Dagur


Dagur - 24.04.1971, Qupperneq 5

Dagur - 24.04.1971, Qupperneq 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Framför landsins alls „FRAMSÓKNARFLOKKURINN leggur liöfuðáherzlu á, að vernda og efla menningarlegt og stjórnarfars- legt sjálfstæði þjóðarinnar.“ Með þessum oi'ðum hefst stjórnmálayfir- lýsing Framsóknarflokksins, sem s;un þykkt var á 15. flokksþingi Fram- sóknarmanna 20. apríl sl. Á eftir þessum upphafsorðum seg- ir svo í fyrsta kafla hennar, að Fram- sóknaiflokkurinn stefni að: 1. Jafnrétti og jafnræði allra þegna þjóðfélagsins. 2. Framför landsins alls. 3. Félagslegri samstöðu um lausn Jijóðfélagsvandamála. 4. Skipulegri uppbyggingu efnaliags lífsins og nýtingu íslenzkra auð- linda. 5. Jafnri aðstöðu til menntunar. 6. Auknum almannatryggingum. 7. Óskertum yfirráðarétti lands- manna yfir atvinnutækjunum. 8. Viðnámi gegn yfirdrottnum fjár- magns og óeðlilegum afskiptum ríkisvaldsins. 9. Útrýmingu misréttis stétta og kynja og milli Jjegnanna eftir bú- setu. í öðrum kafla yfirlýsingarinnar er í uppliafi lögð álierzla á nokkur helztu baráttumál flokksins. Þar er í fremstu röð lögð áherzla á: 1. Að íslendingar segi nú þegar upp landhelgissamningnum við Breta og V.-Þjóðverja frá 1961 og færi fiskveiðilandhelgina út að 50 sjó- mílum frá grunnlínupunktum eigi síðar en 1. sept. 1972. Jafn- framt verði ákveðin 100 sjómílna mengunarlögsaga. 2. Að vinna að framförum í öllum landshlutum og þar með þjóðar- innar allrar, með því að taka landsbyggðarmálin fösturn tök- um. Helztu framfaramálum lands byggðarinnar verði raðað í for- gangsröð á grundvelli fram- kvæmda og fjáröflunar. Sjáh- stjóm einstakra landshluta verði aukið. Einnig er hér rætt um, að ríkisstofnunum verði dreift um landið, eftir því sem unnt er. Mjög athyglisverða má m. a. telja í þriðja kafla ályktun þess efnis, að verulegur hluti Jj j óðvegakerf i si n s verði byggður upp fyrir ríkislán (til að létta á Vegasjóði), sem endur- greiðist af gjaldheimtu ríkissjóðs af umferðinni og gerð verði 10 ára áætlun um að binda enda á vanþró- un íslands í vegamálum. Allt lýtur það, sem hér er talið að „framför landsins alls“, en Jjetta stutta og snjalla kjörorð mun Jónas Jónsson frá Hriflu hafa notað fyrst- ur manna. í þessu felst m. a. að byggja vel landið allt og að efla jafn- vægi milli landshluta. O Tillaga er vekur þjóðarathygli MARGIR munu veita því at- hygli nú, þegar síðasta þing kjörtímabilsins hefur lokið störfum, livernig ríkisstiórn- in og meirihlutinn snýst við til- lögu þeirri, til þingsályktunar, sem Framsóknarmenn hafa lagt fram á Alþingi um að gerð verði 10 ára áætlun um ráð- stafanir til að binda endi á van- þróun íslands í vegamálum. Hraðbrautirnar fyrst. Svo er hægt að snúa sér að öðrum verkefnum, sagði samgöngu- málaráðherra, Ingólfur Jóns- son, þegar hann lagði fram vega áætlunina fyrir skömmu. Þetta er að vísu ekki orðrétt eftir honum haft, heldur efnislega. Og þegar Stefán Valgeirsson vakti athygli á þessari .,stefnu“, varð fátt um svör. Hraðbrautirnar, mestmegnis í nágrenni höfuðborgarinnar, eru 334 km. og 8800 km. í þjóðvega- kerfi, en þær kosta of fjár. A. m. k. er það svo um þann vegarspotta í Mosfellssveit, sem búið er að leggja. Eina hrað- brautin á Norðurlandi er vegar- kaflinn frá Moldhaugnahálsi að vegamótum Svalbarðsstrandar- vegar, og á Austurlandi er áætl uð 2ja km. hraðbraut. Efni tillögunnar. Samkvæmt tillögu Framsókn armanna, ef samþykkt verður, er skorað á ríkisstjórnina að fela Vegagerð ríkisins að láta svo fljótt sem unnt er og ekki síðar en fyrir árslok 1972 gera sundurliðaða kostnaðaráætlun um fullnaðaruppbyggingu þjóð- vegakerfisins á árunum 1973— 82, eða á skemmri tíma, ef fært þætti, enda sé í áaetluninni mið- að við þá gerð vega, sem stefna ber að samkv. 12. og 13. gr. vega laga, nr. 71 30. des. 1963, sbr. 1. nr. 98 1970. Jafnframt lýsi Al- þingi yfir þeim vilja sínum, að eftir að gerð 10 ára áætlunar- innar er lokið, skuli gerð og við hald þjóðvega þannig fjármögn uð, að tekin verði ríkislán til að byggja upp hraðbrautirnar og þær þjóðbrautir, sem mest um- ferðarálag er á, og þannig end- urgreidd þau gjöld, sem ríkis- sjóður hefur tekið eða tekur í sinn hlut af umferð á vegum, en kostnaður við uppbyggingu annarra þjóðvega svo og við- hald og stjórn vegamála greitt úr vegasjóði, þ. e. af fé því, sem innheimt er til vegagerðar sam- kv. vegalögum. Framkvæmda- röð í áætluninni verði við það miðuð, áð landsbyggð haldist og eflist, svo og æskilegt jafn- vægi milli landslilutanna, og að sem fyrst verði dregið úr þeim kostnaði við bifreiðarekstur landsmanna í heild, sem ástand veganna hefur áhrif á. Fjórir milljarðar. Þó að miklar framfarir hafi orðið hér á landi í seinni tíð á ýmsum sviðum, er ísland enn- þá vanþróað land í vegamálum. Landið er stórt og vegalengdir miklar miðað við fólksfjölda, og síðasta áratuginn a. m. k. hefur ekki verið fylgt þeirri stefnu að verja öllum tekjum af umferð- inni til þess að koma vegakerf- inu í nútímahorf. Vegasjóður fær að vísu í sinn hlut síðan 1963 tekjumar af benzínskatti, bifreiðaskatti og gúmmígjaldi, en innflutningsgjöld af bifreið- um og bifreiðavörum svo og leyfisgjöld hafa runnið í ríkis- sjóð. Skýrt hefur verið frá því á Alþingi og staðfest af Félagi ísl. bifreiðaeigenda, að þessar tekjur af umferðinni, sem runn- ið hafa í ríkissjóð, hafi fyrir einu ári eða svo numið samtals um 4000 millj. kr. öll árin, sem hér er um að ræða, ogúiemi nú árlega nokkrum hundruðum milljóna. Ekki er þess að vænta, að ríkissjóður geti end- urgreitt þessa upphæð með skjótum hætti eða að fjármála- stjórn rikisins sé reiðubúin til að afhenda vegasjóði umrædd tolla- og leyfisgjald þegar á næstunni, enda kann það að vera einhverjum vandkvæðum bundið í framkvæmd að greina á milli tolla í þessu sambandi. Ríkissjóður greiði skuld. Hitt mun betur framkvæman legt, að ríkissjóður taki að sér tiltekinn hluta af vegakerfinu, afli lánsfjár til langs tíma til framkvæmdanna, standi síðan straum af afborgunum og vöxt- um framvegis og greiði þannig á nokkuð löngum tíma meira eða minna af skuld sinni við „umferðina“, svo og það, sem í hans hlut kemur af gjöldum af umferðinni. Ætti þá ríkissjóður að taka að sér þann hluta vega- kerfisins, sem nú er talið að hægt sé að fá lán til erlendis — þó að nokkuð af fénu fáist von- andi innanlands —, og er þar samkvæmt upplýsingum stjórn arvalda einkum um hraðbraut- imar að ræða, en lántökumög'u leikarnir byggjast á því, að tal- ið er af sérfróðum mönnum er- lendum og innlendum, að fjár- magn, sem lagt sé í hraðbraut- irnar, skili álitlegum hagnaði, þegar tekinn er með í reikning- inn sá sparnaður í viðhaldi og rekstri bifreiða, sem uppbygg- ing hraðbrauta með endingar- góðu slitlagi mundi hafa í för með sér. , Þjóðvegakerfið er 8800 km. Samkvæmt skýrslum Vega- gerðar ríkisins var flokkun og lengd þjóðveganna sem hér segir í árslok 1969: km. Hraðbrautir ............ 334.4 Þjóðbrautir ........... 2756.3 Landsbrautir .......... 5621.0 Þjóðvegir í þéttbýli .... 97.8 Samtals 8809.5 Þjóðvegir í þéttbýli skiptist milli aðalflokkanna þriggja. Til þeirra er varið tilteknum hluta af tekjum vegasjóðs samkvæmt V. kafla vegalaganna frá 1963. Samanlögð lengd sýsluvega var í árslok 1969 2571 km., og fá sýsluvegasjóðir tekjur í héruð- um og einnig samkvæmt IV. kafla vega laganna frá 1963, sbr. lög nr. 98 frá 1970. 10 ára áætlun. Nauðsyn ber til að gera sér grein fyrir því, hve stórt það viðfangsefni er, sem þjóðin tek- ur sér fyrir hendur, ef hún færist það í fang að koma þjóð- vegakerfinu í heild í viðunandi horf og þar með gera þá hring- braut um landið, sem að jafn- aði mætti teljast fær árið um kring, sbr. t. d. ályktun kjör- dæmisþings Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem gerð var í öndverðu eftir tillögu Jóns Sigurðssonar á Yztafelli, um ’ slíka „hring- braut“. 1 þessari tillögu er gert ráð fyrir, að þetta viðfangsefni verði leyst af hendi á 10 árum og að sá árafjöldi verði lagður til grundvallar við áætlunar- gerð, sem ríkisstjórnin feli Vegagerð ríkisins að fram- kvæma, þannig að áætlunar- gerðinni verði lokið fyrir árs- lok 1972. Áætlunin ætti því sam kvæmt tillögunni að fjalla um fullnaðaruppbyg'gingu þjóðvega kerfisins á árunum 1973—1982, að báðum meðtöldum, og er nánar um það fjallað í tillög'- unni, hvaða gerð vega skuli miða við. Sýnist þá rétt að miða við þá gerð vega, sem gert er ráð fyrir í gildandi vegalögum og reglugerðum samkvæmt þeim lögum. Fjármögnun. Tillagan fjallar einnig um það, sem fyrr var að vikið í þessari greinargerð, að ríkis- sjóður taki að sér hluta vega- kerfisins. Er þar gert ráð fyrir viljayfirlýsingu Alþingis um fjármögnun 10 ára áætlunar- innar, þannig að fjár til hrað- brautanna verði aflað með töku lána til langs tíma, sem ríkis- sjóður, en ekki vegasjóður, standi straum af. Rétt þykir að athuguðu máli, að ríkislán verði einnig tekin til þeirra þjóðbrauta, þar sem umferðar- álag er mest, og yrðu mörkin þá væntanlega nánar tiltekin í áætluninni. Eru þá m. a. hafðir í huga vegir, sem nefna má „framleiðsluvegi“. Mikill hluti þjóðbrautanna og landsbraut- irnar mundu þá koma í hlut vegasjóðs, svo og vegaviðhaldið og stjórn vegamála. Varðandi það, sem sagt er í tillögunni um röðun vega í áætlun, má m. a. telja eðlilegt, að sérstakt tillit verði tekið til landshluta, þar sem algengt er, að þjóðvegir teppist af snjó eða miklu fé þarf nú að verja til snjómokst- urs flest ár. Um -það er erfitt að spá nú, bver muni vcrða heildarupp- hæð slíkra tíu ára áætlana sem hér er um að ræðá í krónum talin, enda er verðlag óstöðugt hér á landi. Maður, sem ;er vel að sér í vegamálum, gizkaði á 8—10 milljarða á opinberum fundi nýlega, miðað við nokkr- ar forsendur og núverandi verð lag. Ætla má, að sú upphæð reynist fremur of lág en of há. En geta má þess til samanburð- ar, að niðurstöðutala fjárlaga ríkisins fyrir árið 1971 er ca. 11.5 milljarðar og er vegasjóð- urinn (nál. 900 milljónir) í þeirri tölu. Að horfast í augu við viðfangs- efnið. Tillögu svipaðs efnis fluttu flutningsmenn þessarar tillögu á Alþingi 1967, og náði hún þá ekki fram að ganga. En fyrr eða síðar verður Alþingi og þjóðin að horfast í augu við það við- fangsefni, sem framundan er í vegamálum, og gera upp við sig, hvað viðunandi sé og fært í þessum efnum. Það er vand- ræðaleið að bæta við bifreiða- gjöldin hækkun á hækkun ofan án þess að geta jafnframt gert (Framh. á bls. 7) Þeir riðu á va Sviptnynd á æfingu „Sandkassans“. (Ljósmyndastofa Páls) Átíiyglisverður Sandkassi LEIKFÉLAG AKUREYRAR frumsýndi á þriðjudagskvöldið, sænska leikritið Sandkassann. Því miður er ekki hægt að segja, að viðstöddu fjölmenni, en við góðar undirtektir. Sandkassinn er aðeins þriggja ára gamalt verk, enda nýtízku- legt í sniðum. Það hefur verið sýnt við miklar vinsældir í mörgum leikhúsum á Norður- löndum. Höfundurinn heitir Kent Anderson, en Stefán Bald- <■■■. 1 j .‘'•7*7r77,TlTl!lT,,Tll.,V'.' OPIÐ BRÉF Ég get aldrei þagað, þegar sagt er svart, það sem ég er sannfærður um, að er hvítt, en það finnst mér gert, þegar reynt er að telja almenningi trú um, að dýrafita sé varasöm til matar. Myndir, sem sýndar voru í sjónvarpinu í vetur, undirstrik- uðu rækilega muninn á því að lifa á innlendu kjarnafæði og útlendri verksmiðjuframleiðslu. En áframhaldið vantaði, því enginn þarf að halda, að tenn- urnar séu það eina, sem sykur- fæðið eyðileggur, heldur spillir það starfsemi líkamans allri, sjúkdómar taka við hver af öðr- um og krabbameinið er svo lokastigið, eins og náttúrulækn ar hafa fyrir löngu lýst yfir, að þeir hafi óhrekjandi sannanir fyrir. Á þessari þróun áttaði ég mig ekki, en mátti þó vita, að áróð- urinn gegn kjöti og dýrafitu gat ekki staðizt, því íslendingar væru löngu útdauðir, ef hann hefði við rök að styðjast, því fitan hefur haldið lífinu í þjóð- inni frá upphafi. í öðru lagi hefur sannazt með samanburðartilraunum, bæði í Englandi og Ameríku, að dýra- fitan hjálpar til að lækna djúk- dóma þá er hún var talin valda. f þriðja lagi sannfærðist ég af eigin reynslu undanfarinna ára, að dýrafita er mér ómissandi. Hún læknaði mig á fáum dög- um af kölkun í öllum liðamót- um, er sérfræðingar töldu ólæknandi og vissu ekki af hverju stafaði, en ég tók þar eftir reynslu vísindamannsins Vilhjálms Stefánssonar. Það var engin smáræðis breyting fyrir mig, frá því að vera svo aumur, að geta engan veginn látið mér líða sæmilega og til þess að vera laus við alla vanlíðan, og það enn, eftir 5 ár. Það er því vonlaust að ætla að telja mig á að minnka fitu- neyzlu, því ég er sannfærður um, að það er hið versta loka- ráð, en með því að lifa á ein- tómri dýrafitu nokkrar daga, má fá betri hreinsun í blóðið, en þá, sem sótt var til Sviss frá íslandi. Þessari íslenzku má halda við, en hin endist ekki vegna þess, að hver fruma lík- amans hleðst af eiturefnum af fæði nútímans, eins og náttúru- læknar komast að orði. Enginn þarf að efast um, að Steingrímur læknir Matthías- son hafði rétt fyrir sér, er hann sagði, að bændur seldu heils- una, ef þeir létu alla mjólkur- fituna burt. Sannast að segja var ég svo viss um ágæti dýrafitunnar, að ég hélt að búið væri að kveða niður drauga þá er magnaðir höfðu verið til höfuðs henni, en það reyndist ekki vera, því einn kom fram í sjónvarpi og ráð- lagði að minnka dýrafitaneyzlu. Sá var nefndur læknir og jafn- vel skreyttur prófessorsnafnbót, en málflutningurinn var svo vesæll, að rökin vantaði, að minnsta kosti heyrði ég þau ekki. Nema það hafi átt að heita rök, að Norðurlandabúar tryðu á svona fullyrðingar, en áftur á móti hafi þessum Sigurði ekki fundizt íslendingar nógu trúað- ir á lygina og því yrði að endur taka hana oftar, minnugur setn- ingar þar að lútandi. En nú hafa ménn sagt við mig, að þetta sé aðeins ómerki- legur smj örlíkisáróður, og út af því kom fram þessi vísa: Læknisheiður lítið metur lætur hann fyrir gervismjör. Skyldi nókkur bjóða betur bjánar væru í þeirri för. Hvernig verður framtíðin, þegar öfædd börnin eru sósuð í tóbakseitrun?3 Þau eru svo alin upp á sælgætí og ofan á kémur svo ölið, sem að minnsta kosti sumt ér svo eitrað, að tennur- leysast upp í þvíref þær liggja í því. Með þessu kemur svo tóbakið og annað jafnvel ennþá 'verra. Þeir sem svona er farið með, n'á hvorki andlegum né líkam- ;legum þroska og er líkast því, að uimið sé skipulega að því að eyðileggja þ'jóðina. Þár með skórá ég á álmenn- 'iri'g að dæma í þessu máli af eigin reynslu. Gunnlaugur Jónsson. Norðurlandsmót í blaki NORÐURLANDSMÓT í blakí var haldfð í íþróttaskemmunni á Akureyri 18. apríl sl. Fjögur lið tóku þátt í keppninni: Ung- mennafélagið Framtíðin, KA, kennarar á Akureyri og ÍMA. Úrslit einstakra leikja urðu: KA — Framtíðin 2—0 ÍMA — Kennarar 2—0 Kennarar — Framtíðin 2—1 ÍMA — KA 2—1 KA — Kennarar 2—0 ÍMA — Frivmtíðin 2—0 ÍMA varð. þvi Norðurlands- meistari í blaki, hlaut 3 stig, í Öðru sæti varð KA með 2 stig, kennarar 3. með 1 stig eg Fram- tíðin 4., hlaut 0 stig. Halldór Jónsson var yfirdóm- ari í öllum leikjum mótsins. Áhorfendur voru fáir. Mót þetta var haldið á vegum ÍBA. (Fréttatilkynning) ursson, sa sem sa um sjónvarps þáttinn „í leikhúsinu“ í fyrra- vetur, hefur íslenzkað leikritið og staðfært nokkuð og hefur það tekizt allvel. Sandkassinn fjallar um upp- eldi barna og ýmis vandamál í því sambandi. Upphaf sýning- arinnar er fæðing barnanna og síðan lifa þau í sandkassanum, spyrja um lífið og tilveruna og fá misjafnlega áreiðanleg svör. Þegar þau svo fara að stækka og sjá, að þeim hefur ekki alltaf verið sagður sannleikurinn, ásaka þau fullorðna fólkið, sem auðvitað hefur gert þetta allt í beztu meiningu. Eftirminnilegt er atriðið, þar sem hópurinn er að ræða um, hvaðan þau hafi eiginlega komið í þennan heim. Börnin bera saman bækur sín- ar og þá kemur í ljós, að eitt var keypt í KEA, annað búið til úr deigi, það þriðja var blóm o. s. frv. Eftir nokkrar bolla- leggingar komust svo börnin að því, að „þarna væri einhver að plata“ og trúðu síðan fullorðna fólkinu ekki meira en svo. Sýningin er bráðfyndin á köflum og hvergi dauður punkt ur, alltaf er eitthvað að gerast, enda er allur hópurinn, 11 manns, á sviðinu allan tímann. Ekkert annað er á sviðinu, enda eru það leikendurnir og það sem þeir hafa að segja, sem skiptir öllu máli. Allt er þetta ungt fólk á aldrinum 16—21 árs, sem hefur tekið þátt í leik- listarnámskeiði Leikfélagsins. Ekki er hægt að ræða um leik- endur hvern fyrir sig, þar sem þeir eru ein heild, sem gerir verkefninu góð skil og ekki verður merktur mikill viðvan- ingsbragur á hlutunum. í leikskrá stendur, að túlkun L. A. á Sandkassanum hafi þrí- þættan tilgang: Að kynna nýtt verk, sem vakið hafi miklar um ræður og hlotið vinsældir, að láta unga leiklistarmenn koma fram sem eina heild og undir- strika þannig samheldni og sam virkni í leiksýningu, og að vekja fólk til umhugsunar um þau mál, sem lúta að börnum og uppeldi þeirra. Áreiðanlegt Athupsemd í SAMBANDI við frétt í 19. tbl. Dags, um 25 ára afmæli Borgar- bíós, skal það tekið fram, að Arnfinnur Arnfinnsson er fram kvæmdastjóri allra fyrirtækja Góðtemplarareglunnar á Akur- eyri, en Björgvin Júníusson er bíóstjóri. □ er, að eftir að hafa séð Sand- kassann, velta margir því fyrir sér, hvort þetta sé í rauninni ekki sannleikurinn, þótt hann virðist óneitanlega kaldranaleg- ur á köflum. Þeir sem leika sér í Sand- kassanum eru: Gísli Gestur Jónasson, Gísli Rúnar Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Guð- laug Bjarnadóttir, Guðmundur Karlsson, Gyða Agnarsdóttir, Ingunn Jósepsdóttir, Jónsteinn Aðalsteinsson, Sólveig Halldórs dóttir, Svanhildur Jóhannes- dóttir og Viðar Eggertsson. — Leikstjóri er Sigmundur Örn, undirleik söngva annast Þor- gerður Eiríksdóttir og lýsingu Aðalsteinn Bergdal. Ákveðið er, að sýningar verði aðeins þrjár og mættu þær tvær sem eftir eru vera betur sóttar en frumsýningin, því Sandkassinn er fyllilega þess virði, að eyða við hann einni kvöldstund. Snjólaug B. NÚ ÞEGAR við fslendingar höfum fengið þá ósk okkar upp- fyllta að fá fyrstu íslenzku hand ritin heim, þá ber okkur að minnast þeirra Dana með þakk- læti, sem alltaf hafa staðið með okkur í handritamálinu og túlk að málstað okkar fyrir dönsku þjóðinni. Einkum ber okkur í því efni að minnast danskra lýð háskólamanna, sem báru málið fyrst fram við dönsk stjórnvöld. I þessum stóra hópi minn- umst við m. a. C. P. O. Christi- ansen, lýðháskólastjóra við Grundtvigsskólann, sem nú er látinn. Hann samdi áskorunina til þjóðþingsins, sem allir dansk ir lýðháskólastjórar undirrit- uðu. Þeir riðu drengilega á vað- ið í þessu mikilvæga máli. Við söknum þess, að Jörgen Bukdahl gat ekki komið heim, og verið við afhendingu hand- ritanna, en hann er nú 75 ára að aldri. Við hjónin heimsóttum hann í Askov fyrir fimm árum og var hann þá vel hress, og gneistaði af orðum hans, er hann skýrði okkur frá sam- vinnu sinni við Bjarna M. Gísla son til að taka málstað okkar í dönskum blöðum. „En nú ræð- um við ekki þetta mál meira, en látum stjórnvöld landsins um framkvæmdina,11 sagði hann. En það er gleðilegt, að J. Th. Arnfred, fyrrv. skólastjóri í Askov skyldi geta komið hing- að og verið við afhendingu handritanna, sem fulltrúi þeirra lýðháskólamanna, er beitt hafa sér fyrir þessari lausn málsins frá upphafi. Þessum hópi ís- landsvina erum við innilega þakklátir. Þá ber okkur einnig að minn- ast þess, að veglyndi Dana gagn vart okkur í þessu máli er ein- stætt í ,samskiptum þjóða. Þess vegna létu Sameinuðu þjóðirn- ar kvikmynda afhendingu þess- ara dýrgripa okkar. Við, sem gátum fylgst með því í sjónvarpinu, þegar hand- ritin að Flateyjarbók og tíæ- mundar-Eddu voru flutt á land í Reykjavík, höfum verið þátt- takendur í hátíðlegum atburði J. Th. Arnfred og frú. og lifað einn af merkustu ai> burðum sögu okkar, er þessa:: gersemar voru afhentar íslenzk. um stjórnvöldum í Háskólabíó', Eiríkur Sigurðsson, - Samk.lag um stækkuu (Framhald af blaðsíðu 81. stækkuninni bætist um 100 sjúkrarúm við, og þá í tvein; álmum, í tveim áföngum. í fyrr.i áfanganum er ráðgert að verðl þjónustudeild og legudeild. Ai: þjónustudeilum má nefna röni ■ gendeild, rannsóknadeild, skurci deild, gjörgæzludeild og endui • hæfingardeild. Þá munu verða í fyrri áfanganum heilsuvernd ■ arstöð og slysadeild. f síðari áfanganum verða handlæki. ■ ingadeild, lyflækningadeilc, geð- og taugadeild og háls-, nei ■ og eyrnasjúkdómadeild. Jafnframt verður eldra hús- næðið endurbætt. Ekki iiggja fyrir tölur um, hvað þessar framkvæmdir eiga að kosta. □ STÆKKUN SHÁBÁTAHAFNARINNAR AÐ undanfömu hefur verið unnið að endurbótum á hafnar- aðstöðu fyrir smábáta í Sand- gerðisbót. Hefur bátadokkin verið stækkuð og dýpkuð og löndunarbryggjan lengd, auk þess sem unnið er að því að koma þar fyrir legufærum. f Sandgerðisbót mun verða sæmi leg aðstaða fyrir um 40 báta. Ráðgerðar em nokkrar endur bætur á smábátadokkinni við slippinn og verða framkvæmdir hafnar þar í vor. Áætlað er að þar verði rými fyrir um 80 báta. Láta mun nærri að á Akur- eyri séu nú um 120 smábátar og ættu því allir að geta fengið legupláss fyrir báta sína að ofan greindum framkvæmdum lokn- um. Um þessar mundir er verið að auglýsa eftir umsóknum um viðlegupláss fyrir smáþáta í Akureyrarhöfn. Þurfa allir þeir, sem hyggjast geyma báta sína í smábátadokkinni í Sandgerðis bót eða við slippinn að sækja um viðlegupláss til Hafnar- stjórnar Akureyrar, á þar til gerðum eyðublöðum. Þeim er hug hafa á að leggja bátum sínum í dokkina við Höepfnersbryggju skal og á það bent að leggja inn umsóknir þar að lútandi. Hafnarstjórn mun hafa náið samstarf við félag smábátaeig- enda um úthlutun legupláss- anna og um niðurröðun bát- anna í dokkirnar. Umsóknareyðublöð verða af- hent á bæjarskrifstofunni og hjá formanni smábátafélagsins Varðar. Á fundi sínum 30. marz sl. samþykkti bæjarstjórn Akur- eyrar eftirfarandi gjaldskrá fyr ir smábáta í Akureyrarhöfn. 1. gr. Fyrir báta minni en 12 brúttó rúmlestir og úthlutað hefur verið leguplássum í smábáta- höfninni skal greiða gjöld sem hér segir: a) Fyrir báta styttri en 6 metra sé greitt árlegt fastagjald kr. 1.000.00. b) Fyrir báta lengri én 6 metra sé greitt árlegt fastagjald kr. 1.500.00. c) Við móttöku legufæris sé greitt móttökugjald kr. 3.000.00. Skili bátseigandi aftur legu- færi, sem hann hefur á leigu innan tveggja ára frá afhend- ingu, fær hann móttökugjaldið endurgreitt að hluta þannig: Skili hann því innan eins árs frá afhendingu endurgreiðast kr. 2.000.00, en kr. 1.000.00 sé því skilað innan tveggja ára frá afhendingu. Gjöld samkvæmt a) og b) lið falla í gjalddaga 2. janúar ár hvert, en gjald samkvæmt c) lið fellur í gjalddaga við móttöku legufæris. Um legu báta og notkun legm færa. 2. gr. Bátseigendum er skylt ao halda vel við legufærum, sem þeir hafa fengið til afnota og endurnýja þau ef þörf krefui'. Hafnarsjóður ber eng'a abyrgo á tjóni er bátar kunna að verða fyrir í smábátahöfninni, t. d. þótt legufæri shtni. 3. gr. Ekki má skipta um bát a Iegu færi, nema með samþykki hafn arstjóra, ennfremur er óheimiiij að framselja legufæri. 4. gr. Hafnarstjórn er heimút aö segja upp leigu leguplass med sex mánaða fyrii-vara. : 5. gr. Stranglega er bannað aö kasta fiski, fiskúrgangi og rusii í smábátahöfnina og á athafna > svæði smábátahafnarinnar. 6. gr. Óheimilt er að leggja bátum við löndunarbryggjur nema -i meðan löndun stendur. Kapp> kosta skal að halda löndunai'” bryggjum ætíð hreinum. < Mikill skortur hefur ■ erið ú lóðum undir verbúðir á undai ■ förnum árum. Er nú í athugui hvort unnt verði að úthluta lóci um undir verbúðir, en telja m \ líklegt að það verði innan tiðar hægt í nágrenni við smábáta- dokkina í Sandgerðisbót. 1

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.