Dagur - 10.02.1971, Síða 2
2
Útsala á DÖMU- og BARNAFATNAÐI hefst
miðvikudaginn 10. þ. m.
VERZL. DRÍFA
GALLON og
KRUMPLAKK
nýko ni i
- í MÖRGUM LITUM
C03
DÖMUDEILD - SÍMI 1-28-32
BIFREIÐIR til sölu:
A-1313,
Ford-Ðrojaco, Arg. ’66.
A-1750,
Chevy II, Nova, árg. ’64,
lítið ekinn.
Uppl. í síma 1-15-15.
Til sölu Chevrolet
VÖRUBÍLL, árg. ’53, í
góðu ástandi.
Uppl. gefa Bergvin Jó-
hannsson eða Jóhann
Bergvinsson, Áshóli,
sími um Grenivík.
RÚSSAJEPPI óskast
til kaups.
Uppl. í síma 2-14-25.
BRIDGESTONE
undir bílinn
DGESTONE
UMBOÐIÐ A AKUREYRI
Frímann Gunnlaugsson. —
c/o Sport- og hljóðfæraverzlun Ak., — sími 11510
Auglýsing um samkeppni vegna
1100 ára afmælis íslandshyggðar
Hátíðarljóð
Þjóðhátíðarnefnd 1974 efnir til samkeppni um hátíð-
arljóð eða I jóðaflokk til söngs og flutnings við liátíða-
höld á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar. Skila þarf hand-
ritum til Þjóðhátíðarnefndar 1974, Skrifstofu Alþingis,
fyrir 1. marz 1973.
Ganga skal frá handriti í lokuðu umslagi merktu kjör-
orði, en nafn og heimilisfang fylgi í lokuðu, ógagnsæju
umslagi, merktu sama kjörorði og handrit.
Ein verðlaun verða veitt fyrir bezta I jóðið að mati dóm-
nefndar að uppbæð
150 ÞÚSUND KRÓNUR.
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfund-
ar, en Þjóðhátíðarnefnd áskilur sér umráðarétt yfir
verðlaunuðu efni gegn greiðslu.
Telji dómnefnd ekkert þeirra verka sem berast verð-
launahæft, fellur verðlaunaveiting niður.
Dómnefnd skijra Andrés Björnsson útvarpsstjóri, dr.
F.inar Ólafur Sveinsson jrrófessor, Kristján Karlsson
bókmenntafræðingur, dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
prófessor og Sveinn Skorri Höskiddsson jjrófessor.
Þegar úrslit liafa verið kunngjörð, geta keppendur lát-
ið vitja verka sinna lijá Þjóðhátíðarnefnd. Verða þá
jafnfram.t afhent óoppuð umslög með nafni og heim-
ilisfangi, eins og kjörorð á handriti segir til um.
Hljómsveitarverk
Þjóðhátíðarnefnd 1974 efnir ti! samkeppni um tónverk
til flutnings við hátíðahöld á 1100 ára afmæli íslands-
byggðar. Tónverkið skal vera hl jómsveitarverk og taki
flutningur þess eigi skemur en hálfa iklukkustund.
Skila iþarf handriti til Þjóðhátíðarnefndar 1974, Skrif-
stofu Alþingis, fyrir 1. marz 1973, í lokuðu umslagi,
merktu kjörorði, en nafn og heimilisfang fylgi «neð í
lokuðu, ógagnsæju umslagi, njerk.tu saina kjörorði og
handrit.
Ein verðlaun verða veitt fyrir b.ezta tónverkið að mati
dómnefndar að upphæð
200 ÞÚSUND KRÓNUR.
Verðlaunaupphæðin er ekki hfuti af þóknuii höfundar,
en Þjóðhátíðarnefnd áskilur sér uinráðarétt yfir v.erð-
launuðu efni gegn greiðslu.
Tel ji dómnefnd ekkert þeirra verka setn berast verð-
launahæft, fellur verðlaunaveiting niður.
Dómnefnd skíjra dr. Páll ísólfsson, Árni Kristjánsson
píanóleikari, Björn Olafsson ikonsertmeistari, dr. Ró-
bert A. Ottósson og Vladimir Askenazy.
Þegar úrslit hafa verið kunngjörð, geta keppendur látið
vitja verka sinnahjá Þjóðhátíðarnefnd. Verða þá jafn-
framt afhent óopnuð umslög með nafni og heimilis-
fangi, eins og kjörorð á handriti segir til um.
Þjóðhátíðarmerki og veggskildir
Þjóðhátíðarnefnd 1974 efnir til samkeppni um
A) rnerki fyrir þjóðhátíð 1974 á 1100 ára afmæli ís-
landsbyggðar. Merkið skal vera til almennra nota
á prentgögnum, i auglýsingum, sem barmmerki, á
bókarkili o. s. frv.
B) þrjár myndskreytingar (teikningar) til nota á vegg-
skikli, sem framleiddir verða sem minjagrijtir og
e .t. v. lleiri nota.
Keppencfur skulu gera grein fyrir merkinu og teikning-
um í línu og litúm, einnig stuttorða lýsingu á efnis-
vali.
Kejjjmin er haldin samkvæmt keppnisregfum Félags
ísl. teiknara.
Tillögum að merki í einum lit skal skila í stærð 10—15
cm í 'þvermál á jrappírsstærð DIN A4 (21x29,7 cm),
einnig skal skila tillögum að veggskjöldum í stærðinni
10—15 cm í þvermál á pappírsstagrð DIN A4.
Þátttaka er heimil öllum íslenzkum ríkisborgurur.n.
Tillögurnar skal einkenna með sérstöku kjörorði, og
skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lok-
uðu, ógagnsæju umsjagi, rnerktu eins og tillögurnar.
Tillögum sikal skila í pósti eða til Skrifstofu Alþingis
fyrir kl. 17 mánudaginn 1. nóv. 1971.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánaðar
frá skiladegi, og verður efnt til sýninga á tillögum og
þær síðan endursendar.
Veitt verða ein verðlaun:
A) fyrir merkið 75 þúsund krónur
B) fyrir myndskreytingar 60 þúsund krónur.
Verðlaunaujrphæðinni verður allri út'hlutað, en er
ekki hluti af þóknun hölundar. Þjóðhátíðarnefnd hef-
ur einkarétt á notkun þeirrar tillögu, scm hún kýs sér,
og áskilur sér rétt til að kaujja hvaða tillögur setn er
samkvaant yerðskrá F.Í.T.
Dómnefndin er þannig skijmð: Birgir Finnsson, for-
seti Samemaðs Alþingis, Haraldur Hannesson hagfræð-
ngur, Helga B. Sveinbjörnsdóttir teiknari, I-Iörður
Ágústssoo akófastjóri, Steinlþór Sigurðsson listmálari.
Trúnaðarmaður nefirdarinnar er Indriði G. Þorsteins-
son, ritari Þjóðh;itíðarnefntlar 1974, en h.eimilisfang
hennar er Skrifstofa Alþingis.
Vakin er athygli á því, að frjálst er að kejrpa um hvort
atriði fyrir sig.
Þ J ÓÐH ÁTÍÐARNEFND 1974.
TT
TíljTf
slíi
ÆÐARDÚNSÆNGUR
DRALONSÆNGUR
DRALONKODB..R
ULLARTEPPI
RÚMTEPPI
ÆDARDÚNN
GÆSADÚNN
DÚNHELT
FIÐURHELT
Sendum gegn
póstkröfu.
Fjögurra herbergja
EINBÝLISHÚS til sölu
á Syðri-Brekkunni ásamt
sérbyggðum bílskúr. Til
afhendingar nú þegar.
Uppl. hjá húseiganda í
síma 2-13-63 og lijá Ás-
mundi Jóhannssyni hdl.,
í símum 1-27-42 og
2-17-21.
HERBERGI óskast
til leigu til maílóka.
Uppl. í síma 1-20-27,
kl. 17-19.
BRAGGI, eða annað
húsnæði, hentugt fyrir
verkstæði, óskast til
leigu. Þarf helzt að rúma
tvo fólksbíla.
Uppl. í síma 2-16-73.
ÍBÚÐ!
íbúð, 3 herbergi, hálfur
kjallari og eignarlóð til
sölu.
Uppl. í síma 2-10-91.
Er farinn að AKA aftur
eftir nokkurt lilé. Hefi
22 manna bifreið, 3
tonna.
Eggert Jónsson, c/o
Sendibílastöðin s.f., sími
1 -15-25, heimasími
1-26-57.
Vil gefa tvo HVOLPA
af sæmilegu fjárhunda-
kyni.
Þorsteinn Jónsson,
Brakanda.
í óskilum er hjá undir-
rituðum rauð HRYSSA
með hvíta stjörnu í enni
og flipa, eins eða tveggja
vetra. Ef réttur eigandi
gefur sig ekki fram fyrir
næstu mánaðamót og
greiðir áfallinn kostnað,
verður farið með liana
sem óskilafé.
Þórhallur Guðmunds-
son, Þingvallastræti 40,,
Akureyri.
íETTnimTTnmiTn#'-