Dagur - 31.03.1971, Page 5

Dagur - 31.03.1971, Page 5
4 3 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðamiaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Landhelgismál á Alþingi Á ALÞINGI eru komnar fram tvær tillögur um landhelgismál. Hin fym frá formanni Framsóknarflokksins, og formönnum tveggja annana flokka. Hin síðari frá ríkisstjórn- inni. Morgunblaðið hefur í þrem forystugreinum í röð gert tilraun til að útskýra muninn á þessum tveim tillögum, ríkisstjóminni í hag. En útskýringarnar eru vanth'æðalegar, eins og skiljanlegt er. Til þess að skýra meginmun á til- lögu Ólafs Jóhannessonar o. fl. ann- ars vegar og á stjórnartillögunni hins vegar, þarf ekki nema örfá orð. Til- laga Ólafs Jóhannessonar og með- flutningsmanna hans er um það, að tekin verði á þessu þingi ákvörðun um, að segja upp landhelgissamn- ingnum við Breta og V.-Þjóðverja, ef þeir vilja ekki sjálfir falla frá hon- um, og gefa út einhliða yfirlýsingu um 100 mílna mengunarlandltelgi og 50 mílna fiskveiðilandhelgi við ísland eigi síðar en 1. sept. 1972. Tillaga stjómarinnar er um að kjósa nýja nefnd í stað nefndarinn- ar, sem búin er að starfa að því í all- an vetur að gera tillögur um land- helgismálin og klofnaði fyrir viku síðan. En nýja nefndin á að vera skipuð á sama hátt. Morgunblaðið telur það felast í tillögu Ólafs Jóhannessonar, að ís- lendingar vilji ekki virða samninga milli þjóða. Auðvitað virða íslend- ingar slíka samninga, sem þeir em aðilar að. En landhelgissamningur- inn 1961—1962 var óhagstæður fyrir framtíðina og mátti eins og fleiri milliríkjasamningar teljast nauð- ungarsamningur, er hann var gerð- ur. En hann var gerður af löglegri ríkisstjóm og samningsákvæðin því bindandi. En á þeim tíu árum, sem liðin eru, hefur orðið shk gerbreyt- ing í veiðitækni og sókn á Islands- mið, að forsendur samningsins eru brostnar. Þess vegna er rétt og tíma- bært, að segja honum upp af Islands hálfu. Þeir sem á sínum tíma litu svo á, að sambandslagasamningurinn við Dani væri úreltur og úr gildi falíinn vegna breyttra aðstæðna, hljóta að átta sig á því, sem hér er um að ræða. Með tilvísun til landgrunnslag- anna frá 1948, gaf ríkisstjóm tslands tit reglugerð um 12 mílna fiskveiði- landhelgi. Þessi titfærsla var ]>á ein- hliða ákvörðun íslendinga. En af því að ísland og fleiri ríki hafa tekið sér slíka fiskveiðilandltelgi og fram- (Framhald á blaðsíðu 7) UM síðustu helgi var á Akur- eyri haldin ráðstefna um ferða- mál á vegum Kjördæmissam- bands Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra og Framsóknarfélags Reykja- víkur. Ráðstefna þessi var hald in á Hótel Varðborg og fjallaði hún einkum um framtíðarþró- un íslenzkra ferðamála. Hófst hún árdegis á laugardag en lauk síðdegis á sunnudaginn. Um 70 manns sóttu hana og fór hún ágætlega fram. Sigurður Jóliannesson for- stjóri á Akureyri setti ráðstefn una, bauð gesti velkomna og fór nokkrum orðum um tilefni hennar og tilgang, en síðan var þeirri dagskrá fram haldið, er auglýst hafði verið. Einar Ágústsson alþingismað- ur var fyrsti ræðumaður ferða- málaráðstefnunnar. Fagnaði hann því, að þessi nýja og vax- andi grein atvinnumála væri efni þeirrar ráðstefnu, sem hér væri hafin, auk þess sem jafnan væri ánægjulegt að koma til höfuðstaðar Norðurlands og lærdómsríkt. Hann sagði, að Akureyri væri einn þeirra staða á landinu, sem ]>yrfti að efla, og minntist baráttu Gísla Guðmundssonar alþingismanns fyrir jafnvægi í byggð landsins. Fyrir nokkrum árum hefði slík kenning verið nefnd „Fram- sóknarmennska“ í niðrandi merkingu og sú stefna átt sér fáa formælendur. Nú virtust margir keppast við að tileinka sér þessar sömu hugmyndir og væri það vel. íslendingar yrðu að byggja landið allt, sem byggi legt væri og nýta gæði þess. Einar vék því næst að ferða- málum, sem verðandi atvinnu- grein, taldi skilning enn of lít- inn á þeim málum, en þó vax- andi. Hann sagði, að náttúra landsins laðaði hingað ferða- menn, en ferðamannaþjónusta, sem atvinnugrein, krefðist mikils starfs og einnig mikils fjármagns. Þá fyrst yrði ferða- mannaþjónustan veruleg og tæki sess meðal atvinnugreina þjóðarinnar, að svo væri að henni búið, að hún gæti í senn veitt arðsemi og ánægju. Birgir Þórhallsson fram- kvæmdastjóri sagði í stórum dráttum sögu ráðstefnuhalda í heiminum, sem nú eru um þrjú þúsund á ári. Þær væru liður í nauðsynlegum samskiptum þjóða á óteljandi sviðum mann- lífsins. Til ráðstefnuhalds þyrftu viss grundvallarskilyrði að vera fyrir hendi, svo sem húsnæði til þing- eða funda- haldanna sjálfra, gisti- og veit- ingahús, túlka, margskonar sér- menntað starfsfólk og margt fleira. Þá væri lega ráðstefnu- staðar mikilvæg frá sjónarmiði samgangna, loftslag og um- hverfi, aðstaða til að njóta lista og skemmtana o. s. frv. Hér á íslandi hagaði svo til, að við þyrftum nauðsynlega að lengja ferðamannatímann og því væri ráðstefnuhald kærkom ið á öðrum tímum en helztu ferðamánuðina. íslendingar væru aðilar að fjölmörgum al- þjóðasamtökum og gætu haft áhrif í þá átt að kynna mögu- leika lands síns til ráðstefnu- halds. En ræðumaður benti á, að nauðsynlegt væri, að yfir- stjórn ferðamálanna væri sem mest á einni hendi, sem stöðugt ynni að þessum málum. Hann benti alveg sérstaklega á, að hér væru hin ákjósanlegustu skilyrði til að halda bókmennta ráðstefnur og þá ekki síður jarð fræðilegar ráðstefnur. Þá ræddi Birgir nokkuð nýt- ingu félagsheimila og skóla í sambandi við ferðamannamót- tökur og minntist á væntanleg- an menntaskóla á Austurlandi, sem gæti orðið ferðamálum mikilvægur á sumrin. Þá bar hann fram hugmynd um verzl- unarskóla í Mývatnssveit. Rakti hann síðan hagfræðilegar niður stöður ferðamála frá ýmsum löndum, þar sem erlendur gjald eyrir streymir inn með ráð- stefnuhaldi. Birgir taldi, að rannsaka þyrfti alla þætti ferða mála hér á landi, af einhverjum ákveðnum aðila er treysta mætti, og skipuleggja síðan starfið á breiðum grunni. Hann taldi ráðstefnuhald á íslandi eiga mikla framtíð og benti á, að kyrrð og heilnæmt umhverfi varni meðal þeirra þátta, sem vaxandi vinsælda nytu, þegar ráðstefnur væru ákveðnar. Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi Fí lagði mikla áherlzu á, að við þyrftum að halda landi okkar hreinu og benti á margt það er betur má fara, bæði í byggð og uppi í óbyggðum. Er- lendir ferðamenn rækju strax augun í ruslið, sem of mikið væri af í sveit og við sjó, bæði við heimili og vinnustaði. Við gætum sjálf horft frarn hjá þessu að vissu marki, þegar við litum samtímis á dugnað og Einar Ágústsson. hönd gestanna. Síðan var ráð- stefnunni fram haldið í Hótel Vorðborg. Kristinn Finnboga- son tók nú við fundarstjórn. Heimir Hannesson lögfræð- ingur var næsti ræðumaður. Hann lagði áherzlu á, að aukið skipulag ferðamála og aukið fjármagn til þeirra, væri höfuð- kjark, og hið þrotlausa starf fólksins í þessum stéttum, en það gerðu útlendingar ekki. Þá benti Sveinn á einhæfni at- vinnuvega okkar og sagði að ferðamálin væru þegar orðin atvinnugrein hér á landi og gæti orðið það í miklu meira mæli ef rétt væri á málum haldið. Ræðumaður minnti á tilraun Fí í því efni að njóta aðstoðar sveitaheimila við móttöku er- lendra gesta. En á síðasta sumri veittu 14 sveitabæir þessa þjón- ustu og gafst vel. Nú undirbýr Fí að leigja sumarbústaði í sama skyni, sagði Sveinn, og taldi þá ekki síður geta þjónað sínu hlutverki við gestamóttök- una, en sjóbúðirnar í Lofoten. Þegar Sveinn Sæmundsson hafði lokið máli sínu, var til- kynnt, að Kaupfélag Eyfirðinga byði ráðstefnugestum til há- degisverðar á Hótel KEA og var haldið þangað. Þar tók Val- ur Arnþórsson á móti gestun- um og í þessu hádegisverðar- boði flutti Bjarni Einarsson bæjarstjóri ávarp. Bjami Einarsson lagði áherzlu á, að byggja þyrfti upp nýja atvinnuvegi. Gera mætti ferðamannaþjónustu stórat- vinnuveg og þar stæði Akur- eyri vel að vígi. Hann nefndi í því sambandi Hlíðarfjall, að- stöðu til siglinga og veiða á sjó, lax- og silungsveiðar, ferðalög frá Akureyri á sjó og landi, hótel og skemmtistaði. En Norð urland, sem ein heild, byði upp á þrotlausa möguleika til að laða hingað erlenda ferðamenn og gæti veitt þeim nauðsynlega fyrirgreiðslu. Hann nefndi Dal- vík, Hrísey og Olafsfjörð, sem heppilega staði til að fara frá í lengri og styttri sjóveiðiferðir, einnig Drang, sem hentugt skip til sjóferða. Ferðamálin eiga að vera einn þáttur í uppbyggingu atvinnulífsins í heild, sagði hann að lokum. Að þessari ræðu bæj’arstjór- ans lokinni, kvaddi Einar Ágústsson sér hljóðs og þakk- aði hið ágæta boð KEA fyrir nauðsyn. Ferðamálin væru stór atvinnuvegur í heiminum, og hvarvetna vaxandi, þar sem af- koma fólks væri góð og batn- andi, beggja megin Atlantshafs- ins. Og ennfremur sagði hann, að það væri yfirlýst stefna fjöl- margra peningastofnana, að styðja þennan þátt atvinnumála í hinum ýmsu löndum. Fátt væri betra til að bæta sambúð menningarleg og hagræn við- skipti þeirra en ferðamálin, og það væri einmitt þetta sjónar- mið, sem verulegan þátt ætti í hinu jákvæða viðhorfi peninga- stofnana, auk þess sem vel upp byggð þjónusta við ferðamenn þjóða og auka hverskonar gæfi miklar tekjur. Þá benti ræðumaður á, að á síðasta ári hefðu þúsund ferða- menn heimsótt ísland til jafn- aðar á hverri viku, eða 52 þús- und yfir allt árið. Gjaldeyris- tekjur af ferðamönnum væru nú þegar umtalsverðar og færu vaxandi með ári hverju, árið 1969 680 millj. kr. tekjur af ferðamönnum og mun meira síðasta ár eða um 990 millj. kr. Þá gagnrýndi Heimir mjög yfirstjórn ferðamála hér á landi og sagði, að þar veitti viðkom- Heimir Hannesson. (Framhald af blaðsíðu 1) Stokkseyrar og Eyrarbakka mun ekki enn ná eitt þúsund manns. Leiðin milli þessara staða mundi styttast um 40 km. ef þessi brú yrði byggð. En þess ir staðir hafa veg sín á milli, sem er yfirleitt sæmilega fær. Þó að æskilegt sé að gera þessa framkvæmd áður en langt um líður, þá má slá því föstu, að aðrar samgönguframkvæmdir eru ennþá nauðsynlegri, og verða að ganga fyrir. Eða finnst mönnum það réttlátt og telja þeir það hagsýni að láta slíka framkvæmd ganga fyrir upp- byggingu veganna í þeim hér- uðum, sem enga vegi hafa, sem hægt er að kalla því nafni? Hvernig er t. d. Ólafsfjarðar- vegurinn, það er að segja veg- urinn sem tengir saman allar byggðir Eyjafjarðar að vestan- verðu við Akureyri? Þessi veg- ur er sokkinn víða niður í mýr- arnar, en þó liggur hann um snjóþyngstu byggðir landsins, enda er þessi vegur ófær lang- tímum saman, og sé honum haldið opnum, kostar það mikla fjármuni í venjulegri vetrar- veðráttu. Þessi vegur þjónar þörfum margra byggðarlaga með mikla framleiðslu og enn meiri framleiðslugetu, séu möguleikarnir fullnýttir. íbúar þessa svæðis eru yfir 3000. Þennan veg þarf að byggja upp að mestu leyti og það þolir enga bið. Það verður ekki gert nema að til komi sérstakt lánsfé. eins og hefur verið gert og er fyrir- hugað með uppbyggingu aðal- vega landsins. Til þess að byggja upp þennan veg mundi nægja sem svarar Vt af því, er hin fyrirhugaða brú yfir Olfus- árósa mundi kosta. Fjármagn í þennan veg verður að útvega nú þegar, og hefja framkvæmd- ir í sumar. Þó að valdhafarnir telji á því öll tormerki að fá fjármagn nú til þessarar vega- gerðar og beri ýmsu við í því sambandi, þá munu íbúar þessa svæðis ekki taka slíkar vifilengj ur góðar og gildar, enda hefur sýnt sig, að þegar vilji er fyrir hendi, þá er fjármagnsútvegun til nauðsynlegra þjóðþrifamála ekki óyfirstíganlegt vandamál, þegar ekki er um að ræða stærri upphæð en þarf til þess- ara framkvæmda. - BVERT STEFNIR? Um veginn austur frá Akur- eyri er sama að segja, nema það að enn hefur ekki verið ákveðið hvar hann verði lagð- ur, og af þeirri ástæðu ekki ger- legt að hefja þar framkvæmdir á þessu ári, þó að fjármagn væri fyrir hendi. Því hefur ver- ið lofað að vegarstæðið frá Ak- ureyri austur yfir Vaðlaheiði verði ákveðið á næsta sumri, og verður að vænta þess að við það verði staðið. Ekki verður unað við það öllu lengur, að lífæðin milli Akureyrar og Húsavíkur sé illfær eða ófær, eins og verið hefur af og til flesta vetur og fram á sumar. Ekki er þó betra ástandið í Norður-Þingeyjarsýslu. Þar eru víða aðeins ruddir vegir, t. d. um 15 km. af leiðinni frá Kópa- skeri að Lóni í Kelduhverfi, mest allur vegurinn frá Raufar- höfn til Leirhafnar og langur kafli á milli Kollavíkur og Sævarlands, en til þess vegar hefur verið veitt fjármagn á vegaáætlun árið 1972, sem nægja á til að ljúka honum. En þar sem enginn læknir er nú í Norður-Þingeyjarsýslu þá ættu allir að sjá hvað brýnt það er, að byggja upp þessa vegi og halda þeim opnum sé þess nokk ur kostur. Ef vegasjóður á að standa undir uppbyggingu þessara vega, og skipting þess fjár- magns, er til hans kemur hverju sinni verður með líkum hætti og nú er, verður lítið búið af þessari vegagerð í lok þessa áratugar. Þó mundu allar þær vegaframkvæmdir, sem hér hafa verið taldar, ekki kosta mikið meira en brúin yfir Ölfusárósa. Samgöngumálaráðherra lýsti yfir stefnu sinni í þessúm mál- um á Alþingi fyrir skömmu. Hann taldi að fyrir öllu ætti að ganga gerð hraðbrauta með varanlegu slitlagi á umferðar- mestu vegum landsins. Héruð- in sem enga vegi hafa eða það lélega að þeir koma að takmörk uðu gagni yrðu að bíða betri tíma, eða þar til að þeim kæmi. Þá vitum við Norðlendingar það, hvers er að vænta í þess- um efnum, ef þessi ráðherra ræður stefnunni í vegamálum framvegis. Hins vegar ber að fagna því, en óþarft að þakka, að á framkvæmdaáætlun þessa árs er áætlað 50 milljónir króna til hraðbrautafram- kvæmda á Akureyri. Mun þetta fjármagn verða notað í vegarkaflann frá Höphner fram fyrir flugvallarafleggjara og til brúargerðar á Glerá, sem ekki er vanþörf á að byggja. En ekki veitti heldur af að byggja brú yfir Lónið norðan Akureyrar. Þar er þröng gömul brú, en breiður vegur beggja vegna og blindhæð fast við. Á þessum stað hafa orðið mörg slys, og því mál til komið að endur- byggja þessa brú. Það er almenn skoðun við Eyjafjörð, að viðhald vega hafi verið lakara þar en í öðrum héruðum landsins. Eyfirzkir vegir voru byggðir áður en véla öldin hóf innreið sína, aðeins smákaflar hafa verið endur- byggðir siðan. Byggðin er þétt og framleiðsla mikil. Það segir sig sjálft að gamlir, signir og úr sér gengnir vegir með miklu álagi þurfa meira viðhald en ný uppbyggðir vegir. Og sjón er sögu ríkari. Þegar veghaflar jafna þessa vegi kemur í ljós, að malarlagið er það þunnt, að moldin kemur upp á yfirborðið, enda fara þeir í svað á hverju vori. Á síðasta vori var ástand Birgir Þórhallsson. andi ráðuneyti lélega forystu. Hann sagði, að gera þyrfti grundvallarbreytingar á starf- semi Ferðamálaráðs, fjölga þar hæfum mönnum og veita því svo fjármuni og völd. Mætti vel hugsa sér, að þá þróuðust ferða mál eðlilega og í líkingu við það, sem gerðist í nágranna- löndunum. Hann sagði, að Ferðamálasjóður fengi eina millj. kr. á ári á fjárlögum. Þessi sjóður væri því að heita mætti óstarfhæf stofunu vegna fjárskorts og alls vanmegnugur að rækja starf sitt. Sigurður Magnússon blaða- fulltrúi Loftleiða tók næstur til máls og þakkaði í upphafi ræðu sinnar þann myndarskap Fram- sóknarmanna að halda þessa ráðstefnu og að gefa sér þess kost, að taka þátt í henni. Síð- Sigurður Jóhannesson. gefa þjóðum eða einstökum héruðum margra landa miklar og árlegar tekjur fyrir - veitta þjónustu við nútíma ferðafólk. Nú þegar kæmu 7% af-gjald- eyristekjum íslendinga; frá ferðamönnugi, ferðamanna- stráumurinn yxi árlega og eng- um væri hagur í því að látast ekki sjá þessa öru þróun. For- vitni friðsamra borgara knýr þá í vaxandi mæli til að ferðast og sjá önnur lönd og fólk annarra þjóða. Tekjuöflun þeirra leyfir það í stórum hlútum heims, að fólk ferðist án' annars erindis cn að sjá sig um, kynnast öðr- um þjóðum og stækkai sjón- deildarhring sinn, sagði ræðu- maður. ; Vandi sá, sem íslendingar verða að leysa í sambandi við ferðamálin er margþættur. En fyrst af öliu þyrftu menn þó að gera sér grein fyrir því, hve mikið af ferðafólki er æskilegt að streymi inn í landið á ári, og hve hröð þróunin væri æskileg- ust? Land okkar býður engan þann hlut éinán, sem önnur lönd eiga ekkl. En ísland getur boðið ferðamönnum mjög margt eftirsóknarvert -í einu landi og það gefur okkur mik- Hann líkti henni við verk- smiðju, þar sem hinir einstöku hlutir eru settir saman. Svo væri það um skipulagningu ferðanna. Síðan kæmi sölustarf- semin til. Fyrst hefði Ferða- skrifstofa ríkisins haft einka- leyfi á því að taka á móti er- lendu ferðafólki. Nú hefðu aðr- ar ferðaskrifstofur jafnan rétt og þyrfti svo að vera. Ræðumaður sagðist þess full- viss, að ísland gæti orðið mikið ferðamannaland. Það væri að mestu á okkar valdi sjálfra, að móta þessa nýju atvinnugrein, í samvinnu við erlenda aðila, en möguleikarnir væru fyrir hendi, miklir möguleikar. Að framsöguerindum loknum hófust almennar umræður og tók þá Ingi Tryggvason við fundarstjórn. □ inn styrk í samkeppninni við aðra. Við eigum ís og snjó, hveri og laugar, hraun og fossa, friðsældina og hreina loftið í náttúru þess lands, sem féll í okkar erfðahlut, mælti ræðu- maður. Við eigum einnig mis- lynda veðráttu, sem okkur þyk- ir oft óvægin við aðal atvinnu- vegi okkar, sjávarútveg og land búnað. En fyrir útlenda menn eru hregg og harðviðri hrein- asta ævintýri, og þeir eru ekki almennilega komnir inn í hótel sitt að kveldi eftir slíkan dag hér á íslandi, þegar þeir eru farnir að segja hinar furðuleg- ustu hetju- og svaðilfarasögur af sér, jafnvel þeim, sem voru í sama bíl. Hvernig haldið þið að sögurnar verði þegar þessir menn koma heim til sín? Við getum tryggt hluta af tekjum okkar af ferðamönnum, sagði ræðumaður. Það er ekki ótryggara en aðrir atvinnuveg- ir. En dýrtíðardraugurinn gerir þessi mál öll ákaflega erfið. Kaup- og verðlagshækkanir geta eyðilegt fyrir okkur mikið starf. Dýrtíðin getur bókstaf- lega leikið okkur svo, að hótel- in standi auð og tóm. Guðni Þórðarson forstjóri lýsti starfi ferðaskrifstofu. Sigurður Magnússon. Guðni Þórðarson. Helgi Rain Offesen Fæddur 2. apríl 1955. — Dáinn 18. marz 1971. KVEÐJA frá bekkjarsystkiniim Sveinn Sæniundsson. an sagði hann, að fyrrum hefðu menn því aðeins farið í ferða- lög, að þeir ættu sérstök erindi að rækja. Þá hefði njóttaka ferðamanna verið nauðþurftar- þjónusta. Þeir sem ferðuðust erindislaust voru flækingar og jafnvel yandræðamenn. Nú hafa hins yegar verið stigin risa skref í nútím.a „túrisnja“, sem HANN Helgi er dáinn. Fréttin um lát hans kom eins og reiðar- slag. Er við settumst í landsprófs- deild í haust 29 krakkar, sem horfðum fram á veginn til próf- anna, óraði okkur ekki fyrir öðru, en við myndum öll fylgj- ast að til vors. En svo fór þó ekki. Á unglingsárum er dauðinn órafjarlægt hugtak, og því er erfitt að skilja, að Helga skuli hafa verið kippt burtu í blóma lífsins. Helgi var fremur dulur í skapi, en vinfastur og drengur góður í raun, í góðri og gamalli merkingu þess orðs. Helgi var gæddur afbragðs gáfum og skoðanir hans voru fastmótað- ar. Hann var prúður og dagfars góður í skólanum og vildi aldrei vamm sitt vita. Þessi fátæklegu orð er hinzta kveðja okkar til horfins skólabróður. Við vottum foreldrum og syst kinum Helga dýpstu samúð okkar og biðjum Guð að vera þeim stoð, í sorg sinni. . Bekkjarsystkini. veganna með versta móti. Ekki var það óalgengt að hálfhlaðnir mjólkurbílar með drif á öllum hjólum stæðu fastir í hvörfur- um, og ekki var komist um suma vegarkaflana nema á dráttarvélum. Áburður komst ekki til margra bænda fyrr eu seint í júnímánuði. Er svo nokkur furða, þó ao við norðanmenn séum ekki ánægðir með framvindu þess- ara mála, ekki sízt þegar það e : staðfest á Alþingi af þeim rað- herra, sem þessi mál heyra und ir, að þetta sé stefnan í vega- málunum. Við fyrir norðan eig- um að bíða þess tíma, að búiö sé að byggja varanlega vegí, þar sem umferðin er meiri, þó að ástandið í vegamálum okka - sé eins og að framan greinir. En þó kemur í ljós, þegar bei- ur er að gáð, að gerðar eru und- antekningar frá þessari reglu, ef um er að ræða vegi í kjöi ■ dæmi samgöngumálaráðherr • ans. í skýrslu hans um fran. ■ kvæmd vegaáætlunar fyrir síð ■ asta ár kemur fram, að þrjár milljónir króna hafi verið tekn- ar að láni í Seðlabankanum ti.i nauðsynlegra viðgerða á Lands; vegi, sem hafði orðið illa út. vegna óvenjulegrar og óvænti ■ ar umferðar vegna Heklugoss- ins, eins og segir í skýrslunni. Ég hefði haldið, að í augum venjulegra manna skipti þao ekki máli hvers vegna einhve:’ tiltekinn vegur er í slæmu ástandi, heldur það, að ástand hans sé þannig, að viðgerð sf ekki hægt að slá á frest. Viö getum sleppt því, að það var a valdi vegamálaskrifstofunna .• að banna umferð um Landsveg, eins og aðra vegi, nema fyri:.’ mjólkurbifreiðar með takmark- aðan þunga. Og hinu líka, ao þessi vegur hafi ekki verið eins illa farinn í fyrravor eins og eyfirzku vegirnir. Um þao atriði er mér kunnugt því að ég fór þennan veg á þessum tíma á fólksbíl og gekk það vel. Þar þurfti ekki bifreiðar með drif á öllum hjólum. Hinu neita ég ekki að full þörf hafi verið á viðgerð þessa vegar og sjálf- sagt að gera það, en það tel ég að engu síður hafi verið meö eyfirzku vegina. En munurinr. var sá, að samgöngumálaráð- herra sló lán í Landsveginn er. eyfirzku bændurnir fengu ekk'. viðgerð á sínum vegum nema að útvega sjálfir lánsfé, sem a að greiðast af nýbyggingarfé sömu vega á þessu og næsta ári. Ekki voru þetta 3 milljónir eins og fór til Landsvegarins heldur 1.6 milljónir af 5520 þút- und, sem er á vegaáætlun pessa fjögurra ára tímabils, sem húr. nær yfir, og átti að fara til aö byggja upp einhvern kafla ar þessum lélega vegi. Fyrst vic- gerð Landsvegar var gerð meo þeim hætti, er að framan greit • ir, er það sjálfsögð krata, ao ný- byggingarféð til Eyjafjarðar- brautar verði ekki skert iil aii endurgreiða viðgerðarkostnaÖ • inn á þeim vegi frá síðastliðnu sumri, en i þess stað verði auK- ið viðhaldsfé til greiðslu þess- arar skuldar. Með þessu erum við ekki ao fara fram á annað, en að sama regla gildi þegar gert er vio vegi, sem ekki er hægt að kom- ast hjá að gera við, burtséð frá því, í hvaða kjördæmi þeir eru, Við vitum og skiljum að veg- irnir eru lífæðar byggöanna, við munum ekki sætta okkur við lakari hlut en aðrir. Uppbyggingu veganna vero- ur að hraða. Það er höfuðbat- áttumál okkar á næstu árum, mál sem Norðlendingar verö'a að sameina sig um að knýju fram, hvað sem öðru líður. ,| Stefán Valgeirssoa, [/

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.