Snorrason, Dbr. 9.59.8
4x100 m. boðhlaup. sek.
Sveit Þorst. Svörf. og Atla 48.8
Sveit Reynis 50.5
Langstökk. m.
Gísli Pálsson, Sk. 6.02
Sigurður Viðar, Þ.Sv.A. 6.01
Þrístökk. m.
Gísli Pálsson, Sk. 12.59
Atli Friðbjörnss., Þ.Sv.A. 12.56
Hástökk. m.
Jóhann Jónsson, Sb.D. 1.65
Jóhannes Sigurgeirss., Ár. 1.60
Stangarstökk. m.
Matthías Ásgeirsson, Sv. 2.37
Rögnvaldur Ólafsson, Sv. 2.20
Kúluvarp. m.
Þóroddur Jóhannsson, M. 11.82
Jóhann Jónsson, Sb.D. 11.64
Krsnglukast. m.
Þóroddur Jóhannsson, M. 33.99
Matthías Ásgeirsson, Sv. 33.26
Spjótkast. m.
Matthías Ásgeirsson, Sv. 46.06
Jóhann Bjarnason, R. 45.43
KVENNAGREINAR:
100 m. hlaup. sek.
Arna Antonsdóttir, Sv. 13.7
Sólborg Friðbj.d., Þ.Sv.A. 14.0
4x100 m. hoðhlaup. sek.
A-sveit Umf. Svarfdæla 58.9
Sveit Þorst. Svörf. og Atla 60.6
Langstökk. m.
Hildur Aðalsteinsd., Sv. 4.57
Dóroþea Reimarsdóttir, Sv. 4.30
Stjórn Laxárvirkjunar.
Umf. Svarfdæla sioraði á Héraðsmóti UMSE
Hér sækja Akureyringar fast að marki og skora.
(Ljósm.: E. Ð.)
>A og Valur gerSu jafnteilð -2:2
ÞAÐ var mannmargt á knatt-
spyrnuvellinum á Akureyri sl.
sunnudag, er Valur lék hér gegn
ÍBA. Enda ekki að ástæðulausu
þar eð fyrri leikur þessai'a liða
í Reykjavík, fyrir skömmu, var
talinn éinhver bezti knatt-
spyrnuleikur sumarsins hér á
landi og jafnvel þótt lengra væri
skoðað aftur í tímann. í þeim
leik voru skoruð hvorki meira
né minna en 11 mörk. Og hvað
mundi nú ske?
Er skemmst af því að segja
að þessi leikur var fjörugur og
skemmtilega leikinn. Bæði liðin
eru vel leikandi og sýna oft á
tíðum mjög góða knattspyrnu.
Bæði liðin fengu mörg tækifæri
í þessum leik til að skora mark,
en skotskórnir virtust ekki vera
á fótum framiherjanna í þetta
sinn.
Valui' skoraði 2 mörk í fyrri
hálfleik, bæði fyrir mistök
þeirra Magnúsar Jónatanssonar
og Gunnars Austfjörð. ÍBA skor
aði 1 mark á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks. Valur átti öllu
(Framhald á blaðsíðu 7).
Hástökk. m.
Dóroþea Reimarsdóttir, Sv. 1.35
Margrét Sigurðai'dóttir, R. 1.30
Kúluvarp. m.
Emelía Baldursdóttir, Ái'. 9.99
Margrét Sigurðai'dóttir, R. 8.63
Kringlukast. m.
Emelía Baldursdóttir, Ái'. 27.97
Guðrún Guðmundsd., Ár. 22.96
Spjótkast. m.
Emelía Baldursdóttir, Ár. 29.88
Margrét Sigurðard., R. 29.42
(Framhald á blaðsíðu 7)