Dagur - 17.03.1971, Síða 2
2
Jafnréffi tii handa föfi'J
Bjarg, félagsheimilið við Hvannavelli á Akureyri.
(Ljósm.: E. D.)
Aðalfun
AÐALFUNDUR Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra á Akureyri og
nágrenni, var haldinn í húsi
félagsins, Bjargi við Hvanna-
velli, sunnudaginn 14. febrúar
síðastliðinn.
í skýrslu stjórnar, sem for-
maður flutti, kom fram, að fé-
lagsstarfið hefur verið mjög
fjölþætt á síðasta ári. Má m. a.
geta eftirtalinna atriða: Auk al-
mennra funda og stjómarstarfa
voru mörg skemmtikvöld yfir
vetrarmánuðina, þar sem spil-
uð var-félagsvist og fleira haft
til skemmtunar, auk þess árs-
hátíð, mjög fjölsótt, og skemmti
fundir um jól og við sumar-
komu. Þá var mjög vel heppn-
aður almennur fundur á al-
þjóðadegi fatlaðra í marzmán-
uði. Nokkrir félagar sóttu sum-
armót Sjálfsbjargarfélaganna í
Húnaveri og sunnudagsferð var
farin í Leyningshóla, með góðri
þátttöku.
Þá voru yfir vetrarmánuðina
föndurkvöld flest fimmtudags-
kvöld, og þar unnið margt
muna, er selt var á bözurum í
fjáröflunarskyni, einnig unnu
ýmsir félagar, einkum konur,
margt muna í heimahúsum og
gáfu félaginu. Góður hagnaður
varð af þessu starfi og einnig
af blómasölu, sem höfð var einn
sunnudag í sumar á Akureyri
og Dalvík og ennfremur í Olafs
firði. Skrifstofa félagsins var
mest af árinu opin eftir hádegi
og þar innt af höndum margs-
konar þjónusta fyrir félags-
menn og fleiri.
Nýmæli í starfinu er það, að
nokkrir yngri félagar héldu síð-
ari hluta ársins uppi sérstöku
félagsstarfi, auk þess sem þeir
tóku þátt í félagsstarfinu al-
mennt.
Endurhæfingarþing Norður-
landasambands fatlaðra var á
liðnu hausti haldið í Reykjavík-
og sótti formaður félagsins það,
einnig Magnús Ólafsson sjúkra-
þjálfari.
En ótalin eru enn þau tvö
atriði, er mest starf var í kring-
um og mestan svip setja nú á
starfsemi félagsins, plastiðjan
og endurhæfingarstöðin.
Plastiðjan Bjarg.
Plastiðjan Bjarg hóf að nafn-
Eldri hjón óska eftir
2—3 herbergja ÍBÚÐ
til leigu.
Uppl. í síma 1-24-14.
Sveinafélag járniðnaðar-
manna óskar eftir
SKRIFSTOFU-
HÚSNÆÐI
Uppl. í síma 1-14-92.
inu til starf á árinu 1968, en
árið 1969 var fyrsta heila árið,
sem fyrirtækið var rekið. Frá
upphafi og til þessa hefur mest
áherzla verið lögð á -framleiðslu
raflagnaefnis. Sala þeirrar fram
leiðslu nam á árinu 1969 þó að-
eins 350 þúsundum króna, en
fjórfaldaðist á árinu 1970, nam
1.5 milljónum króna. Þá hefur
nokkuð verið framleitt af aug-
lýsingaskiltum, og nam sú velta
um 350 þúsundum kr. hvort
framangreindra ára.
Enn sem komið er hefur þessi
starfsemi þó alltof fáum veitt
atvinnu, og því hyggur félagið
á að færa mjög út kvíar með
verksmiðjureksturinn. Um síð-
ustu áramót bættist ný vél, sem
til þess er gerð að móta marg-
víslega hluti úr plasti. Eru
miklar vonir við hana bundnar.
Fyrst í stað mun einkum lögð
áherzla á framleiðslu fiskkassa
og fiskbakka fyrir fyrstihús, en
einnig verður fljótlega tekið að
móta lampaskerma og fleiri
hluti. Fiskkassarnir eru þegar
komnir á markað og hafa vakið
verðskuldaða athygli.
Hugmyndin er að halda enn
áfram vélakaupum og auka við
fjölbreytni í framleiðslu, en
stækkunarmöguleikum er þó
mjög þröngur stakkur skorinn
sem stendur vegna húsnæðis-
skorts. Á árinu tók félagíð sam-
komusal sinn í Bjargi til notk-
unar fyrir verksmiðjuna, en
ljóst er, að mjög fljótlega þarf
á miklu stærra húsnæði að
halda. Formaður verksmiðju-
stjórnar er Guðmundur Hjalta-
son rennismiður, en fram-
kvæmdastjóri Gunnar Helga-
son rafvélavirki.
Endurhæfingarstöð.
í septembermánuði tók til
starfa í Bjargi vísir að endur-
hæfingarstöð fyrir fatlaða og
aðra, er á meðferð sjúkraþjálf-
ara þurfa að halda. Hafði all-
lengi verið unnið að undirbún-
ingi þessa máls, m. a. fyrir
hvatningu Kiwanisklúbbsins
Kaldbaks og fjárhagsstuðnings
frá honum. Sjálfsbjargarfélög-
um var og flestum ljósara, hver
nauðsyn var að koma hér upp
slíkri stöð.
Stöðin var formlega tekin í
notkun þann 11. október að við-
stöddum heilbrigðismálaráð-
herra, Eggert G. Þorsteinssyni,
Páli Sigurðssyni ráðuneytis-
stjóra og fjölda gesta utan bæj-
ar og innan.
Til að veita stöðinni forstöðu
réðist ungur sjúkraþjálfari,
Magnús Ólafsson, er nýlokið
hafði námi í Noregi, og telur
félagið sig hafa verið mjög
heppið með að fá hann hingað
til starfs.
Auk gjafar Kiwanisklúbbs-
ins, en hann gaf mikið af tækj-
um til stöðvarinnar, hafa bor-
izt ynargar ágætar peningagjaf-
ir til þessarrar starfsemi.
En þótt Sjálfsbjargarfélagar
vissu, að þörfin fyrir þjálfunar-
stöð væri mikil, grunaði þá
ekki, að hún væri svo mikil,
sem reynslan hefur sýnt. Nú
þegar er svo komið, að eftir-
spurn eftir meðferð er mun
meiri en hægt er að anna með
því starfsliði, sem stöðin hefur.
En reynt mun verða að bæta
þar úr, svo áð fólk þurfi ekki
að bíða marga mánuði eftir að
komast að.
í undirbúningsnefnd endur-
hæfingarstöðvarinnar áttu sæti
þeir Sigvaldi Sigurðsson, Skarp
héðinn Karlsson og Valdimar
Pétursson, og ásamt ísak Guð-
mann skipa þeir nú stjórn
stöðvarinnar.
Stjórnarkjör.
Ur stjórn félagsins áttu að
ganga á aðalfundi þau Hugrún
Steingrímsdóttir formaður, Haf
liði Guðmundsson varaformað-
ur og Valdimar Pétursson rit-
ari. Þau voru öll endurkjörin.
Fyrir voru í stjórninni Jón G.
Pálsson gjaldkeri og Sigvaldi
Sigurðsson vararitari. í vára-
stjórn eru: Ragnheiður Stefáns-
dóttir, Sveinn Þorsteinsson,
Helga Jónsdóttir, Lilja Sigurð-
ardóttir og Birgir Sigurðsson.
— Ennfremur var kosið í ýmsar
starfsnefndir.
Aðalfélagar í Sjálfsbjörg á
Akureyri eru nú milli 220 og
230 talsins og styrktarfélagar
nálægt 200.
Fjölmargir einstaklingar og
fyrirtæki, bæjarfélagið og lána
stofnanir hafa á undanförnum
árum veitt félaginu góðan
stuðning við starfsemi þess, og
fyrir allan þann stuðning og vel
vilja sendir félagið beztu þakk-
ir og vonar, að reynslan sanni,
að félagið hafi verðskuldað það
traust, sem því hefur verið
sýnt.
Alþjóðadagur fatlaðra í ár er
21. marz, og verður dagsins að
vanda minnzt á vegum Sjálfs-
bjargar hér með sérstakri sam-
komu fyrir almenning og á ýms
an hátt vakin athygli á málefn-
um fatlaðra. □
ÞETTA eru kjörorð alþjóða-
dags fatlaðra, sem er næstkom-
andi sunnudagur 21. marz og
verður minnzt víða um heim.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
Akureyri, vill hér með vekja
athygli á deginum og því starfi
sem unnið er af félaginu með
jákvæðum skilningi og aðstoð
bæjarbúa og íbúa byggðarlag-
anna í sýslunni.
Eins og lesendum er kunn-
ugt, er verið að leitast við að
byggja upp alhliða endurhæf-
ingarstöð, atvinnulega, líkam-
lega og félagslega í Bjargi, húsi
félagsins á Akureyri, og með
því móti er verið að reyna að
skapa fötluðum möguleika til
jafnréttis við heilbrigða.
Fatlaðir biðja ekki um með-
aumkun, heldur skilning á að-
stöðu þeirra í lífinu til að vera
metnir sem nýtir þjóðfélags-
þegnar.
Eru í því sambandi tilfærð
hér orð mikilsmetins baráttu-
manns fyrir málefnum fatlaðra,
sem lýsa viðhorfi öryrkja til
þjóðfélagsins og væri hvar sem
er í heiminum hægt að gera að
einkunnarorðum:
„Ég, N. N., ríkisborgari í sam
félaginu ísland, á sem maður
og þjóðfélagsþegn rétt til vinnu.
Starfsgeta mín er að vísu
langt fyrir neðan meðallag, en
ég óska eftir að fá að nýta þessa
starfsgetu. Ég krefst þess að
þjóðfélagið sé skipulagt þannig,
að ég fái þennan rétt minn.“
Sízt er það meining okkar
fatlaðra í Sjálfsbjörg á Akur-
eyri að vanþakka eitt eða ann-
að, heldur þvert á móti er okk-
ur Ijóst, að hér hefir miðað vel
fram á við, og er það mjög til
!'«1
íúhi
sóma fyrir alla þá, sevn stutt
hafa drengilega að þeim fram-
kvæmdum sem orðnar eru, en
framtíðarverkefni eru nægjan-
leg. Málefni fatlaðra verða ætíð
umhugsunarverð i vaxandi
þjóðfélagi og eiga æ meiri
skilning að mæta.
Það er tilgangur orða þessara
að þakka samstarf liðinna ára,
og hvetja til áframhaldandi sam
vinnu til að hjálpa fötluðum til
sjálfsbjargar.
SJÁLFSBJÖRG,
félag fatlaðra á Akureyri.
SKRÁ UM VINNINGA
í Ilappdrætti Háskóla íslands
í 3. flokki 1971
(Akureyrarumboðið)
Þessi númer hlutu 10.000.00 kr.
vinning hvert: 4016, 5384, 7257,
13392, 20711, 22422, 52514.
Þessi númer hlutu 5.000.00 kr.
vinning hvert: 6004, 7275, 8030,
10645, 13274, 15004, 17057, 23873,
24769, 30565, 31556, 31572, 49172,
54750.
Þessi númer hlutu 2.000.00 kr.
vinning hvert: 533, 538, 543,
3836, 3841, 4007, 5947, 7135,
7144, 8840, 8979, 8990, 9248,
9758, 10643,11321, 12180, 12195,
13165, 13794, 14187, 14787, 15015,
15992, 16054, 16055, 17060, 19067,
19434, 19922, 20714, 22087, 23239,
26303, 28871, 29310, 31155, 33414,
33416, 33420, 33436, 36495, 37037,
43913, 46988, 48251, 52580, 53220,
53246, 53820, 53838, 54747, 59573,
59581, 59584, 59768.
(Birt án ábyrgðar)
Um þingmál o. fl.
(Framhald af blaðsíðu 1).
að framkvæma nýjar sunn-
lenzkar stórvirkjanir, samtals
5—6 sinnum stærri en Sogs-
virkjun, sem er 90—10 þús. kw.
Áður en þessi stjóm kom til
valda, stóðu vonir til að næsta
stórvirkjun á eftir Soginu yrði
á Norðurlandi. En eftir 12 ár
geta Norðlendingar tekið undir
það, sem segir í þjóðsögunni:
„Ég þarf ekki að þakka. / Ég
fékk ekki að smakka.“
Sá hlutur, sem okkur Norð-
lendingum var úrskurðaður í
virkjunarframkvæmdum, hefur
hingað til flutt í þennan lands-
hluta illdeilur og sundrung í
stað raforku og gert vandamál
okkar Norðlendinga að alls-
herjar skotspæni. En vonir
manna um að núverandi raf-
orkumálaráðherra geti leyst
þessi mál á skaplegan hátt, hafa
enn ekki rætzt. En í lengstu
lög verður að gera ráð fyrir
því, að þeim stjórnarvöldum,
sem ráðið hafa þróun virkjunar
mála á síðasta áratug, takist að
leysa þá hnúta, er hnýttir hafa
verið með þeirra forsjá. En eng-
inn ætti, eins og nú er komið,
að ofmeta aðstöðu sína í þessu
máli. p
BLAÐASKÁKIN
Tíminn - Dagur
Hvítt: Gunnar Gunnarsson og
Trausti Bjömsson.
Svart: Jóhann Snorrason og
- I boði Húsmæðraskólans.
(Framhald af blaðsíðu 5).
fyrir stofnunina. Fyrrverandi
skólastjóri, Lena Hallgrímsdótt
ir, er var með okkur þennan
dag, talaði um skólann og
hvatti nemendur til starfs og
dáða, hver stund væri dýrmæt
og kæmi ekki aftur. Eftir lang-
an starfsdag cr skólinn henni
kær og allt er varðar veg hans
og viðgang.
Við konur er gistum Hús-
mæðraskólann, þökkum skóla-
stjóra, kennurum, presthjónun-
um á Laugalandi og nemendum
ánægjulegar samverustundir.
Það er álit okkar að hvaða
menntun sem konur annars
hljóta, er nám í húsmæðraskól-
um gott veganesti hverri ungri
konu.
Guð blessi Laugalandsskól-
ann í nútíð og framtíð.
Við sendum kveðju okkar
suður yfir fjöljin til frú Jónínu
Björnsdóttur og séra Benja-
míns Kristjánssonar, þau áttu
ríkan þátt í mótun og menningu
Húsmæðraskólans á Lauga-
landi.
Kvenfélagskonur.
Margeir Steingrímsson.
1. d2—d4 Rg8—f6
2. c2—c4 e7—e6
3. Rbl—c3 d7—d5
4. c4xd5 e6xd5
5. Bcl—g5 Rb8—d7
6. e2—e3 c7—c6
7. Bfl—d3 ÍBf8—e7
8. Ddl—c2 Rf6—h5
9. Bg5x(J7 lSd8xe7
10. O—O—O Rd7—f6
11. h2—h3 r Rgl-úfá «7—g6
12. Rh5—g7
13. g2—g4 Bc8—e6
14. Rf3—e5 O I o 1 o
15. f2—á ' Kc8—b8
16. f4—£5 g6xf5
17. g4xf5 • /Bdi6—c8
18. Dc2—f2 Hd8—g8
19. Df2—h4 Rg7—e8
20. Hhl—gl Hg8xgl
21. Hdlxgl De7—f8
22. Rc3—e2 Hh8—g8
23. Re5—g4 Df8—d6
24. Rg4—h6 HgSxglt
25. Re2xgl c7—c5
26. Rh6xf7 Dd6—c7
27. Dh4—f4 Dc7xf4
28. e3xf4 O c-n 1 o
29. Bd3—c2 b7—b5
30. Kcl—d2 Kb8—c7
31. Rgl—f3 a7—a5
32. Rf3—e5 Re8—d6